Þjóðviljinn - 15.10.1987, Page 4

Þjóðviljinn - 15.10.1987, Page 4
Þegar Það hefur vart farið fram hjá neinum að Jón Baldvin Hanníbalsson hefur lagt fram frumvarp til fjárlaga fyrir árið 1988. Engu er líkara en lögð hafi verið á það sérstök áhersla að gera þennan atburð að stórfrétt og koma því inn hjá fólki að hér sé ekki um neitt venjulegt fjárlagafrumvarp að ræða. Rétt áður en leggja á fram frumvarpið, rjúka ráðherrar upp með andfælum og telja nauðsyn- legt að skoða málin eina ferðina enn. Eftir- vænting og spenna magnast. Þegar frumvarpið svo loks lítur dagsins Ijós er það kynnt undir slagorðinu „Gefið upp á nýtt“. Orðalag í fréttatilkynningu fjármálaráðuneytis- ins og reyndar sums staðar í frumvarpinu sjálfu leiða hugann frekar að líflegri auglýsingastofu en æskilegum virðuleika stjórnarráðs. Formæl- endur þess hrópa á torgum um að nú sé komið að tímamótum. í frumvarpinu sé kveðið á um róttæka endurskipulagningu og gert ráð fyrir stjórnkerfisbreytingum í valddreifingarátt. Þar sé ríkisstjórnin að kljást við Grettistök sem hún lyftir í varnargarða gegn vaxandi þenslu, verð- bólgu og viðskiptahalla, svo að notað sé orða- lag í athugasemdum fjármálaráðherra með frumvarpinu. Já, það er stórt orð Hákot. En þegar skarkalanum linnir og púðurreykn- um svifar frá, kemur í Ijós að byltingin er síður en svo riðin í garð. Þvert á móti eru á ferðinni gamalkunn íhaldsúrræði sem fólgin eru í niður- skurði og hræðslu við að leggja skatta á þá aðila ________LEtÐARI_______________ fjallið tók jóðsótt sem breiðust bökin hafa og færir eru um að borga. Fjármálaráðherra virðist hafa brugðið hnífnum góða frá Verslunarráðinu á ýmislegt fleira en skegg sitt. Fyrir hálfri öld setti Roosevelt Bandaríkjafor- seti pólitíska stefnu sína fram undir kjörorðinu að gefa þyrfti upp á nýtt. Hann lagði áherslu á að bæta þyrfti stöðu þeirra þjóðfélagsþegna sem byggju í lélegum húsakynnum klæðlitlir og van- nærðir: íslenska fjármálaráðherrann hefur nú rámað í þetta snjalla slagorð. En hann hefur ekki munað eftir því að hjá Rooseveit forseta fylgdu orðum athafnir. Hann fékk samþykkt lög um ódýrt íbúðarhúsnæði og lög um lágmarks- laun sem urðu til að stytta mjög vinnutíma verkafólks. Það hefur ekki verið lenska í þessu blaði að telja bandarísk stjórnvöld vera heppilega fyrirmynd íslenskum ráðamönnum. En það skal fúslega viðurkennt að gott væri að Jón Baldvin Hanníbalsson fjármálaráðherra gaumgæfði feril Roosevelts forseta nákvæm- lega úr því að hann hefur nú tekið upp slagorð hans um nauðsyn þess að stokka spilin upp á nýtt og gefa aftur. Fjárlagafrumvarp formanns Alþýðuflokksins getur tæpast talist alvarleg tilraun til að stokka upp spilin. Þar er ekki að finna mikið af djörfum hugmyndum um aukna félagslega uppbygg- ingu. Þvert á móti er það uppfullt með stór- hættulegar hugmyndir um niðurskurð en þær eru að vísu sveipaðar velsæmisblæju og kallað- ar valddreifing, kerfisbreyting eða endurskil- greining. Og þar sem niðurskurðurinn nægir ekki til að brúa bilið eru lagðir á nýir skattar. Og þar ríkja ekki þau sjálfsögðu jafnaðar- og réttlætis- sjónarmið að hver skuli greiða eftir efnum og aðstæðum þannig að þeir sem mest eiga aflögu greiði hlutfallslega hæstu gjöldin. Nei, það er gripið til þess ráðs að skattleggja matvæli. Þar mun greiða hlutfallslega stærstan skerf það lág- tekjufólk, sem eyðir mestum hluta launa sinna til kaupa á lífsnauðsynjum. Fyrir kosningar var á það bent að ekki yrði hjá því komist að auka skattheimtu. Öðru vísi væri ekki unnt að loka fjárlögum nema með stóru gati. Spurningin væri hvort sá skattur yrði lagður á þau fyrirtæki sem hafa á undanförnum