Þjóðviljinn - 01.09.1987, Page 10
ERLENDAR FRETTIR
Suður-Afríka
Unnið í námum á ný
Mesta verkfalli ísögu landsins lauk á sunnudag. Kauphœkkanir lœgri en námamenn höfðu krafist
en þorri brottrekinna verkfallsmanna endurráðinn
Leiðtogar um 250 þúsund
blakkra verkfallsmanna úr
gull- og kolanámum Suður-
Afríku lýstu því yfir á sunnudag
að verkfallinu væri lokið þótt
námaeigendur hefðu ekki gengið
að kröfum þeirra um launa-
hækkanir.
Cyril Ramaphosa, aðalritari
Landssambands námamanna,
kvað það ekki vera rétt að verk-
fallsmenn hefðu lotið í lægra
haldi. Verkfallið hefði verið
mjög umfangsmikið og menn
aflað sér dýrmætrar reynslu fyrir
stéttarátök framtíðarinnar. Sam-
staðan hefði eflt sjálfstraust
námamanna og fært námaeigend-
um heim sanninn um að þeldökk-
ir starfsmenn þeirra væru ekki
þrælar er létu misbjóða sér. „Við
lítum ekki á niðurstöðuna sem
ósigur fremur en sigur. Félagar
Landssambands námamanna
hafa þegar ákveðið að árið 1988
verði árið þegar blakkir náma-
menn ná fram verulegum kjar-
abótum.“
Samningar tókust eftir hálfrar
fjórðu klukkustundar langan
fund deiluaðila á sunnudag.
Námaeigendur voru í sjöunda
himni og sagðist formaður sam-
bands þeirra vera „einkar ham-
ingjusamur“ vegna þess að
deilunni væri lokið.
Verkfall svartra námamanna
stóð yfir í réttar þrjár vikur og
hefur verkalýðshreyfing blökku-
manna aldrei áður staðið jafn
lengi uppf hárinu á hvítu yfirstétt-
inni. Fyrri vinnustöðvanir náma-
manna höfðu allar farið út um
þúfur örfáum dögum eftir að þær
hófust.
En það er engu að síður talið
vera nokkurt áfall fyrir náma-
menn að ekki skuli hafa tekist að
knýja fram launahækkanir um-
fram það sem eigendur höfðu
boðið.
Einn fulltrúa námaeigenda
fullyrti að þeir hefðu ekki boðið
verkfallsmönnum neitt á sunnu-
dagsfundinum umfram það sem
þeir voru reiðubúnir að semja um
á miðvikudag í fyrri viku. Þá
gerðu þeir námamönnum tilboð
um aukin orlof og hækkun líf-
tryggingar auk launahækkanna á
bilinu frá 15 og uppí 23,4 af
hundraði. Verkfallsmenn höfnu-
ðu þessu boði samdægurs og
héldu fast við kröfu sína um 27
prósent hækkun.
Blaðafulltrúi Ensk-amerísku
námasamsteypunnar, Bobby
Godsell, fagnaði málalyktum en
sagði ofmælt að námaeigendur
hefðu borið sigur úr býtum.
Ramaphosa sagðist hafa
gengið til samninga við náma-
eigendur vegna þess að þeir
hefðu verið staðráðnir í að segja
öllum verkfallsmönnum upp
störfum. Hann sagðist hafa feng-
ið vilyrði fyrir því að allir þeir 40
þúsund námamenn sem reknir
voru á verkfallstímanum yrðu
endurráðnir og sérstakar við-
ræður færu fram um námur sem
eigendur höfðu sagst ætla að
loka.
Að minnsta kosti níu náma-
menn létu lífið og um 300 slösuð-
ust í átökum verkfallsmanna og
öryggisvarða námaeigenda og í
skærum stuðningsmanna og and-
stæðinga verkfallsins í hópi
St. Jósefsspítali
Landakoti
Starfsstúlka/maður
Landakotsspítali rekurbarnaheimili og skóladag-
heimili við Holtsgötu 7, fyrir börn starísfólks. Okk-
ur vantar aðstoðarfólk á bæði heimilin. Það er um
100% starf að ræða á Dagheimilinu Brekku-
koti, upplýsingar gefnar í síma 19600-250 og svo
60% starf á Skóladagheimilinu Brekkukoti,
upplýsingar í síma 19600-260.
Röntgendeild
Okkur vantar aðstoð á Röntgendeild Landakots-
spítala. Umsækjandi þyrfti að geta hafið störf
strax.
Upplýsingar gefur deildarstjóri í síma 19600-330.
Ræsting
Landakot er notalegur vinnustaður. Ef þú hefur
áhuga þá vantar okkur gott fólk til ræstinga.
Upplýsingar gefur ræstingastjóri í síma 19600-
259 frá kl. 10-14.
HAFNARBÚÐIR
Sjúkraliðar
Það vantar sjúkraliða í Hafnarbúðir, öldrunar-
deild Landakotsspítala. Um er að ræða fullt starf,
en hlutastarf kemur einnig til greina. Upplýsingar
veittar í Hafnarbúðum í síma 29466.
