Þjóðviljinn - 24.12.1987, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 24.12.1987, Blaðsíða 2
rSPURNINGIN— Af hverju eru jólin haldin hátíöleg? (Spurt á dagheimilinu Múla- borg) Tekla Hrund Karlsdóttir, 5 ára: Af því að Jesú á afmæli. Það væru engin jól ef hann ætti ekki afmæli. Trausti Már Gunnarsson, 4 ára: Af því að Jesúbarnið á afmæli. Þorsteinn Magnússon, 4 ára: Það er af því að Jesú fæddist þá. Steinar Páll Magnússon, 4 ára: Ég veit það ekki. Jú, kannski af því að Jesú á afmæli þá. Júlíus Þór Ríkharðsson, 3 ára: Þá fæddist Jesú. FRÉTTIR Ærumeiðing Hvolur fær uppreisn æru Tekinnfyrir Sloppy Joe íjólablaðinu GunnarÁrnason: Hvolur hefði svarað Jónasi á móðurmálinu Gunnar Amason: Þetta var tyggur hundur og hann fylgdi mér eins og skuggi. Þau leiðu mistök urðu í um- fjöllun um hundinn Sloppy Joe í síðara jólablaði Þjóðviljans, að birt var mynd af röngum hundi. Eigandi hundsins, Gunnar Árnason verslunarmaður í Reykjavík hafði samband við blaðið og sagði að myndin sem sögð var vera af Sloppy Joe hafi í raun verið mynd af smalahundin- um Hvoli sem ættaður var frá Skeiði í Selárdal í Arnarfírði. Sagðist Gunnar una því illa að upp á hund sinn væri borið að hann hefði borið amerískt heiti og ekki kunnað að svara upp á ís- lensku. Þetta var ákaflega trygg- ur hundur og hann fylgdi mér alltaf eins og skuggi, sagði Gunn- ar, og Jónas hefði ekki þurft nema að sletta í góm til þess að hann svaraði honum. Myndin er reyndar tekin um svipað leyti og Jónas var á Keflavíkurflugvelli, en hún er hins vegar tekin vestur í Arnarfirði. Þegar ég fór frá Arnarfírði suður gat ég ekki lógað honum, og hann fylgdi því gamla mannin- um föður mínum, sem bjó á Skeiði. En Hvolur fylgdi mér alltaf, þegar ég var í smala- mennsku fyrir vestan á vorin og haustin. Síðustu árin var hann alltaf lokaður inni þegar farið var í leitir, en þegar hann losnaði út var hann ekki í rónni fyrr en hann hafði elt okkur uppi á fjallinu með því að rekja slóðina. Mig minnir að hann hafi dáið 1956, þá 14 vetra, en það bar að með þeim hætti um göngur að hann slapp út um miðjan dag og hélt í spor okkar leitarmannanna á fjallið. Hann var þá orðinn þungur á sér og náði ekki að hlaupa okkur uppi á fjallinu og kom ekki heim fyrr en seint um kvöldið og þá orðinn illa haldinn. Það var hlúð að honum og búið um hann undir eldavélinni, en um morguninn var hann dáinn. Þjóðviljinn biður hér með hundinn Hvol úr Selárdal afsök- unar á að hafa ruglað honum saman við Sloppy Joe á Keflavík- urflugvelli. -ölg. lavíkurflugvelli 1947 - samsett mynd. SLOPPY JOE Hundurinn sem hljóp í forsvarsmenn Keflavíkursamningsins veturinn 1947 Úrklippa af greininni um Sloppy Joe í Jólablaði Þjóðviljans. Jólin Hátíð í veðurblíðu Hinfádœma veðurblíða setursinn svip á jólin. Auð jörð og hitastigyfir frostmarki á Horni, Grímsey og á Möðrudal á Fjöllum Félagsheimilinu Múla um hátíð- H in fádæma veðurblíða sem búin er að vera í allan vetur setur sitt mark á jólaskap þeirra manna sem búa á annesjum, eyjum eða langt inn í landi um þessi