misserum rakað saman gróða, eða hvort al- menningur yrði skattlagður. Ríkisstjórnin hefur nú upplýst þjóðina um hvora leiðina á að velja. Matarskattur er það lausnarorð sem bjarga skal fjármálum ríkisins. Það er grátlegt að það skuli vera Alþýðuflokk- urinn, flokkur sem eitt sinn gerði kröfu til að vera talinn málsvari launafólks, að það skuli vera krataflokkur sem berst nú fyrir því að auka álögur á almenning. Erskrumlátum auglýsingamennskunnar linn- ir standa staðreyndirnar eftir: Jón Baldvin er ekkert klárari íhaldsmaður en Þorsteinn Páls- son. ÓP KUPPT Skammarkrókur Fyrir dyrum stendur lands- fundur í Alþýðubandalaginu, og á þeim fundi verður kosinn for- maður einsog flestir vita af nú- orðið. Um þau mál fjallar Sigurjón Bjarnason í nýjasta tölublaði Gálgáss, sem Alþýðubandalags- menn á Héraði gefa út, og Sigur- jón skrifar grein sína í dálk sem heitir „Skammarkrókurinn", enda nokkur ádrepa til flokks- manna. Babelsævintýr Sigurjón segir þar að Alþýðu- bandalaginu hafi verið ætlað að verða eitt bitrasta vopnið í bar- áttu vinnandi fólks gegn arðráni og auðvaldi. Nú, þegar átaka er þörf sé flokkurinn hinsvegar aflvana: „hvað sem valdið hefur þá er nú komið svipað fyrir Al- þýðubandalagsmönnum og mannkyninu eftir Babelsævintýr- ið fræga, þeir skilja ekki lengur mál hver annars.“ „Margir virðast líka búnir að steingleyma hinum upphaflegu markmiðum, og þó íhald og kap- ítalismi ríði nú atvinnulífi og efnahag þjóðarinnar á slig í miðju góðærinu virðist þeim standa hjartanlega á sama.“ „Hitt láta menn sig miklu varða hvernig raðað er til mannvirðinga innan flokks sem utan. Losni embætti eða vegtylla upphefst óðara þvílíkt orðagjálf- ur að jafnvel fjölmiðlahrafnarnir lækka í sér hávaðann og halla undir flatt,“ segir Sigurjón. Á meðan Róm brennur Og Sigurjón tekur í karphúsið deildir og arma og vægir hvergi: „Nú verðum við að kjósa konu,“ gellur fyrst í nokkrum móðursjúkum pilsvörgum, sem virðast styðja þennan flokk í því augnamiði einu að tylla sér á valdastól án þess að hafa hug- mynd um hvaða stefnu á síðan að framfylgja. „Hér verður landsbyggðin að eignast sinn fulltrúa,“ drynur í dreyfbýlingum, sem margir hverjir hafa asklok fyrir himin og huga lítt að þjóðarheild eða skiptingu þjóðarauðsins. „Mann með háskólagráðu, helst doktorspróf,“ er krafa dreissugra háskólaborgara, sem margir hverjir hafa fyllt flokk þennan af lítillæti sínu. Síðan kemur verkalýðsforyst- an með sínar athugasemdir, flok kseigendafélag, pj óðvilj akiíka og hváð þau heita öll þessi fyrir- brigði, sem standa að þessum annars umkomulausa vesalingi. Annars vinsælt umræðu- og rifrildisefni eru starfshættir, lög og reglugerðir flokksins. Hvað á að kjósa marga í þessa stjórn eða ráð, hve oft halda skal fundi, hvernig og hvar á landinu. Þessu fer fram á meðan Róm brennur, segir Sigurjón, - meðan afturhaldið kemst upp með efna- hagsstefnu sem einkennist af þessu: Árið í ár er metár í hernaðar- framkvæmdum á íslandi. Tekjum landsmanna er svo hrikalega misskipt að líkja má við öld lénsveldis í Mið-Evrópu. Fjármagnseigendum hefur nú verið heimilað óprúttnara vaxta- okur en nokkurs staðar þekkist hjá siðuðum þjóðum. Öll samhjálp ríkissjóðs hefur verið á undanhaldi fyrir ásókn braskgefinna einstaklinga, sem vilja gera sér félagslegar þarfir al- mennings að féþúfu. Má þar nefha Iæknishjálp, menntun, samgöngur o.m.fl. Svört framtíö Og menn kann að reka í roga- stans þegar afleiðingarnar koma í ljós, segir Sigurjón: Þegar hluti þjóðarinnar hefur ekki efni á að hagnýta sér þá heilbrigðisþjónustu sem rekin er í landinu. Þegar menntun barnanna verður komin undir fjárhag