Þjóðviljinn - 24.01.1990, Page 3

Þjóðviljinn - 24.01.1990, Page 3
FRETTIR Akureyri Atvinnumálin í brennidepli Um221 miljón verðurvarið tilfjárfestinga. Heimir Ingimarsson: Verðum að berjast með oddi og egg gegn þeirri ískyggilegu þróun sem verið hefur í atvinnumálunum Persónulega er ég hræddastur við þá ískyggilegu þróun sem verið hefur hér á Akureyri í at- vinnumálunum og gegn þeirri þróun þarf að berjast með oddi og egg. Á meðan sitja menn nánast með hendur í skauti og bíða eftir því að reist verði álver hér við Evjafjörðinn. í lok siðustu viku voru 347 manns á atvinnuleysis- skrá, 134 konur og 213 karlar. Við höfum ekki enn formað ákveðnar breytingatillögur við fjárhagsáætlun meirihlutans í bæjarstjórninni við seinni um- ræðuna en þær munu vafalaust taka mið af þessari óheillaþróun og viðspyrnu við henni, sagði Heimir Ingimarsson bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins. I gær fór fram fyrri umræða um fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Akur- eyrar. Samkvæmt henni eru heildartekjur bæjarsjóðs áætlað- ar tæpir 1,3 miljarðar króna á ár- inu. Útsvarstekjur er áætlað að muni verða 744 miljónir króna, rúmar 200 miljónir vegna að- stöðugjalda, tæplega 270 miljónir króna vegna skatta af fast- eignum, tekjur af fasteignum eru hins vegar áætlaðar um 42,6 milj- ónir króna, ýmsar tekjur 17,1 miljón króna og aðrir skattar og tekjur um 3,5 miljónir króna. Af þessum tekjum verður að- eins varið um 221 miljón króna til fjárfestinga og þá er áætlað að lántökur bæjarsjóðs vegna nýrri lána verði um 140 miljónir króna. Hins vegar er gert ráð fyrir að afborganir af eldri lánum verði um 200 miljónir króna. Rekstrar- gjöld bæjarsjóðs á árinu eru áætl- uð tæpur milj arður króna og sam- kvæmt frumvarpinu mun verða varið allt að 291 miljón króna til félagsmála og til fræðslumála rúmlega 165 miljónum króna. Um 72 miljónum króna er áætlað að verja til umhverfismála, yfir- stjórn bæjarins mun kosta um 67 miljónir króna, kostnaðar vegna gatnagerðar er áætlaður rúmlega 61 miljón króna og tæplega 60 miljón króna eiga að raenna til menningarmála svo eitthvað sé nefnt. Seinni umræðan um fjárhagsá- ætlun bæjarsjóðs Akureyrar fer síðan fram eftir þrjár vikur og þá kemur í ljós hvernig hún verður í raun. -grh Lagning parkets á flennistórt gólfið er mikið nákvæmnisverk, en hér sést aðeins helmingur gólfflatar. Mynd: Jim Smart. A Iþróttahús Hafnarfjarðar Opnað á úrslítaleik Áhorfendastœði fyrir 2500-3000 manns. Birgir Björnsson: Stefnum að því að opna fyrir leik FH og Vals Við stefnum mjög stíft að því að FH og Valur geti leikið í hús- inu 7. aprfl og einsog staðan er í dag gæti það orðið úrslitaleikur ABR íslandsmótsins," sagði Birgir Björnsson forstöðumaður í- þróttahúss Hafnarfjarðar í Kapl- akrika aðspurður hvernig verk- inu miðaði. Bygging hússins hefur gengið ágætlega og eru jafnvel líkur á að húsið verði opnað í lok mars. Að sögn Birgis verður hægt að koma um 3000 áhorfendum fyrir án teljandi þrengsla og alls verða átta miðasölulúgur sem er tals- vert meira en í Laugardalshöll. Áhorfendabekkir verða við báð- ar hliðar aðal keppnisvallar, en hægt verður að draga þá inn og mynda pláss fyrir tvo handknatt- leiksvelli. Á milli þeirra verður tjald og skapast þannig tvöföld nýting á húsinu til æfinga. Nú er unnið að lagningu park- ets á gólf íþróttavallarins og er áætlað að ljúka því seinni hlutann í mars. Kostnaður við bygging- una verður líklega um 160-170 miljónir króna. -þóm Breski ferðamaðurinn Fannst látinn Austur-Evrópa ogbarátta sósíalista Atburðirnir í Austur-Evrópu er yfirskrift fundar sem Alþýðu- bandalagið í Reykjavík efnir til nk. laugardag, 27. janúar. Þetta er opinn umræðufundur en málshefjendur eru þau Árni Bergmann ritstjóri, Jórunn Sig- urðardóttir leikari og Sveinn Rúnar Hausson læknir. Eftir stuttar framsögur verða fyrirspurnir og umræður og er Ragnar Stefánsson umræðu- stjóri. Fundurinn er að