Þjóðviljinn - 15.10.1987, Blaðsíða 8
Þorvaldur S. Þorvaldsson, formaður Skógræktarfélags Reykjavíkur, stjórnar
söng á samkomunni í Grensási en Eiríkur Guðjónsson úr Rangárvallasýslu, og
Sveinbjörn Dagfinnsson úr Reykjavík taka hressilega undir. Mynd: sibl.
Aðalfundur Skógræktarfé-
lags íslands var að þessu
sinni haldinn í Stykkishólmi.
Mun ástæðan fyrir því, að
Stykkishólmur varð fyrir val-
inu, ekki hvað síst hafa verið
sú, að á þessu ári er Skóg-
ræktarfélag þeirra Hólmara
40 ára. Þótti skógræktar-
mönnum mjög við hæfi að
gera afmælisbarninu myndar-
lega heimsókn á þessum
merku tímamótum.
Reykvfkingar og raunar fleiri
fóru með langferðabíl frá Um-
ferðarmiðstöðinni á slaginu kl. 6
sd. fimmtudaginn 3. sept. Komið
var til Stykkishólms seint á 10.
tímanum og haldið beint á hótel-
ið. En þótt í húsi því séu „margar
vistarverur”, eins og sagt er um
annan góðan stað, þá rúmuðust
þar ekki nándar nærri allir að-
komumenn. Var því verulegur
hluti þeirra vistaður víðs vegar
um bæinn. Þeirra á meðal blaða-
maður Þjóðviljans. Var hann til
húsa að Lágholti 21, hjá þeim
Sigurþóri Hjörleifssyni og Magn-
dísi konu hans og átti þar góðar
gistinætur.
Fundur er settur
Kl. 10 á föstudagsmorgun hófst
svo fundurinn með setningar-
ræðu formanns Skógræktarfélags
fslands, Huldu Valtýsdóttur.
Færði hún Skógræktarfélagi
Stykkishólms hamingjuóskir
með afmælið, minntist skógrækt-
arfrömuðarins Tryggva Sig-
tryggssonar á Laugabóli, sem lát-
ist hafði frá því að síðasti aðal-
fundur var haldinn, skipaði
starfsmenn fundarins og skýrði
frá störfum stjórnarinnar á liðnu
ári og afdrifum þeirra ályktana
sem síðasti aðalfundur fól stjórn-
inni til fyrirgreiðslu. Gat þess
einnig að allmörg ný skógrækt-
arfélög hefðu verið stofnuð á ár-
inu, flest austanlands.
Ávarp flutti og formaður Skóg-
ræktarfélags Stykkishólms, bauð
fundarmenn velkomna og lét í
ljósi þá von að fundurinn mætti
verða verkadrjúgur.
Þá flutti Jón Helgason land-
búnaðarráðherra ávarp. Áhuga-
fólk um skógrækt þarf tvennt,
sagði ráðherrann: Plöntur og
land. Lagði áherslu á að Skóg-
ræktin útvegaði sem ódýrastar
plöntur. Hefði beðið landgræðsl-
una að svipast um eftir hentugu
landi fyrir fólk til gróðursetning-
ar og það hefði hún gert. Allir,
sem þess óskuðu, þyrftu að fá
skákir án mikils kostnaðar.
Snorri Sigfússon framkvæmda-
stjóri flutti fróðlega skýrslu um
störf skógræktarfélaganna. Skóg-
ræktarfélag Borgfirðinga tók til
friðunar leiguland í Grafarholti í
Stafholtstungum. Á vegum Skóg-
ræktarfélags Skagfirðinga var
sett um 2,5 ha girðing á Hólum í
Hjaltadal og gróðursettar þar 4
þús. plöntur. Stækkuð voru girð-
ingarhólf víðs vegar um land.
Alls voru á sl. ári gróðursettar á
vegum skógræktarfélaganna um
500 þús. plöntur, helmingi fleiri
en árið áður. Eyfirðingar plönt-
uðu um 30 þús. plöntum í bænda-
skóga og Suður-Þingeyingar um
20 þús. Tveir menn ferðuðust á
milli skógræktarfélaganna og
leiðbeindu og aðstoðuðu við
grisjun. Ekki er rúm til þess að
grípa frekar á skýrslu Snorra
framkvæmdastjóra, en öll var
hún hin fróðlegasta og ber þess
vitni að víða er vel að verki staðið
hjá skógræktarfélögunum.
„Hæstiréttur og sitka-
lús”
Sigurður Blöndal skógræktar-
stjóri kvað trjávöxt hafa verið
óvenju góðan að þessu sinni,
enda sumarið hið hlýjasta sem
komið hefði síðan 1966, og mið-
aði þá við Reykjavík. En þótt vel
hafi þannig árað fyrir trjávöxtinn
hefur þó tvennt slæmt gerst. í
rsta lagi hæstaréttardómurinn í
sgarðsmálinu, þar sem úr-
skurðað var að andvirði jarðar-
innar Ásgarðs í Grímsnesi skyldi
renna til erfingjanna en ekki
Skógræktarinnar, eins og eigend-
urnir ætluðust til. í öðru lagi það
að sitkalúsin sem haldið hefur sig
sunnanlands er nú komin til
Austurlands, en vonast var til að
kuldinn þar myndi reynast henni
um megna. Skógræktin á nú mjög
vaxandi byr að fagna, sagði skóg-
ræktarstjóri, en nægir hann til
þess að feykja seðlum upp úr
ríkiskassanum? Fagnaði skóg-
ræktaráhuga bændasamtakanna,
sem bæði ályktanir Búnaðarsam-
bandsins og Stéttarsambandsins
bæru vott um. I skógræktarlögum
er kafli um stuðning við nytja-
skógrækt á bújörðum en naumast
nægur.
Við framkvæmdir við ræktun
nytjaskóga verður Skógrækt
rtkisins að vera leiðandi afl, líkt
og í nágrannalöndunum. Pening-
arnir koma frá ríkinu í hvaða
farveg sem þeir verða svo látnir
renna. Sérmenntaðir skógrækt-
armenn verða að skipuleggja þá
ræktun sem ríkið leggur fé til og
hafa eftirlit með framkvæmd
hennar, þannig er það í öllum
þróuðum skógræktarlöndum.
Drap einnig á nýtt skipulag
fyrir Skógræktina sem miðaði að
einföldun kerfisins, m.a. með því
að gera boðleiðir greiðari og
styttrí og fækka rekstrardeildum.
í þann mund sem Sigurður
Blöndal hafði. lokið máli sínu
komst á kreik eftirfarandi erindi,
sem kennt var Sveinbirni alls-
herjargoða á Draghálsi:
„Skógræktarmenn á grœnni
grein,
gremja og hrella þau verstu mein.
Angra samt mest þeirra hrís og
hús
Hœstiréttur og sitkalús. ”
Þessu næst las og skýrði Baldur
Helgason gjaldkeri reikninga
Skógræktarfélagsins og fluttar
voru skýrslur einstakra félaga.
Svarar til eins íþrótta-
vallar
Hófust nú almennar umræður.
Verða þær ekki raktar hér nema
að litlu leyti.
Bent var á að bændaskógar
hefðu ekki komist á nægan rek-
spöl vegna fjárskorts. Ekki
skortir áhuga hjá bændum en
Skógræktin þarf að fylgja málinu
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 15. október 1987