Þjóðviljinn - 07.08.1987, Side 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
Föstudaour 7. ágúst 1987 170. tölublað 52. árgangur
SKÓLAVELTA
LEON *5
AÐ FAR5ÆLLI
SKÓIACÖNGU
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF
Heimilisþjónustan
Ekkert fólk að fá
Jónína Pétursdóttir, forstöðukona: Til lítils
að auglýsa eftirfólki: Lokun margra
sjúkrahúsdeilda ísumargerir ástandið verra
Okkur bráðvantar fólk í vinnu.
Við auglýstum síðast eftir
fólki um miðjan júlí og reynum
varla aftur fyrr en um miðjan
þennan mánuð, enda hefur það
sýnt sig að það er til lítils. Það er
ekkert fólk að fá, sagði Jónína
Pétursdóttir, forstöðukona Heim-
ilisþjónustunnar, í spjalli við
blaðið í gær.
„Margar deildir á sjúkrahúsun-
ura hafa verið lokaðar í allt sumar
og það þyngir ástandið hjá okk-
ur,“ sagði Jónína. „Við verðum
áþreifanlega vör við hvað ástand-
ið er slæmt. Langmest vantar
alltaf af fólki í ræstingar. Það er
ekki eins löng bið eftir daglegri
aðstoð og umönnun, enda þykir
það léttara en að þrífa til dæmis
fimm heimili á viku.“
Umferðin
Ágúst
skæðastur
456 látnir á tveimur
áratugum
Ungu fólki á aldrinum 17-20
ára er langhættast í umferð-
inni samkvæmt nýrri skýrslu Um-
ferðarráðs um slys í fyrra.
Þar kemur fram að slasaðir og
látnir undir tvítugu voru í fyrra
46,2% heildarinnar, og fólk á
aldrinum 17-20 ára myndar tæp-
an fjórðung allra slasaðra og lát-
inna í umferðinni.
Alls slösuðust 768 í umferðinni
í fyrra, 345 þeirra mikið. 24 létust
í umferðarslysum.
í skýrslunni kemur meðal ann-
ars fram að ágúst er hættulegasti
umferðarmánuðurinn. Að með-
altaii hafa um 80 slasast í ágúst á
síðasta áratug, en um 70 bæði í
júlí og september. Hættuminnst-
ur mánaða er samkvæmt þessu
janúar, þá slasast að meðaltali
um 40.
Síðustu tvo áratugi, 1967-
1986, dóu 456 manns í umferð-
arslysum á íslandi. -m
Um fimm hundruð manns
vinna hjá Heimilisþjónustunni,
mest konur, en hún er deild innan
Félagsmálastofnunar Reykjavík-
urborgar. Stærsti hluti þessa hóps
er í hlutastörfum og fær laun sam-
kvæmt Sóknartöxtum. Tímakaup
í byrjunarflokki er liðlega 175
krónur án orlofs, en losar tvö
hundruð krónur í efstu flokkun-
um ef orlofið er talið með.
Nokkur hluti starfsfólksins er á
mánaðarkaupi. í byrjunarflokki
er mánaðarkaupið 27.866 krón-
ur. Eftir níu ára starf fer það upp í
30.450 krónur og eftir fimmtán
ára starf 32.304 krónur. Ekki er
ýkja mikill munur á launum eftir
flokkunum; þær sem fá greidd
laun í efsta flokki, en það er lítill
minnihluti, komast þannig hæst í
34.788 króna mánaðarlaun eftir
fimmtán ára starf.
Til samanburðar má geta þess
að lægstu mánaðarlaun hjá
Heimilishjálpinni í Kópavogi eru
30.765 krónur. Hæst fara launin
þar upp í 41.299 krónur, og eru
þeir starfsmenn sem þeirra njóta
komnir með hámarksstarfs-
reynslu og eiga tvö námskeið að
baki. HS
Sól um allt land í gær, og þeir sem gátu flykktust í laugar og á sólbaðsbletti. (Mynd: Ari).
Sveitarfélög
Dalasameining könnuð
Dalamenn íhuga sameiningu í einn, tvo eða þrjá hreppa. Könnun um mánaðamót
Skoðanakönnun um samcin-
ingu hreppa í Dalasýslu fer
fram öðru hvoru megin við næstu
mánaðamót, og er nú verið að
kynna helstu kosti sem til greina
koma.
