Þjóðviljinn - 04.04.1989, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 04.04.1989, Blaðsíða 2
FRETTIR Alþingl Heræfingum verði aflýst Utanríkisráðherra barstloks beiðni Bandaríkjamanna ífyrradag. Forsœtisráðherra: Margt breyst íheiminumfráþví æfingarnar voru ákveðnar 1986. Hjörleifur Guttormsson: Alþýðubandalagið krefst þess að heræfingunum verði aflýst! Heræfíngar Bandaríkjamanna á Miðnesheiði þjóna ekki hagsmunum íslendinga, þvert á Herœfingin Lýgur herinn um leyfið? McVadon flotaforingi í bandaríska hertímaritinu: Samþykki þegarfengið. Jón Baldvin: Formleg beiðni í fyrradag Hefur ríkisstjórn Islands þegar veitt samþykki sitt fyrir því að hluti af 187. fótgönguliðssveit bandaríska landhersins fái að stunda heræfingar á Islandi? Það hefur bandaríska hernaðartíma- ritið Aviation Week and Space Technology eftir Eric McVadon, yfírmanni herstöðvarinnar í Kefl- avík, í greinafíokki um umsvif Bandaríkjahers hér á landi sem birtist í nóvemberhefti tímaritsins á síðasta ári. McVadon tók það sérstaklega fram að þetta samþykki ríkis- stjórnarinnar væri „mikilvægt skref fram á við“ í samskiptum íslenskra stjórnvalda og Banda- ríkjahers. Grein þessi er eftir Brendan M. Greeley, ritstjóra tímaritsins í tæknilegum málefn- um, og starfsmenn Keflavíkur- stöðvarinnar. Tæplega er því ástæða til að ætla að rangt sé haft eftir flotaforingjanum. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra hefur hins veg- ar ítrekað lýst því yfir að hann hafi enga heimild gefið enn fyrir því að þessar heræfingar fari fram. í utandagskrárumræðum á Alþingi í gær sagði hann jafnvel að formleg beiðni um þessar her- æfingar hefði fyrst borist í fyrra- dag, og stendur því fullyrðing á móti fullyrðingu. -m/vg móti, okkar hagsmunir eru fólgn- ir í því að koma í veg fyrir að af þeim verði, sagði Páll Pétursson, förmaður þingflokks Framsókn- armanna og málshefjandi í utan- dagskrárumræðu á alþingi í gær um fyrirhugaðar heræfingar hér- lendis á sumri komanda. I máli utanríkisráðherra kom fram að Bandaríkjamenn hefðu fyrst í fyrradag óskað með formlegum hætti eftir heimild hans fyrir her- æfíngunum og forsætisráðherra gagnrýndi yfírmenn setuliðsins harðlega fyrir að sækja ekki um með lengri fyrirvara. Páll kvaðst sammála forsætis- ráðherra um að æfingar sem þess- ar væru tímaskekkja og bæri að aflýsa þeim. Síðan lagði hann spurningar fyrir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra sem næstur sté í stól. f máli hans kom fram að upp- hafleg ákvörðun um æfingarnar hefði verið tekin í október 1986, tilkynning borist varnarmála- skrifstofu í ágúst í fyrra en form- leg ósk um heimild utanríkisráð- herra ekki komið fram fyrr en í fyrradag. Utanríkisráðherra kvað 1200 hermenn að utan hafa í hyggju að æfa sig á varnarsvæðinu í 15 daga. Þar af væru 240 atvinnudátar úr stórherfylki landhers, 800 sjálf- boðaliðar úr stórfylki varahers og 2-300 eftirlitsmenn. Engiij þung- avopn kæmu með liði þessu held- ur eingöngu léttur búnaður. Auk þessa lægi fyrir ósk um æfingar á samhæfingu fjarskiptabúnaðar hersins og almannavarna. Ráðherrann sagði íslendinga verða að leyfa varnarliðinu að æfa varnir landsins, engin rök væru fyrir því að aflýsa fyrirtæk- inu en málið