Þjóðviljinn - 07.06.1987, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 07.06.1987, Qupperneq 3
Kommúnismi á Hornbjargi Ólafur Þ. Jónsson, eða Óli „kommi" einsog hann er kall- aðurávinstri vængnum, hefur nú um sinn dregið sig virðu- lega í hlé frá pólitísku karpi. Eftir að hafa verið einn af kosningastjórum Skúla Alex- anderssonar á Vesturlandi hefur hann nú gerst opinber starfsmaður á ystu nöf. Er semsagt nýráðinn vitavörður á Hornbjargsvita og hyggst dvelja þar að minnsta kosti næstu tólf mánuði. Hann tekur við að Ragnari Hall- dórssyni, sem nú lætur af störfum. Haft er eftir Óla komma, að hið besta við dvö- lina á Hornbjargi sé, að „þar þarf maður að minnsta kosti ekki að horfa framan í andlitin á íhöldum og framsóknar- mönnum!“B Eitt bægsli - fimm hvalir Útvarpshlustendur munu hafa tekið eftir að annar um- sjónarmanna hinna ástsælu þátta um Daglegt mál varði tíma sínum á föstudaginn til að biðja útvarpsráð afsökunar á glæp sem framinn var í fyrri þætti. Þetta var Erlingur Sig- urðarson, og glæpurinn var að gagnrýna orðið „vísinda- veiðar". Erlingurtaldi myndun orðsins í fyrsta lagi heldur hæpna, þarsem samsett orð með -veiðar að seinni lið hefðu yfirleitt í fyrri lið hvað veitt er eða með hverju: þorskveiðar, handfæra- veiðar. Að auki taldi Erlingur þetta orð eitt þeirra sem varla geta samræmst yfirlýstu óhæði ríkisútvarpsins. Þar- sem ágreiningur væri um hvort hvalveiðar okkar væru stundaðar í vísindaskyni eða ágóðaskyni, og fellur orðið þarmeð í flokk innrætingar- orða: hermdarverkamað- ur/frelsishetja, hernáms- lið/varnarlið og svo framveg- is. Ingu Jónu Þórðardóttur formanni útvarpsráðs mun hafa borist kvörtun vegna þáttarins, og sagði hún frá því á útvarpsráðsfundi, en sagði einnig að hún hefði ekki heyrt þáttinn og þyrfti að kanna málið betur. Hefur ekki verið rætt um Daglegt mál síðan í ráðinu. Ritari ráðsins mun þó hafa fært orð Ingu Jónu til bókar, dagskrárstjóri hefur séð bókina og sagt Gunnari Stefánssyni frá. Gunnar þessi settist strax niður af óvanalegri röggsemi og ritaði Erlingi harðort bréf, þarsem segir að útvarpsráð sé óá- nægt og Gunnar sjálfur líka. Var Erlingi nauðugur einn kostur að minnast á þetta í föstudagsþættinum, og varð þá auðvitað að rekja allt sitt fyrra mál. Fyrsti mórall: ein fjöður getur orðið að fimm hænum, - eða eitt bægsli að fimm hvölum. Annar mórall: mikill er máttur Hvals háeff hjá Ingu Jónu, en ennþá meiri hjá Gunnari Stefánssyni. ■ Hópar gegn Sverri Enn um Sverri Hermanns- son. Tveir hópar hafa sam- einast gegn honum í Sjálf- stæðisflokknum og róa að því öllum árum að hann haldi ekki ráðherratign, verði Sjálfstæð- isflokkurinn áfram í ríkisstjórn. Þetta eru annars vegar ungir Sjálfstæðismenn, sem telja Sverri hafa klúðrað mjög illa brottrekstri Sturlu Kristjáns- sonar og sömuleiðis Sigur- jóns Valdemarssonar. Ung- liðarnir telja brottrekstrana verjanlega, en Sverri hafi með klaufaskap tekist að klúðra þeim gagnvart almenningi. Hins vegar vinna Geirs-menn Hallgrímssonar stíft gegn Sverri, af einhverjum orsök- um...R Þór að hætta Meir um leðjuslaginn í SUS. Sigfússynir liggja undir þungu ámæli fyrir að vilja sölsa undir sig öll völd í ung- liðahreyfingunni. En Þór Sig- tússon, yngri bróðir Árna borgarfulltrúa og nýbakaðs kandídats til formanns SUS, er formaður Heimdallar. Þeir bræður eru Johnsen-ættar, frændur Árna úr Eyjum, sem virðist hafa tryggt þeim stuðn- ing Morgunblaðsins við fram- boð Árna gegn Sigurbirni Magnússyni í formennskuna í SUS. í Sjálfstæðisflokki hafa menn fengið nóg af ættarklík- um og því hefur tangarsókn bræðranna mælst illa fyrir. Áróðursstjórar Sigurbjarnar hafa nýtt sér þetta vel í barátt- unni gegn Árna Sigfússyni, og nú hafa bræðurnir séð sitt óvænna. Þór mun hafa ákveðið að hætta sem for- maður Heimdallar í haust, og innan flokksins er litið svo á að það hafi styrkt stöðu Árna. Óvíst er þó hvor hefur hinn undir, - öll stjórn SUS styður Sigurbjörn eftir óvæntar at- lögur Heimdellinga undir for- ystu Þórs Sigfússonar gegn vel metnum formanni SUS, Vilhjálmi Egilssyni. ( Sjálf- stæðisflokki telja menn hins vegar að árásirnar á Vilhjálm séu einkaframtak Þórs og ekki runnar undan rifjum stóra bróður Árna.B Huesabu Hátt ------næst þegar þú feröast innanlands Tíminn er takmörkud auðlind. Flugið sparar tíma og þar með peninga. Flugleiðir og samstarfsaðilar í lofti og á láði tengja yfir 40 þéttbýliskjarna innbyrðis og við fíeykjavík. Með þaulskipulagðri og nákvæmri áætlun leggjum við okkur fram um að farþegum okkar nýtist tíminn vel. Þannig tekur ferð landshorna á milli aðeins stutta stund efþú hugsar hátt. Auglýsið í Þjóðviljanum ÚRNATÓ Keflavíkurgangan Æ* M r r HERINN BURT 6. jum 1987 Dagskrá Keflavíkurgöngu 6. júní 1987 Kl. 8.30 AÐALHLIO HERSTÖÐVARINNAR. Leiðakerfi Keflavíkurgöngu 1987 Rútuferðir fyrir Keflavíkurgöngu 1987 verða sem hér segir: Tímatafla göngunnar er sem hér segir: Kl. 7.00-7.15 Kl. 7.30 Kl. 7.45 Kl. 8.30 Kl. 8.45 Kl. 10.45-11.00 Kl. 14.00-15.00 Kl. 16.00-16.15 Kl. 18.30-19.00 Kl. 20.00 Kl. 22.00 Rútuferðir frá Reykjavík Frá BSÍ í Kópavogi Við Vallarhlið Gengið af stað Áning í Vogum Áning í Kúagerði Áning I Straumi Útifundur í Hafnarfirði Útifundur í Kópavogi Stórfundur á Lækjartorgi Mikilvægt er að fólk skrái sig ígönguna, einkum' þeir sem ætla að ganga alla leið eða fyrstu áfanga hennar. Ekki er síður mikilvægt að fólk sé á góðum Keflavíkurgönguskóm. Ólafur Ragnar Grímsson. Ávarp. Ingibjörg Haraldsdóttir, kennari og formaður miðnefndar SHA: Gönguhvatning. 10.45-VOGAR 11.00 Ægir Sigurðsson, kennari: Staðhættir og þjóð- sagnir í nágrenni herstöðvar. 14-15 KÚAGERÐI Súpa og hvíld. Lesið úr Ijóðum Vilborgar Dagbjartsdóttur. Lesari: Guðbjörg Thoroddsen. Leikþáttur. Flytjendur og höfundar eru félagar úr Hugleik. Almennur söngur undir stjóm Þorvaldar Arnar Árnasonar. 16.00-STRAUMUR 16.15 Sigurður G. Tómasson: Fróðskapur um jarð- fræði og sögu. 18.30- HAFNARFJÖRÐUR 19.00 Tryggvi Harðarson: Ávarp. Einar Ólafsson: Ljóð. Guðmundur Georgsson: Fundarstjórn. 20.00 KÓPAVOGUR Jóna Þorsteinsdóttir frá Þórshöfn á Langanesi: Ávarp. Ólafur Haukur: Ljóð. Arnþór Helgason: Fundarstjórn. 22.00 LÆKJARTORG Ingibjörg Haraldsdóttir, rithöfundur: Ávarp. Bubbi Morthens. Gönguslit. Bima Þórðardóttir: Fundarstjóm. 1. Eiðistorg kl. 07.00, KR heimilið kl. 07.10, Elliheimilið Grund kl. 07.20, BSÍ kl. 07.30. 2. Héðinn kl. 07.00, Lækjartorg kl. 07.10, Hlemmur kl. 07.20, BSÍ kl. 07.30. 3. Kron Langholtsvegi kl. 07.00, Sunnutorg kl. 07.10, Laugardalslaug kl. 07.15, Háaleitisbraut/Lágmúli kl. 07.20, BSÍ 07.30. 4. Olís Grafarvogi kl. 06.50, Grensásstöð kl. 07.10, strætóstöðvar viö Miklubraut kl. 07.15-07.25, BSÍ kl. 07.30. 5. Rofabær austast kl. 07.00, Shell Árbæ kl. 07.10, Stekkjabakki/Grænistekkur kl. 07.20, BSÍ 07.30. 6. Bústaðakirkja kl. 07.00, Strætóstöðvar við Bústaða- veg v/Veðurstofu kl. 07.20, BSÍ 07.30. 7. Fjölbraut Breiðholti kl. 07.00, Shell Norðurfelli kl. 07.10, v/Maríubakka kl. 07.20, BSÍ kl. 07.30. 8. Seljaskóli kl. 07.00, við Raufarsel kl. 07.10, Skóga/ öldusel kl. 07.20, Engihjalli kl. 07.30 strætóstöðvar við Álfhólfsveg að bensínstöð á Kópavogshálsi kl. 07.40. Hafnarfjarðarvegur/Vífilsstaðavegur kl. 07.45. Hafnarfjörður kl. 07.50. Reykjavíkurvegur, Norðurbær, jþróttahús við Strand- götu - Uppi á Holti. Til móts við gönguna: Sérleyfisbílar Keflavíkur fré RRÍ Rútuferðir verða frá BSÍ að aðalhliði herstöðvarinnar og til móts við gönguna. Nánari upplýsingar um þær og skráning í gönguna er á skrifstofu SH A í Mjölnisholti 14, símar 17966 og 623170. Göngustjóri Soffía Sigurðardóttir. MÆTIÐ í GÖNGUNA SKRÁNINGARSÍMAR 17966 og 623170

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.