Þjóðviljinn - 04.04.1989, Síða 7
Líbanon
Múslímar bjóða frið
Vilja afnema stjórnkerfi sem er kristnum í hag
Forustumenn líbanskra mús-
líma, þeirra á meðal Nabih
Berri, leiðtogi Amalsjíta og Walid
Jumblatt, foringi Drúsa, fyrir-
huga að leggja fyrir Arababanda-
lagið tiilögur með það fyrir
augum að koma á friði í Líbanon.
Efni tiilagnanna hefur ekki verið
látið uppi í smáatriðum, en talið
er að meginatriði þeirra sé að nú-
verandi stjórnkerfi Líbanons
verði afnumið.
Það er byggt á skiptingu lands-
manna í trúflokka og samkvæmt
því skulu kristnir menn vera ívið
valdameiri í landinu en múslím-
ar. Nú er yfirleitt talið að múslím-
ar séu orðnir talsvert fleiri þar-
lendis en kristnir (þótt að vísu
ekki hafi farið fram neitt manntal
er sanni það afgerandi) og hafa
hinir fyrrnefndu því lengi viljað
afnema kerfi þetta. Á það hafa
kristnir menn ekki viljað fallast af
hagsmuna- og öryggisástæðum.
Var þetta ein af aðalástæðunum
til þess að borgarastríðið í Líban-
on braust út um miðjan s.l. ára-
tug.
Síðan um miðjan mars hafa
geisað harðir bardagar, að sumra
Gorbatsjov
á Kúbu
Míkhaíl Gorbatsjov, forseti
Sovétríkjanna, er nú staddur á
Kúbu í opinberri heimsókn, sem
er hans fyrsta þangað. Talið er að
þeir Fidel Castro Kúbuleiðtogi
muni ræða margt um málefni
Rómönsku-Ameríku, en „sovét-
fræðingar“ segja að Gorbatsjov
muni forðast að segja nokkuð
eða lofa nokkru, sem hugsanlegt
væri að Bandaríkjastjórn tæki
sem ögrun við sig. Um hálf milj-
ón Kúbana fagnaði sovéska
leiðtoganum ákaft við komu hans
til Havana.
Reuter/-dþ.
Assad Sýrlandsforseti - her-
sveitir hans kreppa æ meir að
kristnum líbönum.
sögn meðal þeirra hörðustu í
stríðinu öllu, milli liðsmanna
tveggja ríkisstjórna landsins, en
önnur þeirra er kristin, hin ís-
lömsk og studd af Sýrlendingum.
Um 120 manns eru taldir fallnir í
hryðju þessari og yfir 450 særðir.
Hersveitir Sýrlendinga og líb-
anskra múslíma hafa að mestu
lokað aðflutningaleiðum til þess
hluta landsins, sem er á valdi
kristinna manna, og mestur hluti
eldsneytisbirgða kristnu austur-
borgarinnar í Beirút er upp
genginn fyrir eldi eftir að kvikn-
aði í eldsneytisgeymum þar af
völdum stórskotahríðar mús-
líma. Talið er að austurborgin
hafi nú eldsneyti aðeins til viku.
Michel Aoun, leiðtogi kristinna
manna, hefur snúið sér til stór-
velda þeirra, er fastasæti eiga í
öryggisráði Sameinuðu þjóð-
anna, og beðið þau að beita sér
fyrir því að sýrlenski herinn fari
frá Líbanon.
Reuter/-dþ.
Afganistan
Mujahideen vonsviknir
Mujahideen, afganskir skær-
uliðar, virðast nú í bráðina
hafa hætt að mestu áhlaupum á
borgina Jalalabad í austurhluta
landsins. Bardagarnir þar, sem
hófust snemma í s.l. mánuði,
voru að sögn meðal þeirra hörð-
ustu í öllu stríðinu.
