Þjóðviljinn - 01.12.1987, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 01.12.1987, Qupperneq 7
Hópbónuskerfið breytir því ekki að við munum berjast fyrir hærri taxtalaunum," segir starfsfólk frystihússins á Flateyri Hópbónuskerfi Með hópbónuskerfinu telja margir að tendruð verði friðarpípa á vinnustöðum fiskvinnslufólks þar sem mannleg samskipti einkennast oft af spennu og sam- keppni. Samvinnan í öndvegi Útfœrsla Vestfirðinga á hópbónuskerfifœr víða jákvœð viðbrögð. Kerfið hefur verið til reynslu á Flateyri ífjórar vikur. Flateyringar: Myndum ganga út efgamla kerfið yrði tekið upp aftur. Jón Kjartansson: Hópbónuskerfi er engin guðsgjafarþula Flestir eru sammála þvi að bónuskerfi það sem físk- vinnslufólk hefur unnið við síð- ustu áratugina, er ekki bara ó- manneskjulegt heldur líka úr sér gengið tæknilega. Leitast hefur verið við að lappa uppá kerfíð öðru hvoru en engin grundvallar- breyting orðið á. Útfærsla á hóp- bónuskerfí sem Vestfírðingar hafa verið að vinna að síðustu mánuði er tilraun til þess að bæta úr. En hvað felst í því kerfí sem Vestfirðingar hafa verið að móta? Fyrst ber að nefna þá grund- vallarbreytingu að fiskvinnslu- fólk í einu frystihúsi myndar einn ákvæðishóp. Allir fá því greiddan sameiginlegan bónus. Samkvæmt plaggi sem dreift hefur verið í frystihúsum á Vestfjörðum er gefin eftirfarandi lýsing á megin- atriðum kerfisins: „Kaupauki er greiddur á alla framleiðslu breyti- legur eftir fisktegundum og pakkningum. Einnig er greitt aukalega fyrir heildarnýtingu hráefnis. Til að finna sem réttast sam- ræmi í greiðslum eftir tegundum og pakkningum með hliðsjón af vinnutímaþörf er stuðst við stað- altímakerfi sölusamtakanna og er þar tekið mið af meðalástandi hráefnis á Vestfjörðum. Að öðru leyti er greiðslan kjarasamninga- mál. Meginreglan er sú að heildar- kaupauki eftir hverja vinnuviku skiptist milli allra í vinnslurásinni (þjónustustörf meðtalin), frá hráefnisgeymslu til frystiíclefa, í hlutfalli við vinnutíma hvers starfsmanns. Hér er farið inn á þá braut að miða kaupaukagreiðslur við meðalástand hráefnis. Af því leiðir að einhverjar sveiflur verða milli daga og jafnvel vikna hvað kaupauka á vinnnutíma snertir. En þegar til lengri tíma er litið þá jafnast þessar sveiflur út. Grundvallaratriði í nýja hóp- bónuskerfinu er samvinna. Störf fólks eru ekki skýrt afmörkuð við ákveðin stig framleiðslunnar heldur færist fólk á milli starfa eftir því sem þörf krefur hverju sinni. Pegar „tappi" hefur mynd- ast á einu framleiðslustiginu tekur fólk sem vinnur við annað stig framleiðslunnar virkan þátt í að flýta fyrir. Samkvæmt útfærslu Vestfirðinganna tilheyra eftirtal- in störf kaupaukakerfinu: 1. Öll störf í vinnslurásinni frá því að hráefni er sótt úr kæligeymslunni þar til afurðir eru frágengnar í frystiklefa, þar með talin öll þau þjónustustörf sem tilheyra vinns- lurásinni. 2. Móttaka umbúða og frágangur í geymslu. 3. Öll dag- leg þrif á svæðum vinnslurásar- innar. 4. Verkkennsla. 5. Lyft- arastörf þ.e.a.s. að því marki sem það tilheyrir vinnslurásinni í mót- töku og frystigeymslu. 6. Gæða- skoðun getur ýmist verið í kerf- inu eða utan þess. Þetta á- kvarðast á hverjum stað. í plagginu sem dreift hefur ver- ið til starfsfólk frystihúsa á Vest- fjörðum segir að forsendan fyrir því að góður heildarárangur náist í hópbónuskerfi sé samhentur hópur þar sem einstaklingarnir eru færanlegir eftir því sem álag breytist, bæði milli staða í vinnslurásinni og milli þjónustu- og vinnslustarfa. Einstaklingsbónus tilheyrir mannkynssögunni Vestfirðingar hafa nýlokið við að kynna hópbónuskerfið í frysti- húsum á Vestfjörðum og segir Pétur Sigurðsson formaður Al- þýðusambands Vestfjarða, við- brögð fólks afar jákvæð. Við- brögðin bentu til þess að hóp- bónuskerfið yrði reynt víðast hvar á Vestfjörðum, en að sjálf- sögðu yrði ákvörðunin um hóp- bónuskerfi tekin í hverju húsi fyrir sig. Kerfinu yrði ekki þving- að uppá neinn. Þrátt fyrir að viðbrögðin hafi almennt verið jákvæð hafa ýmsir haft efasemdir um hópbónus- kerfið og þá einna helst þeir sem bera mest úr býtum í einstakl- ingsbónus. Það hefur t.d. borið mikið á þessum efasemdum í frystihúsi Dýrfirðinga á Þingeyri, en þar virðist starfsfólk almennt mjög á móti hópbónus. Guð- mundur Finnbogason verkstjóri í frystihúsi Hjálms hf. á Flateyri, þar sem hópbónuskerfið hefur verið til reynslu í 4 vikur, vitnar hins vegar um það að með nýju kerfi hafi