Þjóðviljinn - 04.10.1987, Page 21

Þjóðviljinn - 04.10.1987, Page 21
Hrun fiskneyslu í Þýskalandi: Mig dreymdi að ORMAR skriðu upp úr innkaupatöskunni Kona nokkur, sagði fisksal- inn, sem hefur keypt af mér fisk í tíu ár, kom til mín og sagði: Gjarnaviiég halda áfram að borðafisk, en í nótt dreymdi mig að ormar margir og Ijótir skriðu upp úr inn- kaupatöskunni minni. Þetta var eftir að í vesturþýsku sjónvarpi birtist þátturinn frægi um orma í sfld, sem á skömmum tíma kollvarpaði fiskmarkaði í landinu. Og hafa menn síðan rif- ist mikið í því landi um það, hvort sjónvarpsþátturinn hafi verið heiðarleg gagnrýni á sóðaskap í matvælaiðnaði eða svívirðilegur rógur æsingamanna. Héðan af ís- landi hefur svo sú kenning verið fram borin ( Guðbergur Bergs- son í DV) að þessi geigvænlegi ótti við orma í fiski verði helst skýrður með því að skelfileg ormahrollvekja hafi fylgt Germ- önum allt frá dögum Sigurðar Fáfnisbana. Þetta er ekki réttlátt Nema hvað - þegar þýska viku- ritið Stern fór á stúfana og svip- aðist um í fiskverslunum og fiski- ðjuverum í Bremerhaven í síð- asta mánuði, þá ríkti þar dapur- leiki og bölsýni. Blaðið heimsótti fyrst lítið fyrirtæki manns sem Kronshcnapel heitir og hefur haft fimmtán manns í vinnu. Kronsc- hnapel tók við fyrirtækinu af föður sínum, sem hafði erft það eftir afa sinn: nú hefur hann sjálf- ur um tuttugu ára skeið lagt niður sfld og búið til sfldarsalöt. Vara hans er víðfræg fyrir gæði, sjálfur hefur hann reglulega sent sín kryddsfldarflök og salöt á rannsóknarstofu og alltaf fengið hina bestu einkunn. Og laun heimsins eru vanþakklæti eins og fyrri daginn: á svipstundu kippti sjónvarpsþátturinn frægi grund- vellinum undan Kronschnabel og hans fólki. Salan hefur minnkað um 80 prósent og um miðjan september áttu 10 manns að hætta vinnu hjá þessu litla fyrir- tæki. Og þetta fjölskyldufyrir- tæki er eitt af mörgum sem eru að því komin að leggja upp laupana eða hefur þegar neyðst til þess. Og sfldarkarlar í þrjár kynslóðir geta fátt til ráða tekið annað en bíta á jaxlinn og segja: Þetta er ekki réttlátt. Ormamálið er mikið áfall fyrir Bremerhaven. Þar var mikið atvinnuleysi fyrir ( 17%) og fisk- iðnaðurinn var orðinn eina atvinnugreinin sem stóð með nokkrum blóma. Nú er hvert fyr- irtæki á því sviði í hættu. Og svip- aða sögu segir Stern frá Hamborg og Cuxhaven. Var nokkur í hœttu? f sömu frásögn er þess getið að þeir sem tóku saman ormamynd- ina fyrir fréttaskýringaþátt sem nefnist Monitor, hafi sjálfir verið mjög hissa á hinum sterku við- brögðum sem hann vakti upp. JurgenThebarth, einn af höfund- um þáttarins, segir sem svo: „Við ætluðum barasta að benda á hættur fyrir heilsufar manna sem óvandvirkir fisk- vinnslumenn bera ábyrgð á“. Prófessor Horst Noelle, mat- vælafræðingur starfandi í Brem- erhaven, lítur þetta mál öðrum augum. Hann segir að í sjón- varpsþættinum hafi ekki verið um hlutlægar upplýsingar að ræða heldur aðeins samtíning til að vekja upp viðbjóð og ótta. Hann bætir því við í samtali við Stern, að ekki verði um það deilt að ekki geti nokkur maður beðið heilsutjón af fiski sem unninn er af fagmönnum. Sama megi raun- ar segja um allan fisk sem hefur verið djúpfrystur, soðinn eða steiktur. Raunveruleg hætta er, segir hann , ekki í neinu samræmi við