Þjóðviljinn - 01.12.1987, Page 12

Þjóðviljinn - 01.12.1987, Page 12
BÆKUR Orðalykill frá Menningarsjóði Bókaútgáfa Menningarsjóðs hefur gefið út Orðalykil eftir Arna Böðvarsson cand.mag.,_en hann mun kunnastur fyrir íslenska orðabók sem ýmist er kennd við hann eða Menningarsjóð. Orðalykill skiptist í þrjá efnis- flokka. Hinn fyrsti nefnist Latnesk-íslenskur nafnalykill úr náttúrufrœði, annar Ýmis frœði- orð og hinn þriðji Landafrœði- heiti. í fyrsta hlutanum, Latnesk- íslenskum nafnalykli úr náttúru- frœði, eru um 7000 latnesk vís- indaheiti á ættum, ættkvíslum og tegundum í náttúrufræði með ís- lenskum þýðingum. Annar hluti bókarinnar, Ýmis frœðiorð, nær yfir um 2100 alþjóðleg heiti fræðigreina, svo og ýmis fræði- orð, einkum úr málfræði, bók- menntafræði og skyldum grein- um. Gera má ráð fyrir að hann komi einkum að notum skóla- nemendum sem lesa fræðirit á út- lendu máli. Priðji hlutinn, Landafrœðiheiti, sýnir um 1850 sérnöfn úr erlendri landafræði, svo sem á löndum, héruðum, borgum, vatnsföllum og svo framvegis. Við öll staðanöfnin er sýnt hvað eðljlegast þykir að nefna íbúana á íslensku, svo og sam- svarandi lýsingarorð. í leiðbeiningum til notenda segir höfundur, Árni Böðvars- son, meðal annars: „Þessi bók ætti að vera gagnleg skólanem- endum, þýðendum, blaða- mönnum og öðrum sem þurfa að fá vísbendingu um íslenska þýð- ingu á svonefndum „alþjóð- legum“ orðum. Ekki skyldi þeirri staðreynd gleymt að orð sem kölluð eru „alþjóðleg“ í okkar heimshluta eru algeng fyrst og fremst í vestur-evrópskum mál- um. Alþjóðleiki margra þeirra mun varla vera miklu meiri.“ (F réttatilky nning) Guðjón Sveinsson á hollensku í sumar kom út hjá Conserve forlaginu í Groningen í Hollandi safn norrænna smásagna. Bókin heitir Reis naar een jeugd og var gefin út í tilefni af fimm ára afmæli Norrænnar þýðingar- og upplýsingaþjónustu þar í landi (Scandinavisch vertaal- en in- formatiebureau Nederland). í safninu eru sögur ellefu höfunda sem margir eru vel kunnir, þ.á m. Marianne Larsen, Martin A. Hansen, Tove Ditlevsen og Klaus Rifbjerg. Einn íslenskur rithöfundur á sögu í safninu. Það er Guðjón Sveinsson og sagan er „Morgun- dögg“, einlæg og áhrifamikil frá- sögn af dreng á tímamótum, sem hlaut verðlaun Samtaka móð- urmálskennara á Norðurlöndum 1981. Hún kom út á norsku í safni verðlaunasagna úr þeirri sam- keppni sem bar heitið Reve- sommer, og á íslensku í Tímariti Máls og menningar 3. hefti 1982. Guðjón Sveinsson Spennusaga eftir Jack Higgins Út er komin hjá Hörpuútgáf- unni á Akranesi bókin „Lífið að veði“ eftir metsöluhöfundinn Jack Higgins. Þessi saga var kvikmynduð í Bretlandi fyrr á þessu ári. Um bókina „Lífið að veði“ segir m.a. á baksíðu: „Foringi glæpaklíku er skotinn til bana þegar hann leggur blóm á leiði móður sinnar. Kaþólskur prestur, Da Costa, verður óvart vitni að morðinu. Presturinn er eiðsvarinn gagnvart þeim sem játa í skriftastóli. Skyndilega stendur hann frammi fyrir því að halda hlífiskildi yfir eftirlýstum IRA-foringja og morðingja. Da Costa á í stríði við lögreglu, morðingja, glæpaklíku, eitur- lyfj asala og síðast en ekki síst sinn innri mann.