Þjóðviljinn - 01.12.1987, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 01.12.1987, Qupperneq 2
Anna María Arnardóttir sjúkraliði: Ég veit það ekki, en ég vona það; við megum ekki við því að fa'ra út í kosn- ingar núna. Björn Steffensen löggiltur endurskoðandi: Ég held nú ekkert en ég vona það. Pað eru ekki skilyrði fyrir annarri betri eins og er. -SPURNINGIN— Heldur ríkisstjórnin út veturinn? Smári Kristinsson sjómaður: Nei, það held ég varla. Þetta er engin ríkisstjórn. Ari Trausti Guðmundsson leiðbeinandi: Já, ég held hún geri það, en ég vona samt ekki. Þórunn Hermannsdóttir heimavinnandi: Já, ég ætla að vona það. Mér finnst of fljótt að fara að skipta svona strax. FRETTIR Kyndingarkostnaður hækkað 47% Raforkuverð til húshitunar hœkkar uml8 % í dag. A árinu hefur hœkkunin numið 47% sé tekið mið afþví að niðurgreiðslur hafa staðið í stað. Hitunarkostnaður samsvarar tvennum mánaðarlaunum verkamanns ímeðalhúsi á ári Með nýrri gjaldskrá Raf- magnsveitu ríkisins sem tekur gildi í dag, 1. desember, hækkar raforkuverð til húshitun- ar um 18%. Hækkunin kemur í kjölfar hækkunar á heildsölu- verði Landsvirkjunar. Með nýrri gjaldskrá hefur raforkuverð til húshitunar hækkað um rúm 47% frá því 1. janúar á þessu ári. Verkalýðsfélagið Jökull á Höfn í Hornafirði hefur tekið saman yfirlit um hækkanir á kyndingarkostnaði á árinu. Sam- kvæmt því hefur hækkunin num- ið um 17,15% frá 1. janúar fram til 1. desember. Eftir 18 % hækk- unina sem tekur gildi í dag, nem- ur hækkunin rúmum 47%. I þess- um útreikningum er tekið mið af því að niðurgreiðslur á raforku- verði til húshitunar hafa staðið í stað á árinu. Ársnotkun í meðalhúsi á raf- orkú til kyndingar reik'nast u.þ.b. 33 kflóvattstundir, en samkvæmt því greiðir notandi árlega, eftir 1. desember, um 60 þúsund krónur í kyndingu eingöngu. Þessi upp- hæð nemur um tvennum mánað- arlaunum verkafólks, en ofaná þessar greiðslur bætist Síðan ann- ar raforkukostnaður. Stefán Arngrímsson deildar- stjóri hjá Rafmagnsveitu ríkisins sagði að frá hálfu Rafmagns- veitunnar hefði raforkuverð til almennra nota aldrei verið eins lágt og nú frá því að nýtt gjalds- krárkerfi var tekið upp árið 1981. Niðurgreiðslurnar hafi hins vegar lækkað frá því að til þeirra var gripið 1983, enda hafi raforku- verð frá þeim tíma almennt lækk- að og forsendurnar fyrir niður- greiðslunum væru því breyttar í dag. -K.ÓI. Fiskveiðistefnan Tveggja ára gildistími iausnin Kratarandæfa íkvótamálum. Sjálfstœðismenn einnig andvígir Aríkisstjórnarfundi í dag verð- ur aðallega rætt um lög um stjórn fiskveiða og þá deilu sem upp er komin meðal stjórnarf- lokkanna um þau mál. Reiknað hafði verið með að Halldór Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra legði fram stjórn- arfrumvarp um stjórnun fisk- veiða síðar í vikunni og að það yrði óbreytt það handrit að frum- varpi sem kynnt hefur verið helstu hagsmunaaðilum í sjávar- útvegi að undanförnu. Talið er að margar breytingatillögur muni koma fram við það, bæði frá að sem ef er loðnuvertíðinni er tekjutap verkamanna í loðnubræðslunni