Þjóðviljinn - 01.12.1987, Blaðsíða 9
V-Þýskaland
Alfreð skoraði sjö
Gummersbach tapaði sínu fyrsta stigi
Frá Jóni H. Garðarssyni, fréttamanni
Þjóðviljans í V-Þýskalandi:
Alfreð Gíslason og Jochen Fra-
atz fóru á kostum er Essen sigraði
Swabing á útivelli, 20-21. Þeir
skoruðu samtals 16 af 21 marki
Essen.
Fraatz skoraði níu mörk og Al-
freð 7, en þetta var mikilvægur
sigur fyrir Essen.
Kristján Arason átti góðan leik
með Gummersbach sem tapaði
þó sínu fyrsta stigi. Liðið gerði
jafntefli gegn Dormagen, 14-14. í
hálfleik var staðan 7-4, Gum-
mersbach í vil.
Kristján Arason skoraði fimm
mörk og var markahæstur hjá
Gummersbach.
Grosswalldstadt gerði einnig
jafntefli, gegn Núrnberg, 19-19.
Lemgo tapaði fyrir Kiel, 19-25
á heimavelli. Sigurður Sveinsson
var markahæstur í liði Lemgo
með sex mörk.
Þá sigraði Göppingen Hofwei-
er, 23-22 og Wallau Massenheim
kom á óvart með sigri yfir Mil-
bertshofen 27-21.
KörfuboltU Bikar
Nágrannar mætast
UMFN og ÍBK drógust saman
í bikarkeppninni
Bjarnl Frlðriksson er nú kominn í gang eftir slæm meiðsli og hér skellir hann einum andstæðingi sinum.
Júdó
Suðurnesjanágrannarnir
Keflavík og Njarðvík drógust
saman í bikarkeppni KKI, en
dregið var á föstudag.
Það má búast við hörkuleik
milli þessara erkifénda, en þessi
lið eru líklega tvö bestu lið lands-
ins.
Það er aðeins í tveimur leikjum
sem lið úr úrvalsdeild mætast. ÍR
og Þór mætast einnig, en þessi lið
börðust um sigur í 1. deildinni í
fyrra.
Eftirtalin lið drógust saman í
meistaraflokki karla:
Skíði
Tvöfalt
hjá Tomba
Italinn Alberto Tomba sigraði í
fyrstu keppninni í heimsbikar-
keppninni á skíðum. Hann sig-
raði í svigi á föstudag og í stórsvigi
á sunnudag.
Sigur Tomba kom mjög á
óvart, en hann náði mjög góðum
tíma í báðum greinunum, 2.19.51
mín.í stórsvigi og 1.44.96 mín. í
sviginu.
Það voru Svíar sem höfnuðu í
næstu sætum. Jonas Nilsson í
svigi á 1.45.76 mín.og Ingimar
Stenmark í stórsvigi á 2.19.60
mín.
Gúnther Mader frá Austurnki
hafnaði í þriðja sæti í sviginu og
Joel Gaspos frá Sviss varð þriðji í
stórsviginu.
Stórstjörnunum gekk illa í
stórsviginu. Heimsbikarhafinn
Pirmin Zurbriggen hafnaði í 23.
sæti og Marc Girardelli í 24. sæti.
-lbe/Reuter
Staðan
í úrvalsdeildinni í körfuknattleik
UMFN.............7 7 0 630-480 14
ÍBK..............6 5 1 450-368 10
KR...............6 4 2 487-442 8
Valur............6 3 3 483-429 6
Haukar...........6 3 3 425-416 6
UMFG.............6 3 3 435-437 6
IR...............6 2 4 419-499 4
Þór..............7 1 6 551-647 2
UBK..............6 0 6 323-647 0
Glæsilegur sigur Bjama
Sigraði á opna skandinavíska meistaramótinu í júdó
ÍBK-UMFN, ÍS b.-KR, UMFG-
UMFS, KR b.-Valur, ÍR-Þór,
UMFT-Haukar, UMFN b.-ÍS,
UBK-ÍA.
Það verða einnig hörkuleikir í
bikarkeppninni í kvennaflokki.
Liðin sem léku til úrslita í fyrra,
KR og ÍBK drógust saman. KR-
ingar sigruðu í fyrra, en hafa ekki
náð sér á strik það sem af er.
Eftirtalin lið drógust saman í
meistaraflokki kvenna:
KR-ÍBK, ÍS-ÍR, UMFG-
Haukar, UMFN sat hjá.
Leikin er tvöföld umferð,
heima og heiman og liðið sem er á
undan fær fyrri leikinn á heima-
velli.
-Ibe
Bjarni Friðriksson sigraði í
opnum flokki á opna skandinav-
iska meistaramótinu í júdó.
Bjarni hefur verið að ná sér af
meiðslum og þessi sigur sýnir að
hann er greinilega á réttri leið.
Bjarni mætti Finnanum Petteri
Sandell í úrslitum og það tók
hann ekki nema 21 sekúndu að
skella honum á ippon. Glæsilegur
sigur hjá Bjarna, enda mótið
sterkt.
Bjarni hafði áður sigrað Dan-
ann Carsten Jensen á koka og
Kemmsies frá V-Þýskalandi á
yuko.
