Þjóðviljinn - 19.07.1989, Blaðsíða 9
MENNING
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Fimmta verðlaunasamkeppnin
Verðlaunasjóður íslenskra
barnabóka efnir nú í fimmta sinn
til samkeppni um handrit að
bókum fyrir börn og unglinga. Is-
lensku barnabókaverðlaunin
1990 nema 150.000 krónum, en
auk þess fær sigurvegarinn í sam-
keppni sjóðsins greidd höfundar-
laun fyrir verkið samkvæmt
samningi Rithöfundasambands
íslands og Félags íslenskra bóka-
útgefenda. Frestur til að skila
handritum í verðlaunasamkepp-
nina er til 31. nóvember 1989, en
verðlaunabókin mun koma út
vorið 1990 á vegum Vöku-
Helgafells í tengslum við afhend-
ingu verðlaunanna. Þess má geta
að ákveðinn hundraðshluti af út-
söluverði hverrar bókar rennur
til sjóðsins.
Verðlaunasjóður íslenskra
bamabóka var -stofnaður árið
1985. Meginmarkmið sjóðsins er
að stuðla að auknu framboði á
vönduðu íslensku lesefni fyrir
æsku landsins. í þessu skyni efnir
sjóðurinn árlega til sagnakeppni
og hyggst þannig örva fólk til að
skrifa bækur fyrir böm og ung-
linga. Höfundur besta handrits
að mati dómanefndar hlýtur svo
íslensku bamabókaverðlaunin
hverju sinni.
Að Verðlaunasjóði íslenskra
bamabóka standa bókaforlagið
Vaka-Helgafell, fjölskylda Ár-
manns Kr. Einarssonar rithöf-
undar, Bamabókaráðið (íslands-
deild IBBY-samtakanna) og
Bamavinafélagið Sumargjöf.
Formaður stjómar Verðlauna-
sióðs íslenskra bamabóka er
Ólafur Ragnarsson bókaútgef-
andi.
Þess má geta að £ öll fjögur
skiptin sem Islensku bamabóka-
verðlaunin hafa verið veitt hafa
verðlaunabækumar jafnframt
verið fyrstu bækur höfúndanna.
Árið 1986 hlaut Guðmundur ól-
afsson verðlaunin fyrir bók sína
Emil og Skundi, Kristín
Steinsdóttir árið 1987 fyrir bók-
ina Franskbrauð með sultu,
Kristín Loftsdóttir árið 1988 fyrir
bókina Fugl í búri og nú í vor
hlaut Heiður Baldursdóttir verð-
launin fyrir bók sína Álagadalur-
inn.
Væntanlegum þátttakendum í
samkeppninni um íslensku
bamabókaverðlaunin 1990 skal
bent á að ekki eru sett nein tak-
mörk varðandi lengd sagnanna
og einungis við það miðað að efn-
ið hæfi bömum og unglingum.
Sögumar skulu merktar dul-
nefni en rétt nafn höfundar fylgi í
lokuðu umslagi. Óskað er eftir að
handrit séu send í ábyrgðarpósti
og utanáskriftin er: Verðlauna-
sjóður íslenskra bamabóka,
Vaka-Helgafell, Síðumúla 29,
108 Reykjavík.
Vesturland
Sumarferð í Fiatey
Sumarferð kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á Vesturlandi verðurfar-
in helgina 12. til 13. ágúst. Farið verður út í Flatey á Breiðafirði kl. 13 á
laugardag frá Stykkishólmi og tjaldað þar. Möguleiki á svefnpokaplássi.
Þátttaka tilkynnist fyrir 26. júlí til eftirtaldra aðila:
Akranesi: Þorbjörg s. 11608, Borgamesi: Bima s. 71544, Grundarfirði:
Ingi Hans s. 86811, Hellissandi: Skúli s. 66619.
Stjórn kjördæmlsráös
AUGLÝSINGAR
AUGLÝSINGAR
AUGLÝSINGAR
Auglýsing
Frá sjávarútvegsráðuneytinu
um iausar stöður
veiðieftirlitsmanna
Sjávarútvegsráðuneytið óskar eftir að ráða tvo
veiðieftirlitsmenn. Annar veiðieftirlitsmaðurinn
verður staðsettur á Akureyri. Gert er ráð fyrir að
hinn eftirlitsmaðurinn fái þjálfun við að síga um
borð í veiðiskip úr þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Umsækjendur sem til greina koma þurfa að
uppfylla eftirfarandi skilyrði:
1. Hafa lokið prófi frá Stýrimannaskólanum,
Tækniskóla íslands (Utgerðartækni) eða
hafa sambærilega menntun.
