Þjóðviljinn - 01.12.1987, Qupperneq 1
Þriðjudagur 1. desember 1987 269. tölublað 52. órgangur
Keflavíkurflugvöllur
Mengun í vatnsbóli
Bandaríski herinn hœttur að nytja vatnsból ínámunda
við sorpeyðingarstöð Suðurnesja vegna mengunar.
Friðþór Eydal upplýsingafulltrúi: Ekkerthœgtað
fullyrða hvaðan mengunin berst
Herinn á Keflavíkurflugvelli er
hættur að nytja vatnsból eitt
vegna efnamengunar. Að sögn
upplýsingafulltrúans, Friðþórs
Eydal, hefur ekki reynst unnt að
ákvarða hvaðan mengunin kem-
ur.
Vatnsbólið er í 3,5 kílómetra
fjarlægð frá Sorpeyðingarstöð
Suðurnesja í Njarðvík að sögn
Friðþórs, en ekki er vitað hvort
stöðinni er um að kenna.
Að sögn Eiríks Alexanders-
sonar, framkvæmdastjóra Sam-
bands sveitarfélaga á Suðurne-
sjum, hefur herinn verið með
sorphauga á mjög stóru svæði á
þessum slóðum allt frá stríðslok-
um til ársins 1983, og urðaði þá
rusl og brenndi. Sagði hann að
rannsókn þessa mengunarmáls
stæði fyrir dyrum.
Eiríkur segir að stöðin sé
fullkomnasta sorpbrennslustöð á
landinu, og anni hún öllu húsa-
sorpi og smærra iðnaðarsorpi frá
sveitarfélögunum á Suðurnesjum
sem og hernum og eyði um
11,000 tonnum á ári.
Ýmsu stórgerðu rusli var
brennt við opinn eld í stöðinni á
árum áður, en því hefur verið
hætt fyrir nokkru. Að undan-
förnu hefur brotajárn hrúgast
upp, eða frá því fyrirtækið Sindri
hætti að taka það til handarg-
agns, en sorpeyðingarstöðin
hafði gert samning við Sindra um
brottflutning á brotajárni.
Aðspurður um staðarvalið
fyrir sorpeyðingarstöðina í
Njarðvík sagði Eiríkur að íslensk
tollyfirvöld hefðu sett það skil-
yrði á sínum tíma að hún yrði
innan girðingar hjá hernum, þar
sem ekki hefði þótt við hæfi að
sorpbflar þaðan færu út af svæð-
inu oft á dag. Því hefði staðurinn
verið valinn með hliðsjón af við-
skiptum þessum við herinn. HS
Alþýðubandalagið
Fundað með
fiskvinnslufólki
StjórnAB boðar tilfunda
með fiskvinnslufólki í
öllum landsfjórðungum
- Með þessum fundum crum
við í senn að sýna samstöðu með
kjarabaráttu fískvinnslufólks og
knýja á um að snúið verði við
þeirri óheillaþróun sem verið hef-
ur í málum þess.
Jafnframt þarf að taka af skarið
með það hvað við teljum vera
brýnasta forgangsverkefnið í
kjaramálunum. Jafnframt erum
við að leita eftir skoðunum og
ábendingum frá fiskvinnslufólki
um kjaramálin og stöðuna í sjáv-
arútveginum, sagði Ólafur Ragn-
ar Grímsson formaður Alþýðu-
bandalagsins í samtali við Þjóð-
viljann en nýkjörin stjórn flokks-
ins ætlar að eiga fundi með fisk-
vinnslufólki í öllum landsfjórð-
ungum á næstu dögum og vikum.
-»g-
Sevilla
Þröstur
útnefndur
5 íslenskir
alþjóðameistarar í skák
Frá Helga Ólafssyni fréttaritara Þjóð-
viljans á heimsmeistaraeinvíginu í
skák í Sevilla á Spáni
Þröstur Þórhallsson var út-
nefndur alþjóðlegur meistari á
þingi FIDE alþjóðaskáksam-
bandsins sem nú stendur yfir í Se-
villa. Umsókn Skáksambands fs-
lands um titil Þrastar barst seint
þar sem síðasti áfangi hans náðist
á alþjóðlega mótinu í Njarðvík,
aðeins viku fyrir þingsetningu.