Hermenn Kabúlstjórnarinnar í
borginni vörðust af hörku og
tókst þeim að hrinda öllum á-
hlaupum mujahideen. Manntjón
þeirra síðarnefndu var mikið og
telja sumir að tala fallinna úr liði
þeirra í bardögum þessum skipti
þúsundum. Hefur baráttukjark-
ur mujahideen að sumra sögn
beðið verulegan hnekki við þetta
og hafa margir þeirra leyniþjón-
ustu pakistanska hersins fyrir
sökinni. Sú leyniþjónusta hefur
mikil áhrif meðal mujahideen,
þar eð um hennar hendur fer
mest af vopnum þeim, sem
Bandaríkjamenn o.fl. senda
skæruliðum. Að sögn mujahide-
en hvatti leyniþjónusta þessi þá
mjög til áhlaupanna á Jalalabad.
Kabúlstjórnin er hinsvegar
hress yfir þessum varnarsigri sín-
um og hefur nú Najibullah for-
kólfur hennar boðið mujahideen
vopnahlé með þeim kjörum, að
þeir haldi vopnum sínum og fái
sjálfstjórn í þeim héruðum, er
þeir hafa á valdi sínu. Gæti það
tilboð orðið freistandi fyrir suma
skæruliðaforingja, sem eru í raun
að mestu óháðir bráðabirgða-
stjórn mujahideen í Pakistan,
enda væri samkomulag af því
tagi, sem Najibullah stingur upp
á, í samræmi við afganskar hefð-
ir.
Reuter/-dþ.
Namibía
Strið blossar upp
Klögumál ganga á víxl um upptök. Suður-Afríkustjórn hótar að reka
friðargœslulið S.þ. úr landi
Harðir bardagar hafa síðan á
laugardag geisað nyrst í Nam-
ibíu milli liðssveita SWAPO,
sjálfstæðishreyfingar þar-
lendrar, og hersveita Suður-
Afríkustjórnar. Um 140 manns
voru í gær sagðir fallnir í viður-
eign þessari, sem er ein af þeim
hörðustu hingað til í 23 ára skær-
ustríði Suður-Afríku og SWAPO.
Hvor aðilinn um sig kennir hin-
um um upptökin. Að sögn suður-
afrískra talsmanna tókust bar-
dagar er um 1000 manna lið
SWAPO fór suður yfir landa-
mærin frá Angólu, sem sé brot á
vopnahléi því er Angóla, Kúba
og Suður-Áfríka gerðu á dögun-
um til að binda endi á hernað í
Angólu og Namibíu. Talsmenn
SWAPO segja að átökin hafi haf-
ist vegna þess að Suður-
Afríkuher haldi áfram útrýming-
araðgerðum gegn SWAPO-
liðum, staðsettum í Namibíu, í
þeim tilgangi að eyða áhrifum
samtakanna í landinu áður en
það verði sjálfstætt. Hinsvegar
neitar SWAPO því ekki að ein-
hverjir liðsmenn samtakanna
kunni að hafa farið inn í landið
frá Angólu eftir að bardagar hóf-
ust, til hjálpar félögum sínum
þar.
Aðilum ber saman um að
mannfall sé mikið í bardögunum
og haft er eftir talsmönnum lög-
reglu í norðurhluta landsins að
um 120 manns hafi fallið af
SWAPO og um 20 af liði Suður-
Afríku. Suður-Afríkumenn hafa
sent á vettvang vopnaðar þyrlur,
en SWAPO-liðar beita gegn
þeim eldflaugum. Barist er á um
300 kílómetra langri víglínu.
Ekki þykir það góðs viti að slag-
urinn hófst einmitt sama daginn,
1. apríl, og framkvæmd áætlunar
á vegum Sameinuðu þjóðanna
um að gera Namibíu að sjálfs-
tæðu ríki skyldi hefjast.
Þorp á landamærasvæðinu
standa að sögn í ljósum loga og
fólk flýr þaðan unnvörpum.
Marrack Goulding, aðstoðarað-
alritari S.þ. og æðsti yfirmaður
friðargæsluliðs þeirra er á förum
til Luanda, höfuðborgar Angólu,
til að kanna ástæður til friðslit-
anna í Namibíu. Samkomulag
Angólu, Kúbu og Suður-Afríku
um frið í suðvestanverðri Afríku
var undirritað í New York í des.
s.l. og er í því kveðið á um að
Namibía fái sjálfstæði gegn því að
Kúba kveðji heim herlið sitt í
Angólu.