„Ég er ánægður með þennan
sigur. Ég er að jafna mig eftir
meiðsli og þetta mót var eiginlega
til að athuga hvort ég væri orðinn
góður,“ sagði Bjarni í samtali við
Þjóðviljann.
„Jensen var tvímælalaust erfið-
asti andstæðingurinn og gott að
vinna hann strax í fyrstu glírnu."
Bjarni tekur þátt í sterku móti í
Japan í janúar og hann mun einn-
ig keppa í Þýskalandi, Frakk-
landi, Hollandi, Englandi og
Skotlandi, áður en hann fer á
Evrópumeistaramótið.
Það voru sex íslenskir kepp-
endur á mótinu, Karl Erlingsson,
Halldór Guðbjörnsson, Ómar
Sigurðsson, Halldór Hafsteins-
son og Viðar Guðjohnsen, en
þeir komust ekki í úrslit.
Belgía
Góður sigur Anderlecht
Arnór skoraði eittþriggja marka ísigriyfir Mechelen. Skellur
hjá Winterslag
Arnór Guðjohnsen skoraði eitt
marka Anderlecht þegar liðið
sigraði Mechelen, 3-2. Arnór lék
vel og þetta var besti leikur
Anderlecht í langan tíma.
Það var Nilis sem náði foryst-
unni fyrir Anderlecht, en Mec-
Laufey Sigurðardóttir einn
besti leikmaður Skagaliðsins í
knattspyrnu hefur ákveðið að
ganga til liðs við Stjörnuna næsta
sumar.
Laufey var ein styrkasta stoð
ÍA í sumar. Hún skoraði sex
mörk í fyrstu sjö leikjunum í ís-
landsmótinu.
Skagaliðið, sem sigraði í Bikar-
keppninni sumar, hefur orðið
helen náði að jafna fyrir leikhlé.
Arnór fékk nokkur góð færi og
átti m.a. skalla í stöng.
Arnór kom Anderlecht yfir að
nýju í upphafi síðari hálfleiks
með góðu marki með skalla. Það
var svo Frimann sem innsiglaði
fyrir miklum afföllum. Ragna
Éóa Stefánsdóttir er farin í
Stjörnuna, Vanda Sigurgeirs-
dóttir til Svíþjóðar og Vala Úlfl-
jótsdóttir er hætt.
Stjarnan hefur fengið mikinn
liðsstyrk. Ragna og Laufey koma
báðar af Skaganum og fylla skarð
Erlu Rafnsdóttir sem leikur að
öllum líkindum ekki með næsta
sumar vegna meiðsla.
-Ibe
sigur Anderlecht eftir sendingu
frá Arnóri. Mechelen náði að
minnka muninn rétt fyrir leiks-
lok.
Anderlecht er þó enn í 5. sæti
með 20 stig, en staða liðsins
styrktist mjög við þennan sigur.
Það gekk ekki jafn vel hjá
Winterslag. Liðið fékk hræði-
legan skell á heimavelli gegn
Club Brugge, 0-6. Winterslag er
nú á botninum með átta stig.
Guðmundur Torfason lék ekki
með, en hann er meiddur.
Úrslit i 1. deild:
Anderlecht-Mechelen.............3-2
Beveren-Charleroi...............0-0
Ghent-Lokeren...................3-1
Winterslag-Club Brugge..........0-6
Beerschot-Molenbeek.............0-0
St.Truiden-Antwerpen............0-2
Standard Liege-Kortrijk.........4-0
Cercle Brugge-Racing Jet........2-0
Waregem-Liege...................5-3
Antwerpen.... 16 10 6 0 36-13 26
ClubBrugge 16 10 3 3 38-18 23
Mechelen....16 10 2 4 23-14 22
Waregem.....15 10 1 4 34-19 20
Anderlecht.... 16 7 6 3 28-13 20
Liege.......16 7 6 3 28-19 20
-Ibe
-Ibe
Sund
SHogKR
í 1. deild
Það verða SH og KR sem taka
sæti í 1. deildinni í sundi. SH sigr-
aði í keppni í 2. deild um helgina
og KR hafnaði í 2. sæti.
Keppni var jöfn og spennandi
og var í fyrsta sinn gefið eftir al-
þjóðlegri stigatöflu. Það þýðir að
breiddin hefur meira að segja en
árangur einstaklinga.
Úrslit í 2. deild:
1- SH.....................21.167
2. KR.....................20.012
3. Ármann...............16.155
4. HSÞ..................15.999
5. Óðinn...................15.285
6. IBV.....................14.946
Það eru því SH og KR sem taka
sæti í 1. deild, en Öðinn og ÍBV
falla í 3. deild.
Keppni í 1. deild fer fram um
næstu helgi í Sundhöllinni í
Reykjavík.
Þrjú met voru sett á mótinu.
Þorsteinn H. Gíslason vann tvö
drengjamet af Hannesi Má Sig-
urðssyni. Þorsteinn setti drengja-
met í 200 metra flugsundi á
2.26.40 og í 800 metra skriðsundi
á 9.04.98.
Þá setti sveit SH telpnamet í
4x100 metra skriðsundi á 4.29.4.
Kvennaknattspyrna
Laufey í Stjömuna
Fjórir lykilmenn farnir frá IA
Umsjón: Logi B. Eiðsson
Þriðjudagur 1. desember 1987
-Ibe