Þjóðviljinn - 23.01.1990, Side 6
ERLENDAR FRETTIR
Sovétríkin
Landamærum við Iran lokað
Sovéskar hersveitir lokuðu í
gær landamærum Sovétríkj-
anna og írans að sögn írönsku
fréttastofunnar IRNA.
Tugir þúsunda Azera hafa far-
ið yfir landamærin að undan-
förnu til að taka þátt í islömskum
trúarathöfnum í Iran. Sovétmenn
saka Azera í íran um að senda þá
með vopn yfir til Sovétríkjanna.
írönsk stjórnvöld hafa hvatt
Sovétmenn til að sýna stillingu og
beita ekki vopnavaldi gegn músl-
imum í Azerbaijan. íranska
stjórnin hefur samt forðast að
Jemen
Pólitískum
föngum
sleppt
Stjórnvöld í Suður- og Norður-
Jemen gáfu í gær út sameiginlega
tilskipun um að allir pólitískir
fangar í báðum ríkjunum skyldu
leystir úr haldi.
Ríkisstjórnir Suður-Jemens og
Norður-Jemens undirrituðu í
nóvember uppkast að stjórnar-
skrá sem kveður á um samein-
ingu ríkjanna. Samkvæmt henni
verður ríkisstjórnin sameinuð og
sömuleiðis allar ríkisstofnanir.
Reuter/rb
taka undir kröfur þjóðernissinn-
aðra Azera um sjálfstæði enda
búa að minnsta kosti ein og hálf
miljón Azera í fran. Hætt er við
að þeir kljúfi sig frá íran ef sjálf-
stætt ríki yrði stofnað í Azer-
baijan.
Mörg hundruð þúsund Azerar
búa líka í Tyrklandi og hefur
tyrkneska stjórnin boðist til að
senda læknisaðstoð til Azer-
baijan.
Sovésk yfirvöld hafa hingað til
haldið því fram að þjóðernis-
hreyfing Azera nyti lítils fylgis.
En eftir miljón manna mótmæla-
aðgerðir í Baku í gær viðurkenndi
fréttamaður sovéska sjónvarps-
ins í fréttatíma að almenningur
styddi þjóðernishreyfinguna.
Reuter/rb
Þjóðernissinnar hafa komið upp vegatálmum víðsvegar í Azerbaijan til
að hindra för sovéska hersins.
Mútur
Indverjar stefna Bofors
Indversk stjórnvöld lögðu í gær
fram kæru á hendur sænska
vopnaframleiðandum Bofors
fyrir að hafa mútað indverskum
embættismönnum til að kaupa
sænsk vopn.
Svíarnir eru sagðir hafa greitt
jafnvirði rúmlega þriggja milj-
arða íslenskra króna í mútur til að
tryggja sér vopnapöntun árið
1986 fyrir um áttatíu miljarða
króna.
Rajendra Shekhar fram-
kvæmdastjóri Rannsóknarnefnd-
ar indverska ríkisins segir að
nokkrir indverskir embættis-
menn hafi einnig verið kærðir
fyrir aðild að málinu. Þeim er
meðal annars gefið að sök að hafa
átt aðild að glæpsamlegu sam-
særi, þeir hafi misnotað aðild sína
sem opinberir starfsmenn, dregið
sér fé og falsað skjöl.
Upp komst um mútumálið í
apríl 1987 þegar sænska ríkisút-
varpið skýrði frá mútgreiðslum
Boforsfyrirtækisins til indverskra
embættismanna.
Vishwanath Pratap Singh for-
sætisráðherra Indlands var þá
varnarmálaráðherra í stjórn
Kongressflokksins. Hann sagði
af sér eftir að Gandhi þáverandi
forsætisráðherra neitaði að verða
við kröfu hans um að upplýsa
málið.
Boforshneykslið olli hörðum
deilum á indverska þinginu. Það
varð meðal annars til þess að Ra-
jiv Gandhi boðaði til þingkosn-
inga í nóvember þar sem stjórn
hans missti meirihluta.
