Þjóðviljinn - 30.11.1988, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 30.11.1988, Blaðsíða 7
BÆKUR „Alveg miljón!“ Býður nokkur betui? Alveg milljón. Höfundur Andrés Indriðason. Mál og menning 1988. Út er komin hja Máli og menn- ingu ný bók eftir Andrés Indriða- son, Alveg milljón! (er þetta nú áreiðanlega rétt stafsett?). Bók frá Andrési hefur um langt skeið verið árviss viðburður sem betur fer, enda er hér á ferð óvenju vandvirkur höfundur barna- og unglingabókmennta og virðist reyndar vaxa með hverri bók. Að þessu sinni heitir söguhetj- an Steini. Hann er eitthvað skyldur Jóni Agnari úr Stæltrí- lógíu Andrésar, sýnist manni, en býr við erfiðar fjölskylduaðstæð- ur. Latur og tillitslaus stjúpi (ein- hvers konar uppgjafarskalla- poppari), lítill bróðir sem tekur hástöfum tennur, þreytt og geð- vond móðir, að ekki sé minnst á þungbært gelgjuskeið, allt þetta leggst á eitt til þess að gera Steina erfitt fyrir. Ekki bætir úr skák að vinurinn Porbergur Óskarsson er fjarska erfiður viðureignar og frekur við Steina. Það vill þó til að Steini stendur sig vel í námi og öllum ber saman um að hann sé góður strákur, „alveg milljón“, svo vitnað sé í föður hans, far- manninn fráskilda. Sagan gerist á einum sólar- hring og verða þá sannkölluð pól- skipti í tilveru Steina. Ja, hvílíkt! Sittaf voru tagi Heimur í hnotskurn. Fjölfræði fyrir börn og unglinga eftir Jane Elliott og Colin King. Bjarni Fr. Karlsson þýddi. Forlagið 1988. Það er víst engin lygi að í þess- ari bók er tæpt á mörgum fróð- leik. Opnu eftir opnu fylla mynd- ir margar sem í samvinnu við stutta texta lýsa fróðleik um það, hvernig jörðin varð til, um veður- far og tíma, um sögu lífsins á jörðinni, um álfur og þjóðir, um sögu mannkyns og þróun vísinda. Fullorðinn maður skoðar þessa bók og hugsar sem svo: alsæll hefði hann orðið ef hann hefði fengið að halda á einni slíkri þeg- ar hann sjálfur var svosem tíu ára gamall. Hann getur líka skemmt sér við það, að spyrja sjálfan sig (til dæmis þegar hann skoðar kaflana um jurtir og tré og skordýr) - hvort hann viti í raun- inni nokkru meir um þessa hluti en hér stendur skrifað. Hann get- ur líka skemmt sér við teikningar Colin Kings, sem eru margar kankvísar - eins og þegar fræ Ekki verður söguþráður rakinn frekar en hugkvæmni Andrésar er aðdáunarverð. Allt gerist svo hratt, klippingar örar og vel heppnaðar, frásögnin lipur og á köflum ærri lýrisk. Þegar hugar- ástandi söguhetju er lýst verður manni hugsað til Einars Más Guðmundssonar og er þá ekki leiðum að líkjast. Bók Andrésar líður áreynslu- laust áfram eins og vel gert og spennandi myndband. Framför spýtist úr belgjurt með þeim krafti að rúður brotna (bls. 39) eða þegar rauð blóðkorn ráðast á sýkil ljótan til að berja hann í rot og klessu (bls. 59). En náttúrlega veit sá sami fullorðningur, alinn upp í myndleysi, ekkert um það, hvernig svona fjölfræðibók fer í böre okkar tíma, sem lifa í enda- lausu áreiti mynda. En við skulum vona hið besta. Líka vegna þess að oft eru kennarar að kvarta yfir því að svona bækur vanti á skólabókasöfnin. frá Stjörnustælum frá í fyrra er einmitt að hér er mun minna af yfirborðslegum stælum, „effekt- um“, en þar. Einnig eru horfnir smábrestir í siðferði söguhetju. Jón Agnar gat beitt fyrir sér lygi en Steini er ekki þannig gerður. Þorbergi er teflt fram sem and- stæðu. Hann brýtur ýmis bönn, það er dálítill gelgjupúki í honum en ekki er hann leiðinlegur, fjarri því. Þótt hann geri ýmislegt sem ekki telst