Ero Helme formaður útnefn-
inganefndar FIDE sá þó alla
meinbugi á því að Þröstur gæti
fengið titilinn. Fyrir tilverknað
Pólverjans Filipowicz fékk þetta
mál þó farsæla lausn. Helme er
svæðisforseti Norðurlanda og
hefur haldið þeirri stöðu þó að
þing Norræna skáksambandsins
hafi fundið ástæðu til að sam-
þykkja vítur á hann vegna fram-
göngu hans í sambandi við svæða-
mót Norðurlanda 1985.
Þröstur er fimmti íslenski skák-
meistarinn sem ber þennan titil.
Fyrir eru þeir Ingi R. Jóhanns-
son, Karl Þorsteins, Haukur
Angantýsson og Sævar Bjarna-
son.
í forföllum Þráins Guðmunds-
sonar forseta Skáksambands ís-
lands sat Einar S. Einarsson ritari
norræna Skáksambandsins þing
FIDE fyrir íslands hönd og fylgdi
eftir máli þessu.
-hól/Sevilla
Sjá bls. 19 og bls. 15.
Hópbónus
Betri
kostur?
Sjáfréttaskýringu bls.
7
^sgnmur C
lonssnn " t >V.ti w.
IjAggM
< X i'fsNnn
Á bókasýningu á Hótel Sögu í gær mátti kenna margan knáan kappann af (t.h.) og Jón Böðvarsson skólameistari sem samið hefur fyrsta bindi iðnsögu
ritvellinum. Hér bera þeir saman bækur sínar þeir Bjarni Guðnason prófessor íslendinga.
Bókasýning bókaútgefenda
Meðaljólabókin á 2000 krónur
Jólabókin í ár kostar umþað bil2000 krónur. Á markaði verða hálft
fjórða hundrað bóka eða rösklega það. Bókaverð hefurhœkkað
nokkuð minna en svarar verðbólgufráþvíífyrra eða um25-30 prósent
Svo mæltu fulltrúar Félags
bókaútgefenda þegar opnuð
var i gær á Hótel Sögu sýning á
obbanum af útgáfubókum ársins.
Sýningin var einkum ætluð bóks-
ölum, afgreiðslufólki og bóka-
vörðum en verður opin almcnn-
ingi í dag og á morgun milli kl. 16
og 22. Þetta er fyrsta sýning sinn-
ar tegundar.
Utgefendur voru fremur bjart-
sýnir á bóksölu, þótt þeir hefðu af
því áhyggjur að greiðslukort
hefðu m.a. get það að verkum að
bóksala hleðst á örfáa daga fyrir
jól í enn ríkari mæli en áður. Þeir
lögðu áherslu á þýðingu kynning-
arstarfsemi og binda þá verulegar
vonir við sín Bókatíðindi, 64
síðna bækling litprentaðan, sem
borinn verður í hvert hús í
landinu nú í vikunni.
Af breytingu á hlutföllum milli
bókaflokka er það að segja, að
íslenskum skáldsögum fjölgar á
markaði í ár, sömuleiðis vönduð-
um þýddum bókmenntum. Einn-
ig fjölgar stórum verkum og
íburðarmiklum sem eru einatt
mörg ár í undirbúningi. - ÁB.
Sambandsstjórn ASÍ
Andmælir matarskatti
í gær kom saman til árlegs
fundar sambandsstjórn Alþýðu-
sambands íslands. í sambands-
stjórninni eru á 7. tug manna og
er hún valdamesta stofnun ASI
milii Alþýðusambandsþinga.
Á dagskrá fundarins eru m.a
kjara-, skatta-, húsnæðis- og lif-
eyrissjóðamál auk skipulagsmála
samtakanna.
í gær samþykkti sambands-
stjórn mótmæli gegn áformum
ríkisstjórnarinnar um að Ieggja
söluskatt á öll matvæli frá og með
áramótum.
Fundinum verður slitið í kvöld.
-ÓP