Þjóðviljinn - 13.01.1990, Page 2
FRETTIR
Stöð 2
Samdráttur og óvissa
Fjórir innlendir þættir hœtta entveir koma í
staðinn. Björn G. Björnsson: Óvissuástand
vegna nýrra eigenda
Það eru alltaf einhverjar
breytingar á dagskrá frá því
sem auglýst er í Sjónvarpsvísi,
enda er hann unninn tvo mánuði
fram í tímann, en þættir Jóns Ótt-
ars hafa fallið út einfaldlega
vegna anna hjá sjónvarpsstjóran-
um að undanförnu,“ sagði Björn
G. Björnsson, dagskrárgerðar-
stjóri Stöðvar 2, aðspurður um
hvers vegna nokkrir innlendir
þættir hefðu faliið úr dagskránni
að undanförnu.
Björn sagði að þarsem 30
mönnum hefði verið sagt upp
störfum hjá fyrirtækinu, flestum
úr dagskrárgerð, stefndi í sam-
drátt á slíku efni. „En það ríkir
auðvitað ákveðið óvissuástand
um þessar mundir því ekki liggur
fyrir stefna nýrra eigenda. Við
höfum því úr takmörkuðu fé að
spila, rétt einsog alla tíð,“ sagði
Björn.
Óvenju miklar breytingar eru á
innlendri dagskrá Stöðvar 2 um
þessar mundir. Fjórir þættir hafa
verið teknir af dagskrá; Áfangar,
Kviksjá, Kynin kljást og Hringið-
an, en í þeirra stað koma tveir
þættir í febrúar, skemmtiþættirn-
ir Það kemur í ljós og Borð fyrir
tvo sem reyndar er í endur-
skoðun. Björn sagði nýju þættina
vera léttari og hæfa því betur í
dimmasta skammdeginu og sagði
slíkar breytingar hafa verið gerð-
ar áður á þessum tíma árs. Þessir
tveir nýju þættir eru auglýstir í
Sjónvarpsvísi fyrir janúarmánuð,
en áskrifendur þurfa að bíða fram
í febrúar. -þóm
Þættir Jóns Óttars Ragnarssonar sjónvarpsstjóra hafa fallið út úr dagskrá
vegna anna sjónvarpsstjórans við að bjarga eignarhlut sínum í Stöðinni. Þessi
mynd af útnefningu Jóns Óttars sem markaðsmanns ársins á Norðurlöndum
birtist í síðasta Sjónvarpsvísi Stöðvar 2 en óvenjumikið hefur verið um breyting-
ar á þeirri dagskrá sem þar er auglýst.
Fiskvinnsla
Góðærið ekki til launamanna
Prátt fyrir að sjaldan eða aldrei hafi veriðflutt út eins mikið affiski né
fengist jafn mikiðfyrir hann og á síðasta ári telja talsmennfiskvinnsl-
unnar ekkert svigrúm til fiskverðs- né launahœkkana
Talsmenn fiskvinnslunnar telja
hvorki grundvöll fyrir teljandi
hækkun fiskverðs né hækkun
launa til fiskvinnslufólks þótt
góðæri hafí ríkt í fískútflutningi á
síðasta ári, bæði hjá Sölustofnun
hraðfrystihúsanna og Sjávaraf-
urðadeild Sambandsins.
Að sögn Friðriks Pálssonar
forstjóra Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna, sem með tveimur
undantekningum hefur aldrei
flutt út meiri fisk né fengið meira
fyrir hann en á síðasta ári frá því
árið 1942, hefur góðæri í fiskút-
flutningi ekkert með afkomu
fiskvinnslunnar að gera og þyrfti
ekki endilega að koma fram í
rekstri þeirra. Friðrik sagði fisk-
vinnsluna ekki vera í stakk búna
eftir stórfelld tapár til að greiða
hærra fiskverð né hækka laun
fiskvinnslufólks. Fyrst þyrfti að
koma rekstri vinnslunnar í viðun-
andi horf og það þýðir að hans
mati að hún skili í það minnsta
7% hagnaði á ári. Þá hafi tap-
reksturinn orðið til þess að við-
haldi húsanna hafi meira eða
minna verið frestað sem og
nauðsynlegri fjárfestingu.
