Þjóðviljinn - 12.01.1988, Side 1
Stjörnuhlaup FH
Kristján Skúli vann
Á laugardag fór fram í Hafnar-
firði stjörnuhlaup FH og var lagt
af stað frá líkamsræktarstöðinni
Hress. Kristján Skúli sigraði
Jóhann Ingibertsson á spennandi
endaspretti og munaði ekki
miklu á tíma. Hlupu keppendur í
karlaflokki 7,5 kílómetra. f
kvennaflokki vann Steinunn
Jónsdóttir nokkuð örugglega.
Björn Pétursson kom á óvart og
sigraði í drengjaflokki. Hlupu
konurnar og drengirnir þrjá kíló-
metra.
Úrslit:
Karlaflokkur:
Kristján S. Ásgeirsson ÍR..24,54
Jóhann Ingibertsson FH......24,59
GunnlaugurSkúlasson UMSS 25,48
Gunnar P. Jóakimsson ÍR.....26,38
Sigmar Gunnarsson UMSB......28,04
Kári Þorsteinsson UMSB.....28,11
IngvarGarðarsson HSK........29,57
Gísli Ásgeirsson FH.........32,12
Kvennaflokkur:
Steinunn Jónsdóttir ÍR......11,50
Margrét Guðjónsdóttir UBK...14,08
Drengjaflokkur:
Björn Pétursson FH..........9,51
Finnbogi Gylfason FH........10.03
Björn T raustason FH.......10,11
Hergill Sigurðsson FH.......15,15
Þorvaldur Hjaltason FH......21,03
-ste
„Hvar er boltinn?" Dæmigerð mynd úr leik K.R. og F.H. á sunnudaginn.
Og
þetta
líka...
Ekkert helgarfrí
fyrir leikmenn Bayern Munchen segir
þjálfari þeirra Jupp Heynckes. i
innanhússmóti töpuðu þeir fyrir PSV
Eindhoven 6-1 og síðan gegn Stutt-
gart 7-0. Þetta varð til þess að þeir
þurfa nú að mæta viku fyrr til æfinga.
Forseti félagsins var meðal áhorf-
enda og sagði hann að þetta væri
mesta skömm sem hann hefði lent í. I
sama móti meiddist markvörður
þeirra, Jean-Marie Pfaff, og verður
að taka sér 10 daga frí.
687 lotur á 24 tímum
Iþróttafélag fatlaðra efndi til boccia-
maraþons um helgina. Tóku þátt í því
25 spilarar og léku stanslaust I 24
tfma, frá 14 á laugardegi til 14 á
sunnudaginn. Var tilefnið að safna
áheitum fyrir keppnisferð sem þeir
fara um miðjan febrúar næstkom-
andi. Verður haldið til Svíþjóðar á
svokallað Malmö Open.
Tennisstjörnunni
Martinu Navratilovu sem nú er stödd I
Ástralíu var boðið að prufa ýmsar
gerðir tennisvalla sem Ástralir eru að
setja upp á risastóru æfingasvæði.
Navratilova sem jafnan hefur sagt að
vellir skiptu hana engu máli þáði boð-
ið. En hún sannaði það enn hversu
litlu máll vellirnir skipta hana er hún
kom á æfingasvæðið akandi á Porsc-
hinum sínum. Hún skildi bílinn eftir (
gangi gekk út að vellinum, tók bolta
og kastaði honum á einn völlinn.
„Hann er fínn," sagði Navratilova,
settist upp í bílinn og hvarf í rykmekki.
-ih
Knattspyrna
Franska landsliðið
á mót í ísrael
Frakkar tilkynntu í gær 20
manna hóp er heldur til ísraels
síðar í þessum mánuði.
Forseti franska knattspyrnu-
sambandsins sagði að þrátt fyrir
óróa í ísrael um þessar mundir
myndi franska landsliðið fara
þangað. „Við erum ekki háðir
neinum stjórnmálum. Þessi ferð
er aðeins á grundvelli íþrótta alls
óviðkomandi stjórnmálum"
sagði Jean Fournet-Fayard.
Blaðafulltrúi sambandsins
sagði að ef arabaríki óskuðu eftir
að fá að leika við franska lands-
liðið myndu þeir athuga það mál.
Hann sagði einnig að Frakkar
myndu mæta Svíum í vináttu-
landsleik í Stokkhólmi 27. apríl.
Heimsbikarkeppnin
Allirheiiir
íslenska handknattleiksliðið
kom tii Svíþjóðar í fyrradag. Páll
Ólafsson og Alfreð Gíslasson eiga
við einhver meiðsli að stríða en
allar líkur eru á að þeir spili samt
með.
Að öðru leyti var allt gott að
frétta og allir heilir. í dag eiga
þeir að spila við Austur-
Þýskaland og hefst leikurinn
klukkan 19.00. Rás 2 verður með
beina útsendingu og byrjar hún
kl. 18.00.