æskilegt, s.s. að reykja, svindla og koma yfirlætislega fram við vini sína tekur hann sinnaskiptum á trúverðugan hátt. Auk þess að lýsa viðkvæmu skeiði í lífi unglinga er sagan mergjuð spennusaga sem höf- undur kryddar með leiftrandi kímni. Það ætti að vera ómögu- legt að láta sér leiðast við lestur þessarar bókar, hversu frábitnir sem menn kynnu annars að vera bóklestri. Hér skiptir líka ágætur frágangur miklu máli. Letur er svo skýrt og stórt, kaflar svo ör- stuttir og skýrt afmarkaðir, að jafnvel þeir sem hafa aðeins neytt teiknimynda hafa ekki tilefni til að kvarta. Vitaskuld er hér „að- eins“ um afþreyingarbók fyrir unga lesendur að ræða, en hún er líka skrambi góð sem slík. Til hamingju, Andrés! Ólöf Pétursdóttir Sem fyrr segir: það er miklum fróðleik saman þjappað á ekki stærri bók. Vitanlega er mjög fljótt farið yfir sögu og stundum verða úr því nokkuð hlálegir text- ar. Eins og þegar einum parti Nú- tímans er svo lýst: „Tvær heimsstyrjaldir ollu þjóðfélagsbreytingum. Konur hafa nú kosningarétt og vinna störf sem karlar einir unnu áðuL “ Annað segir ekki um heimsstyrjaldirnar tvær og við skulum vona að börnin saklausu dragi ekki þær ályktanir, að þær hafi verið háðar um kvenfrels- ismál. Það er líka í þessum fróðleik sitt af hverju sem minnir einna helst á heimsmetabók Guinness (Kínverji einn var 133 daga á fleka) eða fundargerð Samtaka um gagnslausan fróðleik: títu- prjónshaus með sólarhita dræpi mann í 150 km fjarlægð. En ekki skal um það kvarta: hinn gagnlegi fróðleikur rennur jafnan betur niður með þeim gagnslausa - og sá síðarnefndi er ekki síður hollur fyrir ímyndunaraflið. Arni Bergmann Skáldsaga eftir Isabel Allende Út er komin hjá Máli og menn- ingu skáldsagan Ást og skuggar eftir Isabel Allende, en í fyrra kom út fyrsta skáldsaga hennar hér á landi, Hús andanna, sem vakti mikla athygli. Sögusviðið er sem fyrr Chile, en þessi bók gerist öll undir ógn- arstjórn hershöfðingjanna. Við fylgjumst með ungri blaðakonu úr hástétt, Irene Beltrán, og ljósmyndaranum Francisco Leal sem er sonur spænskra stjórnleysingja. Starf þeirra við blað eitt leiðir þau á slóð fólks, sem hefur horfið af völdum hers- ins, og jafnframt því kviknar ást- in milli þeirra. Öll er sagan hug- vitsamlega fléttuð og uppfull af spaugilegum uppákomum og persónum, án þess þó að falli í skuggann hinn harmræni þáttur hennar sem er í rauninni örlög heillar þjóðar. Þessi saga hefur, eins og fyrri bók Allende, farið sigurför um heiminn og verið þýdd á fjölda tungumála. Berglind Gunnarsdóttir þýddi bókina sem er 246 bls. Kápu- mynd gerði Róbert Guillemette. Stafróf verða til CAO Z 3 cj Ílvíoít Flest stafróf sem fólk notar í dag eiga rætur sínar að rekja til myndleturs. Frá bókfelli til pappírs Latneski bókstafurinn A er tal- inn sprottinn af fornu mynd- tákni fyrir uxa. Egypitar skrifuðu á pappír sem gerður var úr blöðum papýrus- jurtarinnar. Blekið var úr viðar- kolum, vatni og límefni. Síðar tóku menn að gera bók fell úr skinrii. Það var betra er papýrusinn, því hægt var að skrifa beggja megin. Leikuraðlæra1-3 3 góðar vinnubækur með þroskandi íöndurverk- efnum fyrir böm á forskólaaldri. Nóg að teikna, lita, klippaog líma. Bömin skemmta sér konunglega um leið og þau læra ýmis vinnubrögð og hugtök sem koma sér velvið lestramámiðsíðar. Ódýrar, góðar og skemmtilegar föndurbækur fyr- iryngstu bömin. A .. og menning Síðumúla 7-9. Sími 688577. Laugavegi 18. Sími 15199-24240. WÓÐVILJINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.