Þjóðviljinn - 23.01.1990, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 23.01.1990, Qupperneq 1
Þriðjudagur 23. janúar 1990 15. tölublað 55. órgangur Samningar Tiygging ræður úrslitum Vonast eftirað samið verðifyrirhelgi. Rœtt við ríkisstjórn o.fl. ídag. KröfurASI ekki enn Ijósar, en Ijóstað trygging verðursettáoddinn. Búist við 3% launahœkkun á árinu og 5% verðbólgu Ígær sátu fulltrúar Alþýðusam- bands íslands og vinnuveitenda á fundi í húsi sáttasemjara og stefndu markvisst að því að ganga frá drögum að samningi fyrir kvöldið þannig að hægt verði að ræða einstök atriði við ríkis- stjórn, banka og Stéttarsamband bænda í dag. Takist það er vonast til að hægt verði að ganga frá samningi um eða eftir næstu helgi. Þótt samningsaðilar sameinist um slíkan ramma eru enn margir óhnýttir endar varðandi samn- ingsgerðina. í fyrsta lagi hefur ASI ekki enn sett fram launa- kröfur sínar. Þá er ljóst að ef sam- ið verður um litlar launahækkan- ir einsog allt virðist benda til, verður krafan um einhverskonar kaupmáttartryggingu sett á oddinn við samningsgerðina, en atvinnurekendur hafa verið mjög tregir til viðræðna um það. Rætt er um fjórar leiðir til að tryggja kaupmátt. í fyrsta lagi beina verðtryggingu launa með vísitölubindingu, en mikil and- staða er við það meðal atvinnu- rekenda. í öðru lagi rauð §trik þannig að kaup hækki ef verðlag fer yfir tiltekin mörk. í þriðja lagi önnur útfærsla á rauðum strik- um, þar sem launanefnd ákvarði launabreytingar að gefnum for- sendum. í fjórða lagi að samning- ar verði uppsegjanlegir með stuttum fyrirvara ef verðlag fer fram úr gefnum viðmiðunar- mörkum. Forsetar ASÍ, Örn Friðriksson, Ragna Bergmann og Ásmundur Stefánsson ræða málin við upphaf fundar í gær. Mynd: Jim Smart. „Það sem enn er óunnið er að tryggja að samningar fái þann framgang sem vænst er. Vanda- málið er alltaf að þrátt fyrir að skrifað verði undir vitræna kjara- samninga haldi áfram óstjórn efnahagsmála þannig að samn- ingurinn verði keyrður út í móa,“ sagði Einar Oddur Kristjánsson formaður VSÍ fyrir fundinn í gær. Hann taldi mjög mikilvægt að hægt yrði að ganga á fund fyrr- greindra aðila í dag. Samningaviðræðum hefur ver- ið skipt upp í átta starfshópa þar- sem einkum hefur verið rætt um kaupmáttartryggingu, lífeyris- mál, vaxtamál og félagsleg atriði. Hópurinn sem ræðir lífeyrismál fór á fund Guðmundar Bjarna- sonar heilbrigðisráðherra í gær en ráðherra tók ekki undir til- lögur þeirra, enda ganga þær ým- ist út á hærri útgjöld eða lægri tekjur. Það veltur því á viðræðum við ríkisstjórn, bændur og banka- stjóra hvort hægt verður að semja á næstu dögum. Ekki er ólíklegt að viðkomandi samningur muni fela í sér 3% launahækkun á ár- inu og færi verðbólga þá niður í allt að 5% og kaupmáttur yrði svipaður og hann var í desember sl. -þóm Sjá síðu 3 Húshitun Landsvirkjun lækkar afslátt Stjórn Landsvirkjunar ákvað í síðustu viku að lœkka afsláttáorku til Rafmagnsveitna ríkisins um 50%. RARIKfékk 74 miljónir íafslátt í fyrra. Jóhann Már Maríusson: Rafmagn enn ódýrara en olía Stjórn Landsvirkjunar ákvað á fundi sínum á fimmtudaginn í síðustu viku að lækka afslátt á raforku til húshitunar sem Raf- magnsveitur ríkisins hafa fengið, úr 31 eyri á kílóvattstund í 15,5 aura. Guðmundur Guðmunds- son hjá RARIK sagði í gær að Landsvirkjun hefði ekki enn til- kynnt þetta formlega til RARIK þannig að hann vildi ekki tjá sig um málið. Á síðasta ári fékk RARIK samtals 74 miljóna afslátt á orku til húshitunar. Jóhann