Þjóðviljinn - 05.07.1989, Blaðsíða 2
FRETTIR
Flugleiðir
Tímasetningin tilviljun
Pað liggur ekki fyrir nein end-
anleg ákvörðun ennþá en
fljótlega verður sumaráætlun
fyrir næsta ár afgreidd og í því
sambandi hefur verið nefnt að
draga úr leiguflugi til sólarlanda
og Grænlands en auka áætlunarf-
lug á N-Atlantshafsleiðum, sagði
Einar Sigurðsson blaðafulltrúi
Flugleiða. Hann sagði að engin
ákvörðun hefði verið tekin um
fækkun í áhafnarliðinu og óvíst
hvort af af henni yrði. Verði flug-
vélum félagsins fækkað úr 7 í 5
næsta sumar er ljóst að áhafnar-
þörf verður eitthvað minni er nú í
sumar og gæti munað allt að 9
flugáhöfnum. Ef hins vegar Bo-
eing 727-200 vél eða önnur
sambærileg verður tekinn á leigu
og þá fyrst og fremst til leiguflugs
þá snýst dæmið við og þörf verð-
ur fyrir fleiri áhafnir. Mál þetta
er enn á vinnslustigi hjá starfs-
mönnum fyrirtækisins og hefur
ekki verið lagt fyrir stjórn þess
enn.
Einar sagði að það væri til-
hæfulaust það sem fram hefði
komið í fréttum að Flugleiðir
kæmu á framfæri fréttum um
fækkun starfsfólks þegar í gangi
væru samningaviðræður og það
væri tilviljun ein að þessi frétta-
flutningur væri í gangi núna. Hins
vegar sagði hann að það væri ljóst
að launakostnaður fyrirtækisins
væri óvenju hár miðað við
launakostnað annarra flugfélaga
í Evrópu og með tilkomu samn-
inga við flugmenn í tengslum við
kaup nýju flugvélanna ykist
launakostnaður og óhagræði í
rekstri leiguflugsins sem gerði
það að verkum ásamt ýmsum
öðrum þáttum að verið væri að
skoða breytingar á þessum þætti
rekstursins.
Gunnar Guðjónsson hjá félagi
íslenskra atvinnuflugmanna
sagði það væri harla ólíkiegt að
samningar þeirra væru ástæðan
fyrir hugmyndum um fækkun eða
niðurfellingu á leiguflugi til sólar-
landa en vildi ekkert segja um
hvaða ástæður hann teldi að
lægj u þar að baki. - Það er ekkert
óeðlilegt við það að þurfa að
skipta um áhöfn í ferðum og tíð-
kast víða í öðrum löndum. Þó
slíkt kosti flugfélagið auðvitað
eitthvað getur það varla skipt
sköpum í ákvarðanatöku þeirra.
Inn í umræðu um breytingar á
Hana-nú félagar
með púttklúbb
Hálft hundrað félaga í frí-
stundaklúbbnum Hana-nú í Kóp-
avogi hafa nýverið stofnað púttk-
lúbb í samvinnu við íþróttaráð
Kópavogs. Bæjaryfirvöld hafa
ákveðið að greiða götu klúbbsins
og í því skyni hefur félögunum
verið heimilað að nýta hluta af
Rútstúni til iðkana á þeirrigöf-
ugu fjölskylduíþrótt golfi.
Púttvöllurinn verður opnaður
með hátíðlegri athöfn á morgun
kl. 18.00 og eru allir Kópavogs-
búar boðnir velkomnir til athafn-
arinnar.
flugi flugfélagsins blandast
ákvarðanataka um stærð flugflot-
ans á næst ári. Þegar hefur verið
ákveðið að kaupa 5 nýjar flugvél-
ar. 2 þeirra eru þegar komnar í
rekstur en hinar 3 koma næsta
vetur. í lok sumars þarf að taka
ákvörðun um það hvort tveimur
vélum til viðbótar verður bætt við
flotann sem kæmu þá inn í rekst-
urinn 1991 eða síðar. Að auki
þarf að ákveða hvort félagið
framlengir leigusamninga einnar
Boeing 727-200 þotu næsta
sumar. Hver kosturinn sem verð-
ur fyrir valinu er 1 jóst að Flugleið-
ir hafa svigrúm til leiguflugs í
töluverðum mæli. iþ
Freri RE er búinn með kvótann og bendir ekkert til annars en að skipið verði bundið við bryggju það sem eftir
er ársins. Mynd: ÞÓM.
