Þjóðviljinn - 23.01.1990, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 23.01.1990, Qupperneq 12
—SPURNINGIN— Telurðu að herða beri reglur um ferðir fólks um hálendið? Bjarney Anna Árnadóttir húsmóðir: Já það finnst mér og þá sér- staklega yfir vetrartímann. Ástæðan er fyrst og fremst til að koma í veg fyrir óþarfa slys sem hljótastafvanbúnaði mannasem þekkja ekki til aðstæðna. Ingibjörg Hafsteinsdóttir meðferðarfulltrúi: Já alveg örugglega. Mér finnst að fólk fari sér að voða eins og\ þessum málum er háttað í dag og nauðsynlegt að koma í veg fyrir það á einhvern hátt. Anna Júlíusdóttir húsmóðir: Já það finnst mér. Sérstaklega í Ijósi síðustu atburða og þá ekki síst út af ótimabærum kostnaði sem hlýst af öllu leitar- og björg- unarstarfi. Guðmundur Jensson kennari: Já alveg örugglega. Leitar- og björgunarstarf er það dýrt að það er brýnt að setja ákveðnari reglur um ferðir fólks um hálendið og þá sérstaklega yfir vetrartímann. Jón L. Óskarsson rafvirki: Já alveg tvímælalaust. Fyrst og fremst vegna þess kostnaðar og hættu sem björgunar- og leitarmenn þurfa að leggja sig í að óbreyttum reglum. SÍMI 681333 Á KVÖLDIN 681348 SÍMFAX 681935 Verður það Dani Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs tilkynnt í í ár? í dag verður tilkynnt hver hlýtur Bókmenntaverðlaun Norður- landaráðs í 29. skipti sem þau eru veitt. Þau verða svo afhent á fundi Norðurlandaráðs í Reykjavík í fe- brúarlok. Ovenjulega margar ljóðabækur eru tilnefndar í ár, sex af ellefu bókum. Hvorki Fær- eyingar né Grænlendingar til- nefna bók frá sér. Við hérna heima leggjum fram skáldsögu og ljóðabók, Gunnlaðar sögu eftir Svövu Jak- obsdóttur - söguna um ungu stúlkuna sem endurheimtir kerið undan miðinum góða sem rænt var frá hofgyðjunni Gunnlöðu í árdaga og helgi þess svívirt - og Dag af degi eftir Matthías Jo- hannessen, fjölbreytta og auðuga ljóðabók. Danir tilnefna líka skáldsögu og ljóðabók. Prœludier eftir Peer Hultberg er óvenjuleg bernsku- saga sem gerist í Varsjá í Póllandi á fyrri hluta 19. aldar og segir frá drengnum Fryc sem elst upp á borgaralegu heimili ásamt syst- rum sínum þrem. Fjölskyldan er ekki efnuð og uppeldið er strangt, börnin verða að læra að spara og fara vel með. Þegar í ljós kemur að drengurinn hefur list- ræna hæfileika er allt gert til að bæla þá niður, hann má ekki verða listamaður. En eðlið vill út -enda heitir drengurinn Frederic Chopin. Hin danska bókin er líka spennandi, það er ljóðabókin Vandspejlet eftir Henrik Nord- brandt sem hefur verið kallaður „skáldkonungur Danmerkur". Hann hefur verið lagður fram tvisvar áður og ljóð hans hafa komið út í íslenskri þýðingu Hjartar Pálssonar. Finnar tilnefna Rósu Liksom annað árið í röð og eru greinilega mjög ánægðir með þessa ungu skáldkonu. Bókin Station Gagar- in er safn örstuttra sagna eða þátta sem Rósa notar til að túlka stemmningar, tilfinningar og ör- lög manna. Hún myndskreytir bókina sjálf. Finnar tilnefna einnig ljóða- bókira Ett sátt att rakna tiden eftir Solveigu von Schoultz sem hefur verið virtur og vinsæll höf- undur síðan fyrir 1940 og er nú orðin 82 ára. Ljóðabókin hennar fjaliar mikið um tímann, fortíð, nútíð og framtíð sem afstæð hug- tök. Norðmenn leggja líka fram