Þjóðviljinn - 01.12.1987, Síða 19

Þjóðviljinn - 01.12.1987, Síða 19
SKÁK Helgi Ólafsson skrifar frá Sevilla Taugastyrkur mun ráða úrslitum Spennan íhámarki. Ævisaga Kasparovs dregur dilk á Þegar þetta er ritað er lokið 17 skákum af 24 í einvíginu um heimsmeistaratitilinn. Hvorki Garry Kasparov heimsmeistara né Anatoly Karpov áskoranda hans hefur tekist að sýna neina yfírburði framyfír mótstöðu- manninn, svo allt bendir til þess að sá sem hefur yfir meiri tauga- styrk að ráða á lokasprettinum beri sigur úr býtum. Skoðanir eru skiptar á því hvor hafi betri möguleika. Kasparov heldur titlinum í því tilviki að ein- vígið endi með jafntefli 12-12 og hann hefur hvítt í 4 skákum af þeim 7 sem eftir eru. Á hinn bóg- inn hefur Karpov verið að sækja í sig veðrið að undanförnu, hann vann mikilvægan sigur með svörtu í 16. skákinni og hefur á vissan hátt haft frumkvæði í ein- víginu, þegar litið er til þess að Kasparov hefur þurft að hafa talsvert fyrir því að ná jafntefli í 7., 9., 13. og 17. skákinni. Kasparov hefur einnig sýnt furðulítinn baráttukraft með hvftu í nokkrum skákum þó margir vilji halda því fram að hann hafi verið að spara orkuna eftirsér fyrir lokasprettinn. „Kasparov er orðinn hundleiður á því að tefla við Karpov" sagði enski stór- meistarinn Raymond Keene, að lokinhj 17. skákinni. „Það er ástæðan fyrir því hversu erfiðlega honufh hefur gengið í einvíginu. Karpov á hinn bóginn virðist geta teflt við hvurn sem er í hið óend- anlega. Það virðist ekki breyta neinu hvort .hann er að kljást við sama andstæðinginn," bætti hann við. Keene er náinn vinur Kaspar- ovs og veit því hvað hann syngur. Þeir rituðu saman handbók um byrjanir og tvívegis hefur Keene, næstum því upp á eigin spýtur, gengist fyrir einvígjum hans. Fyrst í London 1983 þegar hann tefldi við Viktor Kortsnoj og síð- an átti hann stóran þátt í Lund- únahluta síðasta einvígis. Ensku mótshaldararnir töpuðu að vísu stórfé á því dæmi og hefur FIDE orðið að afskrifa óinnkomnar tekjur vegna þessa. Skákbók á flugvelli Innan um og saman við ævi- sögur manna og kvenna svo sem Marilyn Monroe, Frank Sinatra (I Will do it my way) sé ég glitta í frekar dapurlegt andlit á bókar- kápu. „Child of chains" ævisaga Kasþarovs hefur ratað í bókahill- umar á Heathrow flugvelli. Kannski.er hér komin sönnun þess að skáklistin sé að vinna á í hinum stóra heimi. Getið var um þessa bók í Þjóðviljanum í upp- hafi einVígisins. Hún er fsatt að segja rituð í stfl manns sem hefur 'fyrir löngu yfirgefið föðurland sitt. Ef Victor Kortsnoj fékk að greiða hátt verð fyrir ummæli sín fyrrum, þá er Kasparov mun hvassari í ádeilu sinni á Campo- manes forseta FIDE og hina rotnu klíku sem stjórnar Skák- sambandi Sovétríkjanna þar sem Karpov hefur verið æðstiprestur um langt skeið. Fulltrúar á þingi FIDE sem hófst sl. sunnudag vissu ekki sitt rjúkandi ráð þegar Campomanes tók að hella úr skálum reiði sinn- ar yfir því sem hann kallaði linnu- lausan áróður gegn sér. Hann sagðist hafa haldið stillingu sinni en nú væri mælirinn fullur. Það mun hafa vafist fyrir mönnum hverjum sneiðin var ætluð, en út- koma títtnefndrar bókar mun vera