Suður-Afríkustjórn heitir á Ja-
vier Perez de Cuellar, aðalritara
S.þ., að stöðva þegar í stað það
sem hún kallar ögranir og
ágengni af hálfu SWAPO og hót-
ar að öðrum kosti að reka úr
Namibíu friðargæslulið S.þ., sem
þangað er nýkomið. Talsmenn
SWAPO segja forustumenn sína
reiðubúna að fyrirskipa liðs-
mönnum sínum að hætta bar-
dögum, ef Suður-Afríkustjórn
geri slíkt hið sama.
Evlgi SWAPO mun vera mest
mPB Ovambo-þjóðflokknum,
sem langfjölmennastur er þjóð-
arbrota landsins, en ættland hans
er einmitt nyrst í landinu.
SWAPO er af mörgum spáð sigri
í kosningum, sem fara eiga fram í
Namibíu áður en hún verður
sjálfstæð, en líklegt er að Suður-
Áfríkustjórn vilji fyrir hvern mun
hindra að samtök þessi komist
þar til valda.
Reuter/-dþ.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Miðstjórnarfundur
kl. 20 miðvikudaginn 5 apríl
í Miðgarði, Hverfisgötu 105
Að kröfu 33 miðstjórnarmanna er boðað til miðstjórnarfundar til að
ræða afstöðu flokksins í yfirstandandi kjaradeilum og sérstaklega
fjallað um þá ákvörðun fjármálaráðherra að greiða opinberum
starfsmönnum, sem boðað hafa til verkfalls frá 6. apríl
næstkomandi, einungis laun fram til þess tíma.
Miðstjórnarmenn eru því í samræmi við ofanskráð boðaðirtil fund-
ar í Miðgarði, Hverfisgötu 105, kl. 20 miðvikudaginn 5. apríl. -
Formaður.
Útboð
Landgræðsla 1989-1990 Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í oíangreint
Vverk. * Helstu magntölur: Nýsáning Áburðar-
dreifing
Suðurlandskjörd. 90 ha 90 ha
Reykjaneskjörd. 95 ha 100 ha
Vesturlandskjörd. 170 ha 170 ha
Vestfjarðakjörd. 125 ha 125 ha
Norðurl.kjörd. vestra 90 ha 90 ha
Norðurl.kjörd. eystra 215 ha 215 ha
Austurlandskjörd. 150 ha 110 ha
Útboðsgögn verða afhent frá og með 4. apríl nk. hjá Vegagerð ríkisins í Reykjavík (aðalgjaldkera) og fyrir viðkomandi kjördæmi á eftirtöldum umdæmisskrifstof- um: Selfossi, Borgarnesi, Isafirði, Sauðárkróki, Akur-
eyri og Reyðarfirði.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann
17. apríl 1989. Vegamálastjóri
Gestsson Óskarsdóttir
Kennarar - foreldrar
Fimmti fundur menntamálaráöherra um skóla-
mál verður í Árbæjarskóla í kvöld, 4. apríl, kl.
20.30.
Notiö tækifærið til að hafa áhrif. Fundurinn er
fyrir foreldra og starfsfóik eftirtalinna skóla: Ár-
bæjarskóla, Ártúnsskóla, Foldaskóla og Selás-
skóla.
Menntamálaráðuneytið
Minningarathöfn um
Huldu Stefánsdóttur
fyrrv. skólastjóra
fer fram í Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 6. apríl
næstkomandi og hefst kl. 13.30.
Útför hennar verður gerð frá Þingeyrakirkju laugardaginn
8. apríl og hefst kl. 14.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Þingeyrakirkju
eða Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi. Kirkjan hefur gíró-
reikning 49543, en safnið 49535 í Landsbanka íslands
(aðalbanka).
Guðrún Jónsdóttir og Páll Líndal
Hulda Sigríður, Anna Salka, Stefán Jón, Bára og Páll
Jakob
Þórir Jónsson og Sigríður Guðmannsdóttir
Jón Guðmann og Margrét
Maðurinn minn
Stefán Ögmundsson
prentari
er látinn.
Elín Guðmundsdóttir
Helga Proppé
er látin.
Lúðvík Kristjánsson
Véný og Vésteinn
Þriðjudagur 4. april 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7