Þjóðviljinn - 07.02.1989, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 7. febrúar 1989 26. tölublað 54. árgangur
Ríkisstjórnin
Uppgjör hjá
Borgurum
Albert eys Júlíus Sólnes skömmum og hótar stofnun nýs
þingflokks. lngiBjórn segirsig úr viðrœðunefnd um stjórnar.
myndun. Júlíus Sólnes: Ingi Björn er ungur og óþolinmóður
Albert Guðmundsson fyrrver-
andi formaður Borgara-
flokksins hellti sér yfir Júlíus
Sólnes núvcrandi formann
flokksins í þingræðu á Alþingi í
gærkvöld og sagði m.a. að for-
maðurinn væri að láta draga sig á
asnaeyrunum inn í ríkisstjórnina.
Borgaraflokkurinn hefði ekki
verið stofnaður til að styðja þessa
ríkisstjórn og ef einhverjir þing-
manna flokksins ætluðu að ganga
til liðs við stjórnina myndi hann
ásamt fleiri þingmönnum flokks-
ins stofna nýjan þingflokk Borg-
araflokksins.
Hvorki Júlíus Sólnes né Óli Þ.
Guðbjartsson formaður þing-
flokks Borgaraflokksins voru í
þingsal þegar Albert jós úr
skálum reiði sinnar, en þeir áttu í
viðræðum við forystumenn ríkis-
stjórnarinnar um inngöngu Borg-
araflokksins í stjórnina síðar í
gærkvöldi. Ingi Björn Alberts-
son, sem átti sæti í viðræðunefnd
flokksins um stjórnarþátttöku,
sagði sig úr viðræðunefndinni í
gær. Hann telur flokkinn ekki
hafa náð nógu miklu fram af kröf-
um sínum.
Albert Guðmundsson hefur
haldið sig til hlés síðustu vikur
varðandi viðræður samflokks-
manna sinna við ríkisstjórnina.
Hann hafði áætlað að taka við
embætti sendiherra fslands í Par-
ís í lok mars. Auknar líkur eru
taldar á að ef af inngöngu forystu-
manna Borgaraflokksins í ríkis-
stjórnina verður, muni Albert
hætta við eða fresta för sinni til
Parísar.
Júlíus Sólnes sagði í gær varð-
andi afsögn Inga Björns úr við-
yæðunefndinni að ekki hefði
komið til tals að Ingi Björn segði
sig úr Borgaraflokknum. „En
Ingi Björn er ungur maður og
kannski nokkuð óþolinmóður og
ég hefði talið skynsamlegra fyrir
hann að bíða eftir að úrslit fengj-
ust í viðræðunum. En ég hef ekk-
ert við þessa aðgerð hans að at-
huga,“ sagði Júlíus.
Hann sagði að það væri enn
hnútur í málinu þar sem væri af-
nám söluskatts á matvæli og
kæmi hann í veg fyrir formlegar
stj órnarmyndunarviðræður.
„Hins vegar höfum við ákveðið, í
samræmi við yfirlýsingu aðal-
stjórnar flokksins, að reyna þetta
til þrautar. Það er lítil hindrun í
vegi fyrir því að við getum farið í
þessar formlegu viðræður þótt
það geti kostað strangar viðræður
að ryðja þeirri hindrun úr vegi.“
Sagði Júlíus að Borgaraflokkur-
inn ætti eftir að ræða efnahagsað-
gerðir ríkisstjórnarinnar betur, ef
til formlegra stjórnarmyndunar-
viðræðna drægi. „Það er ekki
búið að leggja fram endanlegt
frumvarp um þessar efnahagsað-
gerðir, þannig að það á eftir að
færa þetta í endanlegan búning.“
Skák
Karpov vann
Þótt Jóhann Hjartarson tæki
loks við sér undir lok einvígis
þeirra Anatólíjs Karpovs, fyrrum
heimsmeistara, og velgdi honum
lítillega undir uggum þá var hann
aldrei nærri sigri. Sovéska skák-
vélin gekk róleg og örugg að
vinningi sínum: 3,5 gegn 1,5.
Helgi Ólafsson stórmeistari og
Þjóðviljaskríbent greinir frá ein-
vígislokum og skýrir skákir.
Sjá síðu 5
Margrét Frímannsdóttir þing-
flokksformaður Alþýðubanda-
lagsins sagði að lítið hefði þokast
í viðræðunum við Borgaraflokk-
inn. „Mérfinnst tillögur Borgara-
flokksins afskaplega óljósar og ef
þeir koma inn í ríkisstjórnina
verða þær að skýrast. Það eru
mjög miklar viðræður eftir, því
þingið er búið að ráðstafa þeim
tekjustofni sem söluskattur á ma-
tvæli er og ef sá tekjustofn er
felldur niður, vil ég sjá hvað
menn ætla að gera í staðinn,"
sagði Margrét Frímannsdóttir.