enginn lækkað í launum en margir hækkað. Guðmundur sagði að meðalbónus þeirra sem voru með hæstan bónus í húsinu áður en nýja kerfið kom til fram- kvæmda hafi verið 120 krónur á tímann. Nú væri meðalbónusinn í húsinu 110 krónur á tímann, en vegna þess að ýmsar tafir væru úr sögunni með nýju kerfi fengi fólk bónus í lengri tíma yfir vinnudag- inn. Nýr meðalbónus samsvaraði því 131 krónu reiknað út frá gamla kerfinu. í gamla kerfinu var meðalbónus þeirra sem voru með hæsta bónusinn 120 krónur, en að sögn Guðmundar var með- albónusinn í húsinu 78 krónur. Það væru því margir sem hækk- uðu verulega í launum við breytinguna, en vegna þess að nýtingin væri mun betri sæi fyrir- tækið sér fært að greiða það sem á bættist. Guðundur vildi þó taka það fram að auðvitað mætti búast við sveiflum í meðalbónus, allt eftir aðstæðum hverju sinni. „Eftir að hafa reynt nýtt bónu- skerfi finnst okkur að gamla kerf- ið hljóti að heyra mannkynssög- unni til. Við myndum öll ganga héðan út ef það stæði til að breyta yfir í það gamla aftur,“ sögðu 4 starfsmenn frystihússins á Flat- eyri í hópsímtali við Þjóðviljann. „Fólk er farið að hafa eðlileg samskipti og það er svo miklu léttara yfir öllum en áður, miklu minna stress,“ sögðu viðmælend- urnir Valdimar Valdimarsson, Matthías Einarsson, Gunnar Guðmundsson og Anna Jóhanns- dóttir. Eftir að hópbónu- skerfið var tekið upp á Flateyri var myndaður vinnuhópur sem starfsfólk kallar gæðahring. í þessum hópi eiga sæti fimm full- trúar starfsfólks og verkstjóri. Hópurinn hittist einu sinni í viku og fer yfir árangur vikunnar á undan; hvað hafi vel tekist og hvar brestir séu í skipulaginu. Viðmælendur, sem allir eiga sæti í hópnum, sögðu starf hópsins breyta ýmsu. „Við skiljum rekst- ur fyrirtækisins mun betur. Við finnum að við fáum að hafa áhrif á reksturinn, ábyrgðin er meiri og upplýsingastreymið á báða bóga hefði aukist gífurlega." Aðrar tilraunir með starfið í frystihúsinu hafa verið gerðar með hópbónuskerfinu. Starf þeirra sem unnið hafa við gæða- eftirlit hefur verið lagt niður til reynslu. Hverjum og einum er ætlað að sjá um gæðaeftirlit hjá sjálfum sér. „Við stefnum að því að leggja lögregluríkið niður,“ sagði Guðmundur verkstjóri. Starfsfólk í frystihúsi Dýrfirð- inga hefur, í ályktun sem það sendi frá sér, gagnrýnt að bón- usmálin séu tengd komandi kjarasamningum. Viðmælendur okkar á Flateyri líta svo á að þótt nýtt bónuskerfi hafi verið tekið í gagnið þá breyti það því ekki, að í komandi kjarasamningum verði stefnt markvisst að því að hækka taxtakaup starfsfólks. „Við ætl- um ekki að láta vinnuveitendur komast upp með það að líta svo á að þessar breytingar komi í stað- inn fyrir taxtahækkanir. Við munum halda áfram að berjast fyrir bættum taxtalaunum," sögðu viðmælendur. Ekki nóg að skipta um frakka Verkalýðsleiðtogar víða um landið sem Þjóðviljinn hafði sam- band við, lýstu flestir áhuga sín- um á hópbónuskerfi og sögðust bíða spenntir eftir að sjá hvernig reynslan af kerfinu yrði þegar til lengri tíma er litið. Ýmsir vildu þó meina að erfitt gæti orðið að ná árangri með slíkt kerfi í stærri frystihúsum og jafnframt væri ó- líklegt að ein útfærsla á hópbónus myndi ganga í öllum frystihúsum. Væntanlega yrði að aðlaga hana á hverjum stað fyrir sig. „Menn mega vara sig á því að líta á hópbónuskerfið sem ein- hverja guðsgjafarþulu. Bónus- kerfið sem slíkt er ómannúðlegt. Það er ekki nóg að skipta um frakka, það hefur verið gert áður,“ sagði Jón Kjartansson for- maður fulltrúaráðs verkalýðsfél- aganna í Vestmannaeyjum. Það er auðvelt að taka undir það með Jóni að bónuskerfi er ómannúðlegt og „notað til þess að arðræna fólk“ eins og segir réttilega í ályktun Dýrfirðing- anna. Stefnan hlýtur að vera sú að bónuskerfi verði alfarið lagt niður og í stað þess bjóðist fisk- vinnslufólki mannsæmandi dag- vinnulaun. Nokkrir viðmælendur Þjóðviljans sögðust líta svo á að hópbónusinn væri leið út úr bónuskerfinu almennt. Hvort sem það er raunhæf leið út úr bónus eða ekki, er ljóst að hóp- bónuskerfið léttir á álagi og spennu á fólki og þar er tekið tillit til þeirra sem geta ekki, vegna aldurs, lélegrar heilsu eða lang- varandi þreytu, lyft launum sín- um yfir lágmarkstekjur. Af þess- ari ástæðu einni er hópbónu- skerfið þess virði að það sé skoðað gaumgæfilega en ekki hafnað áður en reynsla er komin á það. -K.ÓI. Þriðjudagur 1. desember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.