Þjóðviljinn - 26.05.1987, Blaðsíða 7
AFMLÆU
íbúar Egilsstaðabæjar hafa tólffaldast á s.l. 40 árum og gera það líklega áfram á næstu 40 ef veðurblíðan heldur áfram að leika við hvern sinn fingur. (Mynd jis).
Egilsstaðir
Kaupstaðarréttindi á 40 ára afmæli
Egilsstaðabúar héldu upp dfjöru-
tíu ára afmœli kauptúnsins í ein-
stakri blíðu um helgina. Hátíða-
dagskrá í Valaskjálf myndlistar-
sýning og sögusýning opnaðar.
Kauptúnið fékk kaupstaðarrétt-
indi
ýmsum félagasamtökum. Má þar
nefna hringsjá sem Lionsmenn
gáfu og sett hefur verið upp á
Hömrunum fyrir ofan bæinn og
sér yfir allt Fljótsdalshérað frá
henni, 20 blágrenitré og stórt
skilti með korti af Egilsstöðum
frá JC Héraði, örnefnakort yfir
meira en 200 örnefni innan
bæjarmarkanna, fundarhamar
fyrir bæjarstjórnina frá Kvenfé-
laginu Bláklukkunni, en þennan
dag fékk Egilsstaðakauptún
kaupstaðaréttindi. Einnig bárust
gjafir frá einstaklingum.
Tvær sýningar voru opnaðar á
afmælishátíðinni, myndlistarsýn-
ing þar sem fjórir listamenn á Eg-
ilsstöðum, Olöf Blöndal, Helga
Sigurðardóttir, Steinþór Eiríks-
son, en hann er einn af frumbyg-
Blandaður kór undir stjórn Kristjáns Gissurarsonar syngur á afmælishátíðinni.
gjum Egilsstaðakauptúns, og Vil-
hjálmur Einarsson, sýna
teikningar, olíu-, vatnslita- og ol-
íukrítarmyndir. Hin sýningin er
sögu- og skipulagssýning um þró-
un kauptúnsins og eru þar einnig
til sýnis tillögur sem bárust í sam-
keppni um útivistarsvæði á Egils-
stöðum sem haldin var í tilefni
afmælisins. Á afmælisdagskránni
voru veitt verðlaun fyrir bestu til-
löguna og hlaut Þóra Guðmunds-
dóttir arkitekt á Seyðisfirði fyrstu
verðlaun.
í Egilsstaðaskóla var einnig
haldin ritgerðasamkeppni í tilefni
afmælisins fyrir nemendur í 7. ,8.
og 9. bekk og hlaut einn nemandi
úr hverjum árgangi verðlaun.
Skyldu ritgerðirnar fjalla á einn
eða annan hátt um þróun
sveitarfélagsins. Ingi Páll Sævars-
son úr sjöunda bekk las síðan rit-
gerð sína upp og fjallaði hún um
draum sem hann dreymdi um
árið 1987, en hann var sjálfur
drengur á sauðskinnsskóm árið
1922.
Loks var settur hreppsnefndar-
fundur á sviðinu og Alexander
Stefánsson félagsmálaráðherra
lýsti Egilsstaðakauptún hér með
Egilsstaðabæ með fullgild
kaupstaðaréttindi. Þá var
hreppsnefndarfundi slitið með
fundarhamrinum góða og bæjar-
stjórn Egilsstaðabæjar tekin til
starfa.
Að lokinni dagskrá var boðið
upp á kaffi og meðlæti og síðan
tíndust menn út í góða veðrið.
Hátíðahöldin eru þó ekki búin,
því ýmsar uppákomur í tengslum
við afmælið verða haldnar á
næstu vikum. -ing
Egilsstaðir
40 ár en ekkí 200
Bjarni Björgvinssonformaður afmœlisnefndar Egilsstaðabœjar:
Látlaus hátíðahöld voru markmið nefndarinnar
Það var sólarlandaveður á Eg-
ilsstöðum og Fljótsdalshérað
skartaði sínu fegursta þegar Eg-
ilsstaðahreppur hélt upp á fjöru-
tíu ára afmæli sveitarfélagsins og
fékk kaupstaðaréttindi. 23 stiga
hiti og bæjalogn og Snæfellið ský-
laust fyrir botni Fljótsdalsins.
Egilsstaðabúar gerðu sér dag-
amun í tilefni afmælisins með
ýmsum hætti um helgina en ýms-
ar sýningar og uppákomur í
tengslum við afmælið munu
standa fram í júlí.
Á fimmtudags- og föstudags-
kvöld stóðu Menningarsamtök
Austurlands fyrir kvöldvökum.
