Þjóðviljinn - 05.07.1989, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 05.07.1989, Blaðsíða 11
LESANDI VIKUNNAR I DAG Hermann Sæmundsson nemi: Hvað ertu að gera núna, Her- mann? „Þessa dagana vinn ég sem smiður og hef verið að sannreyna hið fornkveðna, að enginn verð- ur smiður í fyrsta sinn. Ég hef nú reyndar hug á því að fara að söðla um, í orðsins fyllstu merkingu, því ég hef hug á að fara norður í Skagafjörð og leggja stund á hestamennsku.“ Hvað varstu að gera fyrir tíu árum? „Þá hef ég verið að stíga mín fyrstu skref í atvinnulífinu og starfaði sem sópari í Mjólkursamlagi Skagfirðinga með ágætum árangri, skildist mér.“ Hvað ætlaðirðu að verða þegar þú yrðir stór? „Ég hef nú eflaust eins og flest- ir haft stóra og mikla drauma og það var mikil útþrá í manni, svo flugmannsstarfið hefur ’átt ein- Myndi taka Unga fólkið og eldhússtörfin á eyðiey hvern sess í þeim draumum. Að fara um heiminn og skoða mig um, og verða flakkari." Hver er uppáhalds tónlistin þín? „Ég hlusta á margskonar tón- list, en þó mest á jass og blús. Einnig hef ég mikið dálæti á tón- list frá því 1970, það voru margir skemmtilegir tónlistarmenn þá, svo sem Bob Dylan og Peter | Green. En undanfarna daga hef ég verið að rifja upp sagnfræði Megasar, mér til mikillar ánægju, þar sem hann rifjar upp menn og | málefni á afar skemmtilegan hátt.“ Hvaða frístundagaman hef- ? urðu? „Ég hef mjög gaman af hesta- mennsku og reyni að nota þann frítíma sem ég hef til að setjast á góðan fák og ríða um fjöll og firn- indi. Og eitt það skemmtilegasta sem ég geri er að fara með nokkra hesta um óbyggðir og vera sjálf- um mér nógur í einhvern tíma. Ég hef líka mjög gaman af að lesa bækur og geri mikið af því, og svo þykir mér afar skemmtilegt að vera samvistum við gott fólk og skemmtilegt." Hvaða bók ertu að lesa núna? „Ég er að lesa tvær bækur núna, Nafn rósarinnar eftir Eco sem ég er að lesa í annað skiptið, því hún er þannig bók sem verður betri eftir því sem maður les hana oftar. Mörg atriði sem maður tekur ekki eftir strax, koma í ljós síðar. Einnig hef ég verið að lesa Grónar götur eftir Knut Hams- un, þar sem hann rifjar upp það ferli sem hann gekk í gegnum eftir síðari heimsstyrjöldina. Þeg- ar hann á gamals aldri, orðinn heyrnarlaus og kalkaður að eigin sögn, var lokaður inni á geð- veikrahæli og eftir það allt saman skrifar hann þessa bók og gerir grín að þessu á mjög háðskan og skemmtilegan hátt.“ Hvað finnst þér þægilegast að lesa í rúminu? „Ég hef eiginlega langmest gaman af því að lesa bréf frá kunningja mínum Ingva Vaff, sem býr núna í Landskrona og sendir mér reglulega bréf.“ Hvaða bók myndirðu taka með þér á eyðiey? „Það gæti nú oltið á því hvaða eyja það væri. Ef það væri t.d. Drangey, þá myndi ég taka með mér Grettissögu, en ef það væri einhver önnur myndi ég taka með mér Unga fólkið og eldhússtörf- in.“ Hver var uppáhalds barnabók- in þín? „Það var og er reyndar ennþá, Bróðir minn Ljónshjarta eftir Astrid Lindgren. Hrífandi og falleg bók.“ Hvaða dýr kanntu best við? „Af ferfætlingum kann ég best við hross. Hins vegar er mér al- mennt vel við dýr, nema mér finnst kettir hálf flærðarlegir og ekki mjög skemmtilegir." Hvað óttastu mest? „Ætli ég óttist ekki mýs mest. Annars leiði ég hugann lítið að því hvað ég óttast, enda yrði ég fljótt hálfskrýtinn ef ég væri að velta því fyrir mér daginn út og inn.