Þjóðviljinn - 19.07.1989, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 19.07.1989, Blaðsíða 12
Aldís Finnsson: Jú af og til, en ekki í Lottó. Bjarni Þór Ólafsson, matreiðslumaður: Aldrei, kanski einu sinni eða tvisvar. Því síður að ég taki þátt í _ getraununum. Theódór Ólafsson, eliilífeyrisþegi: Já ég spila í Lottó þegar ég man eftir. Eg hef reynt að fá þann stóra en því miður ekki tekist. Jú svo er ég einstaka sinnum með í getraununum - aðallega til að vera með og styrkja gott málefni. Magdalena Ólafsdóttir, afgreiðslumaður og húsmóð- ir: Ég reyni í lengstu lög að kom- ast hjá því að freista gæfunnar í happadrættum. Það er svo mikið af þessu að maður færi með mánaðarlaunin ef maður ætlaði að kaupa alla þá miða sem ber- ast innum bréfalúguna. Nei ég hef aldrei verið með í Lottó og því síður að ég hafi keypt skafmiða. ■"SPURNINGIN*" Spilar þú einhverntím- ann í happdrættum? Svanhildur Benjamínsdótt- lr, bankastarfsmaður: Já - Happaþrennum af og til. Jú reyndar Lottó endrum og sinn- um. Ég hef reyndar aldrei fengið þann stóra, mest þrjá rétta. þiómnuiNN Miðvikudagur 19. júlí 1989 124. tölublað 54. örgangur SÍMI 681333 Á KVÖLDIN 681348 ÁLAUGARDÖGUM 681663 Kópavogshœli Perlan sýndi tvö leikrit á Kópavogshæli í gær, tveir af leikurunum í Sólin og vindurinn, einn vindanna í baksýn og í forgrunninn Sólin sjálf. Myndir - Jim Smart. sýnd gamanmyndin Beint á ská. Leikfélagið Loki endurtekur sýn- ingu á Árstíðunum kl. 17 og kl. 20 leikur hljómsveitin Október fyrir dansi. Sumarhátíðinni lýkur á laugar- daginn, en þá skemmtir Valgeir Guðjónsson hátíðargestum frá kl. 16. Það verður byrjað að kynda grillið kl. 17 og klukku- stund síðar verður matur, auk þess sem nikkarinn og Heima- kórinn skemmta gestum. Um kvöldið verður síðan dansleikur í Digranesi, húsið verður opnað kl. 20, en dansinn stendur frá kl. níu til eitt um nóttina. Sundlaug Kópavogshælis verð- ur opin til frjálsra afnota fyrir þátttakendur frá 9-12 og 17-21 alla hátíðardagana og Stræti- svagnar Kópavogs sjá um akstur á alla dagskrárliði utan lóðar Kópavogshælis, nema í lengri ferðir utan höfuðborgarsvæðis- ins LG j ^ fjí- Sumarhátíð við Voginn Perlan sýndi á hátíðinni ígær. Gönguferðir, sigling, leikur, dans ogfleira á dagskrá fram til laugardagskvölds Nú stendur fyrsta Sumarhátíð Kópavogshælis sem hæst, en hátíðin hófst á sunnudaginn var og stendur til laugardagskvölds. Leikhópurinn Perlan lauk dag- skrá hátíðarinnar í gær og sýndi tvö verk, sem hópurinn fór með í leikferð til Bandaríkjanna í síð- asta mánuði. Ekki var annað að sjá en gestir á hátíðinni kynnu vel að meta Sólina og vindinn og Síð- asta blómið, létu þeir rok og rign- ingarsudda ekkert á sig fá og klöppuðu Perlunni lof í lófa. Hugmyndin að Sumarhátíð- inni kviknaði þegar ljóst var að Vinnustofur Kópavogshælis yrðu lokaðar í þrjár vikur í sparnaðar- skyni, - en á vinnustofumar sækir meginþorri heimilisfólks stofn- unarinnar vinnu og þjálfun. Hef- ur frumkvæði og undirbúningur hátíðarinnar að mestu leyti verið í höndum þeirra þroskaþjálfa sem sjá um tómstundir á heimil- inu og er dagskráin mjög fjöl- breytt, og miðast að sjálfsögðu við sem almennasta þátttöku fatl- aðra. Með þessu hátíðahaldi vill heimilisfólk og starfsfólk stofn- unarinnar gera sér dagamun og auka á fjölbreytni þeirra frístund- atilboða sem fötluðum bjóðast. Jafnframt er markmið hátíðar- >r'. innar að vekja athygli á því að þrátt fyrir umræðu og réttmæti þeirrar stefnu að leggja niður stórar stofnanir, má aldrei gleymast að á slíkum stofnunum býr fólk sem þarf að hugsa um, þar til önnur og betri úrræði bjóð- ast. í dag hefst dagskrá Sumarhá- tíðarinnar með siglingu á Fos- svogi og verður lagt upp frá Naut- hólsvík klukkan 10. Klukkan el- lefu verða útileikir og bátaleikir í sundlaug, klukkan 13 starfs- mannagrín og fegurðarsam- keppni og klukkan 14 gönguferð- ir, önnur í Hlíðargarð, en hin í Öskjuhlíð og heita lækinn. Á morgun verður Boccia sveitak- eppni í íþróttahúsinu Digranesi kl. 10, krikket frisbí og bolta- leikir kl. 11, sigling frá Nauthól- svík kl. 13, starfsmannagrín, hjólastólakeppni og fleira kl. 14, skemmtiatriði kl. 15 og kl. 15:30 sýnir Brúðubíllinn. Um kvöldið verður síðan kvöldvaka með varðeldi, leikjum og söng í um- sjón skáta. Frjálsar íþróttir á Kópavogs- velli verða á föstudaginn kl. 10, og kl. 13 verður lagt upp í 5-6 tíma veiði- og gönguferð. Þeim sem ekki lfeggja í veiðiferðina gefst kostur á kvikmyndasýningu í Háskólabíói kl. 14, og verður þar Áhorfendur létu rigningarsuddann ekkert á sig fá. Þegar blómin fara aftur að vaxa kvikna tilfinningarnar að nýju. Sýning Perlunnar á Síðasta blóminu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.