Þjóðviljinn - 17.11.1987, Síða 1
Evrópukeppni
Hadjuk í bann
Strangir dómar UEFA
Aganefnd UEFA dæmdi júgó-
slavneska iiðið Hadjuk Split í
tveggja ára bann frá Evrópu-
keppni um helgina. Bannið er til-
komið vegna táragassprengju
sem kastað var inná völlinn í leik
Hadjuk gegn Marseille í UEFA-
bikarnum.
Pá hafa allir leikir á vegum
UEFA verið bannaðir á velli liðs-
ins í tæp þrjú ár. Hadjuk Split,
sem stendur mjög illa fjárhags-
lega, hefur áfrýjað þessum dómi.
Forráðamenn félagsins segja að
helstu tekjur liðsins komi af
leikjum í Evrópukeppni og nú sé
eins víst að félagið verði gjald-
þrota.
Á fundi aganefndar UEFA
voru mörg mál tekin fyrir og
dómar yfirleitt þungir. írska lið-
inu Linfield hefur verið bannað
að leika Evrópuleiki á heimavelli
næstu tvö árin eftir óspektir í leik
liðsins gegn Lilleström.
PSV Eindhoven var dæmt í
rúmlega 400.000 kr. sekt fyrir
ólæti áhorfenda í ieik þeirra gegn
tyrkneska liðinu Galatasaray.
Tryrkirnir voru einnig sektaðir
um 200.000 kr. fyrir ólæti stuðn-
ingsmanna sinna.
Margir leikmenn voru dæmdir
í 2-4 leikja bann. Liam Brady er
einn þeirra og það verður líklega
til þess að hann missir af lokak-
eppni Evrópukeppninnar næsta
sumar. Portúgalski landsliðs-
maðurinn Helio Soussa var einn-
ig dæmdur í fjögurra leikja bann.
-Ibe
Umsjón: Logi B. Eiðsson
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
Handbolti
Stóimót norðan heiða
Fjögurra þjóða mót á Akureyri og Húsavík um nœstu helgi.
Pólland, Portúgal og ísrael. Fandsleikir við Pólverja í
Faugardalshöll á morgun og fimmtudag
Fyrri umferð íslandsmótsins er
nú lokið og við tekur undirbún-
ingur landsliðsins fyrir Olympíu-
leikana í Seoul 1988. Um næstu
helgi verður fjögurra liða mót á
Akureyri og Húsavík og þar
munu mæta til leiks Pólverjar,
Portúgalar og ísraelsmenn, auk
íslendinga.
Mótið sem er styrkt af KEA
hefst á föstudag. Þá mætir ísland
ísrael á Akureyri. Á laugardag
mæta íslendingar Portúgal á
Húsavík og síðasti leikurinn er
gegn Pólverjum á Akureyri.
Reykvíkingar fá einnig sinn
skammt því á morgun og
fimmtudag munu íslendingar
mæta Pólverjum í Laugardals-
höll. Auk þess mun íslenska ung-
lingalandsliðið mæta Portúgal og
ísrael.
íslenska landsliðið er svipað og
í mótinu í Sviss fyrir skömmu.
Bjarni Guðmundsson leikur þó
ekki með, en Atli Hilmarsson og
Birgir Sigurðsson koma í liðið að
nýju eftir meiðsli.
Þrátt fyrir að Portúgal og ísrael
séu ekki með þekktari þjóðum á
handknattleikssviðinu er þær
langt frá því að vera auðunnar.
ísland hefur leikið sex leiki
gegn ísrael, sigraði í þremur, tap-
aði einum og tveimur hefur lokið
með jafntefli.
ísland og Portúgal hafa aðeins
einu sinni leikið. Það var 1977 og
þá sigraði ísland.
Pólverjar er tvímælalaust erf-
iðasta liðið. íslendingar hafa
leikið 29 leiki gegn Pólverjum,
sigrað í 8, einum hefur lokið með
jafntefli, en Pólverjar hafa sigrað
20 sinnum. íslendingar fá því
tækifæri til að rétta aðeins hlut
sinn, en liðin leika alls þrjá leiki í
vikunni.
Það er KEA sem styrkir þetta
mót og gefur glæsilegan bikar.
Besti varnarmaðurinn og mark-
maðurinn fá verðlaun og einnig
markakóngurinn.
Það er ekki aðeins A-
landsliðið sem verður á ferðinni á
næstunni. U-21 árs landsliðið
heldur til Júgóslavíu í byrjun des-
ember og tekur þátt í
heimsmeistarakeppni U-21.
ísland leikur gegn Norð-
mönnum, Sovétmönnum og
Ungverjum. Liðið þarf að sigra í
tveimur af þessum leikjum til að
komast í milliriðla.
Ekki er ljóst hvort hægt verður
að senda sterkasta liðið, en marg-
ir af leikmönnum þess eru í
prófum um jólin. Það skýrist þó á
næstunni og vonandi að hægt
verði að senda sterkasta liðið út.
-Ibe
Staðan
1. deild handknattleik
Valur 9 7 2 0 191-140 16
UBK 9 6 0 3 189-190 12
Víkingur 9 5 0 4 224-205 10
Stiarnan 9 4 1 4 202-217 9
IR 9 324 191-204 8
KA 9 2 3 4 175-189 7
KR 9 3 1 5 189-204 7
Fram 9 2 1 6 202-223 5
Þór 9 0 0 9 175-228 0
Urvalsdeild körfuknattleik
UMFN 5 5 0 474-342 10
KR 4 3 1 324-277 6
IBK 4 3 1 281-261 6
UMFG 5 3 2 355-348 6
Valur 4 2 2 322-269 4
Haukar 4 2 2 286-273 4
ÍR 4 2 2 286-273 4
Þór 5 0 5 385-484 0
UBK 5 0 5 268-484 0
V-Þýskaland
Hamburg
kaupir
Hamburg SV hefur átt í mestu
vandræðum með markverði sína.
Þeir ráku Uli Stein í upphafi
keppnistímabilsins og nú fyrir
skömmu ráku þeir júgóslavneska
markvörðinn Pralija.
Nú hafa þeir keypt Jupp Ko-
itka frá 2. deilarliðinu Wattensc-
heid. Koitka er 35 ára gamall.
-Ibe/Reuter
Knattspyrna
Pleat til
Grikklands
David Pleat, sem sagði af sér
sem framkvæmdastjóri Totten-
ham nú fyrir skömmu, á nú í við-
ræðum við gríska liðið Olympi-
akos og liklegt er að hann taki við
liðinu.
Olympiakos hefur unnið
meistaratitilinn fimm sinnum á
síðustu sjö árum, en hefur gengið
mjög illa það sem af er. Leikið sjö
leiki án sigurs.
-Ibe/Reuter
Héðinn Gilsson átti frábæran leik í toppleik 1. deildarinnar FH-Valur.
Leiknum lauk með jafntefli 19-19. Hér svífur Héðinn hátt yfir Valsvörn-
inni. Þorgils Óttar Mathiesen, Geir Sveinsson og Þorbjörn Guðmunds-
son bíða eftir lendingu. MyndiE.ÓI. Sjá opnu.