“ Hefurðu alltaf kosið sama stjórnmálaflokkinn? „Já.“ Hvaða stjórnmálamann langar þig mest til að skamma? „Ég held ég eigi mjög bágt með að skamma fólk, ég geri mjög lítið af slíku. Hins vegar eru ýmsir sem hafa komist til valda á ýms- um tímum sem væri gaman að ræða við og spyrja þá um gerðir þeirra sem hafa þótt og eru vafa- samar. Til dæmis kínverska ráða- menn núna sem hafa farið ham- förum og gengið á almenningi þar í landi.“ Er eitthvað sem þú ætlar ekki að missa af í bíó? „Ég veit nú ekki hvað er í bíó núna, ég fylgist ekki voðalega vel með því, enda virðist fátt koma annað en amerískar myndir sem borgar sig alls ekki að sjá.“ Er eitthvað í sjónvarpi sem þú missir ekki af? „Já, ef það koma kvikmyndir eftir Jaques Tati, þá reyni ég alltaf að sjá þær, og eins aðrar góðar kvikmyndir. Annars horfi ég lítið á sjónvarp og reyni frekar að eyða tímanum í lestur.“ En f útvarpi? „Já, á sunnudögum er mjög góður þáttur á rás 2 sem heitir Tengja og Kristján Sigurjónsson á Akureyri er með, þjóðlagaþátt- ur og jass og blús. Einnig er á laugardögum á rás 1 fréttaskýr- ingaþáttur sem ég reyni að hlusta á.“ Hvernig myndirðu leysa efna- hagsvandann? „Þarna seturðu mig alveg á gat. Ég held að ég gæti varla leyst þennan umrædda vanda fremur en aðrir sem hafa reynt að glíma við hann. Annars veit ég ekki með þennan vanda, vandamálið er kannski það kerfi sem við búum við. Það eru allir að skara eld að sinni köku, en svo vill eng- inn missa það sem hann hefur náð þegar harðnar á dalnum. Það er kannski grundvöllur vandans og til þess að leysa þetta þarf víð- tæka hugarfarsbreytingu hjá öllum í samfélaginu.“ Hvaða kaffitegund notarðu? „Ég kaupi mest Diletto, en hins vegar finnst mér kaffið á Mokka besta kaffið sem ég fæ. Hvað borðarðu aldrei? „Ég er nú ekki matvandur maður og borða flest, allavega það sem íslenskir hafa átt að venjast í gegnum tíðina. Það er helst að ég veigri mér við að borða hafragraut, en það er þó ekkert tiltökumál. En brennivín og hákarl þykir mér herramanns- matur.“ Hvar myndirðu vilja búa ann- ars staðar en á íslandi? „Ég hef það nú fyrir mottó að það er alls staðar gott að vera þar sem maður hefur eitthvað skemmtilegt að fást við, en helst gæti ég hugsað mér að vera í Skandinavíu. Ég hef verið þar og gæti hugsað mér að vera þar frek- ar, en Island er náttúrlega ein- stakt á sinn hátt.“ Hvernig fínnst þér þægilegast að ferðast? „Fyrir utan það að ferðast á hrossum, finnst mér mjög þægi- legt að ferðast í lestum, ég tala nú ekki um ef hægt er að sitja í bjór- stofu og horfa á skóginn, sem maður sér reyndar ekki fyrir trjám, erlendis." Hverju myndirðu svara ef þú yrðir beðinn að verða forsætis- róðherra? „Ég hugsa að ég myndi koma mér í burtu áður en ég yrði kraf- inn svara, því ég er að eðlisfari frekar jákvæður maður og það gæti endað með ósköpum ef ég ætlaði að fara að svara þessari spumingu.“ Hvernig sérðu framtíðarlandið fyrir þér? „Ég sé það ekki fyrir mér.“ Hvaða spurningu langar þig til að svara að lokum? „Hvað ég ætli að gera um helg- ina.