Þjóðviljinn - 01.06.1988, Qupperneq 1
dag eru 80 ár liðin síðan Hafn-
arfjörður hlaut kaupstaðarréít-
indi. Vísir aö þéttbýli þar er þó
miklueldri. Löngum varþarað-
alhafskiþahöfn landsins og
sóttu þangað útlendir kaup-
menn með útlenda siði. Líkur
standa til að í Hafnarfiröi haf i
verið sungin lútersk messa í
fyrsta sinn á íslandi og munu
kaupmenn frá Þýskalandi hafa
hlýtt þar tíðagjörð.
Hafnfirðingar hafa lagt á það
áherslu að þéttbýlið í Firðinum
er ekki afleiðing af vexti Reykja-
víkur. Gróandi atvinnulíf og
verslun undirstrika að bærinn
er síður en svo „svefnbær“
höfuðborgarinnar. Til eru
Hafnfirðingar á besta aldri sem
telja það töluvert ferðalag að
fara „inn eftir", þ.e. til Rvíkur.
Þjóðviljinn óskar Hafnfirðingum
til hamingju með merkan
áfanga í sögu bæjar þeirra.
Listaverk
Syndandi fískar á Markaðshúsinu
Listamennirnir Gestur og Rúna hafa unnið að glæsilegri veggskreytingu utan á Fiskmarkaðshúsið.
Nýjar aðferðirvið vinnslu á útilistaverkum. Vígt á föstudaginn
- Það er óhætt að segja að þessi
vinna hefur verið sérstök að
mörgu leyti. Það er held ég ein-
stakt að listamenn séu fengnir til
að skreyta fiskvinnsluhús og það
var einnig til fyrirmyndar að við
fengum að vera með frá upphafi.
Vorum fengin til verksins áður en
Fiskmarkaðshúsið hafði verið að
fullu teiknað, segir Sigrún Guð-
jónsdóttir myndlistarkona.
Hún ásamt eiginmanni sínum
Gesti Þorgrímssyni listamanni
hafa útbúið sérstakt og glæsilegt
listaverk utan á framhlið Fisk-
markaðarins við Suðurhöfnina í
Hafnarfirði. Þaðvarhafnarstjórn
sem óskaði eftir því við þau Gest
og Rúnu fyrir hálfu öðru ári að
þau gerðu tillögur að listaverki
utan á húsið, en fiskmarkaðurinn
tók formlega til starfa fyrir tæpu
ári.
Álið litað
með rafbrynjun
Listaverkið sem er sérlega
glæsilegt og er samsett af fjöl-
mörgum syndandi fiskum í hinum
sérstaka „Rúnustíl“ verður form-
lega vígt og gefið nafn við hátíð-
lega athöfn á föstudaginn. Lista-
verkið er unnið úr áli sem er sér-
staklega hert og litað með raf-
brynjun. Um þá hlið málasér Sig-
urður Hreinn Hilmarsson raf-
magnstæknifræðingur. Var útbú-
in sérstök vinnuaðstaða í Fisk-
markaðshúsinu til að anúðasera
eða rafbrynja álið og þurfti að
sérsmíða stór ker til að vinna
þetta verk. Hingað til hefur Sig-
urður einkum fengist við raf-
brynjun á smáhlutum fyrir tölvu-
og mælabúnað.
- Þetta eru stærstu stykkin sem
ég hef unnið með en ég hef áhuga
á að geta komið upp það stórum
kerjum að hægt sé að rafbrynja
allt að 6 metra stór stykki í einu,
sagði Sigurður þegar blaðamaður
hitti hann að máli í Fiskmarkaðs-
húsinu á dögunum þar sem hann
var að undirbúa litunina ásamt
þeim Gesti og Rúnu. Til marks
um hversu sérstakt verkið og
vinnslan er, þá þurfti Rafveitan
að leggja sérstakan kapal í Fisk-
markaðshúsið svo nægur
straumur fengist fyrir rafbrynjun-
ina.
Galdramaður
að vestan
En hvernig kom til að ákveðið
var að vinna verkið á þennan
hátt? Gestur segir að þegar þau
Rúna voru að vinna að listaverki
utan á stúku íþróttavallarins í
Laugardal hafi þau ætlað að láta
útbúa hringi í verkinu á þennan
hátt. - Ég fékk tilboð frá Sviss í
gegnum Alverið en það var svo
svimandi hátt að við hættum við
og notuðum kopar í staðinn.
- Þegar við fórum að undirbúa
þetta listaverk utan á Fiskmark-
aðinn skaut þessari hugmynd upp
aftur og þegar ég færði þetta í tal
við bæjarstjóra og hafnar-
stjórnarmenn þá vísuðu þeir mér
á hann Sigurð, galdramanninn á
Arnarnesinu. Þegar ég heyrði
nafnið, þekkti ég strax allar hans
ættir, tómir galdramenn að vest-
an.
Sigurður segir að rafbrynjun á
áli sé farin að ryðja sér æ meira til
rúms varðandi klæðningar á
byggingum. - Ég hef stundum
sagt að menn hafi þetta fyrir
augunum á Ijósmyndavélum og
klæðingunni utan á Seðlabanka-
húsinu. Þetta er líka í Flugstöð-
inni á Keflavíkurflugvelli en ég
veit ekki til þess að listaverk hafi
verið meðhöndluð hérlendis áður
á þennan hátt.
Þaðerl2mm. þykktálífiskun-
um hennar Rúnu og hans Gests
sem munu prýða forhlið Fisk-
Rúna með uppdrátt af listaverkinu og Gestur með einn álfiskinn ólitaðan, fyrir framan Fiskmarkaðshúsið.
Mynd-lg.
markaðarins. Fiskarnir eru mis-
stórir og sumir samsettir úr
nokkrum hlutum. Álstykkin
verða skrúfuð upp á gaflinn í dag
og á morgun og á föstudaginn
verður verkið vígt og því gefið
nafn. Um þá hlið mála annast
Óskar Vigfússon formaður Sjó-
mannasambandsins en hafnar-
stjórn og bæjaryfirvöld hafa boð-
ið sérstaklega öllum sjómönnum
og fiskvinnslufólki í Hafnarfirði
til vígslunnar.
Horft út um
gluggann heima
- Ég hef trú á því að þetta taki
sig bara vel út hérna á gaflinum
og gefi hafnarsvæðinu skemmti-
legan svip, segir Rúna. - Svo er
ekki verra að við Gestur getum
horft á skreytinguna út um vinn-
ustofuna hjá okkur á Austurgöt-
unni, þvert yfir fjörðinn. -lg.
Ein af vinnuskyssunum að skreytingunni.
Miðvikudagur 1. júní 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9