Þjóðviljinn - 01.09.1987, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 01.09.1987, Qupperneq 8
ERU VINNUSL' FÖST STÆRE RættviðCarin Sund- ström-Frisk ená vinnuum- hverfisþinginu áSögu ísíð- ustu viku reif- aði hún kenn- ingarum áhættujafn- vægi. Frá samnorræna vinnuumhverfismála- þinginu á Hótel Sögu í síðustu viku: Ekkert er eins praktískt og góð- arkenningar. Mynd: Fer fólk óvarlegar við vinnu eftir því sem varúðarráðstöf- unum er betur sinnt? „Borgar sig“ að taka áhættu? Eykst slysahættan á einu sviði þegar henni er útrýmt á öðru? Þessar og þvílíkar spurningar reifaði sænski sálfræðingurinn Carin Sundström-Frisk á samnor- rænu þingi um vinnuumhverf- ismál sem haldið var á Hótel Sögu í síðustu viku. Carin starfar við Vinnuverndarstofn- unina í Solna, sem er smábær skammt frá Stokkhólmi, og kenningar þær sem hún fjall- aði um mætti kenna við áhættujafnvægi á íslensku. Kenningasmiðir hafa velt því fyrir sér hvernig standi á því að fyrirbyggjandi aðgerðir hafi ekki skilað sér í færri slysum en raun ber vitni. Samkvæmt kenningun- um um áhættujafnvægi eru tvær skýringar mögulegar. I fyrsta lagi verður breyting á hegðun fólks í þá veru að það tekur aðra áhættu þegar nýjar tæknilegar varúðar- ráðstafanir koma til. Hér má taka dæmi af velklifrandi fjallgöngu- mönnum; eftir því sem klifurút- búnaðurinn verður betri og fullkomnari, þeim mun erfiðari tinda leitast þeir við að klífa. Dæmisaga af skósólum í öðru lagi er mögulegt að slysahættan aukist á einu sviði þegar henni er útrýmt á öðru. Dæmi um þetta má taka úr skógarhöggi. Fyrir nokkrum árum voru menn að pró.fa sig áfram með nýja tegund af skósól- um fyrir skógarhöggsmenn. Nýju sólarnir voru stamari en áður hafði tíðkast, og áttu að setja undir þann leka að menn rynnu til við vinnu sína, en augljóslega getur það haft skelfilegar afleið- ingar í för með sér. Nýju skósól- arnir voru ágætir í þessu tilliti, en á hinn bóginn varð skóbúnaður- inn svo klossaður að mönnum varð hættara við að hrasa. Kenningar um samvægi eða jafnvægishneigð eru raunar rót- grónar í greinum eins og Iífeðlis- fræði, en það er ekki fyrr en á síðustu árum að fyrirbæri á borð við umferð og vinnuumhverfi hafa verið skoðuð undir þessu sjónarhorni. Kenningin um áhættujafnvægið í vinnuumhverf- inu hefur þróast út frá vangavelt- um um umferðina og slysatíðnina þar, og því byrj um við þetta spj all á þeim nótum. í því sem hér fer á eftir á umferðin reyndar eftir að verða drjúgt dæmasafn. Áhættan sem við erum tilbúin að taka Fjölmargir hafa reynt að búa til kenningar um áhættujafnvægi á undanförnum árum, segir Carin Sundström-Frisk. Til að mynda telur G.J.S. Wilde sig hafa komist að því með tölulegum rannsókn- um að jafnvel þótt fjölmargar ör- yggisráðstafanir séu gerðar þá hafi þær ekki skilað tilætluðum árangri. Hann leggur áherslu á að svo lengi sem varúðarráðstafan- irnar hafi ekki áhrif á þá hættu sem einstaklingurinn er tilbúinn að taka þá breyti þær engu. Það sem er nýtt í þessu að mínu áliti er það að Wilde lítur ekki fyrst og fremst á fólk út frá lífeðl- isfræðilegum eiginleikum í þessu samhengi, heldur tekur hann fé- lagslegt samspil einnig með í reikninginn. En nú setur maður ekki endi- lega samasemmerki milli umferð- arinnar og vinnuumhverfisins? Nei, og þessvegna er ekki hægt að heimfæra kenningar um áhættujafnvægi beint úr umferð- inni og yfir í vinnuumhverfið. Það skiptir miklu máli að í um- ferðinni eru það bílstjórarnir sjálfir og vegfarendur sem ák- veða að verulegu leyti hvað þeir gera, og geta þar af leiðandi haft áhrif á hættuþáttinn. Auk þess geturðu litið á akstur sem mark- mið í sjálfu sér - fólk er úti að aka að gamni sínu - en þegar þú mætir í vinnu ertu kominn í fram- leiðslu. Þetta siampast Ég get nefnt þér dæmi úr um- ferðinni sem hefur verið rannsakað vendilega, en það er notkun bíldekkja eftir árstíðum. Ef maður keyrir í hálku á sumar- dekkjum þá hefur maður til- hneigingu til að draga úr hraðan- um. Það sem skeður svo aftur hjá mörgum er að þeir auka hraðann þegar þeir eru komnir á vetrar- dekk. Fyrir því vill margt fólk meina sem hefur rannsakað þessa hluti að einstaklingurinn taki sömu eða svipaða áhættu þegar upp er staðið, og því hafi varúð- arráðstafanir lítið að segja. Vetrardekk og hraðaaukning Samkvæmt þessum rannsókn- um hefur það komið í ljós að þeg- ar fólk vissi að það var komið á vetrardekk þá jók það hraðann, og þetta gæti virst staðfest rétt- mæti kenningarinnar um að áhættan sem fólk tekur leiti jafnvægis. Reyndar sýndi það sig nú að hraðaaukningin var ekki það mikil að hún yrði til að upp- hefja með öllu jákvæð áhrif þess að skipta yfir í vetrardekkin. Finnst þér dœmi af þessu tagi staðfesta réttmœti kenningarinnar um áhœttujafnvcegið? Það er óneitanlega sann- leikskorn í þessum kenningum, en þær gilda ekki við allar að- stæður. Einkum og sér í lagi gilda þær ekki við þær aðstæður þegar fólk veit ekki á hvern hátt áhætt- an breytist með tilkomu nýrra varúðarráðstafana. Hitt skiptir þó meira máli að mínu viti að kenningar þessar gilda aðeins þegar fólk hegðar sér eins og það gerir af ásettu ráði. Það finnst mér vera aðalatriðið. Skálkaskjól atvinnurekenda? Kenningar af þessu tagi eru mjög hættulegar og vandmeð- farnar vegna þess að slysaskuld- inni er skellt á einstaklinginn. Þær geta séð iðnaðinum fyrir pottþéttri afsökun fyrir því að láta það vera að fjárfesta í örygg- isútbúnaði og þess háttar. Bíla- 8 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Þriðjudagur 1. september 1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.