um 200 þús. krónur. Ef svo fer sem horfir má búast við því að tekjutap sveitar- félagsins, ásamt tekjutapi hinna ýmsu þjónustuþátta sem skipta við skipin og sjómennina á vertíð- inni, verði um 6-8 milljónir króna. Þetta er því veruiegt áfall fyrir sveitarfélagið, segir Gunnar Hilmarsson sveitarstjóri á Rauf- stjórnarsinnum sem og stjórnar- andstöðu. Það er einkum tvennt sem þingmenn hafa við frumvarpið að athuga: Gildistíminn, sem sam- kvæmt frumvarpinu er fjögur ár, og það að kvótinn fylgi skipum. Vilja kratar t.d. breyta því fyrir- komulagi. Fleiri en kratar gagnrýna nú- verandi kvótakerfi. Formenn Sjálfstæðisfélaga í Reykjavík og Kópavogi hafa lagt til að kvótak- erfið verði afnumið og í stað þess verði veiðar takmarkaðar með veiðibönnum og veiðileyfasölu. arhöfn í samtali við Þjóðviljann. Að sögn Gunnars kemur loðnuleysið sér ákaflega illa fyrir sveitarsjóðinn og allt efnahagslíf Raufarhafnar. A sama tíma í fyrra höfðu borist á land hvorki meira né minna en rúmar 42 þús- und lestir af loðnu, en nú aðeins tæpar 4 þúsund lestir. Sveitarfélagið réðst í ár í dýpk- un hafnarinnar fyrir 15 milljónir króna til að auðvelda loðnuskip- Þorsteinn Pálsson forsætisráð- herra hefur lýst því yfir að hann telji að gildistími laganna eigi að vera tvö ár í stað fjögurra og að á þeim tíma verði fiskveiðistefnan endurskoðuð einsog gert er ráð fyrir í stjórnarsáttmálanum. Talið er að kratar sættist á þessa lausn og sömuleiðis sjávar- útvegsráðherra. Hann lék svip- aðan leik síðast þegar lög voru samþykkt um stjórn fiskveiða. Þá var lagt til að gildistími yrði fjögur ár en niðurstaðan varð sú að lögin giltu í tvö ár. Fleira hangir þó á spýtunni. unum að athafna sig við löndun og ennfremur var hafnarkantur- inn stækkaður fyrir aðrar 15 milljónir. „Þetta er kaleikur sem við verðum víst að drekka úr, því það ræður enginn við duttlunga loðn- unnar. Svona var ástandið einnig á árunum 1982 og 1983. En lagað- ist síðan og var gott 1984, 85 og 86,“ sagði Gunnar Hilmarsson sveitarstjóri. - grh Þar má nefna andstöðu þing- flokks Framsóknar við húsnæðis- frumvarp Jóhönnu Sigurðardótt- ur, einkum þó andstöðu Alex- anders Stefánssonar. Hann er formaður þeirrar þingnefndar sem nú hefur frumvarpið til um- fjöllunar. Þá eru kratar taldir krefjast þess að framsóknarmenn verði beygðir til hlýðni við fjárl- agafrumvarpið. -Sáf/ÓP Sjónvarpið Barnaleikrit í 4 þáttum Á sunnudaginn kemur verður sýndur í Stundinni okkar í Ríkis- sjónvarpinu 1. þátturinn af fjór- um úr nýrri framhaldsmynd fyrir börn eftir Iðunni Steinsdóttur. Með aðalhlutverk fara þau Guðrún Ásmundsdóttir og Guð- mundur Ólafsson en í mynda- texta í síðasta laugardagsblaði var birt mynd af þeim í hlutverk- um sínum og ranglega sagt að myndin væri frá upptöku ára- mótaskaupsins. Nær hefði verið að segja að myndin væri úr barna- jólaskaupi Sjónvarpsins, en leik- stjóri myndarinnar er Viðar Egg- ertsson. Raufarhöfn Milljóna tekjutap Gunnar Hilmarsson sveitarstjóri: Loðnuleysið verulegt áfall fyrir sveitarfélagið 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.