-phh/-4g
Þrátt tyrir hörð átök í þingflokki Borgaraflokksins brosti Júlíus Sólnes breitt á
þingfundi í gær. Mynd-ÞÓM.
Ríkisstjórnin
Vextir keyrðir niður
Gengiðfellt um2,5 %, 6 mánaða umþóttunartímabil strangs
verðlagsaðhalds og raunvextir áverðtryggðum skuldabréfum verði ekki
Ríkisstjórnin kynnti cfnahags-
aðgerðir sínar í Alþingi í gær.
Gengið var fellt um 2,5% og Seðl-
abanka gefln heimild til að lækka
eða hækka gengið um 2,25%. Þá
var ákveðið að næstu 6 mánuði
skyldi rikja strangt verðlagseftir-
lit í stað verðstöðvunar og að
raunvextir skyldu lækka. I því
sambandi voru heimildir Seðla-
banka til að grípa inn í vaxtaák-
varðanir auknar á nýjan leik.
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra sagðist vera mjög
ánægður með þessar efnahagsað-
gerðir. „Hér er áfram unnið að
mikilvægum skipulagsbreyting-
um á útflutningsgreinum, en ekki
farin sú kollsteypuleið í gengism-
álum sem Sjálfstæðisflokkur og
Kvennalisti hafa krafist. í öðru
lagi eru hér á ferð umfangsmestu
ákvarðanir í vaxta- og peninga-
málum sem ákveðnar hafa verið
síðan 1985 og þær eru í öllum
meginatriðum í anda Alþýðu-
bandalagsins. Seðlabanka verður
falið, samkvæmt ákvörðun ríkis-
stjórnar, að beita 9. gr. seðla-
bankalaganna. Þá er mikilvægi
bankaráðanna aukið verulega,“
sagði Ólafur Ragnar.
Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, taldi að hér
væru litlar efnahagstillögur á
ferðinni. „Það er ljóst að ríkis-
stjórnin ætlar að halda áfram að
keyra sjávarútveginn niður þar
sem þeir bæta skilyrði hans ekki
neitt í þessum tillögum. Það er
hœrrien5%
hin stóra niðurstaða," sagði Þor-
steinn.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra sagði augljóst að í
umræðum á þingi hefði Sjálfstæð-
isflokkur forðast að tala um að-
gerðir í vaxta- og peningamálum,
sem væri merkasti hluti aðgerð-
anna. Sjálfstæðismenn hefðu tal-
að um 10% gengisfellingu fyrir
áramótin. „Það er búið að fella
gengið síðan um u.þ.b. 8%.
Hvað vilja þeir meira?" spurði
Steingrímur Hermannsson. -phh
Sjá síðu 2
„Pólitík á laugardegi“
Efasemdir um
stjómarstuöning
Guðrún Helgadóttir: Ábyrgðarhluti að styðja
stjórn sem horfir aðgerðalaus uppá afleiðingar
hvalveiðanna
É&’ij
Ríkisstjórnin á ekki vísan
stuðning Guðrúnar Helga-
dóttur ef svo heldur fram sem
horfír um stefnumörkun
stjórnvalda í hvalveiðimálum.
- Ástandið verður sífellt í-
skyggilegra, sagði Guðrún á há-
degisfundi ABR og Þjóðviljans,
„pólitík á laugardegi“.
- Ég veit ekki hvar menn ætla
að enda þetta, en fyrir mitt leyti
er alltof langt gengið þegar milj-
ónamarkaðir eru tapaðir, fjöldi
fólks hefur misst vinnuna og ís-
lenskar afurðir eru seldar er-
lendis undir felunafni. Ég tel það
ábyrgðarhluta að styðja ríkis-
stjórn sem heldur svona á mikil-
vægu hagsmunamáli, sem bæði
varðar traust okkar erlendis og
þjóðlegan metnað.
Guðrún sagði að hún hefði ný-
verið lýst þessu yfir á þingflokks-
fundi Alþýðubandalagsmanna.
og sér væri kunnugt um að fjöldi
stjórnarþingmanna væri á svip-
uðu máli. Þess má geta að einn
þeirra, Árni Gunnarsson, bað
gær um fund hið fyrsta í atvinnu
málanefnd neðri deildar þings
ins, og mun ætlun hans að kom
sem fyrst áfram þingsályktunai
tillögu sinni um stöðvui
veiðanna. -n