Freri RE
Næsta brottför 2. janúar
Kvótinn búinn og áhöfnin hefur tekið pokana sína. Lítið sem ekkert
framboð afkvóta en mikil eftirspurn. Kvótakaup fyrireina veiðiferð
kostar útgerð skipsins 7,5 miljónir króna séu keypt300
þorskígildistonn á 25 krónur kílóið
Frystiskipiö Freri RE 73 er bú-
inn með kvótann og hefur
skipið verið bundið við bryggju.
Að öllu óbreyttu verður næsta
brottför skipsins ekki fyrr en 2.
janúar 1990 þegar veiðiheimild-
um hefur verið úthlutað fyrir það
ár.
Samkvæmt kvótaúthlutun
sjávarútvegsráðuneytisins fyrir
þetta ár var Frera RE úthlutað
1967 þorskígildistonnum að við-
bættum þeim veiðiheimildum
sem útgerðin færði á milli skipa
sinna. Samkvæmt upplýsingum
frá útgerð skipsins, Ogurvík hf.
hefur Freri RE veitt á milli 2 - 3
þúsund þorskígildistonn og nem-
ur aflaverðmæti skipsins um 200
miljónum króna á þeim sex mán-
uðum sem tók að veiða upp í
kvótann. Vegna þessa var ekki
um annað að ræða fyrir áhöfn
skipsins, 27 manns, en að taka
pokana sína og leita að annarri
atvinnu. Nokkrir þeirra hafa þeg-
ar getað útvegað sér hana en aðr-
ir hafa orðið að skrá sig á atvinnu-
leysisskrá þar til úr rætist.
Eins og ástandið er á kvóta-
markaðnum er næstum því borin
von fyrir útgerð skipsins að
kaupa viðbótarkvóta þar sem
framboðið er næstum ekkert en
mikil eftirspurn. Það hefur gert
það að verkum að þeir fáu kvóta-
handhafar sem eitthvað hafa
fram að bjóða selja hæstbjóð-
anda þorskkílóið á allt að 25
Hlemmsránið
upplýst
Rannsóknarlögregla ríkisins
handtók í fyrrakvöla pilt sem
viðurkennt hefur að hafa rænt
rúmlega sextuga konu við
Hlemm föstudagskvöldið 23. júní
sl. með þeim afleiðingum að hún
handleggsbrotnaði. Hinn fingra-
langi komst undan með um 200
þúsund krónur í reiðufé, ávísun-
um og farseðlum. Megnið af þýf-
inu kom í leitirnar skömmu síðar.
Hvalatalning í
Norður-Atlantshafi
Umfangsmesti leiðangur sem
farinn hefur verið til að kasta tölu
á hvali í Norður-Atlantshafi hefst
nk. mánudag. Til talningarinnar
verða 15 skip notuð. Islensku
leiðangursmennirnir fara á
tveimur hvalskipum, einu
rannsóknarskipi og einu leigu-
skipi. Auk íslendinga taka þátt í
leiðangrinum sömu þjóðir og
voru þátttakendur í talningunni í
fyrra, Danir, Norðmenn, Spán-
verjar og Færeyingar. Að þessu
sinni munu íslendingar einbeita
Kærkomin gjöf
til Greiningar-
og ráðgjafarstöðvar
Lionsklúbburinn Týr í Reykja-
vík færði nýverið Greiningar- og
ráðgjafarstöð ríkisins að gjöf
fullkomna tölvu ásamt fylgibún-
aði til nota fyrir starfsfólk stofn-
unarinnar við gerð meðferðar- og
þjálfunaráætlana fyrir fötluð
börn. Meginhlutverk Greining-
ar- og ráðgjafarstöðvarinnar er
athugun, rannsókn og greining á
fötluðum, sem og ráðgjöf til
handa foreldrum fatlaðra barna
og þeirra sem annast þjálfun,
kennslu eða meðferð fatlaðra.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Lionsklúbburinn Týr gaukar að
Greiningar- og ráðgjafarstöðinni
tækjum og tólum sem koma í
góðar þarfir við greiningu og um-
mönnun fatlaðra.
sér að hvalatalningu á hafsvæð-
unum djúpt suður af landinu og
leggja höfuð kapp á að kanna ás-
igkomulag sandreyðarstofnsins.
