Þjóðviljinn - 01.12.1987, Síða 6

Þjóðviljinn - 01.12.1987, Síða 6
ÞJÓÐMÁL FLÓAMARKAÐURINN Tilsölu Citroen GS ’79, skoðaður '87. Vetrardekk fylgja. Verð kr. 50.000. Einnig til sölu Silver Cross barnakerra með skermi og svuntu. Verð kr. 3.000. Upp- lýsingar í síma 11653. Tilsölu Afsýrt skatthol til sölu. Stærð: I. 120 cm, br. 50 cm, h. 115 cm. 4 stórar skúffur og 10 minni skúffur. Upplýsingar í síma 34514 eftir kl. 19. íbúð óskast Ungt, rólegt og reglusamt par sem stundar nám í Háskólanum óskar eftir að taka á leigu litla íbúð. Greiðslugeta 10-15 þús. á mánuði. Upplýsingar hjá Sól- veigu og Frosta í síma 82432. Leirbrennsluofn Notaður leirbrennsluofn til sölu á góðu verði. Upplýsingar í síma 21981 og 29734. Ýmsir leirmunir til sölu á góðu verði vegna flutn- inga. Lítið við í Ingólfsstræti 18 eftir hádegi. Sími 21981. Kettlingar gefins 3 loðnir, mjög fallegir kettlingar fást gefins. Upplýsingar í síma 651589 eftir kl. 19. Til sölu hjónarúm, dýna getur fylgt. Selst ódýrt. Upplýsingar í síma 82806. Tii sölu Þvottavél og þurrkari til sölu. Upplýsingar í síma 24168. Til sölu negld Lödu snjódekk á felgum og barnabílstóll. Upplýsingar í síma 22336. 'í Myndbandstæki Orion myndbandstæki, enn í ábyrgð, til sölu. Verð 30.000. Sími 688073. Hestur til sölu Jarpstjörnóttur, 8 vetra klár- hestur með tölti til sölu. Heppi- legur fyrir ungling. Sími 36430 frá 9-12 og eftir 8 á kvöldin. Til sölu Notaðar barnakojur til sölu 1.90x78 cm, eikarklæðaskápur h. 2.50, br. 1.75, dýpt 0.65 og Ijósabekkur, einfaldur, Super- sun. Upplýsingar í síma 42485 eða 46418. Gítar - klassískur t.d. Yamaha óskast. Upplýsing- ar í síma 52842. Skólaritvél - Silver Reed til sölu. Upplýsingar í síma 52842. Minkur Vel með farið Suzuki LT 250 með fjórhjóladrifi til sölu. Upp- lýsingar í síma 32969 á kvöldin. Til sölu Tveir kvenmokkajakkar til sölu. Stærð 38-40. Sími 16038. Jólahreingerning Tek að mér jólahreingerningu fyrir þig. Sími 75913. Til söiu 2 Happy stólar og borð til sölu. Sími 32207 milli kl. 6 og 7. Tölvuskjár Til sölu er ATARI SM 125 sv/hv skjár. Þeir sem áhuga hafa vinsamlega hringið í síma 15016. Til sölu Dökkt sófaborð 80x120 til sölu. Slmi 626497 e.kl. 19. Fururúm Aðlaðandi, ungt fururúm til sölu. 120x200 cm. Uppl. í síma 686189 e.kl. 19. Til sölu Yfir 200 ára gamall antik stóll, handskorinn til sölu. Uppl. í síma 38455. Óskast keypt Óska eftir að kaupa Beta mynd- bandstæki sem fyrst. Sími 12014. Til sölu sérsmíðaðar hillur. Seljast ódýrt. Uppl. í síma 11890 e. kl. 19. Jólatrésskemmtanir Tek að mér að spila og stjórna söngvum á jólaböllunum. Sanngjarnt verð. Nánari uppl. í síma 667250. Au-pair Hjón með 3 börn í Svíþjóð óska eftir au-pair. Uppl. í síma 12951. Til sölu Barna- eða unglingarúm til sölu með innbyggðu skrifborði og skáp 200x80 cm, 1.64 á hæð. Einnig til sölu Ferguson litsjón- varp. Simi 18407. Óskast keypt Óska eftir að kaupa PC-tölvu fyrir ritvinnslu og rúmdýnu (svamp). Sími 45665. Til sölu Vel með farið hjónarúm m/ dýnum til sölu á kr. 10 þúsund. Sími 23195. Húsnæði óskast 3ja manna fjölskylda óskar eftir 2ja til 3ja herbergja íbúð til leigu. Fyrirframgreiðslu, reglusemi og góðri umgengni heitið. Uppl. í síma 621037 e.kl. 18. Saab-900 Til sölu. Blá-sans. 4ra dyra, beinskiptur. Skoðaður ’87. Góður bíll. Uppl. í síma 71858. Saab-bílar og varahlutir Til sölu Saab 99 árg. '75, sjálf- skiptur og Saab 99 árg '77 bein- skiptur. Einnig varahlutir í Saab, m.a. vélar og gírkassar. Hag- stætt