Þjóðviljinn - 01.12.1987, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 01.12.1987, Qupperneq 8
Krefjandi stjórnunarstarf Ríkismat sjávarafuröa óskar aö ráöa mann í krefj- andi ábyrgðar- og stjórnunarstarf viö að veita eftirliti stofnunarinnar forstööu. Starfið felst í: ★ Stjórnun eftirlits stofnunarinnar meö hráefnis- og vörugæðum íslenskra sjávarafuröa. í því felst m.a. dagleg stjórn starfa þeirra manna sem hafa meö hendi eftirlit stofnunarinnar, þar sem fiskur eöa sjávarafuröir eru meöhöndlaðar og/eða unn- ar. ★ Annast eftirlit meö gæöaeftirliti útflytjenda og hvernig þeir standa að gæöastjórnun á sínum vegum. ★ Yfirumsjón eftirlits með hreinlæti og búnaöi fiskvinnslustöðva, svo og meö hvaöa hætti fisk- vinnslutæki standa aö gæðastjórnun framleiöslu sinnar. ★ Þátttöku í stefnumörkun og þróun vinnu- bragöa Ríkismats sjávarafuröa. Starfið krefst: ★ Mikils frumkvæöis og stjórnunarhæfileika. ★ Þekkingar, áhuga og skilnings á gæðamálum sjávarútvegsins. ★ Háskólamenntunar í matvælafræðum, eöa annarrar sambærilegrar menntunar og starfs- reynslu. Umsóknarfrestur er til 15. desember n.k. Um- sóknum ber að skila á skrifstofu stofnunarinnar. Nánari upplýsingar og starfslýsing fæst hjá skrif- stofustjóra stofnunarinnar, Nóatúni 17, 105 Reykjavík, sími: 91-627533. Ríkismat sjávarafurða hefur að leiðarljósi: ★ Aö stuðla aö auknum hráefnis- og vörugæö- um íslenskra sjávarafurða. ★ Að þróa starfsemi sína þannig aö hún veröi einkum fólgin í miðlun þekkingar og færni og að skapa sjávarútveginum réttar forsendur til starfa. ★ Að verða í krafti þekkingar sinnar og reynslu forystuafl í gæöamálum. ★ Að skapa sem starfsvettvang stjórnvalda og sjávarútvegsins í stöðugri viöleitni þeirra til aö auka þekkingu og færni í vinnubrögðum og vöru- meðferð. ★ Aö móta afstöðu þeirra sem viö sjávarútveg starfa til gæðamála og efla almenna gæöavitund. Ríkismat sjávarafuröa telur þaö vera helsta verk- efni sitt aö stuðla aö vönduöum vinnubrögðum, svo íslenskar sjávarafurðir nái forskoti á mark- aönum vegna gæöa og þar meö hærra veröi en ella. Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð og vinarhug viö and- lát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa Rögnvalds Rögnvaldssonar Munkaþverárstræti 22 Akureyri Sérstakar þakkir færum við þeim sem önnuðust hann á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Hlín Stefánsdóttir Margrét Rögnvaldsdóttir Úlfhildur Rögnvaldsdóttir Rögnvaldur Dofri Pétursson Stefán Tryggvi Brynjarsson Hákon Gunnar Hákonarson Guðrún Hlín Brynjarsdóttir Helga Hlín Hákonardóttir Nanna Kristín Magnúsdóttir Björn Ágúst Brynjarsson Brynjar H. Jónsson Hákon Hákonarson Unnur Bjarnadóttir Silja Sverrisdóttir Sigríður Pálsdóttir Hlynur Bjarkason Litli drengurinn okkar Styrkár Snorrason Mávahlíð 38 Reykjavík verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 2. desember kl. 13.30. Þeir sem vildu minnast hans láti Slysavarnafélag íslands njóta þess. Snorri Styrkársson Dagrún Magnúsdóttir Kristrún Ragnarsdóttir Stefán Jónsson. Hlýir lyndisþættir og það sem erfitt er að muna Stefán Jónsson Að breyta fjalli Svart á hvítu Reykjavík 1987 Stefán Jónsson segist vera í vandræðum með að setja vöru- miða á þessa bók. Hann vill helst ekki kalla hana endurminningar. Hann fjallar að sönnu um bernsku sína austur á Djúpavogi, það fólk sem hann fyrst kynntist. En hann veit það líka að „margt er það í heiminum sem er ekki alveg satt“ eins og hann segir á einum stað. Minningareru einatt óljósar í annan endann og kann að vera erfitt að átta sig á því „hvort ég á þær sjálfur eða hvort þær eiga rætur í hugskoti einhvers annars“. Ekki nóg með það. Per- sóna Stefáns á barnsaldri er fyrir- ferðarminni í þessari bók en gengur og gerist um endurminn- ingar. En þeim mun sterkari er rödd Stefáns eins og hann er í dag og vill koma að reynslu sinni og skilningi. Það eru kaflar í bókinni sem nálgast innlifun, samsömun með liðinni tíð, eins og ágætar lýsingar á myrkfælni