“ Hvað ætlarðu að gera um helg- ina, Hermann? „Ég ætla að fara í Hrífunes í Skaftártungum með mjög góðu fólki, félagsskap úr Háskólanum sem er Röskva, samtök félags- hyggjufólks. Við höfum alltaf farið í sumarferðir og eflt andann og haft gaman af lífinu og tilver- unni. Og þar verður eflaust lagt á ráðin, því eins og menn vita þá náðu hægri menn meirihluta í síð- ustu kosningum til stúdentaráðs, en ég hef grun um að það verði ekki lengi.“ ns þJÓÐVIUINN FYRIR50ÁRUM Stórkostlegur húsbruni í gærkvöldi. Eldur kom upp í Belgjagerðinni í norðurenda Sænska frystihússins. Tvær efri hæðir brunnu til kaldra kola. Stefán Jóhann ætlar að kljúfa Byg- gingarfélag alþýðu. KR vann Færey- inga5-1. 5.JULI miðvikudagur í elleftu viku sumars. 186 dagur ársins. Sól kemur upp í Reykjavík kl. 03.13 og sest kl. 23.50. VIÐBURÐIR Þjóðfundur settur í Reykjavík 1851. „Vérmótmælum allir.“ Þjóðhátíðar- dagurVenesúela. DAGBÓK APÓTEK Reykjavík. Helgar- og kvöldvarsla lyfj- abúöa vikuna 30. júní-6. júlí er f Garðs Apóteki og Lyfjabúöinni löunni. Fyrmef nda apótekið er opiö um helgar og annast naeturvörslu alla daga 22-9 (til 10 frídaga). Síðarnef nda apótekið er opiö á kvöldin 18-22 virka daga og á laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr- nefnda. LÖGGAN ’ Reykjavík sími 1 11 66 Kópavogur..........sími 4 12 00 Seltj.nes..........sími 1 84 55 Hafnarfj...........sími 5 11 66 Garðabær...........sími 5 11 66 Slökkvlllð og sjúkrabílar: Reykjavík..........sími 1 11 00 Kópavogur..........sími 1 11 00 Sel^.nes...........sími 1 11 00 Hafnarfj...........sími 5 11 00 Garðabær...........sími 5 11 00 LÆKNAR Læknavakt fyrir Reykjavfk, Sei- tjarnarnes og Kópavog er í Heilsu- verndarstöð Reykjavfkur alla virka daga frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi- dögumallan sólarhringinn. Vitj- anabeiðnir, símaráðleggingar og tfma- pantanir í síma 21230. Upplýsingar um lækna og lyfjaþjónustu eru gef nar í sím- svara 18888. Borgarspítalinn: Vakt virka daga kl. 8- 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis- lækni eða ná ekki til hans. Landspft- allnn: Göngudeildin eropin 20-21. Slysadelld Borgarspftalans: opin allan sólahringinn simi 696600. Hafnarfjöröur: Dagvakt, Heilsugæslan sfmi 53722. Næturvakt lækna simi 51100. Garöabær: Heilsugæslan Garðaflöt s. 656066, upplýsingar um vaktlækna s. 51100. Akureyri: Dagvakt8-17áLæknamið- stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s. 22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445. Farsími vaktlæknis 985-23221. Keflavfk: Dagvakt. Upplýsingar s. 3360. Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s. 1966. SJÚKRAHÚS Heimsóknartimar: Landspftalinn: alla daga 15-16,19-20. Borgarspftallnn: virkadaga 18.30-19.30, helgar 15-18, og eftirsamkomulagi. Fæöingardeild Landspftalans: 15-16. Feðratfmi 19.30- 20.30. Öldrunarlækningadelld Land- spftalans Hátúni 10 B. Alladaga 14-20 og eftir samkomulagi. Grensásdeild Borgarspítala: virka daga 16-19, helgar 14-19.30. Hellsuverndarstöðin við Barónsstíg opin alla daga 15-16 og 18.30-19.30. Landakotsspítalhalla daga15-16og 18.30-19. Barnadeild: heimsóknir annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. St. Jósefsspftall