ástæða þessarar einkenni- KACfiAPOB KAPÍ10B legu opnunarræðu þingsins. Ég tel ekki ósennilegt að sov- éska skáksambandið grípi til sinna ráða vegna bókarinnár og Kasparov hafi þegar verið gert ljóst að ummælin muni draga dilk' á eftir sér. „Fjölskylda Karpovs" eins og Kasparov kallar helstu forsvarsmenn sovéska skáksam- bandsins er öll stödd hér, svo og nokkrir þekktir stórmeistarar sem hafa aðstoðað hann í gegn- um árin. Þar skal nefna Mikhael Tal, Lev Polugajevskí, Edual Gufeld, Mark Taimanov og fleiri. Einhvern veginn hefur maður það á tilfinningunni að staða heimsmeistarans sé ekkert allt of sterk hér. Má til dæmis nefna að á þingi FIDE liggur fyrir tillaga frá miðstjórn sambandsins um að ná- inn vinur hans, Spánverjinn Cal- vo verði dæmdur í 5 ára bann frá öllum afskiptum af málefnum FIDE vegna greinar sem hann skrifaði í hollenska tímaritið New in chess. Calvo var fylgismaður Brasilíumannsins Lucena til kjörs forseta FIDE og hafði náið samráð við Kasparov sem einnig beitti sér af mikilli einurð fyrir Lucena á þingi FIDE í Dubai í fyrra. Þá var Sevillá beinlínis ekki óskastaður Kasparovs fyrir þetta einvígi, hann vildi tefla í Seattle í Bandaríkjunum. Spennan stigmagnast Á yfirborðinu virðist fara allvel á með þeim Kasparov og Karpov. Það heyrir þó til undantekninga fari þeir yfir skákirnar að þeim loknum, ekki fyrr en eftir 17. skákina sem þeir ræddu nokkra möguleika. Á sínum tíma tók Kasparov fyrir allar slíkar vanga- veltur en af og til bregða þeir út af þessari reglu. Spassky og Fischer ræddust aldrei við að loknum skákum sín- um í einvíginu í Reykjavík 1972. Það er eins og keppendur í heimsmeistaraeinvígjum óttist að þeir Ijóstri upp einhverjum leyndarmálum sínum undir þess- um kringumstæðum. -hól. UMÖNNUNAR- OG HJÚKRUNARHEIMIUD SKJOL VERDUR VIGTIDAG Heimilinu er œtlað oð verða skjól fyrirþá aldraða, sem afeinhverjum ástœðum þarfnast sérstakrar umönnunar. Þar eiga allir landsmenn jafnan aðgang. Húsið er alls 6 hœðir og verða tvœr þeirra teknar í notkun í fyrsta áfanga. Stefnt er að því að nœstu tvœr verði tilbúnar í mars 1988 og að byggingin verði fullbúin í desember 1988. SKJÓL er sjálfseignarstofnun og stofnendur hennar eru: ÁTAK TIL SKJÓLS Hafin er fjársöfnun til styrktar áfram- haldandi framkvœmdum og verða gíróseðlar sendir öllum heimilum á iandinu. Einnig er tekið við framlögum á gíróreikning nr. 46226 í Landsbanka íslands. ALÞÝÐUSAMBAND ÍSLANDS ■ REYKJAVÍKURBORG ■ SJÓMANNADAGSRÁÐ ■ STÉTTARSAMBAND BÆNDA SAMBAND LÍFEYRISÞEGA RÍKIS OG BÆJA ■ ÞJÓÐKIRKJAN VIÐ, SEM ÁTT HÖFUM ÞÁTT í VERKINU, HVETJUM FÓLK TIL AÐ LEGGJA GÓÐU MÁLEFNI LIÐ. VERKFRÆÐISTOFA STEFÁNS ÓtAFSSONAR HF: TEIKNISTOFAN HF„ ÁRMÚiA 6 TRÉSMIBUA ÞORVALDAR ÓIAFSSONAR HF. TRÉSMiÐJA ÚLFARS, AUÐBREKKU 19 SVERRIR SIGURÐSSON. PÍPUIAGNINGAMEISTARI SIGFÚS OG KRISTJÁN SF. MÚRARAMEISTARAR LOFTORKA HF. KRISTJÁN SIGGEIRSSON HF. HEILDVERSLUNIN EDDA HF. FJARÐARMÓT HF. EPAL HF. BRÆÐURNIR ORMSSON HF. BRAGI KRISTIANSEN, RAFVIRKJAMEISTARI BLIKKSMIÐJAN VÍK HF. ALMÁLUN SF. Framkvœmdanefnd þakkar öllum þeim sem stutt hafa verkið með framlögum sínum.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.