Þjóðviljinn - 30.11.1988, Page 3
BÆKUR
Ólafur: „í viðskiptum gengur lífið einfaldlega út á það að græða peninga.“ Mynd - Jim Smart.
gengur lífið einfaldlega út á það
að græða peninga.
Madurinn hefur
ekki breyst
að ráði
Hvernig finnst þér Friðrik vera
tákn nútímamannsins?
- Ég held að mikið af þessum
hugleiðingum hans gætu átt við
mann í annarri stöðu og öðru
landi. Hann gæti þess vegna verið
kennari við barnaskóla á fslandi
eða unnið í frystihúsi. t>að er ekki
bara í heimi alþjóðaviðskiptanna
sem sú siðfræði sem við ólumst
upp við í æsku gildir ekki lengur.
Heimurinn er orðinn minni, við
fáum samdægurs fréttir af því
sem gerist hinumegin á hnettin-
um, og það er fátt sem kemur
fólki á óvart. Maður frá Seyðis-
firði sem fer í fyrsta skipti út fyrir
landsteinana verður til að mynda
ekkert undrandi þegar hann sér
píramídana í Egyptalandi. Hann
hefur oftar en einu sinni séð þá á
myndum.
- Hraðinn hefur aukist, á nú-
tímamanninum skella alls konar
tilboð og kröfur sem kynslóðirn-
ar á undan þekktu ekki til, og það
leiðir til þess að það er los á fólki.
Það er svo margt sem togar í,
fleira en ný siðfræði sent ér að
bítast um genin, og ég er ekki viss
um að við ráðum við þessar
breyttu aðstæður. Þó heimurinn
hafi breyst mikið á skömmum
tíma hefur maðurinn ekki breyst
neitt að ráði.
A saga Friðriks einhverja stoð í
raunveruleikanum? - Nú vinnið
þið báðir hjá japönskum risa í
Bandaríkj unum...
- Þetta er allt tilbúningur.
Meira að segja veðurfar. Hins-
vegar hefði ég ekki getað skrifað
bókina ár. þess að hafa verið í
þessu starfi. Eins og Friðrik ferð-
ast ég mikið, og þó ég sé ekki að
fást við sömu hluti og hann innan
fyrirtækisins var ég alltaf eins og á
veiðum eftir einhverju sem ég
gæti notað í söguna. Síðastliðið ár
hef ég varla setið fund án þess að
hafa í huga að ég sé að skrifa bók.
- En bókin snýst ekki um fyrir-
tækið, heldur uppgjör Friðriks
Jónssonar við sjálfan sig og heim-
inn. LG
Ólafur Jóhann Ólafsson: Friðrik
Jónsson er hugsaður sem tákn nú-
tíniamannsins
Markaðstorg guðanna heitir
rsta skáldsaga Ólafs Jóhanns
lafssonar, sem fyrir tveimur
árum vakti athygli jólaflóðsles-
enda með smásagnasafninu Níu
lyklar. Ólafur hefur reyndar einn-
ig vakið athygli fyrir að starfa hjá
japanska risanum Sony í Banda-
ríkjunum og hafa menn mikið velt
fyrir sér hvernig framkvæmda-
stjórn hjá Sony samræmdist rit-
störfunum, - en að því er vænt-
anlega hægt að komast við lestur
bókarinnar.
Aðalpersóna hennar, Friðrik
Jónsson, á það sameiginlegt með
Ólafi að vera íslendingur og að
starfa fyrir japanskt stórfyrirtæki
í Bandaríkjunum. Friðrik er
Vesturbæingur og nam guðfræði
við Háskóla íslands áður en hann
brá sér vestur um haf með fram-
haldsnám í huga. í upphafi bók-
arinnar er Friðrik um fertugt,
hefur starfað lengi við fyrirtækið
og er giftur bandarískri konu.;
Hann hefur lent í klandri, sem,
erfitt virðist fyrir hann að snúa sig
út úr, og verður til þess að hann
fer að velta fyrir sér lífi sínu og
tilveru, hver hann sé og hvað
hann sé eiginlega að gera.
Hugleiðingar um
tilgang og
takmark lífsins
- Það er hægt að lesa bókina á
tvennan hátt, - segir Ólafur.
- Þegar ég skrifaði hana hafði ég í
huga að mér finnst stefna rithöf-
unda eiga að vera að skrifa bækur
sem þeir myndu treysta sér til að
lesa sjálfir ef einhver annar hefði
skrifað þær.
- Það er þannig hægt að lesa
bókina sem spennusögu um þessi
vandræði sem Friðrik lendir í og
tengjast störfum hans hjá fyrir-
tækinu. Það er hægt að láta sér
nægja yfirborðið, fylgjast með
sálrænni spennu hans og hvernig
hann reynir að snúa sig út úr
vandanum. Hann fer víða, sagan
gerist á þremur stöðum í Banda-
ríkjunum, á íslandi og í Tókíó,
því Friðrik ferðast bæði á vegum
fyrirtækisins og eins verður hann
að bjarga sér úr klandrinu.
- Saman við spennusöguna hef
ég fléttað hugleiðingar hans sem
ættu að geta skilið eitthvað eftir
hjá lesanda sem vill kafa undir
yfirborðið og velta slíku fyrir sér.
Vegna klandursins fer Friðrik að
hugsa um hluti sem hann hefur
ekki leitt hugann að árum saman,
það rifjast upp fyrir honum margt
sem hann hélt að hann hefði
gleymt, og hann fer að hugleiða
tilgang og takmark lífsins.
