Þjóðviljinn - 07.08.1987, Síða 7
Föstudagur 7. ágúst 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Flokkar jafnaðarmanna og frjálslyndra munu brátt verða flokkur frjálslyndra og jafnaðarmanna. En án Davids Owens, til
vinstri, sem hér sést á tali við nafna sinn Steel.
Bretland
Kratar vilja sameiningu
Vonsvikinn Owen lætur afformennsku íJafnaðarmanna-
flokknum
Lokið er atkvæðagreiðslu 58
þúsund félaga breska Jafnað-
armannaflokksins um það hvort
leggja eigi flokkinn niður og
stofna nýjan með Frjálslyndum
eður ei. Niðurstaðan varð sú að
57 af hundraði félaga reyndust
því hlynntir en 43 af hundraði
andvígir.
Úrslit atkvæðagreiðslunnar
ollu formanni flokksins, David
Owen, miklum vonbrigðum og
sagði hann af sér formennskunni
strax og honum bárust tíðindin.
Hann hafði ítrekað hvatt menn til
að halda lífinu í Jafnaðarmann-
aflokknum og sagst mundu snið-
ganga nýjan flokk krata og frjáis-
lyndra. „Flokksmenn hafa kveð-
ið upp sinn dóm og hafa, þrátt
fyrir aðvaranir mínar, ákveðið að
stofna nýjan flokk með frjáls-
lyndum. Að svo komnu máli tel
ég ekki rétt að ég gegni for-
mennsku í Jafnaðarmanna-
flokknum lengur.“
Jafnaðarmenn og frjálslyndir
hafa haft nána samvinnu á und-
anförnum árum og boðið fram í
kosningum sem miðjubandalag.
Bandalagið galt afhroð í þing-
kosningunum í júnímánuði síð-
astliðnum, tapaði fimm sætum í
neðri deild breska þingsins og
hefur nú aðeins umráð yfir 22 af
650.
Strax og úrslit þingkosning-
anna lágu fyrir fór David Steel,
formaður Frjálslynda flokksins,
að gera því skóna að sameining
flokkanna væri eina leiðin til að
halda lífinu í miðjuhreyfingunni.
í sama streng tóku ýmsir forystu-
manna úr Jafnaðarmannaflokkn-
um, þar á meðal þrír brotthlaups-
mannanna fjögurra úr Verka-
mannaflokknum. Allir nema
Owen.
En kálið er ekki sopið þótt í
ausuna sé komið því nú hefjast
langar og strangar viðræður
flokkanna um stefnuskrá og
skipulag nýja flokksins. Þegar
þær eru til lykta leiddar verða fé-
lagar Jafnaðarmannaflokksins að
ganga til atkvæða að nýju.
-ks.
Mið-Ameríka
„Friðaraætlun“
fær draemar
undirtektir
Daníel Ortega, forseti Nicaragua, lagði
fram tilboð um beinar viðrœður við
Bandaríkjamenn en Shultz utanríkisráð-
herra hafnaði því
Ekki eru taldar neinar líkur á
því að ríkisstjórn Nicaragja
gangi að vopnahléstilboði því er
Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seti lagði fram í fyrradag. Daníel
Ortega svaraði Reagan seint í
fyrrakvöld og kvað ríkisstjórn
sína reiðubúna til viðræðna við
Bandaríkjamenn um frið hvar og
hvenær sem væri en við málaliða
þeirra hefðu þeir ekkert að tala.
George Shultz, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, hafnaði
þessu boði í gær og lét þau orð
falla að Bandaríkjastjórn myndi
ekki ráðskast með málefni Mið-
Ameríku heldur væri það ríkj-
anna á því svæði að ráða fram úr
vandanum með samningum sín á
milli!
Það er einkum tvennt í til-
lögum Reagans sem Managua-
stjórnin getur ekki fallist á. Hið
fyrra er krafa um að þegar í stað
verði efnt til kosninga undir eftir-
liti erlendra aðila. Hið síðara er
að þeir setjist að samningaborði
öndvert Kontraliðunum.
Kosningar fóru fram í Nicarag-
ua árið 1984 og fylgdust fjölmarg-
ir útlendingar með framvindu
þeirra, þar á meðal nefnd á veg-
um Alþjóðasambands jafnaðar-
manna, og öllum bar saman um
að heiðarlega hafi verið að þeim
stáðið. Féllist ríkisstjómin á að
láta kjósa áður en kjörtímabilið
rennur út væri hún að lýsa því yfir
að hún hefði haft rangt við í síð-
ustu kosningum.