for- eldris. Þegar vaxtaokrararnir hafa svelgt til sín meginhluta sparifjár- ins og lagt undirstöðuatvinnuveg- ina í rúst. Þegar kjarasamningar hafa verið lagðir niður og í staðinn kominn uppboðsmarkaður á vinnuafli. Þegar sveitir landsins hafa ver- ið lagðar í auðn og þjóðin trakter- uð á verksmiðjuframleiddu kjöti, innlendu sem erlendu. OGSKORID Þegar peningavaldið verður ekki lengur í höndum okkar eigin Seðlabanka, heldur komið undir erlendum bönkum í einkaeign, sem hafa komið sér upp velrekn- um útibúum á íslandi. Uppúr dýinu Það þarf að hala flokkinn upp- úr dýinu, segir að lokum í „Skammarkróknum“ þeirra á Héraði: „Verkefnin liggja á borðinu. Aðeins þarf að hefjast handa og skerast í leikinn þegar færi gefst.“ Þetta er þörf ádrepa að austan, nú þessa dagana þegar teikn eru á lofti um að átök í Alþýðubanda- laginu séu að harðna fyrir for- mannskjörið á landsfundinum. Val forystumanna er auðvitað mikilvægara mál en Sigurjón gef- ur í skyn í sfnum þarfa reiðilestri. Ætli flokksmenn hinsvegar að fara að orðum Sigurjóns, hala sig uppúr dýinu og taka til við hin brýnu verk, - þá verða þeir að muna að val nýrrar forystu, þar á meðal formannskjörið, er hvorki fegurðarsamkeppni né hrútasýn- ing, heldur pólitískur verknaður. Til forystu þarf að veljast það fólk sem flokksmenn treysta best til að hafa með höndum verk- stjórn og leiðsögn í þessum verk- um. Það fólk verður að velja eftir pólitískri hæfni þess, eftir því hversu gæfulega það lítur út í fylkingarbrjósti pólitískrar end- urnýjunar, í vinnubrögðum og hugmyndum. Persónulegar væringar verða að víkja, flokksmenn verða að hafa styrk til að takast í hendur óháð sjóndeildarhring sérhóps, arms, deildar, klíku. Annars geta menn alveg eins hætt þessu strax. ~m þlÓÐVILIINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandl: Útgáfufólag Þjóðviljans. Rltstjórar: Árni Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur Skarphóðinsson. Frótúistjóri: Lúðvík Geirsson. Blaðamenn: Garðar Guðjónsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson, Hrafn Jökulsson, Hjörleifur Sveinbjörnsson, IngunnÁsdísardóttir, „ Kristín Ólafsdóttir, Kristófer Svavarsson, Logi Bergmann Eiðsson (íþróttir), Magnús H. Gíslason, MörðurÁrnason, ÓlafurGíslason, Ragnar Karlsson, Sigurður Á. Friðþjófsson, Stefán Ásgrímsson, Vil- borg Davíðsdóttir, Yngvi Kjartansson (Akureyri). Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar, Hildur Finnsdóttir. Ljósmyndarar: EinarÓlason, Sigurður MarHalldórsson. Útlltstelknarar: SævarGuðbjömsson, GarðarSigvaldason. Margrót Magnúsdóttir Framkvæmdaatjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrlfstofustjórl: Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Kristín Pótursdóttir. Auglýsingastjórl: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir. Auglýsingar: Unnur Agústsdóttir, OlgaClausen, GuðmundaKrist- insdóttir. Sfmvarsla: HannaÓlafsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir. Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Útbreiðslu- og afgrelðslustjórl: Hörður Oddfrfðarson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Hrefna Magnúsdóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Olafur Björnsson. Utkoyrsla, afgrelðsla, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavfk, sfmi 681333. Auglýsingar: Sfðumúla 6, sfmar 681331 og 681310. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðvlljans hf. Prentun: Ðlaðaprent hf. Verð f lausasölu: 55 kr. Helgarblöö: 65 kr. Áskriftarverð á mánuði: 600 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Fimmtudagur 15. október 1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.