“ Þýðinguna gerði Gissur Ó. Er- lingsson. (Fréttatilkynning) Helsprengjan eftir Alistair MacLean Iðunn hefur gefið út nýja bók eftir meistara spennusögunnar, Alistair MacLean og nefnist hún Helsprengjan. í kynningu útgefanda á efni bókarinnar segir: „Ótrúlegir atburðir eiga sér stað í Eyjahafi fyrir augum Tal- bots skipstjóra og áhafnar hans, sem eru þar í vísindaleiðangri á skipi sínu. Þeir horfa upp á brennandi snekkju hverfa í öldurnar - og andartaki síðar hrapar flugvél í hafið á sömu slóðum. Er þetta tilviljun eða býr hér eitthvað dularfullt að baki? Talbot skipstjóra tekst að af- hjúpa sannleikann... skipulagt samsæri hryðjuverkamanna og eiturlyfjasmyglara." Bækur Alistair MacLean hafa verið söluhæstar spennubóka hér á landi um árabil. Andrés Kristjánsson þýddi. Sögur Svövu Jakobsdóttur Vaka-Helgafell gefur nú út í einni bók smásagnasöfn Svövu Jakobsdóttur, Tólf konur og Veisla undir grjótvegg sem verið hafa ófáanleg um langt skeið. Svava vakti strax athygli þegar þessar bækur komu út á sjöunda áratugnum. Frásagnarmáti henn- ar þótti nýstárlegur og spennandi og efnistök óvenjuleg. Verkin skipuðu henni í fremstu röð þeirra rithöfunda sem mótað hafa íslenskar samtímabók- menntir. Einkum ber að geta framlags Svövu til bókmenntalegrar um- ræðu um málefni kvenna og um raunveruleika neysluþjóðfélags- ins. Þótt viðfangsefnið kunni við fyrstu sýn að virðast einfalt og hversdagslegt, nær höfundur að afhjúpa þau öfl sem blunda undir yfirborðinu og að sýna hvernig persónuleiki og verðmætamat nútímamanneskju mótast. Skírnir er kominn út Hausthefti Skírnis, tímarits Hins íslenska bókmenntafélags, 161. árgangur, er komið út. Efni heftisins er fjölbreytt^ Fimm Ijóð eru eftir Þóru Jónsdóttur sem er skáld Skírnis að þessu sinni. Guðrún Kvaran skrifar grein í minningu Rasmusar Kristjáns Rask, en á þessu ári eru liðin 200 ár frá fæðingu hans. Tvær greinar eru um íslenskar fornsögur. Jónas Kristjánsson skrifar ítarlega grein um sann- fræði fornsagnanna og Helga Kress setur fram nýstárlega kenningu um hetjuskap í forn- sögum í grein sem hún nefnir „Bróklindi Falgeirs". Páll Skúla- son á grein í heftinu um Sigurð Nordal og tilvistarstefnuna og Kristján Arnason fjallar um skylt efni í greininni „Arfur Hegels". Þá eru greinar eftir Sigurbjörn Einarsson biskup, sem íhugar stöðu kristinnar trúar á tækniöld, og Jón Þ. Þór sagnfræðing, sem varpar nýju ljósi á íslandsför æf- ingadeildar breska flotans sumar- ið 1896. Ritdómar eru um sjö nýlegar íslenskar bækur. Ritstjóri Skírnis er Vilhjálmur Árnason lektor. VERKAMANNABÚSTAÐIR í REYKJAVÍK SUÐURLANDSBRAUT 30, 108 REYKJAVÍK SÍMI 681240 UMSÓKNIR Stjórn verkamannabústaða í Reykjavík óskar eftir umsóknum um kaup á 57 tveggja til fjögurra herbergja íbúðum, sem eru í byggingu í Grafarvogi í Reykjavík. Ennfremur er óskað eftir umsóknum um u.þ.b. 100 eldri íbúðir sem koma til endursölu síðari hluta árs 1988 og fyrri hluta árs 1989. Um ráðstöfun, verð og greiðsluskilmála þessara íbúða gilda lög nr. 60/1984, nr. 77/1985, nr. 54/1986 ognr. 27/1987. Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu V.B. Suðurlandsbraut 30, frá mánudeginum 30. nóvember 1987, og verða þar einnig veittar allar al- mennar upplýsingar. Skrifstofan er opin mánudaga-föstudaga kl. 9-12 og 13-16. Umsóknum skal skila eigi síðar en 20. desember 1987. Stjórn verkamannabústaða í Reykjavík Rafeindavirkjar Póst- og símamálastofnunin óskar eftir að ráða rafeindavirkja til starfa í hinum ýmsu deildum stofnunarinnar. Við leitum að duglegum og áhugasömum mönnum með full réttindi sem rafeindavirkjar og sem eru reiðubúnir að tileinka sér nýjustu tækni á sviði nútíma hátækni: Símstöðvatækni Fjölsímatækni Radíótækni Notendabúnaðar Við bjóðum fjölbreytt framtíðarstörf hjá einu stærsta fyrirtæki landsins. Ráðning nú þegar eða eftir samkomulagi. Umsækjendur séu tilbúnir til frekara náms utan og/eða innanlands. Laun samkvæmt launakjörum viðkomandi stétt- arfélags. Nánari upplýsingar veitir starfsmannadeild og viðkomandi yfirmenn deilda í sama 91 -26000 og í umdæmunum. Umsóknareyðublöð fást á póst- og símstöðvum og hjá starfsmannadeild. Póst- og símamálastofnunin

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.