Hafnarfirði: alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps- spftallnn: alla daga 15-16 og 18.30-19. Vestmannaeyjum: alla virka daga 15- 16 og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness: alla daga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra- húsið Húsavfk: alladaga 15-16 og 19.30-20. ÝMISLEGT Hjálparstöð RKÍ. Neyðarathvarf fyrir ung- lingaTjarnargötu 35. Sími: 622266, opið allan sólarhringinn. Sálf ræðistöðln. Ráðgjöf i sálfræðiiegum efnum. Sími 687075. MS-félaglð Alandi 13. Opið virka daga frá kl. 8-17. Slminn er 688620. Kvennaráðgjötin Hlaðvarpanum Vestur- . götu 3. Opið þriðjudaga kl .20-22, fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22, sími 21500, símsvari. Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa fyrirsifjasþellum, s. 21500, símsvari. Upplýsingar um eyðni. Sími 622280, beint samband við lækni/hjúkrunarf ræðing á miðvikudögum kl. 18-19, annars sím- svari. Samtök um kvennaath varf, sfml 21205. Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun. Samtökin '78. Svarað er f upplýsinga- og ráðgjafarsíma félags lesbía og homma á mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21- '23. Símsvari áöðrum tfmum. Sfminn er 91-28539. Félag eldri borgara. Opið hús f Goðheim- um, Sigtúni 3, alla þriðjudaga, fimmtudaga ogsunnudagakl. 14.00. Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu: s. 27311. Rafmagnsveita bilanavakt s. 686230. Vinnuhópur um sifjaspeliamál. Sími 21260allavirkadagakl. 1-5. Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga- nema, er veitt f síma 11012 milli kl. 19.30 og 22.00 áfimmtudagskvöldum. „Oplð hús“ krabbamelnssjúkllnga Skógarhlíð 8 er „Opið hús" fyrir alla krabb- ameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á fimmtudögum kl. 17.00-19.00. Samtök áhugafólks um alnæmis vand- ann sem vilja styðja við smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra. Hringið í síma91 - 22400 alla virka daga. GENGIÐ 3. júlí 1989 kl. 9.15. Sala Bandaríkjadollar............. 58,08000 Sterlingspund................ 92,30900 Kanadadollar................. 48,75100 Dönsk króna.................. 7Í78290 Norskkróna................... 8Í25820 Sænsk króna.................. 8,88350 Finnskt mark................ 13,38250 Franskurfranki............... 8,91410 Belgiskurfranki......... 1!44500 Svissn.franki................ 35,25980 Holl. gyllini................ 26,84910 V.-þýskt mark................ 30,25870 Itölsk líra.................. 0,04179 Austurr. sch................. 4,29900 Portúg. escudo............... 0,36200 Spánskurpeseti............... 0,47890 Japansktyen.................. 0^41140 Irsktpund.................... 80,55400 KROSSGATA Lárétt: 1 kona 4 hreyfa 6trylli7hreinn9sfinn 12 klettur 14 fataefni 15 útlim 16varkáru 19 ánægju 20 kvæði 21 rausn Lóðrétt: 2 auðug 3 meiða 4 erfiða 5leyfi 7 sammála 8 hugleiðir 10 trega 11 liðugri 13form 17látbragð18eykta- mark Lausn á sfðustu krossgátu Lárétt: 1 stór4stoð6 afl7spök9inna12 rista14roð15und16 umráð19siga20riða 21 trauð Lóðrétt: 2 táp 3 raki 4 slit 5 ofn 7 særast 8 örð- ugt10nauðið11and- Iag13sár17mar18 áru Miðvikudagur 5. júlí 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.