Aðeins tveir nýliðar eru í
franska liðinu sem er þannig
skipað:
Markverðir: Joel Bats og Bruno
Martini
Varnarmenn: Manuel Amoros,
William Ayache, Basile Boli,
Bernanrd Casoni, Sylvian Kast-
enduech og Yvon Le Roux.
Tengiliðir: Dominique Bijotat,
Pascal Despeyroux, Luis Fern-
andez, Jean-Marc Ferreri, Ger-
ald Passi, Faderice Poullain og
Jose Toure.
Sóknarmenn: Bruno Bellone,
Eric Cantona, Philippe Fargeon,
Jean-Pierre Papin og Yannic
Stopyra.
-ih
Þorbergur með á ný
„Mér líst vel á að spila með
þeim,“ sagði Þorbergur Aðal-
steinsson þegar Þjóðviljinn ræddi
við hann í gærkveldi en hann kom
í herbúðir íslendinga í gær.
„Annars gengur mínu liði mjög
vel. Við erum efstir í deildinni og
er nær öruggt að við komumst
upp,“ sagði Þorbergur einnig og
er víst að hann mun styrkja líðið
mikið. -ste
l.deild kvenna
Spennandi lokamínútur
í Digranesi
Um helgina var ein umferð
leikin í l.deild kvenna í hand-
knattleik. A laugardaginn mætt-
ust lið Stjörnunnar og Vals í
Iþróttahúsinu Digranesi.
Stjarnan-Valur 20-21
Valsstúlkurnar leiddu nær all-
an leikinn. Staðan í hálfleik var
9-12. Það leit allt út fyrir stórsigur
Vals en Stjarnan var á öðru máli.
Þær náðu upp góðu samspili á
meðan Valsstúlkur léku eins og
þær væru með unninn leik.
Þegar 5 mínútur voru til leiks-
loka þá jafnaði Stjarnan leikinn í
fyrsta sinn. Og um Ieið vöknuðu
leikmenn Vals upp við vondan
draum. Þær fóru aftur í gang og
náðu að knýja fram sigur þegar
40 sekúndur voru til leiksloka.
Markahæstar í liði Vals voru
Kristín Arnþórsdóttir (6), Guð-
rún R. Kristjánsdóttir (4) og
Magnea Friðriksdóttir (4).
Markahæstar í liði Stjörnunnar
voru Ragnheiður Stephensen (7/
5) og Ingibjörg Andrésdóttir (6).
Haukar-Víkingur 16-17
Á sunnudaginn fóru fram þrír
leikir. í íþróttahúsinu við Strand-
götu í Hafnarfirði kepptu lið
Hauka og Víkings. Leiknum lauk
með sigri Víkinga 17-16 eftir að
staðan í hálfleik hafði verið jöfn
8-8. Víkingsstúlkurnar voru ekki
mjög sannfærandi í leik sínum
þrátt fyrir sigurinn. Þær misnot-
uðu m.a. 5 vítaköst.
Þróttur-Fram 10-37
í Seljaskóla fóru fram tveir
leikir. Fyrri leikurinn var viður-
eign Þróttar og Fram. Leikurinn
var heldur slakur enda mótstaðan
gegn Fram nær engin. Fyrir vikið
varð leikurinn leiðinlegur á að
horfa. Allir leikmenn Fram
skoruðu mörk í leiknum. Marka-
hæstar voru systurnar Guðríður
og Hafdís Guðjónsdætur og Jó-
hanna Halldórsdóttir allar með 6
mörk. Ágústa Sigurðardóttir
skoraði 3 mörk fyrir Þrótt.
K.R.-F.H. 13-25
Seinni leikurinn í Seljaskóla
var viðureign K.R. og F.H.
Leikurinn var ekki spilaður fyrir
áhorfendur enda voru þeir fáir
sem héldu út allan leikinn. Stund-
um var eins og stúlkurnar vissu
ekki með hverjum þar voru í liði.
Markahæstar í liði F.H. voru Eva
Baldursdóttir og Hildur Harðar-
dóttir með 6 mörk. í liði K.R. var
Sigurbjörg Sigþórsdóttir marka-
hæst með 5 mörk.
Þorbergur Aðalsteinsson
Stórmót SÍ og Adidas
Fram vann
Á laugardag fór fram í íþrótta-
húsinu Akranesi hið árlega Stór-
mót Samtaka íþróttafréttamanna
og Adidas. Var keppt í innan-
hússknattspyrnu og gaf Adidas
umboðið verðlaunapeninga til
mótsins.
Alis átta lið komu til keppni,
ÍA af Skaganum, Þór og KA frá
Akureyri, ÍBK frá Keflavík,
Fram.Valur og KR úr Reykjavík
ásamt úrvaii íþróttafréttamanna.
í úrslitum léku saman Fram og
KR og sigraði Fram 8-7 í geysi-
spennandi leik en KR lenti í öðru
sæti. Um 3.-4. sæti léku Þór og
ÍBK og sigruðu Keflvíkingamir
með sjö mörkum gegn sex Akur-
eyringa. .ste
Umsjón: Ingibjörg Hinriksdóttir/Stefán Stefánsson
Þriðjudagur 5. janúar 1988 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9