Þjóðviljinn - 01.12.1987, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 01.12.1987, Blaðsíða 15
ERLENDAR FRETTIR Tyrkland Ozal á sigurbraut Föðurlandsflokkurinn heldur hreinum meirihluta áþingi. Ecevit hœttur afskiptum af stjórnmálum Turgut Ozal, forsaetisráðherra Tyrklands og leiðtogi Föður- landsflokksins, vann glæstan sigur í þingkjörinu er fram fór þarlendis á sunnudag og hreinan meirihluta fulltrúa á tyrknesku löggjafarsamkundunni. Þegar aðeins átti eftir að telja tæpar tvær miljónir af 26 miljón greiddum atkvæðum var orðið Ijóst að Föðurlandsflokkurinn hafði hreppt um 290 af 450 sætum á tyrkneska þinginu. Ennfremur var talið fullvíst að aðeins tveim af fimm öðrum flokkum er buðu fram í kosning- unum hafði auðnast að fá fulltrúa kjörna. Þetta eru Alþýðlegi jafn- aðarmannaflokkurinn, sem er miðjuflokkur, og Sannbrautar- flokkurinn sem er til hægri í „lit- rófi stjórnmálanna." Ozal var að vonum kátur í bragði þegar úrslitin voru ljós. „Almenningur kaus pólitískan stöðugleika," sagði hann og brosti sínu fegursta. Fahir nokk- ur Armaoglu, prófessor í stjórn- málafræðum og þekktur blaða- skríbent, tók í sama streng: „Nið- urstaðan sýnir að fólk vill ekki snúa til þess ástands er ríkti fyrir valdarán herforingjanna árið 1980 og vill umfram annað stöð- ugleika.“ Kosningarnar á sunnudag voru mun lýðræðislegri en fyrsta kjör- ið sem haldið var eftir að herfor- ingjarnir létu af völdum árið 1983. Þá var mörg hundruð stjórnmálamönnum meinuð þátt- taka á þeirri forsendu að þeir bæru ábyrgð á glundroða og óöld á Tyrklandi á ofanverðum átt- unda áratugnum. Talið er að þá hafi að minnsta kosti 5 þúsund einstaklingar látið lífið fyrir hendi pólitískra andstæðinga sinna og voru hægrisinnaðir öfga- menn atkvæðamestir í þeirri öldu hryðjuverka. Föðurlandsflokkur Ozals er hægrisinnaður markaðshyggju- flokkur en félagar hans koma úr ýmsum áttum og kennir þar margra grasa. Til að mynda eiga rétttrúaðir múhameðstrúarmenn þar ekki síður ítök en sérfræðing- ar sem hlotið hafa menntun á Vesturlöndum. Eitt helsta stefnumál flokksins er að koma Tyrkjum í Evrópubandalagið þótt við ramman reip sé að draga þar sem er mótspyrna ýmissa evr- ópskra aðildarríkja. Tyrkir eru aðilar að NATO en sóttu í febrú- ar síðasliðnum um aðild að EB. Mjög líklegt þykir að Alþýð- legi jafnaðarmannaflokkurinn, undir leiðsögn Erdals Inonus, muni hreppa um 100 sæti á nýju þingi en Sannbrautarflokkur Su- leymans Demirels, fyrrum for- sætisráðherra, allt að 60. Hinsvegar var ljóst að Lýðræð- islegi vinstriflokkurinn, flokkur Bulents Ecevits sem einnig er fyrrverandi forsætisráðherra, náði ekki þeim 10 af hundraði at- kvæða sem var lágmark til að fá Tveir fyrrum torsætisráðherrar Tyrklands, Suleyman Demirel og Bulent Ecevit. Flokkur þess fyrrnefnda fékk 60 menn kjörna á þing en sá síðarnefndi er hættur stjórnmálavafstri. fulltrúa kjörinn á löggjafarsam- í gær lýsti hann því yfir að hann komuna. Enda voru viðbrögð væri hættur afskiptum að hans í samræmi við það. Síðdegis stjórnmálum. -Ls. Pólland Ósigur stjómvalda Pólskir ráðamenn urðu fyrir áfalli í gær er í ljós kom að landsmenn höfðu hafnað áætlun þeirra um efnahagsaðgerðir og pólitískar umbætur í þjóðarat- kvæðagreiðslu á sunnudag. Stjórnarandstaðan fagnaði nið- urstöðunni og fullyrti að líta mætti á hana sem vantraustsyfir- lýsingu á valdhafa. Áður en gengið var til atkvæða höfðu stjórnvöld fullyrt að þau myndu ekki ganga í berhögg við niðurstöðu kosninganna en al- mennt hafði verið búist við því að meirihluti kjósenda myndi veita áætlun þeirra brautargengi. í