Þjóðviljinn - 01.12.1987, Page 20

Þjóðviljinn - 01.12.1987, Page 20
Aðalsími 681333 Kvöldsími 681348 Helgarsími 681663 þlÓÐVIMINN Þriðjudagur 1. desember 1987 269. tölublað 52. örganour Þjónusta íþínaþágu SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. Byggðastofnun Óeining hjá íhaldi Fjórir þingmenn Sjálfstæðis- flokks berjast um tvö eftirsótt sæti í stjórn Byggðastofnunar. Fulltrúum Sjálfstæðisflokksins fækkar nú úr þremur í tvo. Vegna þessarar óeiningar þurfti í gær enn einusinni að fresta kosningu Alþingis í stjórn Byggðastofnun- ar. Þeir þingmenn sem sátu í stjórn Byggðastofnunar eru Hall- dór Blöndal, Ólafur G. Einars- son og Eggert Haukdal, en auk þess hefur Pálmi Jónsson lýst áhuga sínum á stjórnarsetu. Pá mun Matthías Bjarnason einnig volgur, en talið er að hann dragi sig í hlé. í gær kaus Alþingi í stjórn áfengisvarnaráðs, stjórnarnefnd ríkisspítalanna og yfirskoðunar- menn ríkisreikninga. í stjórn áfengisvarnaráðs voru kjörin Helgi Seljan, Hörður Zóp- haníasson, Jóhannes Bergsveins- son og Sigrún Sturludóttir. í stjórn ríkisspítalanna Kjartan Jó- hannsson, Stefán Friðbjarnar- son, Svavar Gestsson og Por- steinn Húnbogason. Yfir- skoðunarmenn rtkisreikninga: Geir H. Haarde, Jóhanna Egils- dóttir og Sveinn G. Halfdánar- son. _______________________-Sáf Suðurnes Samvinnan sífellt meiri - Nú eru öll sveitarfélögin suður frá búin að samþykkja samning við ríkið um sameigin- lega gjaldheimtu á Suðurncsjum, og tekur hún til starfa um áramót, sagði Eiríkur Alexandersson, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, en aðalfundur sambandsins var haldinn um hclgina. Gjaldheimtan verður í Njarð- vík, og er hin fyrsta sem opnuð verður undir formerkjum breyttrar innheimtu. Sameiningarmál sveitarfélag- anna voru mjög til umræðu á að- alfundinum, og ekki að undra að sögn Eiríks, þar sem hvergi á landinu er um að ræða jafn nána samvinnu sveitarfélaga sem á Suðurnesjum, og tiltók hann sjúkrahús, heilsugæslu, dvalar- heimili aldraðra, fjölbrautaskóla og sorpeyðingarstöð í því sam- bandi. - Þau gerast æ færri málin sem einstök sveitarfélög annast sjálf, sagði Eiríkur. Par réði mestu fjárhagsvandi hinna smærri. Hann kvað sameiningaráhugann mestan í „miðjubyggðum" eins og Keflavík og Njarðvík, en minni til dæmis í Grindavík. Þá sagði Eiríkur að vaxandi áhuga gætti í Vogum og á Vatnsleysu- strönd. Á fundinum voru nýmæli í at- vinnumálum Suðurnesja mikið rædd; gengið var frá stofnun út- gerðarfyrirtækisins Eldeyjar um helgina; í bígerð er að sameina Iðnþróunarfélag Suðurnesja fjárfestingarfélaginu Athöfn og efla eitt stórt félag í ráðgjöf og þjónustu við atvinnulífið. Þá eru uppi hugmyndir um stofnun fjár- festingarsjóðs. HS Stjórn Alþýðubandalagsins Vidræður við fískvinnslufólk í fjórum landshlutum r ' i A næstu dögum mun stjórnAI- þýðubanda- lagsins efna til viðræðna við fisk- vinnslufólk víða um land Vestmannaeyjar - Grindavík - Siglu- fjörður - Akranes - Höfn - Reykjavík - ísafjörður - Nes- kaupstaður - Húsa- vík - Boiungarvík - Eskifjörður - Þor- lákshöfn - Hafnar- fjörður - Akureyri og víðar ÓlafurRagnar Svanfríður Bjargey BjörnGrétar Grímsson Jónasdóttir Einarsdóttir Sveinsson ritari formaður varaformaður gjaldkeri ogformaður Verkalýðsfélags- insJökuls, Höfn Hornafirði = éttlæti í launamálum fisk- vinnslufólks fstaða atvinnurekenda og ríkisstjórnar til eðlilegra kjarabóta fiskvinnslufólks ndurskipulagning í rekstri fiskvinnslunnar ýsköpun og tækniþróun í sjávarútvegi Alþýöubandalagið

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.