jól. Víðast hvar er auð jörð og hitastig er fyrir ofan frost- mark. Að sögn Ólafs Jónssonar, vita- varðar á Hornbjargsvita, er þar hver dagur öðrum líkur en yfir hátíðirnar ætlar Ólafur og að- stoðarmaður hans að borða steikur og hangikjöt og lesa pólit- ísk rit. Þar efst á blaði er Gullna flugan eftir Þorleif Friðriksson og Saga Einokunarverslunarinnar eftir Gísla Gunnarsson. Ólafur sagði að þeir myndu setja upp jólatré í dag í tilefni jólanna og gera sér eitthvað til dundurs, taka nokkrar skákir eða svo og horfa á sjónvarp og hlusta á útvarpið. í Grímsey er jörð svotil alauð nema hvað snjódílar eru í nokkr- um brekkum. Að sögn Þorláks Sigurðssonar, oddvita er hugur í eyjarskeggjum um hátíðarnar og reynir þar hver maður að gera eitthvað til hátíðabrigða. Þar er búið að halda uppá litlu jólin fyrir krakkana og ættingjar og vinir eru margir komnir til eyjarinnar til að halda upp á jólin hjá fjöl- skyldum sínum. Aðventuljósin eru fyrir nokkru komin í flesta glugga og á þriðja í jólum verður guðsþjónusta í Grímseyjarkirkju ef veður leyfir. Og að sjálfsögðu verður haldið veglegt jólaball í arnar. Vernharður Vilhjálmsson, bóndi á Möðrudal á Fjöllum sagði í samtali við Þjóðviljann að- hann mundi ekki eftir annarri eins veðurblíðu og verið hefur í allt haust og vetur. En Möðrudal- ur er í 450 metra hæð yfír sjávar- máli. Þar er búið að baka laufa- brauð og allt tilbúið fyrir jólahát- tðina. _grh Jólaveðrið _ Rauð jól Það verður meinlaust veður um hátíðarnar um mest allt land og jólin í ár verða rauð, segir Bragi Jónsson, veðurfræðingur á Veðurstofu íslands um veðrið yfir jólahátíðina í samtali við Þjóðviljann í gær. Að öðru leyti er spáð allhvassri norðvestan átt á Vestfjörðum í dag með snjókomu. En á öðrum stöðum á landinu verður mun hægari vindur og skúrir sumstað- ar. Á jóladag og annan í jólum er búist við austlægri átt um allt land. Á sunnanverðu landinu verður hitinn frá 1-5 stig, en á norðanverðu landinu frá 0-4 gráðu hiti. Búast má við einhverj- um éljum á Vestfjörðum og á út- skögum norðanlands. -grh Islenskir unglingar hraustir íslenskir unglingar virðast vera mun hraustari en jafnaldrar þeirra í Skotlandi og á Norður- Irlandi, ef marka má niðurstöður úr sérstöku líkamshreystiprófi sem kallast Eurofit. Þetta próf var framkvæmt árið 1985 og ákvað menntamálaráðu- neyti íslands að ísland tæki þátt í þessu verkefni og komu niður- stöður prófsins fram í grein Gríms Sæmundsens í tímaritinu Heilbrigðismál. í prófinu voru valin 2385 börn á aldrinum 9-16 ára og þegar sam- anburðartöflur eru skoðaðar og bomar saman við árangur ung- linga í Skotlandi og Norður- írlandi, kemur í ljós að íslensku unglingamir stóðu sig áberandi betur í flestum greinum. f greininni er tekið fram að ekki sé hægt að alhæfa að öll ís- lensk börn á þessum aldri séu bet- ur á sig komin en írskir og skoskir jafnaldrar, en um marktækan mun sé þó að ræða. -ns. t- 1 c -ik «s> « 2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 24. desember 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.