Á þeirri fyrri var fjallað um stofn-
un sveitarfélagsins, en það mun
vera einsdæmi á landinu að
sveitarfélag sé stofnað með þeim
hætti sem hér var gert fyrir fjöru-
tíu árum að ríkisvaldið stofnar og
skipuleggur þéttbýlið á Egils-
stöðum þar sem þá bjuggu aðeins
um eitt hundrað manns. Á kvöld-
vöku þessari var rakinn aðdrag-
andinn að stofnun sveitarfélags-
ins og komu ýmsir af frumbyggj-
um Egilsstaðahrepps fram og
sögðu frá atburðum sem þessu
tengdust og síðan var fyrsta
starfsár hreppsnefndar rakið og
var það fróðlegt.
Síðari kvöldvakan byggðist á
umfjöllun um framtíðina og
komu þar ýmsar hugmyndir fram
um hvernig mætti best byggja
upp sveitarfélagið, bæði atvinnu-
lega og félagslega séð og nýta
möguleika þess sem best.
Sjálf aðalhátíðin var síðan á
sunnudaginn og var mikil hátíð-
ardagskrá í Héraðsheimilinu Val-
askjálf. Menningarsamtök
Austurlands með hjálp Leikfé-
lags Fljótsdalshéraðs fluttu stutta
dagskrá um tilurð sveitarfélags-
ins, ávörp voru flutt, blandaður
kór söng, svo og karlasextett af
staðnum og voru sveitarfélaginu
færðar margar góðar gjafir frá
ÞJÓÐVILJINN - SfÐA 7
Bjarni Björgvinsson er
formaður afmælisnefndar
Egilsstaðabæjar og hefur ásamt
Ragnari Steinarssyni og Birni
Ágústssyni haft veg og vanda af
hátíðahöldunum.
„Nefndin var skipuð í
nóvember síðast liðnum," sagði
Bjarni, „og er þriggja manna
.nefnd. Við byrjuðum að leggja
línurnar í desember og ákváðum
þá strax að sníða hátíðahöldin að
því, að þetta er fjörutíu ára
afmæli en ekki tvö hundruð ára,
og höldum okkur í látlausari
kantinum.
Við komum tveim samkeppn-
um af stað, annars vegar ritgerða-
samkeppni innan efstu bekkja
grunnskólans og svo samkeppni
um skipulag útivistarsvæðis sem á
að koma hér neðan við
Héraðsheimilið Valaskjálf. í
þeirri tillögu sem vann fyrstu
verðlaun er tjörnin sem er þarna
fyrir látin halda sér, en auk þess
gerir tillagan ráð fyrir útileikhúsi
og skemmtanaaðstöðu,
veitingaaðstöðu, leiksvæði og
sóltorgi.“
Bjarni sagði enn fremur að
leitað hefði verið til
félagasamtaka um hvort þau
hefðu eitthvað á prjónunum í
tenglsum við afmælið og eins og
komið hefði fram á
afmælishátíðinni hefðu ýmis
félagasamtök gefið
sveitarfélaginu margar góðar
gjafir. Þar nefndi hann hringsjá,
hannaða af Sveini Þórarinssyni
verkfræðingi, sem Lionsmenn
gáfu, 20 blágrenitré og skilti með
korti af Egilsstöðum sem
JCmenn gáfu og sett verða upp
við báðar innkeyrslur inn í bæinn,
og örnefnakort sem Rótarýmenn
gáfu. „Þetta kort er lengi búið að
vera í vinnslu og var settur
lokahnykkurinn á verkið fyrir
afmælið. Rótarýmenn leituðu til
eldra fólks eftir upplýsingum um
örnefni og nú er ekki lengur
hætta á að þau glatist. Þetta eru
um 200 örnefni hér innan
bæjarmarkanna og það er
ákaflega mikilsvert að fá þetta
kort,“ sagði Bjarni.
Aðspurður um framhald
hátíðahaldanna sagði Bjarni að í
júní yrði afmælismót hjá
íþróttafélaginu Hetti sem væri
óbeint í tengslum við afmæli
sveitarfélagsins, einnig yrðu
sýningarnar opnar áfram og 8.
júlí yrði sérstakur hátíðarfundur í
Bjarni Björgvinsson: Það hefur verið
mjög skemmtilegt að undirbúa þessi
hátíðahöld og veðrið leikur við okkur.
hinni nýju bæjarstjóm
Egilsstaðabæjar, en þá eru liðin
nákvæmlega fjörutíu ár frá fyrsta
hreppsnefndarfundi
Egilsstaðahrepps.
-ing.