Þjóðviljinn - 26.05.1987, Qupperneq 13
Blikkiðjan1
Iðnbúð 3, Garðabæ.
Önnumst hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð.
46711
Síðumúla 6
0 68 13 33
ÖRFRÉTTIR
Hungurverkfall
stendur nú yfir í Modderbeefang-
elsi skammt frá Jóhannesarborg
í Suður-Afríku, og taka rúmlega
hundrað fangar þátt í því. í bréfi
sem var smyglað út úr fangelsinu
segir að hungurverkfallið sé til
komið til að mótmæla áformum
stjórnvalda um að senda fang-
ana í svokallaðar endur-
menntunarbúðir í heilaþvottar-
skyni. Þá mótmæla fangarnir því
að vera hlekkjaðir þegar þeir eru
færðir á spítala, og gera kröfu um
að fá að kaupa dagblöð.
Garrí Kasparoff
heimsmeistari í skák, var í gær
sæmdur eftirsóttu heiðursmerki,
Hinum rauða borða vinnunnar,
fyrir framlag sitt til þróunar skák-
listarinnar í Sovétríkjunum.
Kasparoff er 24 ára að aldri og
varð heimsmeistari árið 1985
þegar hann sigraði landa sinn,
Anatólí Karpoff, í spennandi ein-
vígi. Karpoff skoraði á hinn nýja
heimsmeistara í fyrra, en tókst
ekki að endurheimta titilinn.
Þriðja einvígi þeirra félaga verður
haldið í haust.
Matargjafir
eru ófullnægjandi lausn á hungr-
inu í heiminum þegar til lengri
tíma er litið, segir forstöðumaður
FAO - Matvæla- og landbúnað-
arstofnunar Sameinuðu þjóð-
anna. Það er nóg af mat á boð-
stólum, sagöi hann, en það er
ekki málið, heldur það að milljónir
manna í þróunarlöndunum hafa
ekki aðgang að þeim mat. Mat-
vælaaðstoð á að miða að því að
leysa vandamál viðtakendanna,
ekki gefendanna.
Flóð
hafa valdið miklum skaða í
Suður-Kína síðustu daga. Út-
varpið í Guangdong skýrði frá því
í gær að hátt í hundrað manns
hafi farist í flóðunum og að 33
þúsund hektarar ræktaðs lands
séu nú í kafi. Vatnið er nú heldur
tekið að sjatna. Á sama tíma
geisa skógareldar í nyrstu héruð-
um landsins, hinir illvígustu í
þrjátíu og átta ára í sögu Kínver-
ska alþýðulýðveldisins.
Lafði Macbeth
frá Mtsensk, ópera með satíruí-
vafi eftir Dimitri Sjostakovits, ger-
ir nú lukku í London, en það varð
frægt er Jósep Stalín gekk út af
sýningu á verkinu árið 1936.
Skömmu síðar birtist leikdómur í
Prövdu í líki leiðara, þar sem
verkið var hakkað í spað: „Það er
erfitt að fylgjast með „tónlistinni,"
og ógerlegt að muna nokkuð af
henni. Tónlistin gaggar, gólar og
rymur, og „ástin" á lágkúruleg-
ustu nótum er það eina sem
kemst að.“
þriðjudagur 26. maí 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17
Grikkland
Herinn burt?
Papandreouforsœtisráðherra boðarþjóðar-
atkvœðagreiðslu umframtíð bandarísku her-
stöðvanna
Sú ákvörðun Andreasar Pap-
andreou forsætisráðherra
Grikklands að efna til þjóðarat-
kvæðagreiðslu um framtíð
bandarískra herstöðva í landinu
er klókskaparbagð að áliti dipló-
mata í Aþenu, en með þcirri
skipan mála færist ábyrgðin að
nýju yfir á háttvirtu kjósendur.
Papandreou sagði á gríska
þinginu í fyrradag að það væri í
verkahring Bandaríkjamanna að
æskja samningaviðræðna um
framhaldið, en samningur ríkj-
anna um herstöðvarnar rennur út
í lok næsta árs. Hann bætti því við
að eftir að niðurstöður úr fyrir-
huguðum samningaviðræðum
lægju fyrir yrði efnt til þjóðarat-
kvæðagreiðslu.
Papandreou komst til valda
árið 1981, og gengu kosningalof-
orðin út á að iosa sig við her-
stöðvarnar og að Grikkland segði
sig úr Atlantshafsbandalaginu og
Evrópubandalaginu. Síðan hefur
hann dregið nokkuð í land, og
telur það nú nauðsynlegt fyrir ör-
yggi Grikklands að vera áfram í
NATÓ. Þá er úrsögnin úr Evr-
ópubandalaginu ekki á dagskrá
lengur.
Ollu meiri véfréttarstíll hefur
verið á yfirlýsingum Papandreo-
us um framtíð bandarísku her-
stöðvanna. í landinu eru nú fjór-
ar stórar slíkar stöðvar og tuttugu
minni. Talið er að gríski ríkis-
kassinn hagnist um 500 milljónir
bandaríkjadala á ári vegna
þeirra.
„Herinn burt“ er vafalítið um-
deildasta krafan í grískum
stjórnmálum í dag. Vinstri armur
stjórnarflokksins, Sósíalista-
flokks Papandreous, og Komm-
únistaflokkur Grikklands eru í
fylkingarbrjósti fyrir þessari
kröfu. Kosningar verða haldnar í
landinu árið 1989, og hætt er við
að loðmulluleg afstaða í hermál-
inu yrði Papandreou dýr í vinstri
atkvæðum talið. „Ef til vill er
þessi hugmynd um þjóðarat-
kvæðagreiðslu byrjunin á kosn-
ingabaráttu Papandreous," sagði
vestrænn diplómat í Aþenu í vik-
unni.
í umræðum á gríska þinginu
sagði Papandreou að George
Shultz, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, hefði fullyrt að ríkis-
stjórn sín legði áherslu á að halda
í herstöðvarnar. Hann bætti því
við að í samningaviðræðunum
yrði byrjað á byrjuninni og öll
mál tekin til endurskoðunar.
Talið er að hugmynd Papand-
reous um þjóðaratkvæði verði til
þess að Bandaríkjamenn haski
sér við að fara fram á samninga-
viðræður. Þá er talið að einni eða
tveimur herstöðvum verði fórnað
af bandarískri hálfu til að lægja
gagnrýnisraddir frá vinstri, jafn-
framt því sem tekjur gríska ríkis-
ins vegna herstöðvanna yrðu
auknar.
Papandreou setti fram hug-
mynd sína tveimur mánuðum
eftir að miklar viðsjár voru með
Grikkjum og Tyrkjum vegna
réttinda til olíuleitar á hafsvæð-
um milli landanna sem þau hafa
bitist um. í þessari deilu voru
Bandaríkjamenn í sáttasemjara-
hlutverki, enda í mun að ekki
kæmi til stríðs milli NATÓþjóð-
anna tveggja. Undir sjónarhorni
Bandaríkjastjórnar áttu her-
stöðvarnar sinn þátt í því að ekki
kom til vopnaðra átaka í þetta
skipti, og því er ráðamönnum í
Washington í mun að ganga frá
nýjum herstöðvasamningi við
fyrstu hentugleika.
HS
Mikjáll Gorbatsjof, leiðtogi
Sovétríkjanna, kom síðdegis
í gær til Búkarest, höfuðborgar
Rúmeníu, þar sem hann mun
dveljast fram á miðvikudag og
eiga viðræður við Nicolai Ce-
ausescu forseta.
Rúmenski leiðtoginn hefur
ekki sýnt neina tilburði í þá átt að
feta í fótspor koljega síns í Kreml
nema síður sé. Öllum hugmynd-
um um nýsköpun í efna-
hagsmálum hefur hann snarlega
vísað á bug og rúmensku lýðræði
telur hann í engu ábótavant. Má
þá einu gilda þótt hungur sverfi
að landslýð og öll völd séu á hans
eigin hendi.
Heimsókn Gorbatsjofs voru
gerð fremur lítil skil í fjölmiðlum
Rúmena og athygli vakti hve
seint myndum af Sovétleiðtogan-
um, slagorðaborðum og öðru
þess háttar skrauti var stillt upp á
almannafæri í höfuðborginni.
Engu að síður var honum tekið
fagmannlega í gær, skólaæsku var
stefnt út á götur til að hylla for-
ingjana tvo er þeir óku framhjá í
opinni bifreið og tvær konur
drógu þá með sér í léttan þjóð-
dans í glæstri móttökuathöfn.
Valdsmennirnir hófu þessu
næst einkaviðræður sem fram
verður haldið í dag. Rúmenska
Ceausescu og Gorbatsjof. Illt er að egna óbilgjarnan.
sjónvarpið greindi frá gangi við-
ræðnanna með hefðbundnu vé-
fréttartungutaki og sagði þær
hafa „verið í hlýlegum anda og
einkennst af gagnkvæmum skiln-
ingi og trausti“. Dulmálsfræðing-
ar hafa ráðið orð þessi á þá lund
að leiðtogarnir hafi forðast að
ræða þau efni þar sem ekki var
„gagnkvæmum skilningi og
trausti“ fyrir að fara.
Ólíklegt er talið að Gorbatsjof
leggi hart að Ceausescu að fylgja
sínu fordæmi. Hvort tveggja er
að rúmenski kolleginn myndi án
efa skella skolleyrum við slíku
hjali og að Sovétmenn sjá hags-
munum sínum betur borgið í álf-
unni með Rúmeníu í farteski
Varsjárbandalagsins en utan
þess. Forseti Rúmeníu er skap-
ríkur maður sem fer sínar eigin
leiðir í utanríkismálum og Gor-
batsjof ætti að vita að illt er að
egna óbilgjarnan.
-ks.
DJÓÐVILJINN
Rúmenía
Á öndverðum meiði
Gorbatsjof Sovétleiðtogifer á fund kollega síns í Búkarest. Efnahagur
Rúmeníu íkaldakoli en Ceausescu Ijœr ekki máls á neinum „kapítalisma“
DJOÐVIIJINN
MFT.TT.IWI
0 68 18 66
Timinii
Blaðburóur er
BESTA TRIMMIÐ
og borgar sig
Blaðbera
vantar
víðsvegar
um borgina