Ráðgert er að Ieiðangrinum Ijúki
ekki fyrr en um miðjan ágúst.
Fyrirlestur um
íslenska fugla
Þorsteinn Einarsson verður
gestur Norræna hússins í Opnu
Lánasjóðurinn
Námsmenn
endurgreiða
sín lán
Námsmenn ekki ánœgðir
með yfirlýsingar Jón
Baldvins um Lánasjóð
námsmanna. Vandi
sjóðsins stafar afóhag-
stæðum lántökum og
gjöfum til fyrri kynslóða
Astæðan fyrir því að staða
Lánasjóðsins er mjög slæm núna
er sú að hann hefur verið fjár-
magnaður að allt of stórum hluta
með óhagkvæmum erlendum lán-
um, auk þess sem verðtryggðar
endurgreiðslur eru ekki farnar að
skila sér að fullu ennþá. Náms-
menn eru ekki að biðja um neina
ölmusu heldur lán sem þeir greiða
til baka ásamt verðtryggingu og
þegar fram líða stundir á sjóður-
inn sjálfur að geta staðið undir
lánveitingum að mestum hluta.
Grundvallarspurning varðandi
lánasjóðinn hlýtur þó alltaf að
vera sú hvort við viljum tryggja
fólki möguleika til náms óháð
fjárhagslegum aðstæðum og slíkt
kemur alltaf til með að kosta
eitthvað sagði Arnar Guðmunds-
son fulltrúi Röskvu í Stúdenta-
ráði þegar borin voru undir hann
ummæli Jóns Baldvins Hanni-
balssonar í blaðaviðtali um helg-
ina varðandi nauðsyn þess að
skera niður útgjöld til Lánasjóðs
námsmanna. Jón Baldvin sagði
jafnframt að okkar kerfi væri ör-
látasta styrkjakerfi sem nokkur
þjóð teldi sig hafa efni á og full-
yrti að taka þyrfti erlend lán til að
standa undir sjóðnum að öllu
leyti, ef lánastarfsemi hans yrði
ekki breytt.
Jónas Fr. Jónsson formaður
stúdentaráðs sagði að það virtist
hafa farið framhjá utan-
ríksráðherra að námslán hafi
ekki verið verðtryggð fyrir árið
1982 þannig að fjárþörf sjóðsins
núna stafaði af þvf að námslán
sem kynslóð Jóns Baldvins fékk
var að stórum hluta gjafir.
- Það stendur ekki á náms-
mönnum að ræða leiðir til að
endurgreiða námslánin, sagði
Jónas. iþ
krónur. Til að koma skipinu i
eina veiðiferð þarf útgerðin að
kaupa í það minnsta um 300
þorskígildistonn sem gerir hvorki
meira né minna en 7,5 miijónir
króna. -grh
húsi annað kvöld. Þorsteinn talar
um íslenska fugla og hefst erindi
hans kl. 20.30. Fyrirlesturinn
verður haldinn á dönsku, en ís-
lendingar eru engu að síður
aufúsugestir. Að loknu stuttu
kaffihléi að aflokinni tölu Þor-
steins verður sýnd kvikmyndin
Mývatn með ensku tali. Að-
gangur er ókeypis.
Stöð 2 á faraldsfæti
Stöð 2 leggur land undir fót í
þessum mánuði í þeim tilgangi að
kynna landsbyggðarbúum efni
stöðvarinnar og að gefa þeim
kost á að koma á framfæri kvört-
unum, hugmyndum og öðru því
sem þeim liggur helst á hjarta við
siálfan sjónvarpsstjórann, Jón
Óttar Ragnarsson. Myndatöku-
menn og fréttamenn stöðvarinn-
ar gera tíu mínútna þætti um
mannlíf á sérhverjum stað sem
staldrað verður við á, og verða
þeir sýndir á Stöðinni tveimur
dögum síðar, kl. 20.30. Á morg-
un verða stöðvarmenn á Fá-
skrúðsfirði, þaðan verður haldið
víðar um Austfirði, m.a. til Nesk-
aupstaðar, Eskifjarðar og
Reyðarfjarðar og 10. þessa mán-
aðar verður gerður stans á Egils-
stöðum.
2 SÍÐA -- ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 5. júli 198&