Hvað snertir Kontraliðanna þá
segjast Sandinistar ekki hafa um
neitt að ræða né semja við fyrrum
böðla Somozastjómarinnar sál-
Danlel Ortega: Semja við Kontraliða?
Nei takk!
U8U- Lunginn úr forystusveit
Kontraliðanna em fyrrverandi
yfirmenn úr hinu alræmda þjóð-
varðliði Somozas. Hryðjuverk
þeirra gegn almenningi í Nicarag-
ua á undanförnum ámm sýna svo
ekki verði um villst að þeir hafa
engum framfömm tekið.
Ymsir fulltrúa Demókrata-
flokksins í báðum deildum
Bandaríkj aþings halda því fram
að tillagan sé bragð af hálfu
Reaganstjórnarinnar sem eigi að
slá ryki í augu almennings og
þingmanna. Hugmyndimar séu
settar fram á þann veg að útilok-
að sé að Managuastjómin geti
fallist á þær og þegar hún hafi sagt
nei muni Reagan heimta aukið fé
til handa Kontraiiðunum þar sem
Sandinistar „vilji ekki friðmæ-
last“. „Þetta eru tóm látalæti, “
sagði Edward Kennedy um til-
lögumar í gær. -ks.
Eduard Shevardnadze
Þýsk/bandarískir kjam-
oddar hindra samkomulag
Utanríkisráðherra Sovétríkjanna segir kjarnodda í 72 vesturþýskar
Pershing 1-A flaugar standa í vegi fyrir „tvöfaldri núlllausn<(
Shevardnadze. Ómyrkur í máli I
Genf.
fórna flaugum sínum til þess að
samkomulag náist.
-ks.
Eduard Shevardnadze, utan-
ríkisráðherra Sovétríkjanna,
ávarpaði í gær afvopnunarfund
40 ríkja sem haldinn er í Genf um
þessar mundir í tilefni þess að 42
ár eru liðin frá því Bandaríkja-
menn vörpuðu kjarnsprengju á
japönsku borgina Hiroshima.
Hann gerði afvopnunarvið-
ræður stórveldanna að umtals-
efni og krafðist þess að sam-
bandsstjómin í Bonn gerði hreint
fyrir sínum dymm og greindi frá
því hver ætti margumrædda 72
kjarnodda í Pershing 1-A flaugar
Vestur-Pjóðverja. Pað væri
grundvallaratriði því Sovétmenn
myndu aldrei geta fallist á að
vesturþýski herinn ætti
kjamvopn í fómm sínum.
Hann ávarpaði vesturþýska
fulltrúann beint og spurði: „Em
kjarnvopn í vopnabúrum ykk-
ar?“ Þegar hann hafði lokið máli
sínu kvaddi fulltrúi Vestur-
Þýskalands, Paul-Joachim nokk-
ur von Stuelpnagel, sér hljóðs og
sagði: „Nei.“
Shevardnadze sagði stjórn sína
hafa gert allt sem í hennar valdi
stæði til að auðvelda samkomu-
lag um „tvöföldu núlllausnina“
en það sama væri ekki hægt að
segja um viðsemjendurna og
helsta ljónið í veginum væri
spumingin um framtíð flauganna
72.
„Ef við ræðum um að eyða
öllum kjamoddum þá eigum við
vitaskuld einnig við þessa 72
kjarnodda Bandaríkjamanna ...
og nú er staðan sú að 72 banda-
rískir kjamoddar standa í vegi
fyrir því að stórveldin semji um
eyðingu allra meðal- og skammd-
rægra kj arnskeyta úr heiminum. “
Bandaríkjamenn eru hinsveg-
ar ekki á því að láta undan þess-
um kröfum Sovétmanna. I gær
fullyrti háttsettur vesturþýskur
embættismaður að öryggismála-
fulltrúi Reagans, Frank nokkur
Carlucci, hefði sannfært ráða-
menn í Vestur-Þýskalandi um að
ekki yrði samið um flaugamar 72
né kjamoddana í þær.
Málið virðist því vera í sjálf-
heldu og ekki sýnt að afvopnun-
arsamningar risaveldanna verði
undirritaðir í bráð nema því að-
eins að sambandsstjórnin í Bonn
taki sjálf af skarið og failist á að