Þjóðviljinn - 03.03.1990, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 03.03.1990, Qupperneq 1
Laugardagur 3. mars 1990 43. tölublað 55. árgangur. Skýjum ofar. Þeir sækja stíft á brattann þessir ungu menn sem Ijósmyndari Þjóðviljans rakst á í sjöunda himni nú í vikunni. En þótt fyrirstaðan virtist lítil, þá hafði aðdráttarkraftur jarðarinnar ekki slegpt af þeim beislinu, þannig að þeir gerðu sér lítið fyrir og höfðu plánetuna í eftirdragi með öllu því fargani sem henni fylgir. Geri aörir betur. Ljósm. Kristinn. Norðurlandaráð Þarf yfirþjóðlegt vald? Bjarne MörkEidem: Verðum að rœða hvortNorðurlandaráðþarfekki yfirþjóðlegt valdtilþess aðgera starfið skilvirkara Ee held við verðum að ræða hvort Norðurlandaráð á ekki að fá yfirþjóðlegt vald til þess að vinna ráðsins geti orðið skilvirk- ari. Hingað til höfum við lagt til og beðið ríkisstjórnir um að framkvæma hluti, en getum ekki falið ríkisstjórnum að fram- kvæma. Þetta verðum við að ræða án fordóma, sérstaklega með hliðsjón af þróuninni í Evr- ópu, sagði Bjarne Mörk Eidem, talsmaður jafnaðarmanna á þingi Norðurlandaráðs, við Þjóðvilj- ann í gær. Eidem er þingmaður Verka- mannaflokksins í Noregi og fyrrum sjávarútvegsráðherra. Hann situr í forsætisnefnd Norðurlandaráðs og er formaður í skipulagsnefnd. Eidem varpaði hugmyndinni um yfirþjóðlegt vald Norður- landaráðs fram í umræðum á síð- asta degi þingsins. Hugmyndin um yfirþjóðlegt vald hefur ekki verið rædd ítarlega á vettvangi ráðsins, en ljóst er að hún mun víða mæta mótspyrnu. Páll Pétursson, forseti ráðsins, sagði til dæmis við Þjóðviljann í gær að hann væri andvígur hug- myndinni um löggjafarvald ráðs- ins. Anker Jörgensen kom hins vegar í pontu og tók undir orð Eidem, enda hefur málið verið rætt í hópi jafnaðarmanna. Jörg- ensen sagðist m.a. geta hugsað sér yfirþjóðlegt vald í umhverf- ismálum. Bjarne Mörk Eidem sagðist í gær geta hugsað sér að yfirþjóð- legt vald gæti í fyrstu umferð náð til fjárhagsáætlunar ráðsins. „Pá yrði ráðið að vinna á allt annan hátt en nú. Ráðið hefur haft tilhneigingu til þess að sam- þykkja allt án þess að setja hluti í forgangsröð, en þessu yrði að breyta ef ráðið hefði ákvörðunar- vald,“ sagði Eidem við Þjóðvilj- ann. „Þessi hugmynd hefur ekki verið rædd að ráði og ég veit ekki hvort einstök lönd munu geta sætt sig við þetta, en þetta getur verið leið til þess að ná betri ár- angri í Norðurlandaráði. Því það eigum við að gera og samstarf okkar á að halda áfram.“ En er þetta yfirþjóðlega vald ekki einmitt eitt af því sem menn óttast varðandi Evrópubanda- lagið? „Jú, en nú verðum við að velja. Ef við viljum hafa möguleikann á að taka ákvarðanir t.d. í um- hverfismálum, verðum við að koma upp yfirþjóðlegu valdi að einhverju leyti. Mengun virðir engin landamæri. Við getum haldið áfram að ráðleggja en þá tekur þetta mun lengri tíma og þegar umhverfið á í hlut er tíminn að verða naumur. Ég segi ekki að þessi hugmynd hafi verið rædd svo ítarlega að henni megi hrinda í framkvæmd, en við viljum að hún verði rædd,“ sagði Bjarne Mörk Eidem. Þingi Norðurlandaráðs lauk skömmu eftir hádegi í gær, en þingið kemur næst saman í Kaup- mannahöfn að ári. Nema sam- þykkt verði að efna til sérstaks aukaþings um samskipti Norður- landa við önnur Evrópulönd eins og fulltrúar vinstri sósíalista hafa lagt til. rí?g Sjá síðu 4 Suður-Afríka Islenskt viðskiptabann áfram Islensk stjórnvöld koma ekki til með að aflétta viðskiptabanni á Suður-Afríku fyrr en stjórnvöld þar ganga til móts við kröfur Afr- íska þjóðarráðsins um mannrétt- indi og afnám aðskilnaðarstefn- unnar sem mismunar fólki eftir litarhætti. Pritz Dullay sérlegur fulltrúi Afríska þjóðarráðsins ræddi í gær við Jón Baldvin Hanníbalsson utanríkisráðherra og Steingrím Hermannsson forsætisráðherra. Þeir fullvissuðu hann um að stefna íslands væri óbreytt. Ekki stæði til að svo komnu máli að aflétta viðskiptahömlum á Suður-Afríku frá því í janúar á síðasta ári. íslendingar fylgdu sömu stefnu og önnur Norður- lönd í þessu máli. Dullay lagði áherslu á mikil- vægi áframhaldandi efnahagsþ- vingana til að neyða hvítu minni- hlutastjórnina í Suður-Afríku til að aflétta kynþáttakúgun og semja við Afríska þjóðarráðið um að koma á lýðræðislegu þjóðfélagi. Jafnvel þótt stjórn- in hefði leyst Nelson Mandela úr haldi og leyft starfsemi Afríska þjóðarráðsins væru aðskilnaðar- lögin enn í gildi og meirihluti íbúa Suður-Afríku nyti ekki almennra mannréttinda. Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra sagði ekki útilokað að íslendingar gætu styrkt Afr- íska þjóðarráðið á einhvern hátt. Hann lofaði að kanna hvort ekki væri mögulegt að beina hluta þró- unaraðstoðar íslendinga til stuðnings við samtökin. -rb Sjá nánar viðtal við Pritz Dullay um baráttu Afríska þjóðarráðsins á bls. 6.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.