Þjóðviljinn - 24.01.1990, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 24.01.1990, Blaðsíða 6
ERLENDAR FRETTIR Sovétríkin Skæmhemaður í Azeihaijan Vopnaðar sveitir þjóðernis- sinna í Azerbaijan hafa hafið skæruhernað gegn sovéska hern- um. Þær hafa setið fyrir herflokk- um og skotið á hermenn úr laun- sátri. Gennady Gerasimov talsmað- ur sovésku stjórnarinnar sagðist hafa fréttir um að leyniskyttur hefðu skotið að minnsta kosti fjóra hermenn til bana í fyrrinótt. Og samkvæmt upplýsingum sov- éska innanríkisráðuneytisins féllu tveir sovéskir hermenn þeg- ar skæruliðar réðust á þá úr laun- sátri skammt frá Baku. Róttækir þjóðernissinnar hót- uðu að hefja víðtækan skæru- hernað ef sovéska stjórnin kall- aði ekki herinn burt frá Azerbai- jan í dag. Skipstjórar olíuskipa í höfninni í Baku hótuðu líka að sprengja skip sín í loft upp ef so- véther hyrfi ekki á brott. Trud málgagn sovésku verka- lýðshreyfingarinnar segir að hóp- ar öfgasinnaðra Azera, sem réð- ust á Armena í Baku fýrr í mán- uðinum og rændu íbúðir þeirra, hafi nú ráðist til atlögu við rússneska íbúa borgarinnar. Leiðtogar Alþýðufylkingar Azerbaijans segja samt að hreyf- ing þeirra sé ekki öfgasamtök og að þeir séu reiðubúnir til samn- ingaviðræðna. Háttsettur yfir- maður í sovéska hernum tók undir þetta í gær. Yevgeny Nec- hayev undirhershöfðingi sagði á fréttamannafundi í Moskvu í gær að ögahópar, sem stæðu utan Al- þýðufylkingarinnar, bæru ábyrgð á ofbeldinu í Azerbaijan. Tofik Guseinov einn af leið- togum Alþýðufylkingarinnar sagði í Moskvu í gær að þjóðern- iskröfur Azera stæðu ekki í neinu sambandi við islömsku bylting- una. Stríðið í Azerbaijan væri ekki trúarstríð milli múslima og kristinna manna. Alþýðufylking- in vildi byggja upp lýðræðisríki í Azerbaijan þar sem allir íbúar hefðu sömu réttindi án tillits til trúarbragða eða kynþátta. Átökin við Armena stafi ekki af trúarástæðum heldur af því að Armenar hafi ætlað að sölsa undir sig land sem tilheyri Azer- baijan. Samningaviðræður milli leið- toga Alþýðufylkingarinnar og sovéskra stjórnvalda eru sagðar standa yfir. Sovétstjórn hikaði í gær við að samþykkja kröfur Az- era um að kalla herinn heim. Þingið í Azerbaijan hefur hótað sambandsslitum við Sovétríkin nema brottflutningur hersins hefjist í dag. Nokkuð virðist hafa dregið úr vopnaviðskiptum Azera og Arm- ena eftir að sovéski herinn var sendur til átakasvæðanna. Mikil spenna er enn á landamærum Az- erbaijans og Armeníu en armen- ska fréttastofan Armenpress segir að ekki komi lengur til beinna vopnaviðskipta óaldar- hópa Armena og Azera þar. Lýðrœðisþróun Mongolum lofað kosningum Stjórnvöld í Mongólíu lofuðu í gær að almenningur fengi að kjósa embættismenn til bæjar- og sveitarstjórna næst þegar þeir verða valdir. Hingað til að hafa allir embættismenn í Mongólíu verið tilnefndir af kommúnista- flokknum. Stjórnarandstæðingar í Mong- ólíu hafa á undanförnum vikum staðið fyrir fjöldafundum í höf- uðborginni Ulan Bator þar sem þess er krafist að endi verði bund- inn á alræði kommúnista. Stjórnvöld hafa látið mótmæla- aðgerðirnar afskiptalausar og í fyrradag sagði talsmaður ríkis- stjórnarinnar að til greina kæmi að taka upp fjölflokkakerfi í landinu. Ríkisútvarpið í Mongólíu skýrði frá því í gær að ákveðið hefði verið