Hverfisgötu 105, efstu hæð, og hefst kl. 11. -Sáf Breski ferðamaðurinn sem tal- ið var að ætlaði að leggja á Hvannadalshnúk á mánudag í fyrri viku fannst látinn í gær- morgun. Lík hans fannst skammt sunnan þjóðvegarins, eina 7-800 metra frá bænum Hofi í Öræfum þaðan sem hann lagði upp. Ákveðið var að hefja skipu- lagða leit að manninum að nýju í gærmorgun eftir að bakpoki í eigu hans fannst um 200 metra sunnan þjóðvegarins síðdegis í fyrradag. Björgunarsveitarmenn frá Höfn og heimamenn í Öræfum voru rétt að hefja leitina á þeim slóðum sem bakpokinn fannst þegar þeir komu auga á líkið. Ýmislegt þykir benda til þess að Bretinn hafi verið á niðurleið frá jöklinum á fimmtudag og hafi örmagnast í vonskuveðri sem var á þessum slóðum. Er talið líklegt i gær að hann hafi einnig verið orðinn rammvilltur þar sem hann fór yfir þjóðveginn, frá bænum í átt að sjónum. Menn frá lögreglunni á Höfn sóttu líkið síðdegis í gær og verð- ur það sent til krufningar í Reykjavík til að skera úr um dán- arorsök. Bretinn hét Stephen Re- ader, 25 ára, og lætur eftir sig aldraða foreldra á Bretlandi. -gb Brottvikning Beðið um opinbera rannsókn Fyrrum starfsmaður ríkisendurskoðunar vill að skipaður verði setusaksóknari í málinu Fyrrverandi fulltrúi í ríkis- endurskoðun hefur farið þess á leit við Óla Þ. Guðbjartsson dómsmálaráðherra að skipaður verði sérstakur setusaksóknari til að rannsaka atriði tengd brott- vikningu hans úr starfi snemma árs 1984. Fulltrúinn fyrrverandi, Ingi B. Ársælsson, telur ríkis- saksóknara ekki hæfan til að ann- ast rannsókn málsins, þar sem embætti hans sé undir ríkisendur- skoðun sett vegna fjármálalegs eftirlits. Þetta kemur fram í opnu bréfí sem lögmaður Inga hefur sent dómsmálaráðherra. Óli Þ. Guð- bjartsson sagði í samtali við Þjóð- viljann að svar við bréfi lög- mannsins væri í smíðum í ráðu- neytinu og yrði það hugsanlega tilbúið í dag eða á morgun. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um málið. Inga var vikið úr starfi um miðjan janúar 1984 en hann hafði þá unnið hjá ríkisendurskoðun í 27 ár. í aprfl sama ár var gengið frá samkomulagi um bætur hon- um til handa vegna brottvikning- arinnar. í því fólst að Ingi fékk greidd laun í ellefu mánuði sam- kvæmt efri launaflokki stjórnar- ráðsfulltrúa. Fyrir janúar og fe- brúar 1984 fékk hann hins vegar greidd laun samkvæmt lægri launaflokki. Ingi hefur höfðað mál gegn ríkisendurskoðun og fjármálaráðherra fyrir bæjar- þingi Reykjavíkur til að fá leiðréttingu launa fyrir þessa tvo mánuði, svo eftirlaun hans og líf- eyrisréttindi miðist við hinn hærri flokk. Hann hefur í höndum óundirritað afrit bréfs sem hann fékk afhent m.a. í viðurvist Al- berts Guðmundssonar þáverandi fjármálaráðherra, þar sem segir að laun fyrir janúar og febrúar skuli vera samkvæmt hinum efri launaflokki. Lögmaður ríkisins segir hins vegar ósannað að sam- ið hafi verið um afturvirka launa- hækkun fyrir þessa tvo mánuði. Lögmaður Inga hefur ítrekað, en árangurslaust, reynt að afla sér upplýsinga um tilurð þessa skjals, og því hefur verið farið fram á opinbera rannsókn. Halldór V. Sigurðsson ríkis- endurskoðandi vildi ekkert tjá sig um málið í samtali við Þjóðvilj- ann, aðeins það að málið væri nú fyrir bæjarþingi Reykjavíkur. -gb Sleipnir Níu daga vinnustöðvun Bifreiðastjórafélagið Sleipnir hefur boðað alls níu sólarhringa vinnustöðvun í tveimur áföngum á næstunni. Fjögurra daga vinnu- stöðv-un verður frá miðnætti 31. janúar og síðan fimm daga vinnu- stöðvun frá 10. febrúar. „Við teljum það áhrifaríkara að skipta vinnustövuninni á þennan hátt. Við munum að sjálfsögðu viðhalda svipaðri verkfallsvörslu og áður ef þörf krefur,“ sagði Magnús Guð- mundsson formaður Sleipnis í samtali við Þjóðviljann. Hann sagðist hafa átt von á einhverri tillögufrá vinnuveitendum á sátt- afundinum á mánudag, en svo fór ekki. -þóm Miðvikudagur 24. janúar 1990 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.