yrði rætt nánar í rík- isstjórn áður en hann tæki loka- ákvörðun. Steingrímur Hermannsson ít- rekaði enn efasemdir sínar, margt hefði færst í betra horf á alþjóðavettvangi frá því í okt. 1986 og því úrelt með öllu að efna til svo umfangsmikilla heræfinga nú. Hann gagnrýndi yfirmenn Bandaríkjahers harðlega fyrir að sækja ekki um leyfi fyrr en fá- einum mánuðum áður en æfing- arnar ættu að hefjast. Þorsteinn Pálsson las uppúr Þjóðviljanum og Kristín Einars- dóttir minnti menn á andhernað- arstefnu Kvennalistans. Hjör- leifur Guttormsson tók síðastur til máls áður en umræðunni var frestað í gær. Hjörleifur kvað heræfingar þessar verða að skoðast í sam- hengi við tilgang setuliðsins hér og þátttöku okkar í Nató. Við værum að verða hlekkur í sókn- arkeðju Bandaríkjahers á Norðurslóðum á sama tíma og heimurinn væri hægt og bítandi að afvopnast. Við yrðum að söðla um og leggja okkar lóð á vogar- skálar friðarins. Hjörleifur sagði Alþýðu- bandalagið krefjast þess að fyrir- huguðum heræfingum yrði aflýst enda ljóst að fyrir því væri meiri- hluti innan ríkisstjórnarinnar. Trauðla réru þeir Páll Pétursson og forsætisráðherra einir á báti í þingflokki Framsóknarmanna. ks Alþingi Albert hættir Albert Guðmundsson sagði af sér þingmennsku í gær en hann mun halda utan til Frakklands I vikulokin og taka við sendiherr- astöðu í París um næstu helgi. Albert lýsti því yfir í gær að héðan í frá yrði hann utan stjórnmálaflokka. Einsog kunn- ugt er hefur hann ekki setið þing- flokksfundi Borgaraflokksins að undanförnu, né heldur Ingi Björn sonur hans og Hreggviður Jónsson. Albert sagði í gær að hann myndi ekki ganga í Sjálf- stæðisflokkinn, en óvíst er hvað Ingi Björn og Hreggviður hyggj- ast fyrir. Kennarar í HiK fjölmenntu á Borgina í gær. Mynd Þóm. HÍK Kl-félagar heita stuðningi Vel sóttur baráttufundur hjá kennurum í gær Það er veist að hugsjónum okk- ar og heimilum, sagði Wincie Jóhannsdóttir á fjölmennum bar- áttufundi framhaldsskólakenn- ara innan HIK sem haldinn var á Hótel Borg í gær. Auk Winciar töluðu á fundin- um þau Sigurður Þór Jónsson, Bergljót Kristjánsdóttir og Svan- hildur Kaaber formaður KI sem lýsti væntanlegum stuðningi fé- lags síns við starfsfélaga í HIK, komi til verkfalls á fímmtudag. Fulltrúaráð Kí hefur óskað eftir því við félagsmenn sína að þeir leggi niður störf á fimmtudag komi til verkfalls HtK og ræði um stöðu kjaramála. Þá ætlar félagið að leggja fram eina miljón í verk- fallssjóð HÍK og 2 aðrar til við- bótar standi verkfall fram undir miðjan mánuðinn og jafnframt hefur félagið skorað á alla kenn- ara að breyta á engan hátt kennslutíma sínum né bæta við sig kennslu, komi til verkfalls kennara í HÍK. Litið verði á allar slíkar tilfæringar sem skýlaust verkfallsbrot. -lg- Skák Jóhann byrjar vel Jóhann Hjartarson hefur farið vel af stað á Heimsbikarmóti Stór- meistarasambandsins í Barcelona. Hann hefur 2,5 v. eftir 4 umferðir. Júgóslavinn Ljubojevic er efstur m. 3,5 v. ks Ölduselsskólamálið Pólitískar ofsóknir á Olduselsskóla Formaðurforeldrafélags skólans: HvorkiJón Baldvin né Bjarni P. Magnússon hafa leitað upplýsinga hjáforeldrafélagi skólans. Ásakanir um pólitískar ofsóknir á hendur skólastjóra rakalausar Pví er haldið