Blakkir námamenn eru mættir til starfa á ný í Suður-Afríku.
námamanna sjálfra.
Verkfallið lamaði alla vinnslu í
helmingi gullnáma í Suður-
Afríku og í fimmtungi kolanáma.
Fulltrúar Ensk-amerísku náma-
samsteypunnar vildu ekki láta
uppi hve miklu fé fyrirtækið tap-
aði á verkfallstímanum en sér-
fræðingar segja það vera mjög
mikið. Sumir ætla að námaeig-
endur hafa orðið að sjá á bak 600
miljónum króna á dag. Ef það er
nærri lagi þá hefur verkfallið í
heild sinni kostað þá hálfan þrett-
ánda miljarð króna! -ks.
Allra þjóða Grœningjar
Deilt um málamiðlanir
Á sunnudag lauk í Stokkhólmifundi 300 Grœningjafrá 20
löndum
Sumir Græningja telja hreyf-
ingu sína verða ráðandi afl í
stjórnmáium Evrópu á næstu öld
svo fremi hún villist ekki af leið og
fórni hugsjónum sínum fyrir vel-
gengni í kosningum.
Á sunnudag var fundi 300 full-
trúa grænnna hreyfinga frá 20
löndum sagt slitið í Stokkhólmi.
Hann tók þrjá daga og á blaða-
mannafundi við lok hans ítrekaði
Pehr Garhton, stofnandi og drif-
fjöður sænsku hreyfingarinnar,
það viðhorf sitt að „miklar líkur
væru á því að Græningjar myndu
bera ægishjálm yfir aðrar
stjórnmálafylkingar á 21. öld-
inni“.
Vesturþýski þingmaðurinn
Petra Kelly sagðist við sama tæki-
færi vilja fordæma allar tilhneig-
ingar í þá átt að leggja merk
stefnumál fyrir róða til að vinna
villuráfandi kjósendur á band
Græningja. „Við eigum að
sannfæra almenning um ágæti
hugsjóna vorra en ekki fallast á
málamiðlanir þegar um líf eða
dauða er að tefla Fulltrúum
belgískra Græningja þótti þetta
nokkuð einstrengisleg afstaða og
fullyrtu að ef þeir tækju upp bar-
áttu fyrir úrsögn Belgíu úr
NATO myndi fylgið hrynja af
þeim.
Fundarmenn voru á einu máli
um það að kjarnslysið í Tsjernó-
býl í fyrra og gífurleg mengun ár-
innar Rínar hefðu verið vatn á
myllu hreyfingarinnar og hvar-
vetna vakið fólk til umhugsunar
um umhverfis- og mengunarmál.
Á fundinum var rætt um hvort
rétt væri að Græningjar stofnuðu
formleg alþjóðasamtök, í líkingu
við annað alþjóðasamband jafn-
aðarmanna, en sitt sýndist hverj-
um og engin ákvörðun var tekin í
því máli.
Sara Parkin frá Bretlandi er
andvíg hugmyndinni. Hvert land
hefði sínar sértæku aðstæður og
ættu hreyfingarnar að beina
kröftum sínum að baráttunni á
heimaslóð. Hún sagði þó ljóst
vera að fundarmenn hefðu verið
einhuga í öllum grundvallarat-
riðum. Græningjar væru and-
snúnir hverskonar vígtólabraski
og hemaðarhyggju, þeir hefðu
horn í síðu stórfyrirtækja og
stjórnkerfis þar sem karlmenn
hefðu bæði tögl og hagldir og þeir
væru jafnmikið á móti kapítal-
isma og sósíalískri miðstýringu
hagkerfisins.
„Tíminn er á þrotum. Víst er
að maðurinn hefur brátt brotið
Petra Kelly. Engan skriðdýrshátt
gagnvart kjósendum!
allar brýr að baki sér og þá verður
um seinan að ætla að snúa við
blaðinu og vernda umhverfið
spjöllum,“ sagði Parker að end-
ingu.
-ks.
Spánn
Hass í botnvörpuna
Spænskir sjómenn eru með af-
brigðum fengsælir um þessar
mundir. í gær drógu sjómenn á
togara einum vörpuna um borð
einsog lög gera ráð fyrir en því
miður var ekki mikið af fiski í
henni. Þeim mun meira var af
forboðnum ávöxtum.
Aflinn samanstóð af fáeinum
marglyttum, þrem kúskeljum og
235 kflógrömmum af hassi í
vatnsþéttum umbúðum.
Lögreglunni var sagt allt af
létta og fyrir vikið var aflinn gerð-
ur upptækur um leið og skipið
lagðist að bryggju. Yfirvöld áætla
að þetta mikið magn af hassi kosti
um tvær miljónir bandaríkjadala
í undirheimum Madrid.
Þetta var í annað skipti á tveim
dögum að spænskir sjómenn
veiða hass undan norðvestur-
ströndum Spánar. Á sunnudag
drógu skipverjar á öðrum togara
um hálfa smálest um borð. Svo er
að sjá sem einhverjir smyglarar
hafi einhverntíma iðrast og látið
eitrið fokka. - ks.
14 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN