Þjóðviljinn - 14.02.1989, Page 11
Mujahideen í bardaga við Kandahar, sem er helst borga í Suður-
Afganistan - óvíst er enn um samkomulag með foringjum þeirra i
Pakistan.
Afganistan
Þinghald enn í óvissu
Abdurrab Rasul Sayyaf, einn
talsmanna bókstafstrúaðra
mujahideen (afganskra skæru-
liða), sagði í gær að bráðabirgða-
þing skæruliða og stuðnings-
manna þeirra myndi koma saman
í dag. Hinsvegar hafa samtök til-
tölulega hófsamra mujahideen
neitað setu á þinginu, nema því
aðeins að deilan um hversu mörg
sæti sjítar fái þar verði leyst.
Fyrsti fundur þingsins leystist
upp þegar eftir að hann hafði ver-
ið settur á föstudag sökum þess
að bókstafstrúaðir neituðu að
sætta sig við áður gert samkomu-
lag um fjölda þingsæta sjíta og
það hversu mörg ráðherraemb-
ætti þeir fengju í bráðabirgðarík-
isstjórn, sem þinginu er ætlað að
útnefna.
Sovéskir fjölmiðlar sökuðu í
gær Pakistan um að safna liði við
landamæri sín og Afganistans og
jafnvel að hafa sent lið inn í Af-
ganistan til stuðnings því liði mu-
jahideen, sem situr um Jalala-
bad, eina af helstu borgum lands-
ins sem er við aðalveginn frá Ka-
búl til Peshawar í Pakistan, þar
sem helstu samtök mujahideen
hafa aðalstöðvar.
Reuter/-dþ.
Kohl vill
Helmut Kohl, sambandskansl-
ari Vestur-Þýskalands, sagði í
gær að til greina kæmi að eyða
kjarnaflaugum þeim skammd-
rægum af gerðinni Lance, sem
Nató hefur í Evrópu, flestar í
Vestur-Þýskalandi. Kvað Kohl
þennan valkost verða fyrir hendi
ef Varsjárbandalagið fengist til
að fækka tilhlýðilega mikið íþeim
herjum sínum, sem væddir eru
ERLENPAR FRETTIR
Sri Lanka
Blóðug kosningabarátta
Yfir 300 drepnir á fjórum vikum. Flokki Premadasa er spáð sigri
Amorgun verður kosið til þings
á Sri Lanka og er því spað að
Sameinaði þjóðarflokkurinn,
sem stjórnað hefur eyríkinu s.l.
11 ár, fái nauman meirihluta.
Leiðtogi flokksins er Ranasinghe
Premadasa, sem kjörinn var for-
seti í des. s.l. Helsti stjórnarand-
stöðuflokkurinn er Frelsisflokk-
urinn undir forustu frú Sirima
Bandaranaike, fyrrum forsætis-
ráðherra, en alls bjóða níu flokk-
ar fram og auk þeirra ýmis
samtök.
Yfir 300 manns hafa verið
drepnir í kosningabaráttunni,
sem staðið hefur í fjórar vikur,
þeirra á meðal 13 frambjóðend-
ur. Premadasa kennir róttækri og
mjög þjóðernissinnaðri singh-
svokölluðum venjulegum vopn-
um.
Á föstudag s.l. lagði Kohl til að
frestað yrði að endurnýja Lance-
flaugarnar um tvö ár. Af Nató-
ríkjum eru Bandaríkin og Bret-
land mest áfram um að flaugarn-
ar séu endurnýjaðar, en sterk
andstaða er í Vestur-Þýskalandi
gegn því að kjarnavopn séu höfð
þar. James A. Baker, utanríkis-
alskri vinstrihreyfingu, JVP, um
flest drápin, en einhverjir munu
og hafa fallið í valinn af liðs-
mönnum þeirrar hreyfingar. JVP
heldur því fram að kosningarnar
verði ekki annað en fals og dár og
hefur marglýst því yfir að hver sá,
sem vogi sér á kjörstað, geti búist
við því að týna engu fyrir nema
lífinu. Tamflska skæruliðahreyf-
ingin Tamil Eelam-frelsistígrar
hótar og hörðu þeim Tamflum,
sem kynnu að voga sér á kjör-
stað.
Báðir stóru flokkarnir heita
kjósendum óspart friði, framför-
um, kjarabótum o.s.frv., sem og
því að indverski herinn, sem síð-
an 1987 hefur verið á norðurhluta
eyjarinnartil að berja niðurTam-
ráðherra Bandaríkjanna, sem nú
er á hraðferð um höfuðborgir
Nató-ríkja, endurtók á sunnudag
fyrri yfirlýsingar Bandaríkja-
stjórnar um að hún vildi að
bandamenn hennar í Nató sam-
þykktu á þessu ári endurnýjun
Lance-flauganna, hvað sem liði
samningum um fækkun í herjum
væddum venjulegum vopnum.
Reuter/-dþ.
il Eelam-frelsistígra, verði send-
ur úr landi.
Reuter/-dþ.
Suður-Afríka
Boesak
fastar
Allan Bocsak, forseti Alþjóða-
ráðs siðbótarkirkna og einn
þekktustu forustumanna í bar-
áttu fyrir mannréttindum í
Suður-Afríku, tilkynnti í gær að
hann hefði ákveðið að hefja föstu
til stuðnings um 300 föngum, sem
sumir hverjir hafa nú fastað í
þrjár vikur. Fangarnir, sem
sumir hafa setið í fangelsi í yfir 30
mánuði án þess að vera leiddir
fyrir rétt, hafa heitið því að svelta
sig i hel nema því aðeins að þeir
verði látnir lausir.
Boesak, sem segist ætla að
fasta um óákveðinn tíma, er af
kynstofni „litaðra“ (Coloureds),
eins og kynblendingar eru nefnd-
ir þarlendis. Fasta hans verður að
líkindum erfitt mál fyrir
stjórnvöld, sökum þess hve
þekktur hann er og virtur á al-
þjóðavettvangi.
Reuter/-dþ.
Vestur-Pýskaland
losna við Lance
Paragvœ
Suðuramerísk hallarbyltinq
Hinn nýi Paragvœforseti gekk Stroessner næstur að völdum áratugum saman
og er grunaður um að hafa auðgast á eiturlyfjum
Þann 3. þ.m. var Alfredo Stro-
essner, einræðisforseta í Par-
agvæ (Paraguay), sem þá hafði
lengur setið á valdastóli en nokk-
ur annar ríkisleiðtogi heims, að
Kim II Sung í Norður-Kóreu ein-
um undanteknum, steypt af stóli.
Fréttaskýrendur kalla þessi um-
skipti yflrleitt hallarbyltingu og
efast um að hún breyti miklu, þótt
Andrés Rodríguez hershöfðingi,
sem stóð fyrir uppreisninni og tók
sér sfðan forsetatign, lofi lýðræði,
frjálsum kosningum og mannrétt-
indum.
Hann var skjólstæðingur Stro-
essners frá upphafi valdatíðar
hans og var 1961 útnefndur hers-
höfðingi og þar með yfirmaður 1.
riddaraherdeildarinnar (sem
þrátt fyrir heitið er búin bryn-
vögnum), sem sögð er öflugasta
deild Paragvæhers. Síðan hefur
hann lengst af gengið Stroessner
næst að völdum. Rodríguez er af
fátæku fólki kominn, en ferill
hans er síður en svo einsdæmi.
Eitt helsta ráð fátækra manna í
Rómönsku Ameríku frá gamalli
tíð til að lyfta sér í samfélaginu
hefur verið að vinna sig upp í
gegnum herinn, enda hafa sumir
grimmustu einræðisherrar heims-
hlutans verið af lágum stigum.
Rodríguez er nú maður flug-
ríkur og stendur fé hans víða fót-
um, en marga grunar að hann
hafi einkum auðgast á eiturlyfja-
smygli og -verslun. Paragvæ hef-
ur orð á sér sem ein mesta smygl-
araparadís í heimi. Eiturlyfja-
mafíur skipuliggja þaðan í næði
atvinnurekstur sinn og viðskipti
víða um heim, en þar að auki er
ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
landið umhleðslustaður fyrir all-
an mögulegan smyglvarning ann-
an, skoskt viskí, frönsk ilmvötn,
taívanska elektróník og svona
mætti endalaust telja. Að sjálf-
sögðu hirða ráðamenn landsins
drjúgan hluta gróðans fyrir að
veita smyglurunum griðland og
margir þeirra eru sjálfir athafna-
samir í starfsemi þessari.
Ein meginástæðan til þess, hve
endingargóður Stroessner reynd-
ist á valdastóli ríkis, þar sem
stjórnarfarið hafði í áratugi áður
einkennst af tíðum og ofbeldis-
sömum stjórnarskiptum, var að
hann bar á ýmsan hátt höfuð og
herðar yfir ícumpána sína í vald-
aklíkunni, var duglegri, séðari og
seigari en þeir. Haft var til marks
um árvekni hans og úthald að
hann svæfi f lengsta lagi fjóra
tíma á sólarhring og sæti uppi um
nætur við að iesa herfræðibók-
menntir. En 1987 voru þess farin
að sjást merki að heilsa og kraftar
þess gamla væru á þrotum, og þá
risu úfar út af ríkiserfðum. Þá
sýndi sig að Stroessner hugðist
láta elsta son sinn, Gustavo, erfa
ríkið eftir sinn dag. En ríkisflokk-
urinn Rauðiflokkur (Colorado)
klofnaði þá í tvær fylkingar,
„hefðarsinna", sem þóttust vilja
milda einræðið og kröfðust þess
að herinn og Stroessnerfjöl-
skyldan létu forsetaembættið af
hendi, og „þá herskáu", sem
studdu Stroessner afdráttarlaust.
Stroessner brást við andstöð-
unni með því að reka „hefðar-
sinna“ unnvörpum úr stöðum og
embættum, þar á meðal marga
herforingja. í byrjun jan. s.l.
skipaði hann Rodríguez að láta af
stjórn 1. riddaraherdeildarinnar.
Kom það nokkuð á óvart, því að
Rodríguez hafði lítt látið að sér
kveða í deilu þessari og auk þess
var dóttir hans gift öðrum syni
Stroessners. En Stroessner grun-
aði hann um græsku, kannski
meðfram vegna þess að snurða
hafði hlaupið á þráðinn hjá hjón-
akornunum börnum þeirra, og
voru þau hætt að búa saman. Ro-
dríguez tregðaðist við að sleppa
1. riddaraherdeildinni, en þá lét
Stroessner loka gjaldeyrisversl-
un, sem Rodríguez átti og hafði
verið honum drjúg gróðalind. 2.
febr. fyrirskipaði einræðisherr-
ann þessum næstráðanda sínum
að fara á eftirlaun.
Þá var að því komið fyrir
Roldríguez að hrökkva eða
stökkva og hann tók síðarnefnda
kostinn. Hann stefndi 1. riddara-
deildinni inn í höfuðborgina og
sigraði lífvörð forsetans og lög-
reglulið, sem einnig var honum
trútt, eftir stutta en þeim mun
heiftarlegri viðureign. Talið er að
200-300 manns hafi fallið. Stro-
essner komst undan heiman frá
sér og faldi sig hjá frillu sinni
einni, en fannst þar fljótlega. Var
honum síðan vísað úr landi til
Brasilíu.
dþ.
Oddatölur-j jafnar tölur- 1 íia| 3pa itölur
Þetta eru tölurnar sem upp komu 11. feb.
Heildarvinningsupphæð var kr. 5.558.318,-
1. vinningur var kr. 2.559.202,-. Einn var með fimm tölur réttar.
Bónusvinningurinn (fjórar tölur + bónustala) var kr. 444.368,- skiptist á 2 vinningshafa
og fær hvor þeirra kr. 222.184,-.
Fjórar tölur réttar, kr. 766.458,- skiptast á 147 vinningshafa, kr. 5.214,- á mann.
Þrjár tölur réttar, kr. 1.788.290,- skiptast á 4.330 vinningshafa, kr. 413,- á mann.
Sölustaðir eru opnir frá mánudegi tll laugardags og er lokað 15 mínúturn fyrir
útdrátt.
Sími6851 11. Upplýsingasímsvari 681511.