2. Hafa þekkingu á öllum algengustu veiðum
og veiðarfærum.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf berist ráðuneytinu fyrir 1.
ágúst nk.
Sjávarútvegsráðuneytið
5. júlí 1989
pfÓÐVILIINN
Tíniinn
F 68 63 00
BlaðburÓur er Æk
BESTA TRIMMIÐ
og borgar sigL
£v\
BLAÐBERAR ÓSKAST VantST
blaðbera
víðs
vegar
um
bæinn
(UÓDVIUINN
Hafðu samband við okkur
þlOÐVILJINN
Sióumúla 6
0 6813 33
Auglýsing um legu 220
kv háspennulínu frá
Búrfellsvirkjun að
Hamranesi við
Hafnarfjörð
Samkvæmt 17. og 18. gr. skipulagslaga nr. 19/
1964 er hérmeð lýst eftir athugasemdum við
tillögu um legu 220 kv háspennulínu frá Búr-
fellsvirkjun að Hamranesi við Hafnarfjörð.
Fyrirhugað línustæði er um eftirfarandi 12
sveitarfélög.
Tillaga um legu línunnar liggur frammi almenn-
ingi til sýnis frá 19. júlí- 30. ágúst nk. á auglýst-
um skrifstofutíma.
Sýningarstaðir eru:
1. Gnúpverjahreppur,
Félagsheimilinu Árnesi.
2. Landmannahreppur,
Skarði.
3. Skeiðahreppur,
Skeiðalaug, Brautarholti.
4. Grímsneshreppur,
Hreppsskrifstofur, Félagsheimilinu Borg.
5. Grafningshreppur,
Hr. oddviti Ársæll Hannesson, Stóra-Hálsi.
6. Ölfushreppur,
Hreppsskrifstofur, Selvogsbraut 2, Þor-
lákshöfn.
7. Hveragerðisbær,
Bæjarskrifstofur, Hverahlíð 24.
8. Mosfellsbær,
Bæjarskrifstofur, Hlégarði.
9. Kópavogur,
Bæjarskrifstofur, Félagsheimilinu, Fann-
borg 2.
10. Reykjavík,
Borgarskipulag, Borgartúni 3.
11. Garðabær,
Bæjarskrifstofur, Sveinatungu við Vífils-
staðaveg.
12. Hafnarfjörður,
Bæjarskrifstofur, Strandgötu 4.
Athugasemdum við skipulagstillöguna skal
skila á framangreindum stöðum fyrir 14. sept-
ember 1989 og skulu þær vera skriflegar.
Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins
frests teljast samþykkir tillögunni.
Reykjavík í júlí 1989
Skipulagsstjóri ríkisins
uCSss. Alþýóubankinn hf
Fundarboð
Hluthafafundur í Alþýðubankanum hf. verður
haldinn í Sóknarsalnum, Skipholti 50A, Reykja-
vík, miðvikudaginn 26. júlí nk. og hefst kl. 20.
Dagskrá fundarins verður sem hér segir:
1. Tillaga bankaráðs um staðfestingu hluthafa-
fundar á samningi formanns bankaráðs við
viðskiptaráðherra um kaup bankans á 1/3
hluta hlutabréfa ríkissjóðs í Útvegsbanka (s-
lands hf. og að rekstur Alþýðubankans hf.,
Verslunarbanka íslands hf. og Iðnaðar-
banka íslands hf. verði sameinaður í einn
banka ásamt Útvegsbanka íslands fyrir 1.
júlí 1990. Jafnframt verði bankaráði veitt hei-
mild til að vinna að öllum þáttum er varða
efndir samningsins.
2. Tillaga um heimild til bankaráðs um nýtt hlut-
afjárútboð.
3. önnur mál löglega fram borin.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hlut-
höfum eða umboðsmönnum þeirra í Alþýðu-
bankanum, Laugavegi 31, Reykjavík á venju-
legum afgreiðslutíma bankans frá og með 21.
júlí nk.
Viku fyrir fundinn mun samningurinn ásamt til-
lögum þeim sem fyrir fundinum liggja verða
hluthöfum til sýnis á sama stað.
f.h. bankaráðs Alþýðubankans hf.
/
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
Raf mangsveitu Reykjavíkur óskar eftir tilboðum
í byggingu 2. áfanga aðveitustöðvar 7 á
Hnoðraholti í Kópavogi.
Húsið verður steinsteypt á tveimur hæðum,
klætt og einangrað að utan. Skila þarf byggingu
fullfrágenginni svo og lóð. Stærð byggingar er
372 m2 og 3355 m3. Búið er að grafa fyrir grunni
hússins og fylla í aðkeyrslur og plön.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík gegn kr. 20.000 skila-
tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað
þriðjudaginn 15. ágúst kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800