Þjóðviljinn - 19.09.1987, Side 5

Þjóðviljinn - 19.09.1987, Side 5
Frá landsfundi 1985. jft T 0 1 ' W * ff j jÉQ* | ■-y Nýr foimaður er ekki Alþýðubandalagið hcfur um sinn átt í verulegum erfiðleikum. í aprflkosningunum tapaði það miklu fylgi, og síðustu kannanir benda til að hrapið hafí ekki stöðvast að kosningum loknum. Skoðanakönnun HP fyrir nokkr- um vikum gaf flokknum þannig lang lægsta fylgi frá upphafi vega: Einungis 8,5 prósént þeirra sem spurðir voru tjáðu fylgi við Al- þýðubandalagið. Meinvörp Al- þýðubandalagsins Það hefur að vísu verið alsiða í flokknum að gefa lítið fyrir kann- anir. Menn bíta á jaxlinn að hætti forfeðranna og bíða kokhraustir eftir því að upp úr kjörkössunum skilist flokknum svo fleiri at- kvæði en kannanir gáfu til kynna. Kanski var það líka reglan einu sinni. En ekki lengur. Svo mikið hefur reynslan sýnt. í dag skilur það milli lífs og dauða fyrir flokk- inn að hann geri sér grein fyrir þeim skilaboðum sem felast í úr- slitum kosninganna og niðurstöð- um síðustu kannana. Meinvörp Alþýðubandalags- ins hafa fyrst og fremst verið innri átök, sem hafa grundast á ágrein- ingi um annars vegar stefnu - eða stefnuleysi - í mikilvægum mál- um á borð við verkalýðsmál en hins vegar ágreiningi sem er per- sónulegs eðlis. Hinn persónulegi ágreiningur er raunar kapítuli útaf fyrir sig og nærist fýrst og fremst á furðulegu sambandsleysi millum helstu forystumanna flokksins. Nú verður þessum átökum að linna. Þau verður að gera upp. Forsenda þess er hins vegar að flokksfélagar úr mismunandi skoðanahópum geri sér grein fyrir, að tilvist Alþýðubandalags- ins sem raunverulegs stjórnmála- afls byggir á því að menn geti grafið stríðsexi. Framhald á karpi, þrefi og skærum felur í sér ávísun á hægfara dauða. Kjör formanns Landsfundur Alþýðubanda- lagsins verður í hápunkti rétt í þann mund sem vítt um heim verður minnst afmælis rússnesku byltingarinnar, sem eitt sinn skóp svo miklar vonir. Á þeim fundi munu ráðast örlög Alþýðubanda- lagsins hin næstu ár. Flokksmenn og fjölmiðlar hafa veitt landsfundinum óvenju mikla athygli til þessa. En illu heilli hefur kastljósið fyrst og fremst beinst að kjöri nýs for- manns, sem fer fram á landsfund- inum. Það á sér hins vegar eðli- legar skýringar. Breytt fjölmiðlun hefur leitt til gerbreyttrar stöðu formanna stjórnmálaflokkanna. Ljósvak- inn hefur gert þá að risum, sem að öllum jafnaði gnæfa yfir aðra stjórnmálamenn, og sósíalískur stjórnmálaflokkur sem vill leggja áherslu á breiða forystu fremur en sterkt foringjaveldi fær ekki rönd við reist. Miðlarnir hefja formanninn í hærra veldi en valddreifingarflokkur telur ef til vill ráðlegt, - eða vill. Fyrir bragðið nýtur kjör nýs formanns stjórnmálaflokks óeðlilegrar at- hygli. A síðasta landsfundi Alþýðu- bandalagsins var mikilvægur á- greiningur ekki leystur með eðli- legum og lýðræðislegum hætti, - með kosningum. Engum duldist að skoðanir voru skiptar um skipan stöðu varaformanns og skipan framkvæmdastjórnar. Þessi ágreiningur var „leystur" með einhvers konar samkomu- lagi að tjaldabaki. Þetta var röng leið einsog sagan hefur sýnt og allnokkurn hluta af innri vanda flokksins í dag má rekja til þess- arar fælni við að útkljá ágreining með lýðræðislegum hætti. Eining um nýja forystu Kosningar skera úr um fylgi við menn og málefni. Þær eru heilbrigðasta leiðin til að skipa í trúnaðarstöður það fólk sem menn treysta best hverju sinni. Það má vissulega færa rök fyrir því, að stundum geti verið heppi- legt fyrir stjórnmálaflokk að um nýjan formann náist svo mikill einhugur að hann sé kjörinn án mótframboðs. En einsog staðan er í dag innan Alþýðubandalags- ins er hreinlegast fyrir flokkinn að kosið verði á milli frambjóð- enda til formanns. Það væri innantóm óskhyggja að halda því fram að ekki verði átök um kjör nýs formanns. Hjá því verður vart komist, og þau kunna að reynast flokknum erfið. En hvaða skoðun sem félagarnir annars hafa á því, hver skuli verða næsti formaður, þá er það skylda þeirra að sameinast um að gera þá flokkslegu ákvörðun sem auðveldasta fyrir bæði flokk og félaga. Menn verða að gæta sín í baráttunni, berjast málefnalega, — og, það sem mestu skiptir, sætta sig við niðurstöðuna. Að loknum landsfundi, að loknu formannskjöri, þá er það skylda flokksfélaganna að styðja við bakið á þeirri forystu sem þeir hafa í sameiningu kosið sér á lýðræðislegan máta. Það gildir ekki síst um nýjan formann, jafnvel þó menn kunni upphaf- lega að hafa talið til þess starfa annan betur fallinn. Margir munu ugglaust telja kröfu