sögumanns- ins. En miklu meira verður les- andinn var við fjarlægðina frá þeim tíma sem rifjaður er upp - og sögumaður gerir sér ofurvel grein fyrir henni líka. Framarlega í bókinni (bls. 41) segir Stefán Jónsson: „Þrátt fyrir sívaxandi elsku mína á bernskuslóðunum og að- dáun á ýmsum framúrskarandi mjúkum og hlýjum og skemmti- legum lyndisþáttum sem prýddu þar geðslag margra, þá hef ég ekki treyst mér til að halda því fram, að höfðingsskapurinn hafi átt stórhýsi í hvers manns hjarta þar fremur en í öðrum sveitum." Þessi orð segja mikið um hug- blæ bókarinnar og aðferð höf- undarins. Hann vill gjarna muna eftir örlæti við grannann og góðri samhjálp frá dögum afa sinna sem hann lýsir með þessum orð- um hér: „það fór ekki fram nein verslun heldur skipti eftir því sem þörfin kallaði á og geta leyfði og enginn skrifaði neitt hjá neinum, því reynsla kynslóðanna hafði sannað að allir reikningar gengju upp um síðir“. En þegar svo kem- ur að því að lýsa undir lok bókar- innar, hvernig óvinsæl úrræði kreppuáranna einangra föður hans, oddvita í litlu samfélagi, og hrekja svo fjölskylduna frá Djúpavogi, þá verður sögumaður nokkuð frávísandi í huganum og stílnum. Hann er umtalsfrómur og vill engra að iilu geta en finnur sér félagslegan sökudólg með þessum særingum hér: „Enginn var sekur nema fátæktarófreskja fjórða áratugarins, gerjuð úr mörgum eiturefnum í allsleysis- gímaldi heimskreppunnar". Mikið er þetta skiljanlegt við- horf og elskulegt. En hitt gæti svo verið fróðlegt að skoða, að ekki bregðast allir eins við fátæktar- ófreskjunni, ekki smækkar hún alla - og hvað sker úr um það? Förum samt ekki lengra út í þá sálma, ekki stóð víst til að biðja um einhverja aðra bók en þá sem hér er lesin. Lesandinn stendur með Stef- áni í skjóli Búlandstinds, sem hann kleif með föður sínum svo eftirminnilegt er, í skjóli húman- ískrar velvildar í garð réttlátra og ranglátra og einnig í skjóli þeirrar kímni sem Stefán á nóg af. Líður lesandanum takk bærilega í svo félagslyndu veðurfari, þótt það komi fyrir að honum finnist að Stefán hefði mátt skipuleggja betur sinn efnivið (frásögnin minnir oft á algengar uppákomur í munnlegri frásögn: nú má ég til með að minnast á þetta hér áður en lengra verður haldið). Það kemur líka fyrir að Stefán hlaði of hátt málköstinn miðað við tilefni. Sjálfsmynd höfundar á barns- aldri er ekki fram reidd í samfellu heldur gripið niður hér og þar í leikjum hans, upphafi veiði- mennskuástríðu, myrkfælni og syndaföllum að ógleymdri van- metakenndinni, sem verður m.a. til þess að Stefán gengur vikum saman með neðri framtennurnar utan yfir þeim efri „til þess að koma mér upp sterklegum höku- svip“. Þessi drög til sjálfsmyndar eru skráð í anda þeirrar sjálfs- hæðni sem er að því leyti frjó að hún hvílir á viðkvæmni í bland við þá hefð íslenska að segja heldur færra en fleira um það sem býr hjarta nær. Hin impressjóníska aðferð höfundar býður líka upp á margt fleira. Þar eru persónulýs- ingar vel meitlaðar og skal þá ekki síst til nefna það sem segir frá ömmu Stefáns sem notaði tuttugu og sex orð á dag. Þar er vel útfærð lýsing á unaðssemdum og þrautum ræðarans. Þar eru svipmyndir úr menningarsögu (þegar útvarpið kom) og pólití- skri sögu: ekki síst er því lýst skemmtilega hvernig stórum heimi og smáum lýstur saman; kreppan á Djúpavogi og í Wall Street, bolsévisminn á Húsavík og svo mætti áfram telja. Stefán Jónsson hefur gefið það til kynna, að hann kunni að skrifa fleiri bækur upp úr lífi sínu og verði hann þá „að ganga nær mér og muna fleira en ég hefi gaman af“. Hvað sem áður sagði um mildandi áhrif fjarlægðarinnar á bernskuslóðir, þá er Stefán byrj- aður með þessari bók sinni ein- mitt á því sem hann lýsti í ofan- greindum orðum. Og árangurinn er af þeim gæðum að við óskum þess að honum miði skjótt áfram með framhaldið. ÁB. 8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 1. desember 1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.