Arnar Sigurmundsson formað-
ur Samtaka fiskvinnslustöðva
sagði að aflasamdrátturinn á
þessu ári breytti núllstöðu fisk-
vinnslufyrirtækja í mínus og því
segði það sig sjálft að svigrúm til
launahækkana væri lítið sem ekk-
ert. Hið sama gilti um fiskverðið.
-grh
Loðna
Mokveiði
á miðunum
Heildaraflinnfrá ára-
mótum tœp 69 þús-
und tonn
Mokveiði var á loðnumiðunum
út af Gerpi í fyrrinótt en þá fengu
40 skip alls 28.380 tonn. Þá til-
kynnti einn bátur um 600 tonna
afla í gær. Heildaraflinn frá ára-
mótum er því orðinn tæp 69 þús-
und tonn.
Að sögn Ástráðar Ingvars-
sonar hjá Loðnunefnd var loðnan
í smáum og dreifðum torfum á
miðunum og fékk aðeins eitt skip
550 tonna kast en önnur skip
fengu sinn afla í mörgum köstum.
Engu að síður segja sjómenn
loðnuna vera feita og góða.
í gær var spáð stormi á miðun-
um og því ekki líklegt ef spáin
hefur gengið eftir að veiðiveður
hafi verið á miðunum í nótt. Þau
eru um 45-50 sjómílur út af Gerpi
og því um 5-6 tíma stím fyrir flot-
ann frá Austfjarðahöfnum á mið-
in.
-grh
Leiðrétting
Mu mistök urðu í Nýju Helg-
arblaði í gær að myndir víxluðust
á milli greina. Þannig var að
mynd af Má Guðmundssyni efna-
hagsráðgjafa fjármálaráðherra
birtist í grein eftir Finnboga Jóns-
son framkvæmdastjóra Sxldar-
vinnslunnar í Neskaupstað en
mynd af Finnboga í grein eftir
Má. Þeir eru báðir beðnir vel-
virðingar á þessum mistökum.
Unglingadeild LH
Þú ert í blóma
Irfsins, fíflið þitt
Nýtt leikritfrumsýnt íHafnarfirði íkvöld. Davíð PórJónsson: Sýn-
ingin er hönnuð með það í huga að hœgt sé að ferðast með hana
f aftari röðinni standa Þorsteinn Hauksson tónskáld, Birgitta Spur frá Listasafni
Sigurjóns, Bergljót Jónsdóttir frá Islenskri tónverkamiðstöð, Þorkell Sigur-
björnsson, Kolbeinn Bjarnason og John Speight tónskáld. Fyrir framan þau
situr strengjakvartettinn.
Kvöldstund
með tónskáldi
Enn stendur Listasafn Sigur-
jóns Olafssonar fyrir nýjung í
listalífí höfuðborgarinnar, að
þessu sinni í samvinnu við Is-
lenska tónverkamiðstöð. Nýjung-
ina kalla þau „Kvöldstund með
tónskáldi“ og verður hin fyrsta á
þriðjudaginn kemur, 16. janúar
kl. 20.30 í Listasafní Sigurjóns á
Laugarnestanga.
Á þessum kvöldstundum
„Mynd“ eftir
Gunnar Öm
Mynd janúarmánaðar í Lista-
safni íslands er eftir Gunnar Örn
Gunnarsson myndlistarmann,
unnin árið 1976 og heitir Mynd.
Leiðsögnin mynd mánaðarins er
ókeypis, fer fram í fylgd sérfræð-
ings fimmtudaga kl. 13:30-13:45
og er safnast saman í anddyri.
munu tónskáldin koma fram
sjálf, kynna eigin verk og leyfa
áhugafólki að skyggnast inn í
tónsmíðaheim sinn. Þau segja frá
einstökum verkum og tímabilum
á ferli sínum og leika tóndæmi til
skýringar ásamt öðrum tónlistar-
mönnum.
Fyrsta kvöldstundin er með
Þorkeli Sigurbjörnssyni. Hann er
afkastamikið tónskáld, hefur auk
þess verið kennari allflestra tón-
skálda og tónlistarmanna af yngri
kynslóðinni og vinsæll kynnir
nútímatónlistar í útvarpi.