um einingu um nýja forystu gamaldags forræðishyggju. Þá það. En í ljósi þeirrar stöðu sem Alþýðubandalagið er í um þessar mundir er slík krafa ekkert annað en gamaldags heilbrigð skyn- semi. Á sama grunni rís önnur krafa: Að menn bretti upp ermar að loknum landsfundi og moki ofan í skotgrafirnar. Annars geta menn lokað þess- ari sjoppu. Misklíð minnkar Skæðast einstakra misklíðar- efna í flokknum hefur verið af- staðan til verkalýðsmála. Á flokkurinn að hafa sjálfstæða af- stöðu til verkalýðsmála, afstöðu sem hann mótar sjálfur, - þar sem verkalýðsforingjar hafa ekki neitunarvald? Um þetta hefur staðið ágrein- ingur að gömlu og nýju. En hann blossaði upp með áður óþekktri hörku eftir að menn tóku upp nýja aðferð í kjarasamningum sem kennd var við þjóðarsátt, og mætti harðri andstöðu margra flokksfélaga og Þjóðviljans sömuleiðis. í dag er þessi ágreiningur hins vegar ekki jafn yfirþyrmandi og áður. Sú skoðun virðist nú út- breidd í flokknum, að þar sem Alþýðubandalagið sé óvefeng- janlega róttœkasti hluti verka- lýðshreyfingarinnar, þá sé ekki óeðlilegt að það setji fram sjálf- stœða stefnu, sem í mörgum greinum er róttækari en hin opin- bera stefna verkalýðshreyfingar- innar. Þau rök hníga ennfremur að þessari niðurstöðu, að forysta verkalýðshreyfingarinnar er í dag þverpólitísk. Innan hennar eru sterkir áhrifamenn úr flokki at- vinnurekenda, menn á borð við miðstjórnarmann Sjálfstæðis- flokksins, Björn Þórhallsson auk skeleggra forystumanna úr miðjuflokki á borð við Fram- sókn. Sameiginleg stefna, sem mótuð er af verkalýðsforystu sem þannig er saman sett hlýtur oftar en ekki að bera keim af mála- miðlun, sem flokkur á borð við Alþýðubandalagið getur ekki ævinlega fellt sig við. Af þeim sökum er ekkert eðli- legra en flokkurinn leggi áherslu á sjálfstæða, róttæka stefnu í verkalýðsmálum. Örlög þjóðar- sáttarinnar svokölluðu taka raun- ar af öll tvímæli um nauðsyn þess. Um þetta virðist almenn sam- staða nú um stundir í Alþýðu- bandalaginu, og raddir sem kyrja eftir öðrum nótum mynda ekki sterkan kór innan flokksins. Þetta hlýtur vitaskuld að auka möguleika á því að inní flokknum geti menn splæst sig saman. Meiri breidd Úr innviðum Alþýðubanda- lagsins hafa á síðustu árum komið fram endurteknar óskir um aukna breidd í forystu flokksins. Flokksmenn vilja að þjóðin fái að sjá með berum augum að forysta þeirra einskorðist ekki einvörð- ungu við miðaldra karla af suð- vesturhominu. Af hálfu flokks sem í senn vill kenna sig við jafnrétti kynjanna, valddreifingu og jákvæða byggð- astefnu er þetta eðlilegt viðbragð við ofuráherslu fjölmiðlaþjóðfé- lagsins á hina „sterku“ leiðtoga. Svipuð gagnrýni er til dæmis tíð nóg innan flokka erlendis sem eru runnir af svipaðri rót og Alþýðu- bandalagið. í Þjóðviljanum hefur áður ver- ið bent á eitt þeirra úrræða sem erlendir frændflokkar hafa gripið til: Þeir hafa fjölgað embættum í efstu lögum flokksins, og þannig í senn dreift valdi og búið til breiðari forystu sem fjölmiðlar komast ekki hjá því að taka visst tillit til. Fyrir Alþýðubandalagið væru ýmsir kostir fólgnir í því að breyta uppröðun embætta í forystu flokksins. Það mætti til dæmis hugsa sér að leggja niður embætti sem ekki hafa beinlínis þýðingar- miklu hlutverki að gegna en fjölga varaformönnum upp í tvo- eða jafnvel þrjá. Varaformenn gætu síðan skipt með sér verkum og þannig orðið í raun einskonar talsmenn flokks- ins í tilteknum málum. Þannig mætti hugsa sér að í verkahring annars varaformanns af tveimur væri fyrst og fremst innra starf flokksins. Hinum yrði falið að sinna afmörkuðum málaflokki, sem til dæmis miðstjómin teldi brýnt að flokkurinn legði um til- tekið árabil sérstaka áherslu á. í dag væri sjálfsagt að slíkum vara- formanni yrði falið að helga sig byggðamálum og hafa forgöngu um sterka stefnumörkun á því sviði. Pólitíska nýsköpun! Nýr formaður eða breytingar á skipan æðstu embætta Alþýðu- bandalagsins á landsfundi í nóv- ember munu þó ekki skipta sköpum um framtíð flokksins. í dag er hann hrjáður af hug- myndalegri stöðnun og á meðan flokkurinn er upptekinn við innri deilur er hann ófær um að takast á hendur þá pólitísku endurnýjun sem ein getur fleytt honum inn í framtíðina. Alþýðubandalagið er í sárri þörf fyrir pólitíska nýsköpun, - og hlutverk landsfundar hlýtur að verða að hefja sókn að því. Á því byggist endurnýjun og lífsþróttur sósíalískrar hreyfingar. Það er ekki nóg að kjósa nýjan formann. Össur Skarphéðinsson. Laugardagur 12. aoptember 1987 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.