allar þar neikvæðu rokufyrir- sagnir sem mál þetta hefur teymt á eftir sér. Aðstandendur fréttaskýringa- þáttarins Monitor hafa reynt að svara fyrir sig. Snemma í sept- ember skýrðu þeir frá því, að þeir hefðu vitneskju um 40 dæmi þess að menn hefðu sýkst af ormum í fiski. Og fyrrnefndur JurgenThe- barth lætur að því liggja, að í rauninni hljóti dæmin að vera miklu fleiri. Peir hjá Monitor bera ýmsa vísindamenn fyrir þessari tölu, fjörtíu manns. Með- al annars vitna þeir til fræði- manns sem Heino Möller heitir og er dósent við Haffræðistofnun Kielarháskóla. Möller hafði tekið saman vegna bókar sem í smíðum var sýkingartilfelli frá tuttugu ára tímabili. En hann kveðst sjálfur ekki vita hvort á þessum langa tíma hafi það gerst fjörtíu sinnum að ormar í fiski hafi lagt menn í rúmið. Reinhard Meiners, formaður sambands fiskvinnslufyrirtækja í ' Bremerhaven, telur röksemda- færslu sjónvarpsmanna næsta furðulega. Hann segir sem svo: Á hverju ári éta menn um 800 þús- und tonn af fiski í Vestur- Þýskalandi. Hafi fjörtíu manns fengið í magann af fiskáti á tutt- ugu árum, þá segir líkindareikn- ingur mér, að ég þurfi að éta fisk í þrjá miljarða máltíða áður en ég verð fyrir heilsutjóni! En sjónvarpsgarparnir sem setja saman Monitor telja sig engu að síður hafa unnið nokk- urn sigur í sínu máli. Þeir til- kynntu að nú um skeið hefðu fiskvinnslufyrirtæki skorið þunn- ildi af fiskflökum, en þar er helst orma að finna. Fiskkaupmenn láta sér fátt um finnast: fiskiðnaði hafi lengi verið skorin burt þunn- ildi ef að grunur lék á ormum. Önnur matvœlahneyksli En hvernig sem allt veltist: það stendur til að setja ný lög um fisk- vinnslu í Vestur-Þýskalandi, hver sem raunveruleg þörf er fyrir slíka löggjöf. Kannski eru menn að vona að nýjar reglugerðir og strangari endurveki traust þýsks almennings á fiski. Þeir sem fisk selja og úr honum vinna eru í erf- iðri stöðu meðal annars vegna þess, að ormamálið kemur í kjölfar margra matvælahneyksla sem voru miklu alvarlegri. Upp komst um allskonar hæpin rot- varnarefni og litarefni í kjötvöru, östrogen í kálfakjöti, stropuð egg í kökudeigi, frostlög í hvítvíni og þar fram eftir götunum. Og alltaf ráku framleiðendur upp stór augu og reyndu að gera sem minnst úr öllu saman og sóru og sárt við lögðu að aldrei hefðu þeir gert illt af sér vísivitandi og að enginn heilsufarslegur háski væri á ferðinni. Þessi slæma reynsla gerir neytendur mjög tortryggna, og þeir taka miklu minna mark á þeim sem mæla með fiski en þeim sem bregða upp skelfilegum myndum á sjónvarpsskjánum. Samanber konuna sem dreymdi ormana og vitnað var til í upphafi þessarar samantektar. Fundinn sökudólgur Sjónvarpið er svo sterkur mið- ill að það vekur hæglega upp múgsefjun sem í þessu dæmi beinist gegn fiski. Tiltölulega saklausir fisksalar segja frá því, að daglega komi til þeirra roskið fólk sem illt er í baki eða maga og slengi því framan í þá, að allt sé þetta andskotans ormum í fiski að kenna. Við eitrum ekki fyrir fólk, segja fisksalarnir - en orð þeirra mega sín náttúrlega lítils þegar sjálft sjónvarpið er annrs vegar. ÁB tók saman. Frá fiskmarkaði í Bremerhaven meðan allt lék í lyndi: verður hægt að endur- reisa orstír fiskmetis? Sunnudagur 4. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.