að afnema ýmis for- réttindi flokksfélaga. Almenn- ingur fær aðgang að sjúkrahúsi og hvfldarheimili sem hingað til hafa einungis verið ætluð háttsettum flokksfélögum. Sérverslunum fyrir flokksfélaga verður lokað og einkanot flokksforingja af opin- berum bifreiðum verða takmörk- uð. Alþýðulýðveldið Mongólía nær yfir víðáttumiklar sléttur á milli Sovétríkjanna og Kína. íbú- arnir eru um tvær miljónir en um þrjár miljónir Mongóla búa innan landamæra Kína í Innri Mongólíu. Kfnversk stjórnvöld eru sögð hafa áhyggjur af stjórnmálaþró- unin í Mongólíu geti orðið til að kynda aftur undir kröfur kínver- skra stjórnarandstæðinga um lýð- ræði. Reuter/rb Stjórnarandstæðingar í Mongólíu héldu fjöldafund í Ulan Bator á sunn- udag þar sem þeir kröfðust endaloka valdaeinokunar kommúnista. Afvopnun Ungverjar losna við sovéska herínn Miklos Nemeth forsætisráð- herra Ungverjalands skýrði frá því í gær að Sovétmenn hefðu fallist á að kalla all herlið sitt burt frá Ungverjalandi á næstunni. Nemeth hefur farið tvisvar til Moskvu á undanförnum sex vik- um til viðræðna um brottkvaðn- Rúmenía Stjómvöld stofna flokk Þjóðfreslisfylking, sem hefur stjórnað Rúmeníu frá því að Ce- ausescu var steypt af stóli, lýsti því yfir í gær að henni yrði breytt í stjórnmálaflokk sem tæki þátt í kosningum í maí. Forystumenn fylkingarinnar höfðu áður sagt að hún yrði lögð niður strax eftir kosningarnar. Silviu Brucan félagi í fram- væmdastjórn Þjóðfrelsisfylking- arinnar sagði að fulltrúum frá Sameinuðu þjóðunum yrði boðið að fylgjast með kosningunum. Upphaflega stóð til að halda þær strax í apríl en þeim var frestað til 20. maí til að gefa nýjum stjórnmálaflokkum tækifæri til að skipuleggja sig. Reuter/rb ingu sovéska hersins. Hann segir að Nikolai Ryzhkov forsætisráð- herra Sovétríkjanna hefði verið sér sammála um að engar pólit- ískar eða hernaðarlegar forsend- ur væru fyrir að hafa sovéska her- inn áfram í Ungverjalandi. Sovétmenn hafa haft yfir fimmtíu þúsund hermenn í Ung- verjalandi frá því að þeir brutu niður uppreisnina þar árið 1956. Jafnhliða brottkvaðningu sov- éska hersins ætla Ungverjar sjálf- ir að fækka mikið í eigin herafla. Ungverska stjórnin skýrði frá því í desember að stefnt væri að því að fækka um fjórðung í hernum fýrir árið 1992 til viðbótar við níu prósenta fækkun á þessu ári sem þegar hafði verið ákveðin. Náttúruvernd Matyas Szuros forseti Ung- verjalands hefur látið í ljós þá skoðun að Ungverjar ættu hugs- anlega að segja sig úr Varsjár- bandalaginu og gerast hlutlausir jafnvel áður en hernaðarbanda- lögin í austri og vestri yrðu leyst upp. Reuter/rb Blómabanki á Svalbarða Norsk stjórnvöld vilja að stofn- aður verði alþjóðlegur blómabanki eða fræhirsla á Sval- barða til að koma í veg fyrir út- rýmingu sjaldgæfra blóma, grasa og annars gróðurs. Norðmenn segja kaldar og djúpar námuholur á Svalbarða tilvaldar til að varðveita fræ af öllum jarðarinnar gróðri. Mun öruggara sé að geyma fræin í nátt- úrulegum kæli en í frystihúsum þar sem vélabúnaður gæti brugð- ist. Vísindamenn segja að mörg hundruð þúsund plöntutegundir séu til í heiminum. Margar þeirra eru í útrýmingarhættu vegna eyðingar regnskóga, mengunar og loftslagsbreytinga. Umhverf- isslys og kjarnorkustyrjöld gæti líka útrýmt gróðri á stórum svæð- um