þjóðaratkvæðagreiðslunni var leitað álits manna á tveim at- riðum, efnahagsáætluninni og pólitískum og félagslegum til- slökunum. Ríkisstjórnin hafði lýst því yfir að nýmælunum yrði ekki hrint í framkvæmd nema að minnsta kosti 51 af hundraði 26 miljóna atkvæðisbærra manna í Póllandi væru þess fýsandi. Að sögn ríkissjónvarpsins í Póllandi greiddu aðeins 44,28 af hundraði Pólverja atkvæði með efnahagsáætluninni en sam- kvæmt henni átti að gn'pa til strangra aðhaldsaðgerða, hækka vöruverð en heimila einkarekstur í smáum stfl. Fleiri voru áfram um að láta reyna á pólitísku og félagslegu til- slakanirnar en þó voru það ein- ungis 46,29 af hundraði atkvæðis- bærra manna. Ráðamenn höfðu heitið landsmönnum umbótum á kosningalöggjöfinni, auknu frjálsræði og valddreifingu ef meirihluti þeirra greiddi atkvæði með þessu atriði. Blaðafulltrúi ríkisstjórnarinn- ar, Jerzy Urban, reyndi í gær að gera lítið úr ósigri ráðamanna í atkvæðagreiðslunni sem talinn er mikið áfall fyrir Jaruzelski for- sætisráðherra og formann kom- múnistaflokksins. Hann sagði að yfirgnæfandi meirihluti þeirra 67,2 af hundraði atkvæðisbærra manna er þátt hefðu tekið í kosn- ingunum hefði greitt umbótunum atkvæði. Því hefðu ráðamenn unnið siðferðilegan sigur þótt þeir hefðu lotið í lægra haldi frá sjónarhorni laganna. Hinsvegar mætti vera ljóst að þrátt fyrir niðurstöðuna gætu stjórnvöld ekki snúið til baka og tekið upp þá skipan er ríkti áður en þau hófust handa um umbætur. Það myndi þýða afturhvarf til stöðn- unar og hnignunar í efnahagslífi. -ks. SKAK 18. einvígisskákin Spennandi jafnteflisskák Frá Helga Ólafssyni, f rétt aritara Þjóðviljans íSevillu: (33. g4 kom einnig til greina.) 33. ...h5 Atjánda skák Garrís Kaspar- ovs heiinsmeistara og áskoranda hans, Anatólís Karpovs, lauk með jafntefli í gær eftir 40 leiki. Skákin var geysispennandi á tímabili, einkum undir lok set- unnar þegar Karpov lenti í alvar- legu tímahraki en honum tókst þrátt fyrir það að halda jafntefli í erflðu hróksendatafli. Þeir tefldu afbrigði í drottningarbragði sem var mikið til „umræðu“ í fyrsta einvígi þeirra í Moskvu veturinn 1984-1985. Þær skákir þóttu aldrei sérlega skemmtilegar en að þessu sinni náði Kasparov greini- lega frumkvæðinu þótt hann yrði að sætta sig við jafntefli að lok- um. Nú eru aðeins sex skákir eftir af einvíginu og hver einasta skák því hrein úrslitaskák, minnstu mistök ákvarða hver verður heimsmeistari í skák næstu þrjú árin. Áhugi á einvíginu er mikill. í dag sáu þeir Viktor Kortshnoi og Mikhael Tal um skákskýringar og fór vel á með þeim þrátt fyrir fornar erjur. Skáksalurinn var fullur út úr dyrum. Meðal áhorf- enda í keppnissalnum sjálfum voru Klara Kasparova, móðir heimsmeistarans, og Natassja Karpova, hin nýja eiginkona Karpovs, ljóshærð og vel klædd stúlka. 18. einvígisskák Garrí Kasparov - Anatólí Karpov Drottningarbragð 1. c4 eó (Þrátt fyrir sigurinn í sextándu skákinni telur Karpov affærasæl- ast að skipta um byrjun.) 2. Rc3 d5 4. Rf3 3. d4 Be7 . (Skarparaer4.dxc5 5.Bf4sam- anber tólftu einvígisskákina. Kasparov tekur aðra stefnu og velur afbrigði sem olli skák- áhugamönnum um allan heim ómældum leiðindum í fyrsta ein- vígi þeirra í Moskvu veturinn 1984-1985.) 4. ...Rfó 6. Bh4 5. Bg5 h6 (í síðasta einvígi lék Kasparov ævinlega 6.Bxf6 og eftir 6....Bxf6 7.e3 0-0 8.Hcl c6 9.Bd3 Rd7 10.0-0 dxc4 11 .h3 náði hann betri stöðu.) 6. ...0-.0 7. e3 b6 (Karpov fór sér að engu óðs- lega í byrjuninni, var óvenju lengi að leika miðað við að hann hefur teflt þessa stöðu á svart nær allan sinn skákferil.) 