Már Mar- íusson hjá Landsvirkjun sagði Þjóðviljanum að upphaflega hefði Landsvirkjun veitt þennan Fatlaðir Neyðarástand í húsnæðismálum Við krefjumst þess að bætt verði úr husnæðismálum mikið fatlaðs fólks í landinu,“ sagði Helgi Hróðmarsson starfs- maður Öryrkjabandalags Islands og Þroskahjálpar, en þessi samtök hafa sent Steingrími Hermannssyni forsætisráðherra bréf þar sem þess er krafist að ríkisstjórnin gefi út yfirlýsingu þess efnis að við fjárlagagerð fyrir árið 1991 verði tryggt fjár- magn tii þess að ráða bót á vanda þeirra fötluðu einstaklinga sem eru í brýnastri þörf fyrir húsnæði og þjónustu, og að það verði gert í samráði við hagsmunasamtök fatlaðra. Helgi sagöi að sl. vor heföi ver- ið gerð könnun á húsnæðismálum fatlaðra og þá hefði komið í ljós að 108 mikið fatlaðir einstak- lingar bjuggu við mjög slæmt ástand í húsnæðismálum. í fram- haldi af því ákváðu samtök fatl- aðra að gera átak í málinu og dag- ur fatlaðra, 13. október sl. var m.a. liður í því, e'n þá var farið fram á úrbætur í þessum málum. „Stjórnvöld hafa rætt um fram- kvæmdaáætlun sem taki til allra þátta sem varða fatlaða en því miður hafa húsnæðismálin ekki verið tekin út úr sem sérstakt neyðarmál, en þar teljum við að skórinn kreppi einna verst,“ sagði Helgi. Helgi sagði að samtökin hefðu haldið fund með fulltrúum allra stjórnmálaflokka og farið fram á samstöðu flokkanna um þessi mál. „Þessu erindi okkar var vel tekið og talað um að það bæri að leysa þessi mál,“ sagði Helgi að lokum. -Sáf afslátt til þess að raforka yrði samkeppnisfær sem orkugjafi við olíuna. Hrein viðskiptaleg sjón- armið hefðu ráðið þar ferðinni. Landsvirkjun hefði í huga á hverjum tíma að rafmagnið kæmi betur út en aðrir orkugjafar og þrátt fyrir lækkun afsláttarins stæði rafmagnið betur að vígi en olían. í raun gæti Landsvirkjun fellt afsláttinn niður að fullu og samt væri ódýrara að kynda með raf- magni en olíu, sagði Jóhann Már. í raun væri munurinn á samsvar- andi orku frá olíu og rafmagni 58 aurar. Ákvörðun Landsvirkjunar mun hækka húshitunarkostnað hjá þeim sem kynda með raf- magni. Ef miðað er við 20 þúsund kílóvattstunda notkun á ári hækkar orkureikningurinn um 3- 4.000 krónur. „Það stendur ekki til að leggja neinar manndráps- klyfjar á fólk,“ sagði Jóhann Már. Landsvirkjun reyndi að halda olíu fyrir utan með eins lágu verði á raforku og hægt væri. -hmp Azerbaijan Sambands- slitum hótað |% ingið í Azerbaijan hótaði í 10 gær að segja Sovétlýðveldið Azerbaijan úr Sovétríkjunum nema neyðarlög yrðu afnumin. Þingið gaf sovésku stjórninni tveggja sólarhinga frest til að kalla burt herlið sem var sent til Azerbaijan eftir að til óeirða kom í höfuðborginni Baku fyrir viku. Þingið ætlar að boða til kosninga um sambandsslit við Sovétríkin ef sovéska stjórnin verður ekki við þessum kröfum. Sovéski herinn greip til skotvopna á laug- ardag til að brjótast í gegnum vegatálma fyrir utan Baku. Stjórnvöld segja að færri en hundrað manns hafi fallið en leið- togar Azera segja að allt að eitt þúsund manns hafi látið lífið í árás hersins. Nær ein miljón manns safnað- ist saman í Baku í gær við fjöl- daútför sextíu fórnarlamba átak- anna þrátt fyrir útgöngubann í borginni. Tass fréttastofan sovéska skýrði frá því að fjölmennir mót- mælafundir hefðu líka verið haldnir í mörgum öðrum borgum og bæjum í Azerbaijan og nokkur þúsund Azerar tóku þátt í mót- mælaaðgerðum í Moskvu í gær. Reuter/rb Sjá síðu 6

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.