Tákn nútíma-
mannsins
Eru þessar hugleiðingar hans
að einhverju leyti sprottnar af
siðferðilegum ástæðum? Uppgj-
öri prestlærðs manns við við-
skiptaheiminn?
- Nei, guðfræðingurinn í hon-
um skiptir ekki svo miklu máli.
Ég efast um að Lútersguð eigi
miklar taugar í Friðrik. Hann
lendir þarna í mjög erfiðum
hlutum, en það er fremur af
hugsunar- eða kæruleysi, en af
ásetningi. Það er í rauninni
auðveldara að leiðast út í slík
vandræði en gera það ekki í þeim
heimi sem hann lifir og hrærist í.
En þegar svo er komið eru mór-
ölsk, eða siðfræðileg átök eðlileg,
það er að segja ef menn hafa ein-
hvern móral á annað borð.
- Þetta er mikið frekar upp-
gjör manns sem hefur alist upp
við einföld og skýr siðalögmál
fyrirstríðsþjóðfélagsins. Þó hann
sé alinn upp eftir stríð er hann
mótaður af fyrirstríðskynslóð-
inni, og þegar einföld siðalögmál
hennar mæta andstöðu sinni í
heimi alþjóðaviðskipta fara gen-
in að togna í honum. Hlutir sem
hann hefur kannski gleymt á
meðan allt lék í lyndi rifjast upp
fyrir honum, hann hefur einfald-
lega lent í þeirri stöðu að muna
ekki eftir ýmsu sem hann þykist
trúa á og treysta, en sem hann
man svo eftir þegar hann lendir í
vandræðum. Friðrik er þannig
ekki bara tákn fyrir sjálfan sig og
þá stöðu sem hann er lentur í,
heldur hugsa ég hann sem tákn
nútímamannsins.
/ hörðum heimi
peninganna
Er ekki bakgrunnur Friðriks
heldur óvenjulegur fyrir mann
sem stendur í viðskiptum?
- Nei, alls ekki, en ég held að
menn af hans tagi sé sérstaklega
að finna í alþjóðaviðskiptum.
Hér á landi eru það bara við-
skiptafræðingar sem stunda við-
skipti, og kannski er þar komin
skýringin á því hvernig við stönd-
um okkur. í alþjóðaviðskiptum
koma menn úr ýmsum áttum, og
hafa margvíslega reynslu, til
dæmis eru samstarfsmenn mínir
doktor í heimspeki, eðlisfræðing-
ur og óperusöngvari, og sjálfur er
ég eðlisfræðingur og bókmennta-
maður.
- Þessi margvíslega reynsla
sem menn hafa nýtist þeim þegar
þeir lenda í heimi peninganna.
Viðskiptafræðinga skortir oft
víddir til að eiga við þær aðstæður
sem koma upp, því þeir eru pró-
grammeraðir á einfaldan hátt.
Menn sem hafa verið í listum, vís-
indum eða húmanisma bregðast á
annan hátt við þeim frumstæðu
aðstæðum sem alltaf koma upp
þegar verið er að græða peninga,
en þeir sem lært hafa bókfærslu.
- En þegar menn lenda í þess-
um aðstæðum hlýtur spyrningin
um hvað þeir vilji ganga langt
alltaf að vakna. Heimur pening-
anna er harður og hlífðarlítill, og
hver og einn hlýtur að verða að
samræma það sem hann gerir
sínu uppeldi, bakgrunni og sið-
fræði, sætta þær aðstæður sem
hann lifir og hrærist í því sem
i hann hefur lært, og þeirri siðfræði
sem hann lærði í æsku. Hug-
leiðingar Friðriks Jónssonar eru
þannig mjög eðlilegar. Mann-
eskjan vill gjarnan hafa einhvern
æðri tilgang, en í viðskiptum
Að bregðast við
hjarta-
sjúkdómum
IÐUNN hefur sent frá sér
fyrstu bókina í nýjum bókaflokki
um heilbrigðismál sem nefnist
Heilsuvernd hcintilanna. Þessi
bók er eftir breska lækninn
Chandra Patel og nefnist Bókin
um hjartasjúkdóma. Þetta er
handbók, skrifuð af sérfræðingi
eftir kröfum nútímans. Hún fjall-
ar um forvarnir gegn hjartasjúk-
dómum, meðferð við þeim og
hvernig sigrast megi á þeim, bæði
með hefðbundnum og nýstár-
legum aðferðum. Lýst er starf-
semi hjartans og helstu orsökum
hjarta- og kransæðasjúkdóma. í
bókinni er einnig að finna hag-
nýta ráðgjöf um sjálfshjálp og
styrkingu þess lækningamáttar
sem býr í einstaklingnum sjálf-
um.
Guðsteinn Þengilsson læknir
hefur þýtt bókina og skrifar for-
CharvdraPatel
HEILSUVERND
HEIMIIANNA
HJARTA-
SJÚKDÓMA
Hagnýt leiösiign um forvamir
pg meðferö
KX.ÍNN
mála. Þar segir meðal annars: „I
bókinni er, eins og titillinn ber
með sér, fyrst og fremst rætt um
sjúkdóma hjarta- og æðakerfis-
ins. En eins og áður var minnst á,
varðar sú umfjöllun manninn í
heild. Þess vegna á bókin erindi
til allra, sem vilja bæta heilsu sína
með hollum lifnaðarháttum.“
Miðvikudagur 30. nóvember 1988 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11