Þjóðviljinn - 23.01.1990, Síða 11

Þjóðviljinn - 23.01.1990, Síða 11
Dyngjudraumar Ríkisútvarpið - Leiklistardeild. Dyngja handa frúnni eftir Odd Björnsson. Leikstjóri: Brynja Benediktsdóttir. Leikendur: Erlingur Gíslason, Helga Backmann, Árni Tryggvason, Vald- imar Helgason, Þorsteinn Gunnars- son, Randver Þorláksson, Saga Jóns- dóttir, Árni Pétur Guðjónsson, Guð- rún Marinósdóttir og fleiri. Fyrir nær þrem áratugum hóf Oddur Björnsson höfundarferil sinn með leikriti í útvarpinu sem kallaðist Einkennilegur maður. Þetta verk vó salt milli tveggja hefða í leikritun þessa tíma. Það vísaði í senn aftur til reykvískra gamanleikja eftirstríðsáranna og fram til þeirra tilrauna sem áttu eftir að blómstra áratuginn á eftir og Oddur átti ekki minnstan þátt í með sínum mörgu leikþáttum. Oddur hefur æ síðan verið skáld hins knappa forms. Hann skoðar jafnan afmarkað þröngt þema og spinnur úr því stutta þætti sem gjarna liggja á ystu mörkum eftir- líkingar, á skjön við hversdags- leikann og yrkja gjarna kunnar kringumstæður og persónur, skopgerir þær og færir í snið fár- ánleikans. Hann hefur einbeitt sér um nokkra hríð að verkum fyrir hljóðvarp og látið aðra miðla vera. íslenskir leikritahöfundar búa reyndar við næsta takmarkaðan markað og eru dæmdir til mein- lætalifnaðar eða áhugamennsku í starfi sínu, leikhúsin eru fá og sýna sjaldan innlend verk, verða líka að vera vandfýsin á hvað þau sýna af efnahagslegum ástæðum, sjónvarpsvettvangur fyrir leik- skáld er smár, kvikmyndir hafa PÁLL BALDVIN BALDVINSSON enn ekki opnast þeim, áhugaleik- hópar hafa ekki fjárhagslegt bol- magn til að taka innlend verk til frumsýninga nema höfundar selji vinnu sína og verk með afslætti. Allar kringumstæður í leiklistar- lífi okkar eru letjandi fyrir inn- lenda höfunda. Leiklistardeild Ríkisútvarpsins virðist þeirra hinsta skjól og greiðir reyndar lágmarkslaun fyrir vinnu þeirra en birtir þó umtalsverða fjölda innlendra verka á ári. Liðnar tvær vikur hefur leiklistardeild hlóðvarps flutt þætti úr þriggja þátta framhalds- verki eftir Odd Björnsson sem kallast Dyngja handa frúnni. Þetta er skopleikur um kaup- mannsfrú í Reykjavík sem tekur upp á því manni sínum og dóttur til hugarangurs að hefja skriftir „lífsreynslusögu“ í svefnherbergi sínu, upplifa bóhemíska óra á pappírnum líklega sökum þess hvað hversdagslífið er snautt af tilbreytingu og skemmtun. Ást- æðurnar eru aldrei ljósar og reyndar er allur söguþráður, per- sónugerð og kringumstæður með miklum ólíkindum og felst skop- færsla leiksins að hluta til í því. Eftir að skriftirnar eru hafnar lík- ar henni aðstaðan illa og lætur kjörbúðareigandann, mann sinn, reisa sér dyngju. Segir síðan af sambandi kerlingar við útibús- stjóra banka, útgefanda og sál- fræðings. Allt er þetta í ólíkinda- tóni skrifað, í leikandi léttum stíl og forleikur Mozarts úr Cosi van tutte sem fluttur er að hluta á undan leiknum gefur tóninn strax í upphafi. Eg verð að játa að ég fann ekki púðrið í þessum tveim þáttum sem þegar er búið að senda út. Víst vinna leikararnir prýðilega með stemmningu textans. Allt er leikandi létt, hratt og hástemmt, en skop Odds finnst mér fara fyrir ofan garð og neðan, samræðurn- ar þungamiðjulausar enda átök öll í verkinu léttvæg. Skopið minnir líka mikið á liðna tíð, heim sem er horfinn. Sálfræð- ingabrandarar ganga vissulega ennþá en hljóma undarlega á skjön við veruleikann og byggja engan veginn á málstíl og við- fangsefnum stéttarinnar í dag sem líklega var vilji til að skop- stæla. Sömu sögu er að segja af hugleiðsluskopi í þriðja þættin- um og reyndar öllu menningar- stússi kerlingar sem var ekki í neinum tengslum við játninga- ástundun kvenna í fjölmiðlum í dag. Hvort tveggja mátti þó skopstæla í ríkum mæli. En þá er ég farinn að heimta annað