Reuter/rb
ísskápurlnn - frystikistan
Endurnýjum ísskápinn og frystikist-
una. Fljót og góð þjónusta. Kæli-
tækjaþjónustan sími 54860.
íbúft óskast
Par óskar eftir íbúð í eða í nágrenni
við miðbæ Reykjavíkur. Leiga sam-
kvæmt samkomulagi. Uppl. í síma
25686 eftir kl. 17.00.
Notaður eldhúsbekkur
úr eldhúsinnróttingunni sem þú ert að
henda óskast til kaups. Þovaldur,
sími 25188 á daginn, 13391 á kvöld-
in- i . -
Att þu
gamlar dýnur sem þú þarfta að losa
við? Við þiggjum það með þökkum.
Vinsamlegast hringið í síma 681331
eða 681310 kl. 9-5.
Toyota Corolla DX ‘87
ekinn 45.000 km, 5 gíra, þriggja dyra
og rauður á litinn. Verð kr. 560.000.
Útborgun 300.000, eftirstöðvar á
skuldabréfi í eitt ár. Á sama stað er til
sölu eldavél á kr. 5.000, afruglari á
kr. 12.000 og Saab 900 GL ‘80, verð
samkomulag. Upplýsingar í síma
34029 eða 33586.
Til sölu Cortina ‘79
óryðgaður og í góðu lagi. Vetrar- og
sumardekk. Selst ódýrt. Uppl. í síma
25373.
Hæ, hæ!
Við erum 4 hressar og vanar stúlkur
sem tökum að okkur hreingerningar
og barnapössun á kvöldin. Við erum í
síma 39166 eftir kl. 17.00. Tinna.
Múraranemi
á síðasta ári tekur að sér ýmis konar
verkefni, breytingar, viðgerðir o.fl.
Sími 78181, Torfi.
íbúð óskast
Einstaklingsíbúð eða stórt herbergi
með eldunaraðstöðu óskast fyrir
reglusaman einhleypan mann. Ör-
uggar mánaðargreiðslur. Sími 82470
kl. 10-18 og 670223 á kvöldin.
Þvottavél - Ferðaþristur
Óska eftir tölunni 4 í samreit Ferða-
þrists, skipti eða greiðsla í boði. Einn-
ig óskast þvottavél til kaups. Aðeins
góð vél kemur til greina. Uppl. í síma
30834.
Greiðabíll á stöð
Vel með farinn greiðabíll á stöð til
sölu á kr. 400.000. Uppl. í síma
40344. JH sölu
notað sófasett og borð á kr. 10.000
og ónotuð þvottavél á kr. 15.000
(Index). Einnig Philips ryksuga á kr.
5.000. Upplýsingar í síma 29498.
Trommusett
Sem nýtt trommusett til sölu. Uppl. í
síma 17369.
Júgóslavía
Flokksræði afnumið
Júgóslavneskir kommúnistar
afsöluðu sér valdaeinokun á
þingi kommúnistaflokksins í gær.
Flokksþingið samþykkti með
yfirgnæfandi meirihluta að leggja
til við þingið að innleiða fjöl-
flokkakerfi í Júgóslavíu.
Hörð andstaða kom hins vegar
fram við tillögu slóvanskra
kom.núnista um að flokkurinn
yrði leystur upp í átta flokka,
einn fyrir hvert fylki í Júgóslavíu.
Tillaga um að kljúfa flokkinn í
tvo flokka, kommúnistaflokk og
sósíalistaflokk, fékk lítinn hljóm-
grunn. Reuter/rb
íran
Alþjóðlegt hungurveridall
Iranskir stjórnarandstæðingar
í útlegð hófu í gær tíu daga hung-
urverkfall til að mótmæla
mannréttindabrotum í íran.
Talsmaður hópsins í Genf
sagði að hungurverkfallið næði til
sex hundruð manns í tólf borgum
víðsvegar um heim.
Hungurverkfallið var boðað
núna til að vekja athygli á heim-
sókn eftirlitsfulltrúa Sameinuðu
þjóðanna, Reynaldo Galindo
Pohl, til írans til að kanna meint
mannréttindabrot.