reynda skáldkonu, Bergljótu Ho- bæk Haff sem gaf út fyrstu bók sína fyrir 34 árum. Nýja sagan hennar heitir Den guddommelige tragedie og fjallar um nýjan guðs son sem fæðist svartri móður í Suður-Afríku á vorum dögum. Norðmenn leggja fram tvær skáldsögur, hin er Gobi. Djeve- lens skind og ben eftir Tor Age Bringsværd, þriðja bindi í ennþá lengri röð sagna frá miðöldum. Svava Jakobsdóttir Matthías Johannessen Hér segir frá munkinum Eusebi- usi, hirðmanni Chus prins, sem hefur það hlutverk að skemmta prinsinum með sögum. Ein af sögunum sem hann segir er harm- sagan um smiðinn Völund. Svíar leggja fram tvær ljóða- bækur. Önnur heitir Krákorna skrattar og er eftir Ragnar Tho- ursie sem hefur þagað sem ljóð- skáld í 37 ár. En svo mikill styrk- ur og hiti er í bókinni að menn þykjast sjá að hann hafi aldrei alveg hætt að yrkja. Hin bókin er eftir eitt þekkt- asta ljóðskáld Svía, heima og er- lendis, Tomas Tranströmer: För levande och döda. Tomas er meistari formsins og myndmáls- ins sem hann notar í þessari bók m.a. til að lífga þá sem löngu eru dánir en enn eiga sér líf og ganga frá hinum sem halda að þeir lifi en eru löngu dauðir. Samar leggja fram eina bók, Solen, min far, eftir Nils Aslak Valkeapáá, ljóðabók með gömlum ljósmyndum sem sýna brot úr sögu Sama. Þessar myndir hafa mikið heimildagildi og hefur höfundur eytt sex árum í að safna þeim, á Norðurlöndum, annars staðar í Evrópu og í Bandaríkjun- um. Svo notar hann myndirnar til að leiða okkur inn í heim orðsins og láta hvort tveggja spiia saman á listilegan hátt. Undanfarin tíu ár hafa Svíar fengið þessi verðlaun þrisvar, Norðmenn og íslendingar tvisv- ar, Danir, Finnar og Færeyingar einu sinni. Danir fengu verð- launin síðast 1983 (Peter See- berg: Om fjorten dage) og þar áður árið 1974. Framlag þeirra í ár er sterkt og þeim mun líka þykja sem komið sé að þeim. Hvort þeim verður að ósk sinni fréttum við seinna í dag. Víst er að allar bækurnar í ár eru verðug- ir fulltrúar norrænna bókmennta. SA Ljósvakinn Tíu á toppnum í loftinu Mest hlustað á Rúv-rásir og Bylgjuna Stefán Jón Hafstein hjá dæg- urmálaútvarpi Rásar 2 er vinsæl- asti dagskrárflytjandi í útvarpi samkvæmt skoðanakönnun sem Gallup gerði fyrir íslenska út- varpsfélagið. Næst í röðinn er Valdís Gunnarsdóttir hjá Bylgj- unni, en þau tvö eru langt fyrir ofan næstu menn. Stærð úrtaksins var 850 manns en aðeins 40% viðmælenda svör- uðu spurningunni um vinsælasta dagskrárflytjandann. 55 þeirra sögðu Stefán Jón og 47 Valdís. Páll Þorsteinsson er í þriðja sæti með 26 atkvæði, þá Jónas Jónasson 23, Sigurður G. Tómas- son með 20, Bjarni Dagur og Jó- hanna Harðardóttir með 17, morgunhanarnir Jón Ársæll Þórðarson 14 og Leifur Hauks- son 12 og í tíunda sæti er Eva Á. Albertsdóttir með 8 atkvæði. Alls voru tilnefndir 361 dag- skrárflytjendur í könnuninni. Þá var spurt hvaða útvarpsstöð fólk hlustaði mest á. 25,5% hlusta mest á Rás 2. Bylgjan kemur þar rétt á eftir með 24,2%. Þá Gufan með 22,7%. Aðrar út- varpsstöðvar eru með mun lægri prósenttölu; Eff emm 7,9%, Stjarnan 6,8% og Aðalstöðin 4,6%. Könnunin var gerð 11. og 12. janúar sl. og í hópi svarenda voru 44% kariar og 56% konur. -Sáf

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.