Þjóðviljinn - 28.10.1989, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 28.10.1989, Blaðsíða 16
 *w*t Mf HÚSBfi. WW Ƨɧ W BúSBHff BÚSBHB':A '■ j WSBBEHHúSBfífHf Hl/ÍbhBH bÍsBRBH HÚSBfi HBSBH0 WSBHfB^fflS0}BBS /%3¥Æ$isáÉ X*&liaSNR'ft' Nýr valkostur við kaup og sölu notaðia íbúða Þann 15. nóvember n.k. taka gildi lög um húsbréfaviðskipti á íslandi. í upphafi mun hið nýja húsbréfakerfi m.a. vera háð eftirfarandi skilyrðum: Fyrstu sex mánuðina fá einungis umsækjendur um húsnæðislán fyrir 15. mars 1989 afgreiðslu. Frá og með 15. nóvember fá þeir einir afgreiðslu á húsbréfum sem lagt hafa inn umsóknir um lán hjá Húsnæðisstofnun ríkisins fyrir 15. mars 1989 og eiga lánsrétt. Er öllum umsækjendum fyrir þann tilskilda tíma frjálst að velja milli húsbréfa og húsnæðisláns. Eftir 15. maí 1990 verður húsbréfakerfið öllum opið. Einungis viðskipti með notaðar íbúðir. Fyrsta árið verður eingöngu heimilt að skipta á húsbréfum og fasteignaveðbréfum vegna viðskipta með notaðar íbúðir. Gildir aðeins um íbúðakaup eftir 15. nóvember 1989. Ekki verður skipt á húsbréfum fyrir fasteigna- veðbréf vegna íbúðarkaupa sem eiga sér stað fyrir gildistöku laganna 15. nóvember 1989. Húsbréf eru ekki hefðbundin lán. ( húsbréfakerfinu fær íbúðarkaupandi ekki hefðbundið lán hjá Húsnæðisstofnun ríkisins. Skipt er á fasteignaveðbréfi, sem íbúðarkaupandinn gefur út fyrir allt að 65% af matsverði íbúðar, fyrir húsbréf. Matsverð íbúðar er kaupverð hennar, en þó aldrei hærra en brunabótamatið. Húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar ríkisins innheimtir afborganir af fasteignaveðbréfunum. Samþykki Húsnæðisstofnunar fyrir skuldabréfaskiptum er skilyrði. Það er skilyrði fýrir skuldabréfaviðskiptum, að greiðslugeta viðkomandi íbúðarkaupanda og veðhæfni íbúðar hafi verið athuguð áður en íbúðarkaup eiga sér stað og að húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar samþykki íbúðarkaupin. Húsbréf nýtast íbúðarseljanda á margan hátt. Þau geta gengið áfram í næstu íbúðarkaup, þau má selja á markaði eða eiga sem sparnað. c££] HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS LJ HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24-108 REYKJAVÍK - SÍMI • 696900

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.