Strengjakvartett skipaður ímu
Þöll Jónsdóttur, Guðrúnu Árna-
dóttur, Móeiði Önnu Sigurðar-
dóttur og Þórhildi Höllu Jóns-
dóttur flytur Kaupmannahafnar-
kvartett Þorkels og Kolbeinn
Bjarnason flautuleikari flytur
verkið Kalais. Fleiri verk verða
flutt af hljómböndum.
SA
Þú ert í blóma lífsins, fíflið þitt,
heitir nýtt leikrit, sem Unglinga-
deild Leikfélags Hafnarfjarðar
frumsýnir í Bæjarbíói í Hafnar-
firði í kvöld. Leikritið er eftir
leikendur og leikstjóra þeirra,
Davíð Þór Jónsson og er önnur
sýning Unglingadeildarinnar, en
hún var stofnuð í fyrra og setti þá
upp leikritið Þetta er allt vitleysa
Snjólfur undir leikstjórn Guðjóns
Sigvaldasonar.
Að sögn Davíðs Þórs þótti til-
raunin með Snjólf lánast svo vel
að ákveðið var að gera slíkar sýn-
ingar að árvissum viðburði, enda
þjónuðu þær bæði þeim tilgangi
að vekja áhuga unglinganna á
leiklist og þjálfa upp væntanlega
félagsmenn í Leikfélagi Hafnar-
fjarðar sem nýlega var endur-
reist.
í Þú ert í blóma lífsins, fíflið
þitt er fylgst með Lillu frá getnaði
til stúdentsprófs. Lilla er svosem
ekki allt í öllu, hún er ósköp
venjuleg stelpa, sem þrammar
þessa venjulegu leið frá fæðingar-
deild til stúdentsprófs. Inn í sögu
hennar fléttast sögur af félögum
hennar og bekkjarsystkinum,
sem eru fulltrúar ákveðinna við-
horfa eða hópa, það er staldrað
við í skólastofum, spurninga-
tíma, fermingarveislu og skóla-
ferðalagi, auk þess sem fegurðar-
drottning og ýmis stórmenni
koma við sögu.
Kynlíf
Símadónar á kreiki
Símadónar hafa að undanförnu
hringt í fólk og sagst vera með
kynlífskönnun á vegum kynfræð-
slutímaritsins Bleikt & Blátt.
Tímaritið er hinsvegar ekki með
neina slíka könnun í gangi og hef-
ur ekki í hyggju að gera slíka
könnun.
f fréttatilkynningu frá Jónu
Ingibjörgu Jónsdóttur ritstjóra
tímaritsins er fólk varað við þess-
um upphringingum og sagt að til
séu aðrar betri og faglegri aðferð-
ir til að standa að slíkri könnun en
að gera það símleiðis eða bréf-
lega.
- Við Steinunn Knútsdóttir,
sem bæði erum félagar í Leikfé-
lagi Hafnarfjarðar, byrjuðum á
að vera með fjögurra vikna nám-
skeið í október í fyrra, segir Da-
víð Þór. - Þá stóð til að setja upp
leikrit, sem væri þegar tilbúið, en
við fundum ekkert sem okkur
leist á. Því varð úr að við spunn-
um þetta verk út frá ákveðnum
hugmyndum sem ég var með um
farsakenndan leik um þjóðfé-
lagið og þá fullorðnu séð frá sjón-
armiði krakkanna. Það sem ég
var með í huga var að sýna þetta
tvöfalda siðgæði sem þau búa við,
þau eiga til að mynda að hegða
sér eins og fullorðið fólk, en
mega þó ekki það sem fullorðn-
um leyfist, þeim er bannað að
horfa á klámmyndir en er hins
vegar frjálst að horfa á Rambó og
aðrar ofbeldismyndir það sem
blóðið flýtur í stríðum straumum.
- Krakkarnir unnu síðan út frá
þessum hugmyndum, mótuðu
senur og persónur með spuna.
Við byrjuðum á því á seinni hluta
námskeiðsins, síðan fóru tvær
vikur í að bæta við því sem vant-
aði og ganga frá handriti. Útkom-
an er þessi rúmlega klukkustund-
ar langa sýning, sem ég stjórna
eins og herforingi, - við höfum
æft af fullum krafti síðan á milli
jóla og nýárs.
- Krakkarnir hafa sjálfir unnið
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. janúar 1990