Pohl, sem er frá E1 Salvador,
kom til Teheran í gær. Þar beið
eftir honum hópur fólks sem vildi
segja honum frá örlögum ætti-
ngja sem hefðu verið líflátnir.
Reúter/rb
Sviss
Suður-Kórea
Fjendur fallast
í faðma
Stjórnarflokkurinn í Suður-
Kóreu og tveir flokkar stjórnar-
andstæðinga hafa ákveðið að
sameinast í einn stóran flokk.
Roh Tae-woo forseti Suður-
Kóreu skýrði frá þessu í gær
ásamt stjórnarandstöðuleiðtog-
unum Kim Young-sam og Kim
Jong-pil. Þeir sögðu að stefnt
væri að því að stofna nýja flokk-
inn fyrir febrúarlok.
Flokkurinn, sem á að heita
Lýðræðislegi frelsisflokkurinn,
kemur til með að hafa yfirgnæf-
andi meirihluta á suður-kóreska
þinginu. Fjölmiðlar í Suður-
Kóreu segja að hann sé byggður á
fyrirmynd Frjálslynda lýðræðis-
flokksins í Japan sem hefur verið
samfleytt við stjórn frá því
skömmu eftir heimsstyrjöldina
síðari.
Fréttum um sameininguna var
tekið vel á verðbréfamarkaðnum
í Suður-Kóreu og ruku verðbréf
strax upp um þrjú prósent.
Leiðtogar Lýðræðislega frels-
isflokksins eru sagðir hafa gert
samkomulag um breytingar á
stórnkerfi Suður-Kóreu. I stað
voldugs forseta, sem er kosinn í
beinum kosningum eins og í
Bandaríkjunum, á að koma for-
sætisráðherra sem þingið kýs.
Eftir sameininguna verður
bara einn stjórnarandstöðuflokk-
ur eftir undir forystu Kim Dae-
jungs. Hann hefur löngum þótt
róttækari en aðrir leiðtogar
stjórnarandstæðinga og hefur
honum meðal annars verið
brugðið um vinsemd í garð kom-
múnista í Norður-Kóreu.
Reuter/rb
Danmörk
Uppgjör við
stalínista
Harðlínumenn urðu undir í
danska kommúnistaflokknum,
DKP, um helgina.
Umbótasinnar undir forystu
Ole Sohn náðu meirihluta í mið-
stjórn flokksins á aukafundi sem
haldinn var um breytingarnar í
Austur-Evrópu og kreppu
kommúnismans. Gamlir stalín-
istar, sem hafa ráðið stefnu
flokksins í yfir 30 ár, urðu að
víkja fyrir umbótasinnum í miðst-
jórninni.
Danski kommúnistaflokkur-
inn hefur ekki haft fulltrúa á þingi
frá 1979. Embættismenn flokks-
ins segja að félagar í honum séu
um sjö þúsund talsins.
Reuter/rb
Vígvæöingardeilur í Alpafjöllum
Kaspar Villiger varnarmála-
ráðherra Svisslendinga segir
nauðsynlegt að endurnýja flug-
flota svissneska hersins þrátt fyrir
háværar kröfur um niðurskurð á
útgjöldum til hermála.
Ráðherrann sagði á blaða-
mannafundi í gær að breytingam-
Eg heití SISSA
Ég er sauður
- ég meína hrútur
SJÁUMST í DANSHÖLLINNIÁIAUGAPDAGINN
ar í Austur-Evrópu og samdrátt-
ur í herafla hernaðarbandalaga
austurs og vesturs drægju ekki úr
mikilvægi þess að endurnýja flug-
flotann sem væri löngu orðinn úr-
eltur. Varnarmálaráðuneytið vill
eyða jafnvirði 120 miljarða ís-
lenskra króna til að kaupa 34 F/
A-18C Hornet orrustuþotur frá
McDonnelI Douglas fyrirtækinu
á næstu árum.
Mikil andstaða er við þessar
áætlanir á svissneska þinginu og
meðal almennings. 35,6% kjós-
enda greiddu atkvæði í nóvember
með tillögu um að leggja niður
svissneska herinn.
Reuter/rb
6 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN