Þjóðviljinn - 07.08.1987, Qupperneq 5
Umhverfi
Sundaborgin til fyrirmyndar
Lóðin í kring um Sundaborgina er núfullgerð svo aðkoman er öll önnur bœðifyrir starfsfólk og
viðskiptavini. Plantaðvar 1600 trjáplöntum og hitalagnir settar í gangstéttir
Það er alltaf skemmtilegt til
þess að vita þegar fólk gerir átak
til þess að fegra og snyrta um-
hverfi sitt og ástæða til að vekja á
því athygli þegar gengið er á
undan með góðu fordæmi í þess-
um efnum.
Inni við Sundahöfn stendur
Sundaborgin, sambygging fjölda
innflutningsfyrirtækja, og nú í
sumar hefur öll lóð sambygging-
arinnar verið tekin í gegn svo um
munar. Þarna eru komin malbik-
uð bflastæði, vel merkt beggja
vegna hússins, trjám hefur verið
plantað í stóra reiti allt um kring,
húsið sjálft málað og listaverkin á
suðurhlið þess njóta sín vel.
Sigurður Jónasson er fram-
kvæmdastjóri húsfélags Sunda-
borgar og húsvörður hússins er
Kristinn Sigurðsson. Þeir gengu
með blaðamanni um lóðina og út-
skýrðu framkvæmdirnar.
Þarfir starfsfólks
í fyrirrúmi
Þeir sögðu húsið hafa verið
byggt fyrir um þrettán árum en
það væri fyrst núna sem mögulegt
hefði verið að ganga endanlega
frá lóðinni. Nú hefði hins vegar
verið ráðist í þessar framkvæmdir
og við þær hefði verið haft til hlið-
sjónar að um 200 manns vinna í
húsinu og nauðsynlegt að bæta
umhverfið fyrir það fólk, svo og
viðskiptavini að sjálfsögðu.
Sigurður sagði það hafa verið
óvanalegt á þeim tíma sem húsið
var byggt að láta gera svona lista-
verk á fyrirtæki, en þar sem ekki
fékkst leyfi hjá skipulagsyfirvöld-
um fyrir gluggum á suðurhlið
hússins var Sigurjón Ólafsson
beðinn að hanna listaverk á þann
vegg.
„Síðast liöið sumar þegar húsið
var málað fengum við svo ekkju
listamannsins Birgittu Spur til að
vera með í ráðum um litaval á
listaverkunum. Kristján Davíðs-
son aðstoðaði hana og nú njóta
verkin sín betur en nokkru sinni á
veggnum. f tilefni af þessu veitti
félag húseigenda hér styrktar-
sjóði listamannsins 100 þúsund
króna styrk.“
Við göngum meðfram suður-
veggnum þar sem listaverk Sig-
urjóns eru og nú eru komin merkt
bflastæði þar, trjágróður við alla
innganga í húsið og luktir sitt
hvoru megin við allar dyr. Sig-
urður og Kristinn segja þessi bfl-
astæði eingöngu ætluð starfs-
fólki, en stór bflastæði eru líka
hinum megin við húsið. „Bfla-
stæðin eru fyrst og fremst fyrir
starfsfólkið enda segir sig sjálft
að þar sem svo margt fólk vinnur
þarf að vera góð aðstaða fyrir
bfla. Bfllinn er orðinn hluti af lífi
okkar í dag. Merkingarnar á
stæðunum eru gerðar eftir er-
lendri fyrirmynd og eiga að
auðvelda fólki að leggja í þau.
Þetta eru um 7000 m2 sem búið er
að malbika nú í sumar.“
Allt í kringum bflastæðin eru
trjáreitir og segja þeir að plantað
hafi verið 1600 trjám og runnum í
kringum húsin. „Þau eru reyndar
ekki há í loftinu ennþá en það
kemur.“
Mikið hefur líka verið lagt af
gangstéttum beggja vegna húss-
ins og verið sett hitalögn í þær
allar. Það verður því mikill mun-
ur fyrir starfsfólk og aðra að
koma að húsinu á komandi vetri.
Álagahóllinn
Rétt á lóðamörkunum er stór
hóll og þegar gengið er upp á
hann sér út yfir sundin og eyjarn-
ar í allri sinni dýrð. Hóll þessi er í
eigu borgarinnar en borgaryfir-
völd og Sundaborgarmenn eru
sammála um að hólinn megi ekki
skerða eða hrófla við honum á
nokkurn hátt.
„Það má kannski segja að þetta
sé eins konar álagahóll, að
minnsta kosti er hann kallaður
það, en við vitum nú ekki hvaða
álög nákvæmlega hvfla á honum.
En sagan segir að á þessum hól
hafi þau Gunnar á Hlíðarenda og
Hallgerður langbrók eitt sinn
kvaðst með miklum blíðulátum.
Það eitt er nægileg ástæða til að
vernda hólinn ásamt því hve út-
sýnið af honum er fallegt. Við
höfum orðið varir við eftir að
þetta umhverfisátak var gert að
fólk kemur hér um helgar og
leggur í bflastæðin og gengur upp
á hólinn til að njóta útsýnisins.
Þetta finnst okkur ákaflega
skemmtileg þróun og sú hug-
mynd hefur komið upp að stinga
upp á því við borgaryfirvöld að
setja bekk á hólinn til að fólk geti
setið þar í góðu veðri.
Við höfum átt mjög gott sam-
starf við borgaryfirvöld og nú
þegar við erum búin að gera þetta
átak hér, hafa þeir tekið við sér
og eru farnir að snyrta í kring það
land sem liggur að lóðinni okkar.
Eitt af því sem borgin ætlar að
gera hið fyrsta er að setja nýja
girðingu á álagahólinn. Þá vantar
ekkert nema fallegt listaverk á
hann,“ segir Sigurður.
í hólnum eru líka eins konar
fornminjar, gryfja sem Bretinn
gróf í hólinn og hlóð innan með
grjóti. Þetta mannvirki hefur líka
verið látið halda sér ósnert. Út á
hólinn liggur nú gangstígur og
starfsfólk hússins fer þangað í
góðu veðri í hádeginu og nýtur
veðurblíðunnar og útsýnisins.
-ing
Listaverk Sigurjóns Ólafssonar njóta sín til fulls á suðurvegg Sundaborgarinnar eftir að húsið var málað og umhvefið í
kring snyrt. Ekkja Sigurjóns, Birgitta Spur, var fengin til að aðstoða við litaval á listaverkin. (mynd ari)
Kristinn Sigurðsson húsvörður og Sigurður Jónasson framkvæmdastjóri húsfélagsins úti á álagahólnum með Sunda-
borgina í baksýn. Þeir eru að vonum stoltir af umhverfisátakinu enda hefur allt umhverfið breytt um svip svo um munar.
(mynd ari)
Brekkan framan við húsið hefur verið tyrfð og steinlögð og tröppur lagðar í hana vinstra megin niður á planið fyrir neðan. Umhverfi hússins hefur tekið stakka-
skiptum. (mynd ari)
Föstudagur 7. ágúst 1987 ÞJÓÐVILJiNN - SÍÐA 5