Þjóðviljinn - 01.12.1987, Síða 3
FRETT1R
Útgerðarfélagið Eldey
Skipakaup í sigtinu
200 manns á stofnfundi Eldeyjar síðastliðinn sunnudag.
Hlutafé 70-80 milljónir króna. Mikill áhugi meðal
sveitarstjórna að leggjafé til starfseminnar. Keflavík,
Njarðvík og Hafnahreppur aðilar aðfélaginu nú þegar
Smáfiskur
Skyndilokanir
aldrei fleiri
„Það stefnir allt í nýtt met í
skyndilokunum á þessu ári. Nú
þegar eru þær orðnar 95 talsins
og verða trúlega 100 eða fleiri
fyrir ársiok. í fyrra var einnig
slegið nýtt met í skyndilokunum
og þá urðu þær einungis 76,“
sagði Sigfús A. Schopka, fiski-
fræðingur hjá Hafrannsóknar-
stofnun, í samtali við Þjóðviljann
í gær.
Að sögn Sigfúsar er nú orðið
alveg sama hvaða veiðarfæri
menn nota; það veiðist ekkert
nema smáfiskur. Að undanförnu
hefur fiskiríið verið ákaflega
tregt hjá togurunum og lítið að
hafa. Þorskurinn er dreifður út
um allt og erfitt að veiða hann
nema í smáslöttum hverju sinni.
grh
Utgerðarfélagið Eldey var
formlega stofnað síðastliðinn
sunnudag í Keflavík að viðstödd-
um um 200 manns. Þegar hefur
safnast hlutafé fyrir um 70-80
milljónum króna, en stefnt er að
100 milljón króna hlutafé. Til-
gangur félagsins er að auka við
útgerð á Suðurnesjum og er
stjórn félagsins þegar farin að
huga að skipakaupum.
Að sögn Jóns Norðfjörðs,
stjórnarformanns Eldeyjar er þó
nokkuð um framboð á skipum á
markaðnum, en hann vildi ekki
gefa upp að svo stöddu hvaða
skip væru í sigtinu hjá stjórninni.
Sagði Jón að vel þyrfti að huga að
fyrirhuguðum skipakaupum fé-
lagsins, áður en skrifað verði
undir samninga þar að lútandi.
Útgerðarfélagið mun eingöngu
gera skip út til hráefnisöflunar en
mun ekki verka fisk. Hann verð-
ur allur væntanlega boðinn upp á
fiskmarkaði Suðurnesja.
Mikill áhugi er meðal sveitar-
stjórna á Suðurnesjum fyrir fé-
laginu og nú þegar hafa þrjú
sveitarfélög lagt fram fé til þess.
Það eru Keflavík, Njarðvík og
Hafnahreppur. Önnur sveitarfé-
lög á Suðurnesjum eru jákvæð
gagnvart hugsanlegri aðild að
fyrirtækinu en vilja þó bíða og sjá
hver framvindan verður hjá því
áður en þau leggja fram fé til
starfseminnar. Gert er ráð fyrir
að sveitarfélögin eigi ekki nema
20% af hlutafé Eldeyjar til
samans, eða um 20 milljónir
króna.
Aðrir í stjórn Eldeyjar voru
kosnir þeir Eiríkur Tómasson,
Sigurður Garðarsson, Viðar
Halldórsson og Guðmundur Ing-
varsson.
grh
Umönnunar- og hjúkrunarheimilið Skjól verður vígt í dag. Her manns vann að frág'angi í gær. Mynd: Sig.
Aldraðir
„Skjól“ í gagnið
Umönnunar- og hjúkrunarheimilið Skjól vígt
ídag. Rúmfyrir ríflega 100 manns
Hér verður hægt að veita
margvíslega umönnun, en við
leggjum áherslu á að umhverfi og
þjónusta verði með heimilislegum
blæ, sagði Sigurður Heigi Guð-
mundsson, en hann hefur haft
umsjón með byggingu umönnun-
ar- og hjúkrunarheimilisins
Skjóls, sem er fyrst og fremst ætl-
að öldruðum sjúkum. Heimilið
verður vígt í dag og tekið í notkun
að hluta.
Skjól er sjálfseignarstofnun,
en sex aðilar standa að bygging-
unni: ASÍ, Samband lífeyrísþega
starfsmanna ríkis og bæja, Stétt-
arsamband bænda, Sjómanna-
dagurinn í Reykjavík og Hafnar-
firði, Reykjavíkurborg og Þjóð-
kirkjan.
Framkvæmdir hófust haustið
1985, en uppsteypan á sjálfu hús-
inu ári síðar. Byggingin er 6 þús-
und fermetrar á 6 hæðum og
verður nú tekin í notkun að hluta.
Upphafleg kostnaðaráætlun
hljóðaði upp á 380 milljónir á nú-
virði, en að sögn Sigurðar Helga
næst kostnaður niður um 30 til 50
milljónir.
Gífurleg þörf er fyrir heimili af
þessu tagi, og sagði Sigurður
Helgi að aldraðir sjúkir væru á
meiri húsnæðishrakhólum en
nokkur annar hópur. Ríflega
hundrað manns munu eiga at-
hvarf í húsinu fullbúnu, en vonir
standa til að það komist í kring á
næsta ári. Á næstu dögum munu
hinir þrjátíu fyrstu flytja inn.
Húsið er reist á lóð Hrafnistu,
og sagði arkitektinn, Halldór
Guðmundsson, að hönnun húss-
ins hefði miðað að því að fella
það sem best að þeim byggingum
sem fyrir væru á lóðinni. Auk
Halldórs eru helstu hönnuðir
byggingarinnar Teiknistofan Ár-
múla 6 og Verkfræðistofa Stefáns
Ólafssonar hf. HS
Sœplast hf. á Dalvík
Ríkisstjórnin
Ekkert lát á uppsveiflunni
Keypti iðnfyrirtœkið Börkhf. íHafnarfirði um helgina. Kaupverð
ekkigefið upp. Jón Gunnarsson á Dalvík: Keyptum til að auka á
fjölbreytnina íframleiðslunni og til að styrkja stöðu Sœplasts hf.
Tilgangur okkar með kaupun-
um á iðnfyrirtækinu Berki hf.
í Hafnarfirði er fyrst og fremst að
styrkja stöðu Sæplasts hf. og jafn-
framt að hafa meiri fjölbrcytni í
starfsemi fyrirtækisins en nú er.
Það hafa engar ákvarðanir verið
teknar um hvert framhaldið
verður og á meðan heldur Börkur
hf. áfram að framleiða sínar
vörur. Kaupverðið verður ekki
gcfið upp að svo stöddu á meðan
annað hefur ekki verið ákveðið,
sagði Jón Gunnarsson hjá Sæp-
lasti hf. á Dalvík í samtali við
Samgöngumál
Hugað að samhengi hluta
Steingrímur J. Sigfússon og Skúli Alexandersson hafa lagtfram
þingsályktunartillögu um samræmingu áætlana á sviði samgöngumála og
eir Steingrímur J. Sigfússon
og Skúli Alexandersson hafa
lagt fram þingsályktunartillögu
um að ríkisstjórnin láti vinna að
samræmingu áætlana á sviði sam-
göngumála og meiriháttar
mannvirkjagerðar þannig að
slíkar áætlanir fyrir einstaka
landshluta og landið allt falli eðli-
mannvirkjagerðar
lega saman í eina heild.
f tillögunni er einnig lagt til að
stuðlað verði að samræmingu
flutninga og flutningaleiða á
landi, sjó og í lofti með opinberri
stefnumótun sem jafnframt taki
mið af áformum um meiri háttar
mannvirkjagerð, þróunarfor-
sendum atvinnulífs og byggða-
sjónarmiðum.
í greinargerð með tillögunni
segir að jafnvel þó ljóst sé að
stefnumörkun, áform og áætlanir
liggi ætíð að einhverju leyti inn í
óvissa framtíð hljóti að teljast
skynsamlegt að huga að sam-
hengi hlutanna eftir því sem kost-
ur er. -Sáf
Þjóðviljann í gær.
Það kom heldur betur flatt upp
á margan Hafnfirðinginn um
helgina þegar það fréttist að búið
væri að selja eitt stærsta iðnfyrir-
tæki bæjarins, Börk hf., sem hef-
ur að staðaldri um 35-40 manns í
vinnu. Fyrirtækið hefur sérhæft
sig í smíði húseininga, stálklæðni-
nga, kæli- og frystiklefa, snjó-
bræðsluröra, einangraðra hita-
veituröra auk ýmiss konar sérs-
míða.
Að sögn Jóns Gunnarssonar er
ekkert lát á uppsveiflunni hjá
Sæplasti í framleiðslu á fisk-
körum og fiskbrettum. Unnið er
á vöktum við framleiðsluna allan
sólarhringinn og eru 23 á launa-
skrá þess. 30% af heildarfram-
leiðslu fyrirtækisins eru flutt út.
Unnið er af krafti við smíði nýs
verksmiðjuhúss á Dalvík og er
stefnt að því að það verði tilbúið
um næstu áramót.
grh
Steingrímur
óheiðarlegur
Karl Steinar Guðnason
vænir utanríkisráðherra
um óheiðarleika
Sumir þingmenn ríkisstjórnar-
innar virðast grípa hvert tækifæri
sem gefst til að beina spjótum sín-
um að samherjum í stjórnarsam-
starfinu. Þannig greip Karí
Steinar Guðnason tækifærið í
gær til að skammast út í utan-
ríkisráðherra og vændi hann um
óheiðarleika.
Karl Steinar notaði umræðu
um þingsályktunartillögu frá
Finni Ingólfssyni og fleiri fram-
sóknarmönnum, um könnun á
mikilvægi íþrótta og efnahags-
legum áhrifum þeirra, til að
minna þingheim á ummæli Stein-
gríms Hermannssonar um niður-
skurð við íþróttahreyfinguna í
fjárlögum næsta árs í dagblaðinu
Tímanum.
Karl Steinar sagði þetta mikinn
óheiðarleika í stjórnmálum, að
ráðherra í ríkisstjórn Þorsteins
Pálssonar gagnrýndi fjármála-
ráðherra í dagblaði en tæki ekki
málið upp á vettvangi ríkisstjórn-
arinnar frekar. -Sáf
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3