í einu vetfangi. Þá væri hægt að þíða fræ frá Svalbarða og rækta nýja stofna af horfnum plöntutegundum. Torun Dramdal ritari þróun- arráðuneytis Norðmanna segir að Norðmenn ætli að bjóðast til að standa straum af því að byggja fræhirslurnar en að þeir vilji fá Sameinuðu þjóðirnar til að sjá um daglegan rekstur. Áætlaður stofnkostnaður er um fimmtíu miljónir íslenskra króna. Hugmyndir um fræhirslur eða genabanka til að varðveita jurta- líf jarðar hafa áður verið ræddar hjá Sameinuðu þjóðunum. Ýms- ar þjóðir hafa sjálfar stofnað litl- ar frægeymslur. Norðmenn geyma nú þegar fræ ýmissa korntegunda í lítilli fræhirslu á Svalbarða. Vísindamenn segja að hægt sé að geyma fryst fræ óskemmd í að minnsta kosti tíu til tuttugu ár á þurrum og köldum stað. En æskilegt sé þá að skipta og fá ný fræ. Geymslutíminn getur samt hugsanlega orðið miklu lengri og eru dæmi um að fræ hafi varðveist í þúsundir ára í gröfum egypskra faraóa. Ui.n(,.r/rh ísrael Gyðingum bjargað frá Baku Yitzhak Shamir forsætisráð- herra ísraels sagði í gær að ísra- elsstjórn hefði gert sérstakar ráð- stafanir til að bjarga gyðingum frá Baku og öðrum borgum í Az- erbaijan þar sem nú geisa hörð þjóðernisátök. Talið er að um eitt hundrað þúsund gyðingar séu búsettir í Baku. Vígorð gegn gyðingum hafa verð máluð á veggi í borg- inni ásamt vígorðum gegn Arm- enum og Rússum. Búist er við að stór hluti þeirra reyni að komast til ísraels. Embættismenn í utanrfkis- ráðuneyti ísraels segja að um 750.000 gyðingar í Sovétríkjun- um hafi sótt um að flytjast til ísra- els. Reiknað sé með að um 250.000 innflytjendur komi frá Sovétríkjunum á næstu þremur árum. Leiðtogar Palestínumanna á hernumdu svæðunum í Palestínu hafa látið í ljós áhyggjur vegna fjöldaflutninga sovéskra gyðinga til ísraels. Margir þeirra setjast að sem landnemar í Palestínu. Reuter/rb Þýskaland Stanslaus austanstraumur Ekkert lát hefur orðið á fólks- flutningum Austur-Þjóðverjar til Vestur-Þýskaland á nýju ári. Fólksstraumurinn yfir landa- mærinn hefur þvert á móti aukist. Samkvæmt upplýsingum vest- ur-þýska innanrfkisráðuneytisins fluttust 33.530 Austur- Þjóðverjar vesturyfir fyrstu þrjár vikur ársins samanborið við 344.000 allt árið 1989. Þessir miklu fólksflutningar hafa orðið til þess að vestur-þýsk stjórnvöld telja sig tilneydd að skera niður aðstoð við aðkomu- menn frá Austur-Þýskalandi. Þau óttast aukið atvinnuleysi og húsnæðisskort í Vestur-Þýska- landi ef ekki tekst að draga úr fólksstrauminum. Vestur- þýska stjórnin telur hættu á að áframhaldandi fólksflutningar vestur yfir landamærin geti leitt til efnahagshruns í Austur- Þýskalandi. Það hefði ekki síður alvarlegar afleiðingar á Vestur- Þýskaland og gæti torveldað sam- einingu þýsku ríkjanna. Reuter/rb Krabbamein Eftirlit með hundum Norskir hundaeigendur hafa verið beðnir um að útfylla ítar- lega spurningalista ef hundar þeirra hafa fengið krabbamein. Dýralæknaháskólinn í Osló stendur að könnuninni sem nær til þriggja norskra sveita. Mark- miðið er að kanna hvort umhverfi hefur áhrif á krabbameinstíðni meðal hunda, hvaða hundateg- undum er hættast við krabba- meini og hvort það sé arfgengt. Reuter/rb 6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 24. janúar 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.