Þjóðviljinn - 19.09.1987, Blaðsíða 1
Laugardagur 19. september 1987 207. tólublað 52. árgangur
Grunnskólarnir
Skólastjórar í NATO -ferð
Átta skólastjórar úr grunnskólunum íReykjavík hafa verið í þriggja daga boði Menningarstofnunar
Bandaríkjannaí höfuðstöðvumNATOíBrussel. Loðinsvöráskrifstofum skólanna.
Áslaug Brynjólfsdóttir: Frœðsluskrifstofan veit ekkert. Ragnar Georgsson: í fyrra fóru sex
Atta skólastjórar grunnskól-
anna í Reykjavík komu í gær
til landsins eftir þriggjadaga ferð
tii höfuðstöðva NATO í Briissel.
Ferðin var í boði Menningar-
stofnunar Bandaríkjanna.
Það var ámiðvikudagað skóla-
stjórar Álftamýrarskóla, Austur-
bæjarskóla, Breiðholtsskóla,
Hólabrekkuskóla, Langholts-
skóla, Laugalækjárskóla, Mela-
skóla og Seljaskóla flugu með
bandarískri herflugvél frá Kefla-
víkurflugvelli til Briissel. í gær
komu þeir svo aftur til landsins
með herflugvél.
Áslaug Brynjólfsdóttir,
fræðslustjóri Reykjavíkur, sagð-
ist ekki hafa fengið neina tilkynn-
ingu um þetta og vildi ekkert tjá
sig um málið að svo komnu.
Þjóðviljinn hafði samband við
nokkra af skólunum og spurði um
skólastjórann. „Hann er er-
lendis,“ var svarið allsstaðar en
þegar spurt var frekar út í það
fengust ákaflega loðin svör nema
á Breiðholtsskóla. „Hann er í
Briissel en ég veit ekki hvort ég á
að vera að gefa þessar upplýsing-
ar.“
Ragnar Georgsson, forstöðu-
maður kennslumáladeildar
Skólaskrifstofunnar sagði það
rétt að átta skólastjórar úr
grunnskólunum í Reykjavík væru
staddir £ höfuðstöðvum Atlants-
hafsbandalagsins íBrussel. Sagði
hann að þetta væri annað árið í
röð sem farið væri í slíka ferð í
boði Menningarstofnunar
Bandaríkjanna, en í fyrra fóru
sex skólastjórar.
Ragnari fannst ekkert athuga-
vert við þetta enda kæmust skóla-
stjórarnir yfir allsherjar fróðleik í
höfuðstöðvunum. Hinsvegar
varð minna um svör þegar Ragn-
ar var spurður hvernig þetta
gagnaðist skólastjórunum við
starfið sem uppfræðendur
æskunnar.
Ragnar sagði að Skólaskrif-
stofan hefði haft milligöngu um
þetta mál en fannst ekkert óeðli-
legt við það að ekki hefði verið
haft samband við fræðsluráð.
Sólrún Jensdóttir hjá mennta-
málaráðuneytinu sagði að svona
mál ættu að fara fyrir fræðsluráð
einsog öll mál þegar kennarar
eða skólastjórar fara fram á leyfi.
Sagðist hún hafa veitt skólastjór-
unum þriggja daga leyfi á launum
þar sem hún stóð í þeirri
meiningu að fræðsluráð væri búið
að afgreiða málið, en Skólaskrif-
stofan er vön að koma samþykkt-
um fræðsluráðs til ráðuneytisins.
-Sáf
1. október hækkunin
launanefnd
Þorsteinn Pálssonfor-
sœtisráðherra: Engar til-
lögur um að stjórnin grípi
inní
- Við lítum svo á að ábyrgðin í
þessu máli hvíliá launanefndinni.
Það hafa enga tiliögur verið flutt-
ar í rfldsstjórninni né um það rætt
að stjórnvöld grípi þarna inní,
sagði Þorsteinn Pálsson forsætis-
ráðherra í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær.
- Það er þeirra sem í launa-
nefndinni sitja að taka þessa
ákvörðun og í sínu starfi eiga þeir
að taka mið af þremur höfuðþátt-
um y efnahagslífinu, vísitölu-
hækkun, kaupmáttarþróun og
þjóðarframleiðslu og viðskipt-
akjörum. Það fer því fjarri að
bara ein viðmiðun eigi að gilda,
sagði Þorsteinn Pálsson.
-*g-
Sá árstími er kominn að farfuglarnir yfirgefa landið og halda til heitari landa. (Mynd: E.ÓI.)
Ættfrœði
Laxness og faðir Reagans
íMogga 1927rœddi Laxness við Cody, semsumirteljaföðurReagans
Launanefndin
Gagnaöflun
í gangi
Idesember 1927 birtist í Morg-
unblaðinu viðtal með ítar-
legum inngangi við Bill nokkurn
Cody, sem þá var kunnur leikari í
HoIIywood, eða „heimsfrægasti
kúreki” eins og segir í
innganginum. Bill þessi Cody
mun nú vera með öllu gleymdur,
og myndu sennilega fáir veita við-
talinu eftirtekt nú á dögum ef ekki
vildi svo til að þvi hefur verið
haldið fram nýlega, að Bill Cody,
sem var af íslenskum ættum, hafi
verið hinn raunverulegi faðir
Ronalds Reagans forseta og við-
talið er eftir - Halldór Kiljan Lax-
ness.
Frá því var nýlega skýrt í Tím-
anum að sú saga hafi lengi gengið
meðal Vestur-Islendinga að Ron-
ald Reagan forseti sé af íslensku
bergi brotinn og hafi langafi hans
verið Reykja-Jón, sem kenndur
var við Reyki á Reykjaströnd.
Björg dóttir Reykja-Jóns, fluttist
utan frá Sauðárkróki árið 1887 og
settist að í Winnipeg. Árið 1892
eignaðist hún son, sem gerðist
kvikmyndaleikari í Hollywood á
dögum þöglu myndanna og gekk
þá undir nafninu Bill Cody. Um
tvítugt eignaðist Bill Cody son í
lausaleik, sem barnlaus hjón af
írskum uppruna tóku í fóstur og
var það Ronald Reagan. Tíminn
segir að ekki sé unnt að svo
stöddu að sanna þessa sögu eða
afsanna, þar sem kirkjubækur
þær, sem hafi að geyma allar upp-
lýsingar um uppruna Bandaríkj-
aforseta, séu ekki heimilar al-
menningi samkvæmt fyrirmælum
frá forsetaskrifstofunni. Ronald
Reagan hefur jafnan lagt áherslu
á það sjálfur að hann sé af írskum
uppruna, en slíkt þykir mjög hag-
stætt fyrir pólitískan frama þar
vestra.
En hvað sem öðru líður gerði
Bill Cody garðinn frægan í kvik-
myndagerð Bandaríkjanna á
þessum árum, eins og kemur
skýrt fram í viðtalinu, og það
leiðir einnig í ljós að hann hafði
' komið ungur til Islands og verið
þar í rúmt ár og hafði því hlýjar
taugar til landsins. Ferli Codys
sem kvikmyndaleikara virðist
hafa lokið þegar talmyndirnar
komu til sögunnar 1930, en samt
virðist hann ekki hafa misst
tengslin við Hollywood, og mun
Ronald Reagan hafa stigið fyrstu
sporin á kvikmyndaferli sínum
undir handarjaðri hans.
Viðtalið sem Halldór Laxness
gerði í byrjun nóvember 1927
þegar hann dvaldist í Kaliforníu
og hafði nokkur samskipti við
frammámenn í kvikmyndagerð
er birt í Sunnudagsblaði Þjóðvilj-
ans, bls. 21.
„Það stendur yfir gagnaöflun,
en niðurstaðna er ekki að vænta
fyrr en upp úr miðri næstu viku í
fyrsta lagi,” sagði Ásmundur Stef-
ánsson forseti ASI að loknum
fundi launanefndar laust fyrir há-
degi í gær.
„Venju samkvæmt óskum við
eftir hefðbundnum upplýsingum
frá ýmsum aðilum um ákveðna
þætti í efnahagsmálum og launa-
þróun,” sagði Þórarinn V. Þórar-
insson framkvæmdastjóri Vinnu-
veitendasambandsins.
Að sögn Þórarins er búið að
ákveða næsta fundartíma nefnd-
arinnar og kemur hún saman
næstkomandi miðvikudag kl. 11.
HS