verð. Uppl. í s. 44503 á kvöldin og um helgar. Viltu læra spænsku eða katalónsku? Spænskur nemi við Háskóla ís- lands vill kenna fólki spænsku og/eða katalónsku. Vinsam- legast hafið samband við Jorge á herbergi nr. 2 á Nýja Garði, sími 625308. Að heiman um jólin Vantar litla íbúð til leigu um jólin (26.12. til 2.2.) fyrir erlent vina- fólk. Uppl. í síma 24089 á kvöld- in. Vantar klósett með stút í vegg. Sími 77393. ALÞÝÐUBANDALAGK) Alþýðubandalagid Siglufirði Opið hús hjá AB Suðurgötu 10 þriðjudaginn 1. des. milli klukkan 5 og 7. Ragnar Arnalds og Ólafur Ragnar Grímsson mæta. Stjórnin Alþýðubandalagið Akureyri Öldrunarmál Bæjarmálaráð heldurfund um öldrunarmál í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18, miðvikudaginn 2. desember, klukkar 20.30. Lagðar verða fram upplýsingar um þá þjónustu sem öldruðum stendur til boða á Akureyri og í framhaldi af því verða settar fram tillögur um úrbætur. Allir áhugamenn velkomnir. Bæjarmálaráð Menningarnefnd AB Fyrsti reglulegi fundur nefndarinnar verður haldinn fimmtudaginn 3. des- ember kl. 17. þess að löndin staðfesti hann hið fyrsta og mælir með öðrum að- gerðum sem raktar eru á bls. 3 og 4 í greinargerð. í fylgiskjali nr. 2, sem er sam- þykkt ráðherrafundarins ásamt fylgigögnum má einnig sjá hvern- ig hvert land hyggst draga úr notkun sinni, en það er nokkuð misjafnt eftir aðstæðum. Alls staðar er stefnt að því að hvetja til og gera samninga um minni notk- un, en dugi það ekki til að ná settu marki eru löndin tilbúin að beita öðrum ráðum, svo sem lag- aboði og skattlagningu á umrædd efni. íslendingar ekki með Það er miður hr. forseti, að þurfa að segja það hér að íslend- ingar hafa, þrátt fyrir samstarfið í Norðurlandaráði, ekki tekið þátt í þessu undirbúningsstarfi, ekki safnað saman eða skilað inn upp- lýsingum um notkun þessara efna hér á landi né heldur áætlun um hvernig draga megi úr henni. Hvernig getur staðið á þessu? Sú skýring sem nærtækust er, er að hér á landi er enginn ráð- herra sem fer öðrum fremur með umhverfismál, kannski síst fé- lagsmálaráðherra, sem þó er samstarfsráðherra á þessu sviði. Umhverfismálin, þessi mikilvægi málaflokkur er dreifður og þar með hornreka í nær öllum ráðu- neytum. Umhverfismálin eru munaðarlaus í stjórnkerfinu. Fyrri ríkisstjórn hafði uppi mikil fýrirheit um bót og betrun í þessum efnum eins og reyndar svo mörgum öðrum, þótt lítið yrði um efndir. í starfsáætlun nú- verandi ríkisstjórnar er einnig ákvæði um að sett verði almenn lög um umhverfismál og sam- ræming þeirra falin einu ráðu- neyti.“ Sú staðreynd að samstarfi um umhverfismál á vegum Norður- landaráðs var hætt eftir að þessi ríkisstjórn tók við, gefur, hr. forseti, litlar vonir um efndir þessa ákvæðis í starfsáætluninni. Því það dugir ekki, að líta á ísland sem einangrað eyland, fjarri öðrum mannabyggðum, þegar umhverfisvernd er annars vegar. Þær hættur sem nú steðja að andrúmslofti og lífsskilyrðum allra jarðarbúa eru svo miklar og fjölþættar að þær krefjast sam- eiginlegs átaks allra þjóða. Þar mega íslendingar ekki lengur sitja hjá. Tiltektin heima En hr. forseti. Það er nauðsyn- legt að byrja á tiltektinni heima hjá sér áður en maður fer að setja útá heimili annarra. Ég nefndi í upphafi míns máls, að við íslendingar værum meðal neyslufrekustu þjóða heims. Það er því miður ekkert sem bendir til þess að framlag okkar til eyðing- ar ósonlagsins sé minna pr. mann en framlag miljónaþjóðanna. Þvert á móti. Hér hefur engin könnun farið fram á notkun eða innflutningi freona, ef frá er talið framtak Páls Lúðvíkssonar, vélaverk- fræðings sem s.l. sumar dró út úr innflutningsskrám töluna 208 tonn af kælivökva. Ef þetta væri hið eina sem hér væri notað af freonum, sem það er örugglega ekki, jafngilti það 0,85 kg. á hvert mannsbarn á landinu, eða meira en á hinum Norðurlöndunum, nema Danmörku. En það er ekkert sem segir að okkur ætti að vera erfiðara en hinum Norðurlandaþjóðunum að draga úr þessari notkun eins og fyrsta grein tillögunnar gerir ráð fyrir. Það er ljóst að kælikerfi ýmiss konar eru útbreidd og mikilvæg hér á landi vegna fiskiðnaðarins, og þó varmadælur séu ekki mjög útbreiddar fer notkun þeirra vaxandi. A hinum Norðurlönd- unum er 13-25% allrar freon- notkunar bundin við kælikerfi, og eru þá ísskápar og frystikistur í heimahúsum undanskildar, nemaíNoregi. Búast má við svip- uðum og jafnvel hærri hlutfalls- tölum hér á Iandi. Hér er bent á að auka megi notkun óvirkari freons, CFC 22 í stað CFC 12, CFC 22 er enn sem komið er hvergi á bannlista. Þessu má víða koma við, og brýnt að þróa aðferðir til að nota hættu- minna efnið í fiskiðnaði okkar, þar til hættulaus efni finnast. Úðabrúsar Árið 1978 bönnuðu Banda- ríkjamenn notkun á freoni í úða- brúsa. Kanadamenn, Svíar og Norðmenn hafa einnig bannað ósoneyðandi efni á úðabrúsum. Þannig hafa stórir markaðir lok- ast fyrir framleiðendum alls kyns úðunarefna og þeir hafa einfald- lega brugðist við með því að nota önnur úðunarefni í brúsana. Það er því gjörsamlega sársaukalaust að banna innflutning og notkun þessara efna á úðabrúsum hér á landi. Nær öll efni, lyf jafnt sem hreinsiefni og lökk eru nú til á úðabrúsum sem ekki innihalda freon. Þetta er í samræmi við til- lögur ráðherranefndarinnar og ein af þeim ráðstöfunum sem ís- lendingar gætu gripið til strax. Slökkvitæki Halonar eru hér sem annars staðar aðallega notaðir í slökkvi- tæki, en þeireru taldir a.m.k. þri- svar til tíu sinnum mikilvirkari en freonar við eyðingu ósonlagsins. Slökkvitæki með haloni hafa það umfram kolsýrutækin, sem allir þekkja, að þau eyðileggja ekki tölvubúnað, en frostið, sem myndast við notkun kolsýrunnar skilur eftir eyður á tölvudiskum. Þó tölvurnar sjálfar eyðileggist í eldi eða reyk má með notkun hal- ontækja koma í veg fyrir eyðil- eggingu þeirra upplýsinga sem þær geyma. Með aukinni notkun tölva og tölvukerfa hefur því á ör- skömmum tíma orðið margföld- un á útbreiðslu halontækja, hér á landi sem annars staðar. T.d. eru í einu húsi hér í borg 80-100 hel- ontæki, sem taka a.m.k. 400 kíló! Hins vegar hefur Eldvarnareftir- lit Reykjavíkurborgar haldið verulega aftur af útbreiðslu þess- ara tækja. og er það vel - enda vert að gjalda varhug við óþarfa notkun þeirra. Þar er ekki aðeins átt við ósoneyðinguna, heldur einnig hitt, að halon 1211, sem notað er í handslökkvitæki er baneitrað, fari þéttleiki þess yfir 4% í andrúmslofti. Það er mat manna að sársaukalaust sé að auka ekki við innflutning þessara efna frá því sem nú er. Það hlýtur að vera lágmark- sframlag okkar íslendinga á næstu þremur árum til viðhalds lífi á þessari jörð. Því eins og málshátturinn frá Kenya segir: Við höfum ekki fengið jörðina til eignar frá foreldrum okkar. Við höfum fengið hana að láni frá börnum okkar. Við skulum reyna að haga okkur í samræmi við þetta. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 1. desember 1987

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.