Þjóðviljinn - 05.01.1988, Blaðsíða 2
ÍÞRÓTTIR
t
W
ý
Spánn
Sanchez skoraði tvö
Furte með stórleik þegar Atletico Madrid sigraði Espanol
Það var mexikanski landsliðs-
maðurinn Hugo Sanchez sem
i tryggði Real Madrid sigur yfir
erkiQendunum Barcelona. Sanc-
hez skoraði bæði mörk Real í
þessum leik.
Fyrra markið úr víti, á 23. mín-
, útu eftir að Emilio Butragueno
hafði verið brugðið innan víta-
teigs.
Leikmenn Barcelona náðu að
jafna úr vafasamri vítaspyrnu níu
mínútum síðar. Það var þýski
landsliðsmaðurinn Bernd Schust-
, er sem skoraði úr vítaspyrnunni.
, En Sanchez hafði ekki sagt sitt
síðasta orð. Á 41. mínútu stökk
hann hærra en varnarmenn
Barcelona og náði að skalla
knöttinn í netið eftir fyrirgjöf frá
Rafael Gordillo.
Það var Portúgalinn Paul Futre
sem kom Atletico Madrid aftur í
annað sæti í spænsku 1. deildinni
eftir 2-0 sigur á Espanol. Þrátt
fyrir að Futre hafi ekki skorað
sjálfur þá var hann yfirburða-
maður á vellinum.
Á 11. mínútu lék Futre á tvo
varnarmenn Espanol og gaf
glæsilega sendingu á Julio Salinas
sem þrumaði knettinum í netið.
Futre fékk gullið tækifæri til að
skora sjálfur einni mínútu fyrir
leikslok er hann komst einn inn
fyrir vörn Espanol. En Inaki Per-
ez felldi Futre áður en hann náði
að skjóta á markið. Vítaspyrna
var dæmd og úr henni skoraði
Antonio Parra.
Real Sociedad, sem gamla
kempan John Toshack þjálfar,
rétt náði að sigra lið Cadiz 2-1.
Það var Jose Bakero sem skoraði
fyrra mark Sociedad í síðari hálf-
leik eftir að staðan hafði verið
jöfn í leikhléi,0-0. Bakero
skoraði markið með skalla eftir
hornspyrnu frá Manuel Urdieta á
47. mínútu.
Hinn hávaxni varnarmaður
Cadiz, Angelo Olivia, náði að
jafna fyrir lið sitt á 60. mínútu
eftir aðra hornspyrnu. Það var
ekki fyrr en 6 mínútum fyrir leiks-
lok sem leikmenn Sociedad náðu
að tryggja sér sigurinn. Loren Ju-
arro skaut þá þrumuskoti af
löngu færi sem markvörður Cadiz
átti ekki möguleika á að verja.
Staðan
Real Madrid..... 16 13 1 2 45-11 27
Atletico Madrid 16 10 3 3 27-9 23
RealSociedad .16 10 3 3 31-13 23
RealValladolid 16 7 6 3 23-19 20
Sporting........ 16 7 4 5 20-22 18
-ih/reuter
25 milljónir
á tromp!
45 milljónir
á númerið allt!
Rík ástæða fyrir þig
til að taka þátt!
Happdrætti Háskólans hefur hæsta vinnings-
hlutfall í heimi! 70% af veltunni fara til vinnings-
hafa! Allir vinningar eru greiddir út í beinhörð-
um peningum sem vinningshafar ráðstafa að
eigin vild. Vinningamir eru undanþegnir skatti!
Vinníngamir 1988: 9 á 5.000.000 krS 108 á 1.000.000 kr./
108 i 500.000 krS 324 ð 100.000 kr./ 1.908 á 25.000 kr./
10.071 i 15.000 kr./ 122.238 á 7.500 kr/ 234aukavinningar
á 25.000 kr./Samtals 135.000 vinningar á 1.340.800.000 kr.