8. Be2 Bb7 10. cxd5 exd5 9. Bxf6 Bxf6 ll.b4 (Kasparov lék nær samstundis og nú tók Karpov að leika á leifturhraða. Eftir 16 leiki höfum við stöðu sem kom upp fjórum sinnum í fyrsta einvíginu og einu sinni í öðru einvíginu.) 11. ...c5 14. 0-0 Rd7 12. bxc5 bxc5 15. Bb5 Dc7 13. Hbl Bc6 16. Dd3 (Ef mig misminnir ekki lék Karpov einmitt þessum leik í átt- undu skákinni í öðru einvígi þeirra félaga. Áður hafði verið leikið 16.Dc2.) 16. ...Hfc8 (tími:l,07) (Þegar allt kemur til alls þá er það kannski ekki svo vitlaust hjá Kasparov að velja þessa leið því Karpov hugsaði sig um í 40 mín- útur um svarleik sinn og var hann með klukkustundu lakari tíma. Það skiptir kannski ekki neinu verulegu máli en frá sálfræði- legum sjónarhóli séð getur verið erfitt að vera svo langt á eftir. Almennt var búist við 16.. ..Hfd8.) 17. Hfcl Hab8 20. Dxbl Dxc6 18. h3 g6 21. bxc5 19. Bxc6 Hxbl (Kasparov virtist vita uppá hár hvað hann var að gera. 21.1eikurinn kom samstundis og nú stendur Karpov frammi fyrir erfiðri vörn. Enda talaði hann óvenju mikið við sjálfan sig á þessu augnabliki milli þess sem hann gaf Kasparov auga.) 21. ...Dxc5 (Annar möguleiki var 21.. ..Rxc5 sem hvítur getur svar- að með 22.Db5 og heldur þá ei- lítið betri stöðu. 21...Bxc3 var hinsvegar ekki gott vegna 22.Hxc3 Rxc5 23.Rd4 með mun betri stöðu. Hvítur hefur óþægi- legan þrýsting eftir c línunni og getur einnig spilað uppá veik- leikana í peðastöðu svarts.) 22. Re2 Df8 (Ef staðan í einvíginu er höfð f huga þá má telja taflmennsku Kasparovs viturlega.„Hann get- ur ekki tapað þessu tafli,“ sagði Jonathan Tisdall skákfréttaritari Reuters í Sevillu við mig, „en vinningsmöguleikar hans eru heldur ekki miklir.“) 23. h4 (Óvæntur leikur. Menn bjugg- ust ef til vill við23.Db7 en svartur heldur velli með 23....Hxcl 24. Rxcl Da3! (en ekki 24....Dc5 25. Rb3! og svo framvegis). Kasp- arov hyggst hræra upp kóngs- stöðu Karpovs en það er stór spurning hvort hann hefði ekki átt að leika þessum leik þegar í átjánda leik.) 23. ...Re5 (Karpov álítur að besta leiðin til að jafna taflið sé í gegnum mannakaup.) 24. Rxe5 Bxe5 (Ef til vill var betra að skjóta inn 24. ...Hxcl þótt hvítur haldi betri færum eftir 25. Dxcl Bxe5 26. Dc6 og svo framvegis.) 25. Hdl Dc5 (Þögult jafnteflistilboð: 25. Hcl Df8 26.Hdl og svo fram- vegis.) 26. h5! Dc2! (Leikurinn 26....g5 strandar á 27. DÍ5! og hvítur er hartnær með vinningsstöðu.) 27. Dxc2 (Mannsfórnin 27.hxg6 Dxe2 28. gxf7+ Kg7 hefur ekkert uppá sig. Hvítur fær einfaldlega tapað tafl.) 27. ...Hxc2 30. hxg6 fxg6 28. Hxd5 Hxe2 31. He7 29. Hxe5 Hxa2 (Þótt hróksendataflið sé afar jafnteflislegt þá er Karpov enn með lakari stöðu og verður að tefla af gætni til að forðast tap. Staðan minnir óneitanlega á sjöttu skákina í fyrsta einvígi þeirra en þá tókst Karpov að vinna hróksendatafl með þrem peðum gegn tveimur.) 31. ...a5 33. g3 32. Ha7 a4 (Eftir þennan leik verður erfitt fyrir Kasparov að þróa peða- stöðu sína.) 34. Kg2 a3 (2,21) 35. e4 (1,59) g5! (Karpov lék þessum leik eftir langa umhugsun og átti nú aðeins tvær mínútur eftir til að ljúka til- skildum leikjafjölda. Hugmynd- in er þessi: 36.Ha5 g4 37.Hxh5 Hal 38.Ha2 og hvítur kemst ekk- ert áfram.) 36. KÍ3 g4+ 37. Ke3 Hal 38. Kf4 Hfl 39. Kg5 Hxf2 40. Kxh5 He2 Tímamörkunum var náð og Karpov hefur sloppið með skrekkinn. Kasparov bauð jafn- tefli sem Karpov þáði samstund- is. Hörð baráttuskák þar sem Kasparov var afar nálægt sigri en Karpov tókst að halda jöfnu með góðri vörn. Staðan: Kasparov 9 - Karpov 9. Tími: Hvítur 2,13-Svartur 2,29. Þriðjudagur 1. desember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.