fram af ábyrgum aðilum að stjórn foreldrafé- lags Ölduselsskóla hafí látið stjórnast af pólitískum skoðunum í afskiptum sínum af deilumálum innan skólans. Þetta er eins fjarri öllum sanni og hægt er, og við erum satt að segja hætt að botna í þessum stórorðu yfirlýsingum Jóns Baldvins Hannibalssonar og Bjarna P. Magnússonar um þetta mál. Eitt er víst, að þeir hafa hvorugur leitað upplýsinga um málið hjá stjórn foreldrafélags skólans. Þetta sagði Guðmundur Hjálmarsson formaður Foreldra- félags Ölduselsskóla í samtali við Þjóðviljann í gær. Og Guðmund- ur bætti því við að Foreldrafélag- ið hefði aldrei tekið afstöðu gegn Sjöfn sérstaklega, hins vegar hefðu 93% foreldra við skólann á sínum tíma óskað eftir því að Daníel Gunnarsson yfirkennari yrði ráðinn. Slík ósk fæli ekki í sér neinar ofsóknir gegn pesónu Sjafnar eða dóm um hana sem persónu. Þess skal getið að frá því að Sjöfn var ráðin að skólanum hafa 7 kennarar hætt störfum vegna ráðningarinnar og 17 hafa hótað að gera það sama n.k. vor. Alls eru 38 stöðugildi kennara við skólann. Þá hefur seta hennar kostað að nýskipað kennararáð skólans sagði af sér og skipa varð nýtt. Sömuleiðis var skipað nýtt foreldraráð í októberlok vegna deilna sem þá höfðu blossað upp, m.a. vegna yfirkennara sem Sjöfn réði í andstöðu við vilja kennara. Þá var Sjöfn knúin til þess að biðja einn kennara við skólann afsökunar opinberlega vegna framkomu sinnar. Þessar deilur fóru fyrir Fræðsluráð, og reyndi formaður þess, Ragnar Júlíusson að ná sáttum, en gat þó ekki fengið deiluaðila til þess að mæta á sameiginlegum fundi. -Ég vil bara minna á þau orð Ragnars Júlíussonar, sem Morg- unblaðið hafði eftir honum í fyr- irsögn, að hann hefði komið á vopnahléi í skólanum, sagði Ás- laug Brynjólfsdóttir í samtali við Þjóðviljann. -Þau orð benda til þess að stríðsástand hafi ríkt í skólanum, en það kemur ekki allskostar heim og saman við þá ályktun sem Fræðsluráð Reykja- víkur gerði um málið í síðustu viku. Þessu deilumáli var vísað til mín frá Fræðsluráði í desember. Þá var ég á sjúkrahúsi, og því var málið sent frá fræðslustjóraemb- ættinu til ráðuneytisins. í menntamálaráðuneytinu hafa þau Sólrún Jensdóttir og Sigurð- ur Helgason farið með faglega umfjöllun þessa máls. Kristín A. Ólafsdóttir borgar- fulltrúi sagðist vera undrandi yfir afstöðu borgarmálaráðs Alþýð- uflokksins til þessa máls og von- ast til þess að Alþýðuflokksmenn gefi sér tíma til þess að endur- skoða afstöðu sína með tilliti til hagsmuna, sem þarna eru í húfi. - Það er ný stefna hjá Alþýðu- flokknum í borgarmálum að horfa algjörlega framhjá hags- munum nemenda og foreldra í heilu borgarhverfi, eins og hér er gert. Alþýðuflokkurinn hefur hingað til verið talsmaður lýð- ræðis í borgarmálum og gagnrýnt núverandi meirihluta fyrir vald- níðslu. Það skýtur því skökku við þegar hann hættir nú allt í einu að hlusta á málsaðila. Ákvörðun menntamálaráðuneytisins í þessu máli var byggð á traustum grunni að höfðu samráði við fjölda manns, foreldra jafnt sem kenn- ara. Ákvörðunin tekur mið af því, að hagsmuna skólans sé gætt. —ólg. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 4. apríl 1989

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.