en Oddur skrifaði. Skopleikur hans átti sýnlega að vera léttur og skemmtilegur en var það ekki. - pbb Kvennalistinn á móti Örstutt athugasemd við Össur Skarphéðinsson á beininu í viðtali við Össur Skarphéð- insson í síðasta Helgarblaði Þjóð- viljans er eftirfarandi haft eftir honum um sameiginlegt framboð minnihlutaflokkanna í borgar- stjórn í Reykjavík: „Afstaða Kvennalistans er alls ekki skýr. Fáeinar forystukonur Kvenna- listans hafna sameiginlegu fram- boði en aðrar forystukonur, sem hafa áður leitt bæði þinglista og borgarstjórnarlistann í kosning- um eru því fylgjandi. Þá tel ég það ekki spurningu að grasrótin í Kvennalistanum er slíku fram- boði fylgjandi, einkum ef A- flokkarnir væru komnir af stað.“ Ekki veit ég hvaðan Össur hef- ur sínar upplýsingar, en þær eru rangar. Afstaða Kvennalistans er mjög skýr í þessu máli. Kvenna- listinn í Reykjavík hefur tekið málið fyrir á þrem félagsfundum. Fyrst þegar Alþýðuflokksfélagið í Reykjavík viðraði hugmyndir um sameiginlegt framboð, svo aftur þegar Birtingarfólk kynnti svipaðar hugmyndir, og nú sfðast þegar Vinnum saman í vor- hópurinn vildi kanna möguleika á sameiginlegu framboði minni- hlutaflokkanna og óflokksbund- ins fólks. Það er engum blöðum um það að fletta að yfirgnæfandi meiri- hluti á þessum fundum var and- vígur hugmyndum um sameigin- legt framboð. Konur fóru í fram- boð upphaflega m.a. vegna þess að þær voru ósáttar við stöðu sína í samfélaginu og þóttust búnar að sannreyna að starfandi flokkar og samtök voru ekki í stakk búin eða höfðu ekki vilja til að leiðrétta það misrétti sem konur eru beittar. Kvennalistakonur telja að hlutverki okkar sé enn ekki lokið. Ingibjörg Hafstað þlÓÐVILJINN FYRIR 50 ÁRUM Umboðsmenn atvinnurekenda taka við stjórn Dagsbrúnar. Churchill skorar á hlutlausu ríkin að ganga í lið með Banda- mönnum. Blöð hlutlausra landa taka þessum tilmælum fjarri. So- vétflugvélar gera margar loftá- rásir á herstöðvar Finna. I DAG 23.janúar þriðjudagur. 23. dagur ársins. Sólarupprás í Reykjavík kl. 10.35 -sólarlag kl. 16.45. Viðburðir Fyrsti togarinn sem íslendingar látasmíða, Jón forseti, kemurtil landsins 1907. Verkalýðsfélag Dalvíkur stofnað 1932. Eldgos á Heimaey 1973. PAGBÓK APÓTEK Reykjavík. Helgar- og kvöldvarsla lyfj- abúöa vikuna 19.-25. jan. 1990 er í Breiðholts Apó- teki og Apóteki Austurbæjar. Fyrrnef nda apótekið er opið um helgar og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til 10 frídaga). Síðarnefnda apótekið er opið á kvöldin 18-22 virka daga og á laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr- nefnda. LÖGGAN Reykjavík sími 1 11 66 4 12 00 Seltj.nes sími 1 84 55 Hafnarfj sími 5 11 66 Garðabær sími 5 11 66 Slökkvilið og sjúkrabilar: Reykjavík sími 1 11 00 Kópavogur sími 1 11 00 Seltj.nes sími 1 11 00 Hafnarfj sími 5 11 00 Garðabær sími 5 11 00 LÆKNAR Læknavakt fyrir Reykjavík, Sel- tjarnarnes og Kópavog er i Heilsu- verndarstöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi- dögum allan sólarhringinn. Vitj- anabeiðnir, simaráðleggingar og tíma- pantanir í síma 21230. Upplýsingar um lækna og lyfjaþjónustu eru gef nar í sim- svara 18888. Borgarspítalinn: Vakt virka daga kl. 8- 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis- lækni eða ná ekki til hans. Landspít- alinn: Göngudeildin eropin 20-21. Slysadeild Borgarspítalans: opin allan sólahringinn sími 696600. Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan sími 53722. Næturvakt lækna sími 51100. Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöts. 656066, upplýsingar um vaktlækna s. 51100. Akureyri: Dagvakt 8-17áLæknamið- stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s. 22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445. Farsími vaktlæknis 985-23221. Keflavík: Dagvakt. Upplýsingar s. 3360. Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s. . 1966. SJÚKRAHÚS Heimsóknarjímar: Landspítalinn: alla daga 15-16,19-20. Borgarspitalinn: virka daga 18.30-19.30, helgar 15-18, og eftir samkomulagi. Fæðingardeild Landspitalans: 15-16. Feðratími 19.30- 20.30. Öldrunarlækningadeild Land- spítalans Hátúni 10 B. Alla daga 14-20 og eftir samkomulagi. Crensásdeild Borgarspítala:virkadaga 16-19, helgar 14-19.30. Heilsuverndarstöðin við Barónsstíg opin alla daga 15-16 og 18.30-19.30. Landakotsspítali: alla daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild: , heimsóknirannarraenforeldrakl. 16-17 daglega. St. Jósefsspítali Hafnarfirði: alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps- spítalinn:alladaga 15-16og 18.30-19. Vestmannaeyjum: alla virka daga 15- 16 og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness: alladaga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra- húsið Húsavík: alladaga 15-16 og 19.30-20. ÝMISLEGT Hjálparstöð RKI. Neyðarathvarf fyrirung- lingaTjarnargötu 35. Sími: 622266, opið allansólarhringinn. Sálfræðístöðin. Ráðgjöf I sálfræðilegum efnum. Sími 687075. MS-félagið Alandi 13. Opið virka dagafrá kl.8-17. Síminner 688620. ’ Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum vestur- götu 3. Opið þriðjudaga kl.20-22, fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22, • sími 21500, símsvari. Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa fyrir sifjaspellum, s. 21500, símsvari. Upplýsingar um eyðni. Simi 622280, beint samband við lækni/hjúkrunarfræðing á miðvikudögum kl. 18-19, annars sím- svari. Samtök um kvennaathvarf, sími 21205. Húsaskjól og aðstoð fyrir konursem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun. Samtökin '78. Svarað er I upplýsinga- og ráðgjafarsíma félags lesbía og homma á mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21— 23. Símsvari á öðrum timum. Síminn er 91-28539. Bllanavakt rafmagns-og hi'.aveitu: s. 27311. Raf magnsveita bilanavakt s. 686230. Vinnuhópur um sif jaspellamál. Sími 21260allavirkadagakl. 1-5. Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga- nema, er veitt I síma 11012 milli kl. 19.30 og 22.00 á fimmtudagskvöldum. „Opið hús“ krabbameinssjúklinga Skógarhlið 8 er „Opið hús” fyrir alla krabb- ameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á fimmtudögumkl. 17.00-19.00. Samtök áhugafólks um alnæmisvand- ann sem vilja styðja við smitaöa og sjúka og aðstandendur þeirra. Hringið í síma 91 - 22400 alla virka daga. GENGIÐ 17. jan. 1990 kl. 9.15. Sala Bandaríkjadollar............. 60.96000 Sterlingspund............. 101.09000 Kanadadollar................. 52.36400 Dönskkróna.................... 9.28910 Norsk króna................... 9.33390 Sænskkróna.................... 9.90090 Finnsktmark.................. 15.26670 Franskurfranki............... 10.57230 Belgískurfranki............... 1.71440 Svissneskurfranki............ 40.44450 Hollenskt gyllini............ 31.87370 Vesturþýsktmark.............. 35.94450 Itölsk lira................... 0.04826 Austurrískursch............... 5.10660 Portúg. Escudo................ 0.40870 Spánskur peseti............... 0.55580 Japansktyen................... 0.41893 Irsktpund.................... 94.98500 KROSSGÁTA Lárétt: 1 guðir4harm- ur6eiri7vatnsfall9 handsama 12 skjal 14 fugl 15lærdómur16 skaut 19 prik 20 ótti 21 álasi Lóðrétt: 2 þannig 3úr- gangur 4 þykkildi 5 sterk 7 styggjast 8 vitr- anlOhótaði 11 vor- kennir13orka17efi18 hreinn Lausnásíðustu krossgátu Lárétt: 1 ásum 4 gerð 6 æru 7 lest 9 miid 12 vik- an14frí15núp16 kænur19raus20páll 21raups Lóðrétt: 2 ske 3 mæti 4 guma5ról7loforð8 svíkur10innrás11 depill 13 kæn 17 æsa 18upp Þriðjudagur 23. janúar 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.