Þjóðviljinn - 26.05.1987, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 26.05.1987, Blaðsíða 16
Aðalsími 681333 Kvöldsími 681348 Helgarsími 681663 þjómnuiN Priðjudagur 26. maí 1987 111. tölublað 52. örgangur SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. Umferðarráðstefnan Utanríkisráðuneytið Svartan kassa í hvem bíl Hvalkjöt á NATO-funtí Milliríkjadeila íaðsigi? Matthías Á. Mathiesen: Þjóðverjar hafa um tvo kostiað velja. Mun taka málið upp á NATO-fundinum ef ekki verður komin viðunandi lausn Katrín Fjeldsted borgar- fulltrúi: Æskilegt að hafa mœlitœki íhverjum bíl sem skráir upplýsingar um ökuhraða við árekst- ur „Svartur kassi,“ sem skráði upplýsingar um ökuhraða og ástand bifreiðar gæti gefið trú- verðuga mynd af ökuhraða bíia, sem lenda í slysum. En á því er misbrestur í dag. Kassahug- myndin kom fram hjá Katrínu Fjeldsted, borgarfulltrúa, á um- ferðarráðstefnu sem haldin var á laugardaginn. Kartín taldi, að slysavaldar hefðu tilhneigingu til að gefa upp ökuhraða sem væri talsvert undir hinum raunverulega ökuhraða. Því væri erfitt að byggja á upplýs- ingum þeirra um hraða bifreiða sem lentu í árekstrum. Til að ráða bót á þessu taldi Katrín ráðlegt að setja sérstakan „svartan kassa" í sérhvern bfl, sem skráði sjálfkrafa nauðsyn- legar upplýsingar. Ekki kom fram hjá kassahöfundi, hversu mikill kostnaður yrði fólginn í því fyrir þjóðarbúið að setja slíka kassa í alla bíla landsins. Jafn- framt var bent á í umræðum, að ekki væru líkur á að unnt yrði að fækka slysum þó upplýsingar um ökuhraða slysavalda lægju fyrir. Tilgangurinn með þeim væri því nokkuð óljós. -ÖS Laxeldið Hvalkjötsmálið er orðið að milliríkjamáli og munu Is- lendingar grípa til mótmæla og jafnvel einhverra aðgerða ef ekki fæst viðunandi lausn pá því. Mál- ið tók nýja stefnu þegar íslenska sendiráðið í Bonn lét það til sín taka og Matthías Á. Mathiesen, utanríkisráðherra, kallaði síðan sendiherra Þýskalands á sinn fund til að reyna að fá lausn á deilunni. Áður var þetta bara mál Hvals við þýsk stjómvöld. „Þeir hafa bara um tvo mögu- leika að velja,“ sagði Matthías í samtali við Þjóðviljann í gær. „Annarsvegar að leyfa Hval að flytja kjötið úr landi og hinsvegar að gera það upptækt. Velji þeir síðari kostinn er þetta orðið að alvarlegu milliríkjamáli." Matthías sagðist reyndar búast við lausn á deilunni síðar í þessari viku, en verði sú lausn óviðun- andi þá muni hann ræða þetta mál við utannkisráðherra Þýska- lands á NATO-fundinum, sem haldinn verður í Reykjavík í júní. Sagði hann enn óvíst hver við- brögð íslenskra stjórnvalda yrðu, það myndi ekki skýrast fyrr en ljóst væri hvað þýsk stjórnvöld hyggðust fyrir. ^Sáf I góða veðrinu um helgina var fjölmenni í heita læknum í Nauthólsvíkinni. Fólk veginn að vippa sér í lækinn og ekki er annað að sjá á svip þess sem fyrir er en þyrptist í lækinn til að baða sig og sóla sig á eftir. Ungi drengurinn er í þann að plássið só nóg. Verslunarfólk á landsbyggðinni Gert en ekki gleymt Steini Þorvaldsson, ístjórn Landsbyggðarsamtaka verslunarfólks: Gerð fastlaunasamningsins verður ekki breytt. Fengum fyrirheit um að við yrðum ekki svipt samningsréttinum aftur Hrogna- flutningur vafasamir Flutningur laxahrogna á milli landa eru skemmdarverk, segir Jón Kristjánsson, fiskifræð- ingur hjá Veiðimálastofnun í grein eftir hann í síðasta tölublaði Veiðimannsins. Þar getur hann þess, að eigi að síður hafi norsk hrogn verið flutt til landsins að minnsta kosti þrisvar sinnum, og séu nú til í landinu á tveimur stöð- um. Miðað við stöðuna í laxeldis- málum í dag telur Jón að íslenskir laxastofnar séu í yfirvofandi hættu vegna erfðamengunar. Jafnframt setur hann fram þá skoðun, að flutningar á fiski milli landa eða landshluta, jafnvel áa, séu óæskilegir frá sjónarhorni sjúkdómavarna. Fiskarnir hafa visst erfðabundið mótstöðuafl gegn sjúkdómum sem ríkja í þeirra eigin umhverfi, segir í grein Jóns. Séu þeir fluttir annað, eru þeir varnarlitlir fyrir þeim sjúkdómum sem eru ríkjandi á nýja staðnum. Það telur hann ef til vill vera skýringu á því þegar „nýir“ sjúkdómar skjóta allt í einu upp kollinum. _ ÖS Við stöndum frammi fyrir orðnum hlut og við þessari samningagerð er ekkert að gera. Á sambandsstjórnarfundi Lands- sambands íslenskra verslunar- manna í síðustu viku fengum við fyrirheit um það ekki kæmi til þess á nýjan leik að kröfur okkar um samningsrétt við gerð sérs- amninga yrðu hunsaðar af for- ystu landssamtakanna,“ sagði Steini Þorvaldsson, í stjórn Landsbyggðarsamtaka vers- lunarfólks. Eins og kunnugt er skrifaði Biörn Þórhallsson, formaður LIV, undir fastlaunasamning við Vinnuveitendasambandið, fyrir verslunarfólk á landsbyggðinni. Landsbyggðarsamtök verslunar- fólks telja að með þessari samn- ingsgerð Björns Þórhallssonar hafi þau í raun verið svipt samn- ingsréttinum, en áður höfðu sam- tökin gert fastlaunasamning við Vinnumálasamband samvinnufé- laga. „Það þýðir ekkert að láta þetta á sig fá og við munum áfram freista þess að rétta hlut verslun- arfólks á landsbyggðinni innan LÍV. Sökum þess hvað við erum sundurlaus hópur og félögin úti á landi eru mörg hver mjög fá- menn, hafa okkar sérmál og sjón- armið óhjákvæmilega orðið nokkuð útundan innan LÍV. Til- gangurinn með stofnun Lands- byggðarsamtakanna er einmitt að fá okkar hlut leiðréttan. Hvert framhaldið á okkar starfi verður ræðst á aðalfundi samtakanna um næstu helgi. Þar verðuir trúlega gengið frá tilögugerð um ákveðn- ar skipulagsbreytingar á Lands- sambandinu, sem lagðar verða fyrir þing LÍV í haust,“ sagði Steini Þorvaldsson. -RK Aukaefni Oþverri í matvöni Jón Gíslason hjá Hollustuvernd ríkisins: Ný reglugerð á árinu „Á markaðnum eru matvörur sem innihalda aukaefni sem ekki hafa verið leyfð. Þessa hefur orð- ið vart í sælgæti, drykkjarvörum og oftast eru þetta litarefni, en verið er að kanna þessi mál nú,“ sagði Jón Gíslason hjá hollustu- vernd ríkisins. f Jón sagði að á þessu ári tæki gildi ný reglugerð um aukaefni í mat og yrðu þessi mál tekin um leið til rækilegrar athugunar og mörg efni sem nú væru leyfð færu á bannlista samkvæmt nýju reglu- gerðinni og væru þar á meðal ýmis litarefni sem nú eru notuð við gosdrykkjaframleiðslu hér- lendis. Hin nýja reglugerð væri mjög breytt frá þeirri sem enn gildir og yrði mun skýrari og einfaldari í notkun. -sá.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.