Þjóðviljinn - 24.12.1987, Blaðsíða 24

Þjóðviljinn - 24.12.1987, Blaðsíða 24
Alþingi 3 dagar nægja tæpast Eftir að greiða atkvœði umfjárlög og afgreiða lánsfjárlög, þrjú frumvörp um tekjuöflun og kvótann fyrir áramót Mörg stórmál liggja nú fyrir Alþingi sem ríkisstjórnin hefur einsett sér að afgreiða sem lög fyrir áramót, en þar sem aðeins þrír virkir dagar eru milli jóia og nýárs efast flestir um að þetta tak- ist, auk þess sem stjórnarand- staðan sér tæpast ástæðu til að flýta t.d. matarskatti og kvóta- frumvarpi í gegnum þingið. Strax eftir jól fer fram at- kvæðagreiðsla um fjárlög og get- ur hún tekið allt að fjóra klukku- tíma. Þá á þingið eftir að ljúka lánsfjárlögum. Kvótinn á eftir að fara í gegnum neðri deild og öll tekjuöflunarfrumvörpin, um söluskatt, vörugjald og tollalög, eiga eftir að fá afgreiðslu. Hins- vegar hefur ríkisstjórnin ákveðið að fresta frumvarpi um verka- skiptingu ríkis og sveitarfélaga fram yfir áramót. Ljóst er að kvótinn mun taka mestan tíma en öll stjórnarand- staðan hefur lýst yfir andstöðu við frumvarpið, auk þess sem Matthías Bjarnason formaður sjávarútvegsnefndar neðri deild- ar er andvígur frumvarpinu. Þá hafa krataþingmenn lýst yfir and- stöðu við það, bæði Sighvatur Björgvinsson og Árni Gunnars- son, auk þess sem Jón Baldvin Hannibalsson vill fá breytingu á frumvarpinu. Þá er talið að Jón Sæmundur Sigurjónsson sé and- vígur því. Það eru einkum heftingar- ákvæðin um trilluútgerð sem fara fyrir brjóstið á mönnum og gæti farið svo að sjávarútvegsráðherra verði að bakka með þau til að ná frumvarpinu í gegnum þingið. Taki frumvarpið breytingum í neðri deild verður það að fara aft- ur til efri deildar. Það er því ljóst að þrír dagar nægja tæpast til að koma öllum þessum málum í gegnum þingið, jafnvel þótt þing- að verði allan sólarhringinn. -Sáf Tilkynningaskyldan Fámennt á miðunum Haukur Bergmann: Innan við lOskip á veiðum um hátíðarnar. Flotinn í höfn Nú sem endranær um hátíð- arnar verður svo til allur flski- skipaflotinn íhöfn, nema þeir tog- arar sem eru á veiðum fyrir fyrir- hugaða siglingu og sölu erlendis. Að sögn Hauks Bergmanus, hjá Tilkynningaskyldunni verða innan við 10 skip á veiðum um hátíðarnar. Er það mjög svipað því sem verið hefur á undanförn- um árum. í gær á Þorláksmessu voru um 20 skip á miðunum umhverfis landið og mörg þeirra á leið í land. Þá verða einhver flutninga- skip á siglingu um hátíðarnar, en um fjölda þeirra nákvæmlega var ekki vitað í gær. grh góöir ícmdsm Med ósk um gæfu og góðar ferðir á komandi ári og þökk fyrir samleiðina á liðnum árum. FLUGLEIDIR -fyrír þíg- Ps. Hlýðið á ljúfa jóladagskrá Flugleiða á Ljósvakanum aðfangadag

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.