í Dölum eru átta hreppar og
eru íbúar samtals rúmlega þús-
und. Þrír hreppanna eru á mörk-
um þess að verða lagðir niður
með ráðuneytisvaldi samkvæmt
löguin og telja rétt yfir 50 manns,
Hörðadalur, Haukadalur og
Skarðsströnd. Samstarfs- og sam-
einingarnefnd hefur starfað í sýsl-
unni frá því í fyrrahaust, skipuð
tveimur mönnum frá hverjum
hreppi, og hefur hún helst athug-
að þrjá kosti, að stofna einn
hrepp jafnstóran sýslunni, að
hafa hreppana tvo, þannig að
suðurhrepparnir fjórir væru ann-
arsvegar og vesturhrepparnir
fjórir hinsvegar, eða þrjá þannig
að Laxárdalur yrði sér (og þar-
með Búðardalur), en sinn hrepp-
urinn hvorum megin.
Marteinn Valdimarsson
sveitarstjóri í Búðardal sagði
Þjóðviljanum að skoðanir væru
nokkuð skiptar um þessar hug-
myndir, en ágreiningur færi þó
hvorki eftir landfræðilegum né
pólitískum línum. Marteinn
sagðist sjálfur á því að annað-
hvort væri að sameina í einn
hrepp eða halda skiptingunni
óbreyttri.
Ýmsir Dalamenn munu vilja
haida í sitt sveitarfélag, meðal
annars af tilfinningalegum ástæð-
um, en einnig er uppi ótti við j
vald mundi safnast í Búðardal, i
í sumum hreppum líst mönnu
ekki of vel á að tengjast Láxí
dalshreppi fjárhagsböndum. Þ
hafa verið töluverðar frai
kvæmdir undanfarin ár og þei
fýlgja nokkrar skuldir.
I óformlegri símakönnun fýi
skömmu kom fram mikill vilji
sameiningar, en einnig skipt
skoðanir um hversu langt eigi;
ganga.
Hitaveita/Rafmagnsveita
Lakari og dýrari þjónusta
Trúnaðarskýrsla um innheimtumál Hitaveitu og Rafmagsnveitu: Aðskilin innheimta leiðir til gjaldskrárhœkkana og
óhagrœðis. Neytendurfá verriþjónustu
Sameiginleg innheimta Raf-
magnsveitu og Hitaveitu hefur
ótvfræða kosti í för með sér. Hún
leiðir til sparnaðar í mannahaldi,
þjónustugjöldum og nauðsyn-
legum vélbúnaði. Verði inn-
heimtan aðskilin leiðir það til
gjaidskrárhækkana á rafmagni
og heitu vatni og lakari þjónustu
við neytendur, segir m.a. í úttekt
sem unnin hefur veríð á vegum
Rafmagsnveitu Reykjavíkur, um
fyrirhugaðan aðskilnað á inn-
heimtu fyrirtækisins og Hitaveitu
Reykjavíkur.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins, er kurr meðal stjómenda
Rafmagnsveitunnar, með
ákvörðun Hitaveitunnar, að slíta
áratuga sameiginlegri innheimtu
fyrirtækjanna og taka sín inn-
heimtumál í eigin hendur.
í trúnaðarskýrslu, sem unnin
var á vegum Rafmagnsveitunnar
um þetta mál, er svo fast að orði
kveðið að aðskilin innheimta
fyrirtækjanna leiði óhjákvæmi-
lega til gjaldskráhækkana og lak-
ari þjónustu við neytendur.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins segir í skýrslunni að jafnvel
þótt hugsanlegt sé að Hitaveitan
kunni að hafa einhvern hag af
eigin innheimtu, hljóti heildar-
innheimtukostnaður að aukast.
Sameiginleg innheimta rafmagns
og heits vatns sé eðlileg þar sem
nær aliir rafmagsnotendur kaupi
jafnframt heitt vatn. Aðskilin
innheimta krefðist tvíverknaðar
við álestur af rafmagns- og hita-
veitumælum og þarfnist notendur
upplýsinga um orkunotkun, eða
þurfi þeir að tilkynna flutning eða
leita annarrar fyrirgreiðslu,
verða þeir að leita til tveggja að-
ila í stað eins, eins og nú er, til að
fá úrlausn sinna mála. _rk